Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1960, Síða 13

Dýraverndarinn - 01.02.1960, Síða 13
‘^ncfótu Leóendurnir Náttúrlcg ánægja Það var einn góðviðrisdag í hittiðfyrra, að cg var sendur eftir liesti upp í girðingu fyrir ofan túnið heima. Þegar ég gekk upp túnið, sá ég á, sem lieitir Digra. Hún var borin l’yrir skömmu, og ég vissi, að hún hafði eignazt tvær gimbrar. Nú sá ég ekki nema aðra gimbrina. En ærin var að stjálka á bakkanum á djúpum skurði, sem ekki var vatn í.enblaut leirleðja. Mér datt strax í hug, að blessað lambið liefði dott- ið ofan í skurðinn og flýtti mér þangað, sent ærin hélt sig. Það reyndist vera eins og mér hafði komið til liugar. Lambið var í skurðinum, stóð þar upp í kvið í leðjunni. Ég var ekki lengi að henda frá mér beizlinu og bregða mér ofan í skurðinn, þó ekki lengra en svo, að ég sökk ekki í óþverrann. Ég teygði mig eftir lambinu, sem var ósköp aumkunarlegt og jarmaði á mig, eins og það væri að biðja mig að hjálpa sér. Ég tók það í fangið, flýtti mér upp úr skurðinum og hljóp í sprettinum lieim. Þar var lambið þvegið og þurrkað og gefin volg mjólk. Það hresstist fljótt, og svo var farið með það til mömmu þess. Hún fagnaði því eins og bezt liún gat, með því að gefa því sopa og nusa kuntrandi af því. Ég fór að sækja hestinn, og ég var léttur og glaður yfir að hafa getað bjargað litla lambinu. Hafsteinn Sigurðsson, Sandgerði. Annar apinn segir við hinn: „Kœrðu þig hollóttan, vinur, þó að þeir hlœgi eins og fifl, þessir ndungar. Það er hreint ekki sannað, að við séum komnir út af þeim!" Leilcið á rehha Það er sagt urn menn, sem eru slungnir og brögð- óttir, að þeir séu mestu refir, því að tófan þykir ærið kæn og brellin. Til eru margar dæmisögur og ævin- týri, sem sýna, að refurinn hafi löngum leikið á önn- ur dýr. En hér fer á eftir stutt ævintýri, sem greinir frá því, þegar úlfurinn lék á rebba. Einu sinni voru refur og úlfur að ganga sér til skemmtunar og fróðleiks úti í skógi í nánd við þjóð- veginn. Þá sáu þeir allt í einu, hvar maður kom ak- andi eftir veginum í vagni, sem hesti var beitt fyrir. ############################################################ 2. Legglengd möskva í lagnetum skal ekki vera styttri en 4,5 cm og í dráttarnetum minnst 4 cm, þá net eru vot. Óheimilt er að hirða silung, sem er niinni en 37 cm á lengd (mældur frá trjónu í sporð- vik). 3. Samanlögð lengd lagneta í vatninu skal aldrei fara frani úr 7000 metrum. 4. Dráttarveiði skal bönnuð á riðastöðvum frá 1. febrúar til 30. apríl ár hvert. 5. Reglur þessar gilda í 5 ár.“ Veiðimálastjóri hefur upplýst, að nú muni hefjast i Mývatni notkun neta úr girni, þar sem þræðirnir eru bræddir saman. Þessi gerð neta er sögð liafa álíka yfirburði yfir nælonnetin um veiðni og nælonnet yfir net úr baðmullarjtræði, svo að ekki sé minnzt á netin úr ullarþræði, sem notuð voru endur fyrir löngu. Þá leggur veiðimálastjóri áherzlu á þann háska, sem stafar af Jrví, að nú gætir ekki lengur fjarlægða á vatninu. Jjar eð hraðskreiðir vélbátar hafa komið í stað árabáta, enda netin nú mest lögð utan neta- lagna lögbýla, þ. e. Jjar í vatnið, sem er almenningur. Enginn vafi er á, að til verndunar fiskstofninum í Mývatni væri mjög mikil bót að því, að tillögur veiðimálastjóra um veiðireglur næðu fram að ganga, og ungadrápið yrði og stórum minni, ef Jjær gengju í gildi. Nú er að Jjví unnið að fá fé annað hvort úr vís- indasjóði eða beint úr ríkissjóði til þess að kosta náttúrufræðing til rannsókna á fuglalífi á Mývatni og fugladauða af völdurn silunganeta. liÝRAVERNDÁRINN 13

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.