Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1950, Blaðsíða 5

Dýraverndarinn - 01.06.1950, Blaðsíða 5
DYRAVERNDARINN 27 drukknaði niður um ís og fannst úti í Lagar- fljóti.“ Við þessa óvæntu fregn er sennilegt, að ég hafi dregið andann eitthvað dýpra um leið og ég leitaöist við aö heyra nánar um at- buröinn. — Þaö er hvort tveggja, að mjög nær- göngular spurningar geta stundum stappað nærri ókurteisi, við lítt þekkta menn — og hins vegar má heldur ekki vænta þess, að sveitamaður telji það miklum tíðindum sæta, þó að ein hesttnmta hrökkvi upp af í vorleys- ingunum. Hér lágu bara fullnægjandi gögn fyrir því, að hesturinn var dauöur, en hvaða tildrög voru að dauða hans, það skipti engu máli. Þessa dauðafregn geymdi ég lengi í ein- rúmi og sagöi engum frá. Við það varð ekki ráðið, þó að hugurinn yrði gripinn viðkvæmni og söknuði, þegar hann leit yfir löngu liðnar ánægjustundir, og ljúfar minningar frá sam- verustundunum þyrluðust upp, er áttu marga samgróna strengi í sálu manns. — Hin dularfulla sýn Hafsteins miöils. í októberblaði Dýraverndarans frá 1947 er endirinn af sögunni um Kol. Ég segi þar frá heimsókn Hafsteins miðils til mín í ágúst- mánuði 1937 og samtali okkar um hundinn Kol. Hér heldur samtal okkar áfram þetta fyrr nefnda kveld. Hafsteinn spuröi einnig, þegar samtalinu lauk um Kol, hvort ég hefði átt hest, sem mér hefði þótt vænt um, og kvað ég svo hafa ver- iö. Segir Hafsteinn mér þá, aö hann sé lengi búinn að horfa á hestshöfuð og hið einkenni- lega sé, að sér sé ómögulegt að sjá nema höf- uðið og nokkuð af hálsinum, hitt af hestin- um sé sér algerlega hulið og óskiljanlegt. Það sé eins og dimm móða hylji hestinn að öðru leyti. „Höfuö þessa hests er í stærra lagi, þó er það frítt og vel farið og eins það sem sést af faxinu. Augun stór og skær og horfa stöðugt á þig,“ segir Hafsteinn. Oftar en einu sinni lætur miðillinn undrun sína í ljós yfir þessari sýn og hvað því geti valdið, að hesturinn vilji komast í samband við mig í þessu ástandi. Það skal fram tekið, aö Hafsteinn var hér Ændurhreiðwr Á vorin finna menn oft andahreiður á ólíklegustu stöðum í Kaupmannahöfn. Það á sér t. d. oft stað, að þær komi sér fyrir uppi í tré til að verpa, allmarga metra frá jörðu. Með þessari mynd hefur teiknarinn valið sér það verkefni að sýna önd við hreiður á slíkum stað. — En hvernig kemst hún niður með ungana, þegar þar að kemur? I Kaupmannahöfn eru smá vötn inni í sjálfri borg- inni og mjög mikið af fugli á þeim, einkum hettu- máfi og öndum. Fuglarnir eru þarna mjög gæf- ir, enda stranglega friðaðir og ríkulega fóðraðir á brauðmolum, sem vegfarendur kasta til þeirra. ekki í neinu venjulegu miðilsástandi, „trans“, heldur sinni meðfæddu dulskyggni. Hér segi ég Hafsteini frá, hvað ég hafi frétt um dauða þessa hests og það, að hann hafi átt að drukkna — helzt niður um ís. Ég segi honum einnig, að það sé mjög nálægt 15 mánuðum síöan hesturinn drukknaði og 27 mánuðir síðan við skildum. Þessa dularfullu sýn settum við síðan í samband við dauða hestsins, með hvaða hætti sem hún væri. Heimsókn Hafsteins þetta umrædda kvöld verður mér ógleymanleg. Hún vekur mig til enn nánari umhugsunar um framhaldslífið. Ótvírætt trúi ég því, að hann hafi séð hund- inn og höfuð hestsins. Svo vantar skýringar, og því fer maöur að spyrja og spyrja í fáfræði og undrun: „Hvernig má þetta ske?“ Endir.

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.