Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1960, Side 16

Dýraverndarinn - 01.02.1960, Side 16
Verðlaunasamkeppnin Af þeim ritgerðum og frásögmun, sem sendar hafa verið að þessu sinni, hefur aðeins ein hlot- ið verðlaun. Hún heitir SAGAN AF SKUGGA. Höfundur hennar reyndist vera frú Inga Skarp- héðins á Blönudósi. Verðlaun þau, sem hún hlýtur, eru 350 krónur. Einn drengur, þrettán ára gamall, sendi til samkeppninnar frásögn, sem þótti raunar ekki geta hlotið önnur verð- laun, en satnt verð viðurkenningar, og rnun hlaðið greiða honum 150 krónur. Frásögn hans heitir HREIÐRIÐ MITT. Þessi frásögn kom þeirri hugmynd inn hjá ritstjóranum, að fram- vegis yrðu árlega veitt sérstök verðlaun, sem eetluð vecru börnum innari 16 ára aldurs, og mun ritstjórinn beita sér fyrir þvi, að sá hátt- ur verði uþþ tekinn þegar á necsta ári. SAGAN AF SKUGGA verður birt í ner.sta tbl. og sömu- leiðis HREIÐRIÐ MITT, en höfundur þeirr- ar frásagnar reyndist vera Benóní Halldórsson, Krossi, Lundarreykjadal. ~—--------------- Það er þœgilegt, finnst knapanum, að fá sér svalaneli bað ei þennan hátt. Og takið eftir þvi, að fillinn hefur vafið rófunni yfir um bursta, og svo burstar liann vin sinn, knapann, þveer af honum rykið. Vesalings dúían Það var einu sinni í fyrra vetur, að ég var að fara í búð fyrir mömmu mína, eins og oft áður. En þá gerðist nokkuð, sem mér er minnisstætt. Þeg- ar ég kom út, fann ég dúfu úti í snjónum. Hún var með stóran stein bundinn neðan á fæturna á sér. Ég fór með hana inn til mín, og ég og mamma gáíum henni mat að borða. Settum við hana svo í kassa, og jafnaði hún sig þá brátt. Þegar hún var búin að vera nokkra daga hjá okkur, var hún orðin svo hænd að okkur, að við gátum strokið eftir bakinu á henni. En svo kom að því, að mamma gat ekki haft hana lengur fyrir það, að hún vildi alltaf dríta í ljósakrónuna, sem var í stofunni. Og við urðum að sleppa henni, en ég gat ekki annað en tárast, því að mér þótti svo vænt um hana. Og í marga daga var hún í nágrenn- inu, en fór svo út í geiminn. Friðrik Sigurjónsson (13 ára), Akureyri. TIL KAUPENDANNA Á þessu tölublaði Dýraverndarans stendur, að það sé febrúarblað, en útkoma þess hefur dregizt vegna þess, að samningar stóðu yfir um prentun blaðsins, og auk þess reyndist söfnun auglýsinga tafsöm. Önnur blöð árgangsins koma eins og hér segir: Annað tölublað í apríl, jrriðja í júní, fjórða í ágúst, fimmta í október og sjötta um miðjan desember. Er til þess hugsað, að seinasta blaðið verði allmiklu stærra en hin. Ritstjóri. DÝRAVERNDARINN Útgefandi: Samband dýraverndunarfélaga íslands. Ritstj.: Guðmundur Gíslason Hagalín, Silfurtúni F 5, Garðahreppi, Gullbringusýslu. (Síini 501G6. Pósthólf 1342, Reykjavík.) Af- greiðslu annast I>orgils Guðmundsson, Hraunteigi 21, Rvík. (Simi 34344. Pósthólf 003.) Þorgils er að hitta á fræðslu- málaskrifstofunni alla virka daga ársins frá klukkan 0—17 Verð blaðsins er kr. 30,00. Gjalddagi er 1. apríl. Vinnið kapp- samlega að útbreiðslu Dýraverndarans og stofnið dýravernd- unarfélög, þar sem engin slik félög eru starfandi. Prentsmiðjan Oddi h.f., Reykjavík. 16 DÝRAVERNDARINN

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.