Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1960, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.02.1960, Síða 10
vegi. Þar er sagt, að girðingar úr gaddavir megi hvergi vera nær en 4 metra l'rá vegjaðri og sex metra frá miðjum vegi. Síðan segir: „Þegar girt er meðfram vegum á óræktuðu landi og skurður lítt fær eða ófær fénaði er á aðra hlið, má bilið frá girðingu á hina hlið vegarins eigi vera minna en 5 metrar." Þetta seinasta mundi vera um o£ torskilið ákvæði, svo að ekki sé meira sagt, og vafasamt samræmið við ákvæðið um fjögurra og sex metra bilið, og hefði þarna þurft að fylgja teikning til skýringarl! Þá má benda á það, að ekki er gert ráð fyrir, að skurður, lítt fær eða ófær fénaði, geti verið báðum megin vegar, þar sem girt er. Að framansögðn er hverjum manni auðsætt, að breyta þarf lögunum, en auk þess er það, sem Þor- steinn Einarsson hefur greinilega sýnt fram á, að eftirlit með því, að lögunum sé lilýtt, er í mesta ólestri, og er bráðnauðsynlegt, að liá viðurlög séu við vanrœkslu þeirra, sem eftirlitið er falið — og að þau viðurlög séu ekki aðeins miðuð við liugsan- legt tjón þeirra, sem dýrin eiga, heldur emnig við dýravernd. Búnaðarþin^ og ílýraverncl Fyrir Búnaðarþingi liggja —nú tvö mál, sem varða dýravernd: 1. Erindi um að hert verði á ákvæðum laga um frágang girðinga, umhirðu þeirra og fieira. 2. Breyting á gildandi umferðarlögum. Þar er far- ið fram á að ákveðið verði, að liestum fyrir vagni eða með mann á baki skuli haldið vinstra megin á vegi, eins og kveðið var á í gömlu umferðarlögunum, þar eð reynslan hefur þegar sýnt, að hestar láta ekki að stjórn, þegar þeir blindast af bílljósum. Hafa af þessum sökum orðið þrjú slys, sem um er vitað, síðan hin nýju umferðarlög gengu í gildi. * Gjafir og áheit á Dýraverndarann: Gjöf N. N. frá 25. júlí 1959, kr. 50.00. Áheit frá sama kr. 5.00. Áheit frá M. 30. nóv. 1959 kr. 25.00. Áheit frá M. í desember 1959 kr. 25.00. Gjaldkeri og ritstjóri þakka, og þeir biðja af- sökunar á því, að fallið hefur niður af vangá að geta fyrr um gjöf N. N. frá 25. júlí. Útigangshestar detta ofan i Sxiartá i Skagajirði. Köld er laugin þarfasta þjóninum og slolti þeirra Skagfirðinga. LÖG IIM DfRAVERND 1. gr. — Sá, sem rnisþyrmir skepnum eða gerir sig selian urn illa meðferð á þeim með þvi að of- bjóða þoli þeirra, vanhirðu eða á annan hátt, skal sœla sektum frá 10—1000 krónum, eða einföldu fangclsi, ef miklar saltir eru. 2. gr. — Frá 1. október 1917 skulu allir þeir, sem skepnur eiga, liafa nœg hús fyrir þœr allar. Brot gegn þessu ákvceði varða sömu viðurlögum sem brot gegn 1. gr. 3. gr. — Stjórnarráð íslands setur reglur um slátrun búpenings á almennum slálrunarstöðum, um rekstur og annan flutning innanlands á fé til slátrunar, á fé og hestum til útflutnings, svo og um meðferð á hestum i brúkun. Skal það gert i reglu- gjörð, sem jafnframt ákveður sektir fyrir brot á slik- um reglum. 1. gr. — Með brot gegn lögum þessurn skal farið sem opinber lögreglumál. 5. gr. — Með lögum þessum er úr gildi numin 299. gr. almennra hegningarlaga 25. júni 1869. Eftir þessu eiga allir hlutaðeigendur sér að liegða. (Fyrstu heildarlögin um dýravernd á íslandi). 10 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.