Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1957, Side 14

Dýraverndarinn - 01.09.1957, Side 14
Hnndnr Odysseiis Eitt af allra frœgustu skáldverkum heimsbókmennt- anna er Odysseifskviða forngríska skáldsins Hómers. Þar er margt fagurt og hrífandi, og meðal þess, sem verður lesandanum ógleymanlegt, er frásögnin af Argusi, hundi Odysseifs. Þegar hetjan Odysseifur kom heim eftir tutt- ugu ára fjarveru, var hópur af biðlum kringum Penelópu, konu hans. Odysseiíur fór þá dulbúinn sem stafkarl til hallar sinnar, þar sem kona hans og biðlarnir höfðust við, og stanzaði hann úti fyrir höllinni. Sú varð raunin, að enginn bar kennsl á hann — nema hundurinn Argus og síðan hin gamla fóstra hans. Svo segir í þýðingu Svein- bjarnar Egilssonar á Odysseifskviðu: Hundur nokkur, sem þar lá, lyfti þá upp hausn- um og reisti eyrun; það var Argus, hundur hins þolgóða Odysseifs. Þann hund hafði Odysseifur sjálfur uppalið forðum, án þess þó að hafa hans nokkur not, þvi Odysseifur fór áður til ennar helgu Ilíonsborgar. Áður fyrr meir voru ungir menn vanir að fara með hann á dýraveiðar, til að ná skógargeitum, rádýrum og hérum; en núna, af því að húsbóndi hans var ekki við, lá hann um- hirðingarlaus á stórum haug, sem var fyrir fram- an húsdyr Odysseifs; hafði þangað verið borinn mikill haugur undan múlösnum og nautum, og ætluðu þrælar Odysseifs seinna meir að færa út mykjuna til að teðja hinn mikla konungsvöll, er Odysseifur átti. Á þessum haug lá hundurinn Argus, og skreið nú kvikur. Nú sem hundurinn varð þess var, að Odysseifur var þar kominn, þá flaðraði hann rófunni og lét bæði eyrun lafa, en hafði nú engan máttinn að skreiðast til húsbónda síns. Þá leit Odysseifur undan og þerraði af sér tár, átti hann hægt með að gera það, svo Evmeus yrði eigi var við. Síðan tók hann til orða: „Þetta er næsta undarlegt, þar liggur hundur á hauginum, sem að vísu hefur ágætlegt vaxtar- lag, en hitt veit ég eigi til sanns, hvort hann hef- ur verið eins hvatur til hlaups, eins og hann er hlaupalega vaxinn, eða hann er rétt sem aðrir stofurakkar eru vanir að vera, þeir er eigendurnir ala sér til gamans.“ Evmeus svínahirðir svaraði honum og sagði: „Þar liggur hundur þess manns, sem dáinn er langt, langt úti í löndum. Ef hann væri nú eins þreklegur og eins til afreka, eins og hann var, þegar Odysseifur skildi við hann, þá hann fór til Trójuborgar, þá mundi þér gefa á að líta, þegar þú sæir, hvað hann er bæði frár og knár; því ekk- ert kvikindi, sem hann lagði í einelti, gat forðað sér fyrir honum innst inni í skógum, þar sem runnamir voru þéttastir, því hann var allra hunda sporvísastur. Nú er þessi hundur aumlega stadd- ur. Það sér á, að lánardrottinn hans er dáinn langt í burtu frá föðurlandi sínu, því ambáttirnar, sem aldrei hirða um neitt, leggja öngva rækt við hann. Það er segin saga, þegar húsbændurnir eru ekki uppi yfir þrælunum, þá nenna þeir ekkert handtak að vinna af því, sem þeir eiga að gera; því hver sá maður, sem hinn háþrumandi Seifur hneppir í ánauð, verður ekki nema hálfur maður til dyggðar og trúmennsku upp frá því.“ Að því mæltu gekk hann inn í höllina, og inn í stofuna til biðlanna. En Banagyðjan, sem ræður þeim dimma dauða, heltók Argus, undir eins og hann hafði litið Odysseif augum á tuttugasta ár- inu. 62 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.