Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1960, Qupperneq 9

Dýraverndarinn - 01.02.1960, Qupperneq 9
Girðingalögin frá 1952 Lögin eru gölluð, og er brýn nauðsyn breytinga á þeim. SÍÐAN Þorsteinn Einarsson, ritari Sambancls dýra- verndunarfélaga íslands, skrifaði grein sína um girðingar og girðingaleifar hér í blaðið, hafa hann og ritstjóri Dýraverndarans farið allvandlega yfir lög um girðingar, frá 1. febrúar 1952, og komizt að raun um, að þau eru það gölluð frá sjónarmiði dýraverndar, að nauðsyn ber til, að þeim sé breytt og þau löguð. Þau ákvæði laganna, sem hér skal einkum um fjallað, eru þessi: í 3. gr.: „Nú fer jörð í eyði, svo að ekki er til ætlazt, að hún byggist aftur, sbr. 4. kafla jarðræktarlaga, og verða eigi lengur nein not að girðingu fyrir jörð- ina, og losnar þá jarðeigandi við þá skyldu að halda henni við og er lieimilt að taka hana uþþ, fái hann ekki efni hennar endurgreitt með matsverði frá meðeigendum.“ (Leturbr. eru ritstjórans alls staðar í greininni). Ákvæði 9. gr. um ristahlið. Ákvæði 11. gr. um viðhaldsskyldu og skaðabætur. Ákvæði 12. gr. um nálægð girðinga við vegi. Um 3. gr. er það að segja, að hún er mjög göll- uð og meira að segja hálfkjánalega sarnin. Þar er sagt, að jarðeigandi losni við skylduna til að halda girðingu við, ef jörð leggst í eyði og á ekki að byggjast aftur — og að lieimilt sé að taka upp girð- inguna. En á hverjum hvílir jsá sú viðhaldsskylda, sem lögð er á girðingaeigendur samkvæmt 1. gr. laganna, ef eigandi sér ekki ástæðu til að taka girð- inguna upp, sem honum er heimilt, en ekki skylt? Þarna þarf ekki frekar vitnanna við. Allir sjá nauð- syn þess, að bætt sé um ákvæði greinarinnar. Flestir munu hafa orðið þess vísir, að fjarri fer því, að svokölluð ristahlið séu óskaðleg skepnum. Oft vill það brenna við, að ristarnar bila, misjöfn bil verða milli rimla eða rimlarnir hreyfast ekki, þegar kindur stíga út á ristina, svo að þær stika hana óskefldar, í stað þess að hörfa frá, og svo festa þær þá í þeim fætur. Einnig vantar í 9. gr. viður- lög við því, að slíkum hliðum sé ekki haldið við, en auðvitað ber að sekta þann, sem hefur skyldu til að halda við hliðunum — og það þótt ekki hafi orðið tjón að vanrækslu hans, svo að menn viti. Og sektir mega ekki aðeins miðast við það tjón, sem eigandi dýra bíður af völdum vanrækslunnar, heldur og við þá kvöl, sem hún kann að valda eða veldur dýrunum. Þarna er sem sé ekki aðeins um að ræða hagsmunasjónarmið, heldur líka og ekki siður tillitið til dýranna. Þá eru ákvæði 11. gr. Þar stendur: „Skylt er að halda öllum girðingum svo vel við, að búfé stafi ekki liætta af þeim.“ Þetta mundi nú gott og blessað, og þeir, sem lesa þetta ákvæði, munu segja: „Hvað eru þeir Þor- steinn og Hagalin að fetta fingur út í þessa grein?“ Greinin endar þannig: „Valdi vanræksla í þessu efni skaða á búfé, varð- ar það sektum og skaðabótum til fénaðareiganda." Mundi þetta ekki vera nóg — eða hvað? Ef til vill frá sjónarmiði fjáreiganda, sem ekki er dýra- vinur, en ekki frá sjónarmiði neinna, sem ekki eru eins greinilega bundnir hagsmunasjónarmiðum og þeir, sem hafa sarnið og samþykkt lögin. Auðvitað er skylt að hafa þarna ákvæði um viðurlög, sem miðuð séu við dýravernd, — að eigandi girðingar, eða sá, sem skyldur er að annast viðhald hennar, sœti sektum sakir þess, að hann hefur valdið dýr- um sársauka og kvöl. Ennfremur þarf beinlínis að vera ákvæði um, að hver sá girðingareigandi, sem vanrækir viðhald girðinga, svo að telja megi, að dýrum geti stafað hætta af vanrækslunni, skuli sæta sektum, þó að ekki liggi fyrir nein sönnun þess, að dýr hafi þegar orðið fyrir sárum eða bana af völd- um vanrækslunnar. Þarna kernur meira að segja til greina hið yfirleitt af löggjafanum hávirta tillit til hagsmuna fjáreigenda. Auðvitað geta kindur skaddast af völdum illa viðhaldinna girðinga, þó að skepnueigandi geti alls ekki sannað, hvaða girð- ing hefur orsakað sár þeirra, og þá fær eigandi kindanna engar skaðabætur. Þess vegna er það ekki aðeins tillitið til dýraverndar, heldur líka hags- munir fjáreigenda, sem krefjast þeirrar breytingar, að þeir, sem vanræki viðhaldsskyldu sína á girðing- um, sæti viðurlögum, þótt eklii sé sannað, að van- rœkslan hafi valdið tjóni á dýrum, og þau viðurlög skulu ákveðin bceði með tilliti til hagsmuna og til dýraverndar. Loks eru þá ákvæðin um nálægð girðinga við DÝRAVERNDARINN 9

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.