Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1938, Síða 5

Dýraverndarinn - 01.04.1938, Síða 5
Misskilin ást á dýrum. Margir menn, enda þótt þeir hafi yndi af dýruni, baka þeim samt þjáningar meS umhyggju sinni og afskiftasemi, og veldur því vanþekking þeirra á eSli og lífsþörfum viSkomandi dýra. Þeir halda, að alt það, sem þeim sjálfum finst gott og þægilegt, hljóti að vera þa‘5 líka fyrir dýrið, og á þenna hátt valda þeir þvi ýmsum óþægindum. Margir dýra- vinir falla þvi miSur í þá villu, að ,,humanisera“ d'ýrin of mikiö, ætla þau of lík manninum, og af þessum misskilningi er svo sprottin ýms röng með- ferð dýra. — T. d. er skynheimur dýra meö alt ööru móti en skynheimur manna.. Þefskynjun margra þeirra er svo næm, að furöu gegnir. Mörg dýr lifa aöallega í „þefheimi“, en ekki í „sjónar- heimi“, því a'S meS þefskynjuninni fá þau vitneskju um fjarlægðir, eSli og ástand hlutanna og afstöSu þeirra til sín. ÞaS nægir t. d. aS sjálfsögSu ekki, aS þess sé gætt viS slátrun, aS dýriS sjái ekki, þegar hin dýrin eru tekin af lífi. Það verður að koma í veg fyrir að dýrið finni blóðlyktina, því aS hún ein nægir til þess aS fylla þaS dauSans-skelfingu. AnnaS dæmi um -þaS, aS vér tökum ekki nægilegt tillit til þess, sem dýrunum finst óþægilegt, heldur fylgjum hinni röngu reglu, aS dæma alt út frá sjálfum oss, er þaS, aS' hundar hafa megna óbeit á ýmsum ilmvötnum. Hún er þeim sjálfsagt öllu ó- þægilegri og andstyggilegri en oss er hinn versti óþefur. Ættu frúr þær og ungfrúr, sem hafa þaS til siös, aS strá ilmvötnum á hunda, til þess „aS taka af þeim hundalyktina“, aS minnast þessa. Vér verS- um aS hafa þaS hugfast, aS aSlögunarhæfileiki dýr- anna aö nýjum lífsskilyrSum og hreyttum lifnaSar- háttum, sem menningin hefur i för meS sér, er næst- um því óendanlega minni en aSlögunarhæfileiki mannsins. DýriS líSur jafnt, hvort sem röng meS- ferS þess stafar af vanþekkingu, hugsunarleysi eSa kaldlyndi og illmensku. Hinn sanni dýravinur verS- ur því aS gera sér far um aS skilja eSli og lífs- þarfir dýranna, og hvaSa skilyrSi þeim eru nauS- s'ynleg, til þess aS þau geti lifað nokkurnveginn eðli sínu samkvæmt. Því aS annars þjáist dýriS, hversu mi-kiS sem dekrað er viS þaS og hversu vel sem sýnist fara um þaS. Þessa náttúrufræSilegu þekkingu má enginn dýravinur vanrækja a'S afla sár. MannúSlegt viShorf á dýrunum er ef til vill ekki svo mjög i því fólgiS, aö hafa yndi af þeim, hel-dúr fyrst og fremst í liinu, aS vilja aldrei valda dýrum óþörfum þjáningum, a'ð sjá fyrir því, að lífs- skilyrSin, sem þau húa viS. séu þannig. aS eSli þeirra sé ekki misþyrmt. Borgarbúar, sem hafa dýr hjá sér, ættu því altaf aS hafa þaS hugfast, hvort þeir geti látiS dýrunum í té lífsskilyrSi viS þeirra hæfi; annars ættu þeir ekki aS hafa dýrin hjá sér. Margir borgarbúar, sem safna aS sér allskonar dýr- um, svo sem hundúm, köttum og kanarífuglum, eru langt frá því, aS vera nokkrir dýravinir, i bestu merkingu orSsins. Þeir hafa dýr þessi hjá sér sjálf- um sér til skemtunar, en hirSa litiS eSa ekkert um hitt, hvort dýrin sjálf lifa sér til ánægju. Sá, sem neitar sér um aö hafa dýr hjá sér, þegar hann veit aS hann getur ekki veitt þeím hentug lífsskilyrfi, svo aS þau geti lifaS fullkomnu lífi á sinn hátt, (t.

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.