Dýraverndarinn - 01.05.1929, Qupperneq 3
Systnrnar
Herdís Andrésdöttir,
Ólín
a Andrésdóttir.
Upptíningur.
TáliíS mart þó teflum vi'S
tjáir vart að flýja.
Veiku hjarta veitir frið
vorið bjarta, hlýja.
Strýkur glóey grösin smá
geislalóa þýðum.
Lautir, flóar litkast þá,
leysir snjó úr hlíðum.
Þröstur hátt með kátum klið
kveður þrátt í runna.
Þar er dátt að dreyma við
dásemd náttúrunnar.
Vorið hló og hratt sig dró
heim á gróin engi,
þar sem lóa’ í lágum mó
ljúfa sló á strengi.
Himins stóli háum frá
hverfa njólutjöldin,
tímgast fjóla túni á,
tekur sólin völdin.
Býður fangið hlýtt og hljótt
hlíðarvangi fagur,
viðarangan — engin nótt,
allt er langur dagur.
Hýrt og blátt er himintjald,
hægur sláttur Unnar.
Glöð og sátt eg geng á vald
guðs og náttúrunnar.
Mitt við hæfi’ á móðurarm
mun eg gæfu finna.
Þar skal svæfa hjartaharm
heillar ævi rninnar.
Herdís Andrésdóttir.