Alþýðumaðurinn - 28.08.1951, Síða 3
Þriðjudagur 28. ágúst 1951
ALÞÝÐUMAÐURINN
3
f
Nnæbjörii Hagmi§§on
vélstjóri
Þann 18. þ. m. andaðist á
heimili sínu hér í bænum Snæ-
hjörn Magnússon, vélsmiður, eft-
ir stutla en þunga legu.
Fæddur var hann 21. febrúar
1890 í Skógum á Þelamörk, son-
ur hjónanna Magnúsar Magnús-
sonar frá Gili og Jóhönnu Þor-
steinsdóttur frá Oxnhóli, sem
enn er á lífi 92 ára gömul. Ólst
Snæbjörn upp hjá foreldrum sín-
um til 7 ára aldurs, að hann fór
í fóstur iil Bjarna Jóhannessonar
að Reykjum í Hjaltadal, en 16
ára gamall byrjaði hann að læra
trésmíði og lauk því hjá Gunnari
Sigurðssyni á Sauðárkróki. Gunn-
ar gerði út lítinn mótorbát og
þar komst Snæhjörn í kynni við
mótorvélar, og varð hfsstarf hans
upp frá því vélgæzla og vélsmíð-
ar. — Til Bolungavíkur fór hann
1910 og var þar einn vetur við
nám hjá T. Tomsen, sem þá rak
þar vélaverkstæði, en síðar á ísa-
firði. Seinna fluttist hann til
Hríseyjar og vann hjá Jóni Sig-
urðssyni frá Hellulandi í Skaga-
firði, sem þá rak þar vélaverk-
stæði. Árið 1914 setti hann upp
eigið verkstæði á Dalvík, en 1916
fluttist hann hingað til bæjarins,
og stundaði vélgæzlu á sumrum,
en vélsmíðar á vetrum.
Til Siglufjarðar fluttist Snæ-
björn árið 1919 og rak þar véla-
verkstæði til 1930, að hann setti
hér á stofn vélaverkstæðið
„Júní“, sem hann starfrækti,
ásamt sonum sínum til ársins
1942, að hann seldi það og vann
síðan við rennismíðar hjá vél-
smiðjunni „Oddi“ þar til fyrir
ári síðan að hann hætti þar, en
vann síðasta árið í vélsmiðju
Magnúsar Árnasonar.
Snæbjörn kvæntist 1. júní
1914 Svanborgu Jónasdóttur,
systur Slefáns Jónassonar, skip-
stjóra, ágætri dugnaðar- og'at-
orkukonu og lifir hún mann sinn.
Eignuðust þau hjón 3 syni, Stef-
án vélsmið, Ottó blikksmið og
Magnús bifreiðastjóra. Hafa þau
hjónin Svanborg og Snæbjörn
búið hin síðari árin, ásamt son-
um sínum og tengdadætrum, í
Eiðsvallagötu 13 hér í bænum,
en það hús byggðu þau fyrir
nokkrum árum.
Snæbjörn var mjög félagslynd-
ur maður og sá glöggt nauðsvn
þess, að menn byndusl félags-
böndum til þess að koma áhuga-
málum sinum í framkvæmd. —
Þegar Vélstjórafélag Akureyrar
var stofnað 1919, var liann einn
af stofnendum þess, og þá strax
Iabrousse, kvikmv ndatökustj óri,
en liann er fastur starfsmaður hjá
skrifstofu Efnahagssamvinnu-
stjórnarinnar fyrir Evrópu í
París, og Pierre Levent, franskur
kvikmyndalökumaður. Þeim til
aðstoðar er Magnús Jóhannes-
son, útvarpsvirki, en hann hefir
fengizt allmikið við töku kvik-
mynda hér á landi.
kvaddur til trúnaðarstarfa fyrir
félagið, og er hann fluttist hing-
að lil bæjarins aftur, gekk hann
að nýju í Vélstjórafélagið og tók
þátt í störfum þess og áhugamál-
um til hins síðasta. — Hann var
einnig félagi í Iðnaðarmannafé-
lagi Akureyrar og Sveinafélagi
járniðnaðarmanna.
Trúmaður var Snæbjörn mikill
og óhvikull í trú sinni. Gekk
hann um 1928 í Sjónarhæðar-
söfnuðinn og vann þar ætíð síð-
an mikið og óeigingjarnt starf.
Snæbjörn var mikill maður
vexti og rammur að afli, gjörhug-
ull að hverju, sem hann gekk, lét
lítt á berast, en gjörhugsaði hvert
mál áður én hann framkvæmdi.
Mjög var liann prúður maður í
allri framkomu, og vildi ekki
vamm sitt vita í neinu.
Góðra drengja er gött að minn-
ast.
/.
JÖRUNDUR
SMIÐUR
Mjög efnismíkil ný norsk-
sænsk stórmynd.
Myndin er byggð á sam-
nefndri skáldsögu eftir
Jakob B. Bull
EVA STRÖM
GEORGE FANT
ELOV AHRLE
LÍTILL DÍVAN og BORÐ
til sölu með iækifærisverði.
Uppl. í síma 1518.
i/2 líters
á kr. 23.50,
nýkomnir.
Kflopfélað Verhflmflnna
Jarðarberjasulta
Áppelsínusafi
útlend,
nýkomið.
Kaupfélag Verhamanna
Vilja flí I miljón monnn
flytji flrlejjd frá Evrópu
Efnahagsnejnd Sameinuðu þjóð-
anna hefir reiknað út að um ein
miUjón útjlytjenda á ári í 5 ár
myndi bœta efnahag Evrópu þjóð-
anna stórlega. A ráðstefnunni í
Genf er nú einmitt rœtt um hvern-
ig sameinuðu þjóðirnar geti orð-
ið að liði við þessa jlutninga á
jólki úr hinni yjirfylltu Evrópu
til þeirra landa, sem skortir vinnu-
afl, sem sé Afríku, Ástralíu, Nýja
Sjálands, Norður- og Suður-Ame-
ríku.
Mörg þeirra landa, sem ekki
eru fullbyggð vilja gjarnan auka
íbúatölu sína og óska sérstaklega
eftir fólki með sérkunnáttu. Á
hinn bóginn eru íbúar sumra
landa fleiri en löndin geta fætt
með góðu móti. Alþjóðavinnu-
málastofnunin álítur að 1 milljón
manna (fjölskyldur þessa fólks
ekki með taldar) gætu bætt lífsaf-
komu sína -stórlega með því að
flylja úr landi og hjálpa þannig
heimalandi sínu um leið.
En útflutningurinn kostar mik-
ið og er meira vandamál en fólkið
ræður við vegna þess, að það er
venjulega fátækasta fólkið, sem
hyggur á brottflutning. Verður
þetta fólk þess vegna að njóta að-
stoðar hins opinbera eða alþjóða-
samtaka ef úr flutningum á að
verða.
Þau lönd, sem tekin voru með
í reikninginn eru: Vestur-Þýzka-
land, Italía, Grikkland, Malta,
Holland, Austurríki og Triest. —
Brellandseyjar voru ekki taldar
með.
Löndin, sem óska eftir inn-
flytjendum eru Ástralía, sem
getur tekið á móti 200 þúsund
innflytjendum árlega á næstu
fimm árum, Kanada, sem getur
tekið við 150 þúsund, ísrael, sem
óskar eftir 200 þúsund á þremur
árum, Nýja Sjáland, Suður-Afríka
og Rhodesia, sem vilja taka við
nokkrum tugum þúsunda, en ekki
eins mörgum og hin fyrst töldu
lönd.
Til viðbótar þessu eru önnur
lönd, sem líkleg eru til að
veita innflytjendum móttöku. Þau
eru Argentína, sem hefir veitt vfir
150 þúsund innflytjendum mót-
töku undanfarin þrjú ár og getur
tekið á móti öðru eins um nokk-»
urt skeið. Brazilía, Uruguay og
Chile taka einnig við tugum þús-
unda árlega, en önnur lönd í Suð-
ur-Ameriku takmarka tölu inn-
flytjenda við nokkur þúsund á
ári.
Nýja Bíó
R E B E K K A
Eftir hinni frægu skáldsögu
Daphne du Maurier
Aðalhlutverk:
Laurence Oliver
Joan Foniaine
George Sanders
C. Aubrey Smith.
KÆLIVÉLAR í VÉLBÁTA
Fyrir nokkrum dögum kom til
Hamborgar vélbáturinn FH-465.
Hann hefir verið að veiðum í
Norðursjónum og reynt smáfr-ysti-
vél, sem verkfræðingafyrirtækið
Liibeck-Schlutup hefir smíðað
fyrir vélbáta. Frystikerfið er
mjög lítið og auðvelt í meðförum.
Kælivélin gengur hydrauliskt
og er innbyggð í kassa. Vélarnar
og kerfið vegur aðeins 6—10%
af venjulegum þunga kolsýruvéla
og þriðja hluta af nýtízku freon-
kerfi.
Aðalverkefnið, sem er að varð-
veita aflann eins nýjan og unnt
er, leysir vélin betur af hendi en
hinn bezti ís og þurrís getur einn
út af fyrir sig. Ef fiskurinn er ís-
aður eins og venjulega, fyrir-
byggja vélarnar, að ísinn bráðni
og leysingarvatnið, sem venjulega
rennur úr honum, þrýsti sér inn
í fiskinn og skemmi bragð hans
og gæði. Á þennan hátt er unnt
að geyma fiskinn óskemmdan
lengur en undir venjulegum kring
umstæðum. Slík frystikerfi í vél-
bátum myndu einnig spara ís mik-
ið.
Víðir.
PÚÐURSYKUR
KANDÍSSYKUR
Hafnarbúðin h.f.
Útibú Eiðsvallagötu 18.
Verður næsfa úrræði
gengishækkun?
Orðrómur kvað ganga um það
í Reykjavík, að r'kisstjórnin hug-
leiði nú nýjar tilraunir með geng-
isbreytingu ísl. krónunnar, að
þessu sinni gengishœkkun. Sagt
er, að engin geti tapað á þessu
nema útgerðin, en svo sem menn
muna, þá var gengislækkunin
fyrst og fremst gerð fyrir hana
að því er auglýst var. Kemur því
mörgum spánskt fyrir sjónir, ef
útgerðin er orðin svo vel rekin
allt í einu, að hún þoli gengis-
lækkun nú, hafi hún þurft gengis-
hækkun nú, hafi hún þurft gengis-
ekki, sem getur skeð í galdra-
heimi fjármálanna?
*
Sjötugur varð í gær Bjarni Bene-
diktsson á Munkaþverá.
Hjúskapur. — S. 1. fimmtudag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú Guð-
ný Pálsdóttir (Einarssonar) og Þórodd-
ur Jónasson, læknir.
Hjónaejni: Ungfrú Erla Sigurðar-
dóttir og Jóhann Sigurbjörnsson, sjó-
maður, Akureyri.
Ungfrú Helga Jónasdóttir (læknis
Sveinssonar) og Jóhann Jndriðason
(rafvirkjameistara IJelgasonar).
Brúðkaup. 18. ágúst s. 1. voru gefin
saman í hjónaband af séra Pétri Sig-
urgeirssyni ungfrú Margrét Guðlaugs-
dóttir og Aðils Kemp. Heimili þeirra
verður Laugarvegur 22, Rvík.
HJARTKÆRAR ÞAKKIR til allra fjær og nær, sem
sýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall og jarðarför
mannsins míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
Snæbjörns Magnússonar, vélsmiðs.
Guð blessi ykkur öll.
Svanborg Jónasdóttir, synir, tengdadœtur og
barnabörn.
TILKYNNING
Vegna sívaxandi erfiðleika við innheimtu, og hækkandi
verðlags, sjá undirritaðar kolaverzlanir sér ekki annað fært,
en taka fyrir útlán á kolum.
Þeir viðskiptamenn, sem panta kol í sírna, eru vinsamlega
beðnir um að hafa greiðslu handbæra, þegar komið er með
kolin.
Akureyri, 20. ágúst 1951.
Kaupfélag Eyfirðinga. Ragnar Ólafsson h.f.
Kaiiistell
6 manna á kr. 454.00
12 manna á kr. 614.00
Matarstell
12 manna á kr. 260.00
nýkomið.
Kaupfélag Verkamanna