Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1931, Side 7

Dýraverndarinn - 01.11.1931, Side 7
DÝRAVERNDARINN 57 En vonir hennar og heitustu óskir móÖurhjartans áttu ekki aÖ rætast í þaÖ sinn. Heima á Hömrum var hvolpsins saknað og strax farið að gá að hon- um. Sást þá fljótt hvar Kæpa var að læðast heim- leiðis með hvolpinn, enda var hún skamt á veg kom- in. Urðu þá einhverjir til þess að veita þeim eftir- för; var hvolpurinn tekinn, en Kæpa snupruð og henni skipað að snáfa heim til sin. Tók mig sárt til hennar og sagði eitthvað á þá leið, að ónær- gætnislega væri þetta gert við móðurina, sem ekki hefði annað til saka unnið, en að sýna í verki sanna ást til afkvæmis sins og umhyggju fyrir því. En mér var ekki svarað öðru en þvi, að hvolpurinn mætti ekki venjast á að vera að flækjast á aðra l)æi; hann mundi þá aldrei tolla heima, en vera í Hamrahól öllum stundum. Ég ])óttist sjá og skilja, að ég mundi engu fá breytt né umþokað í þessu efni, og gekk ])vi til Kæpu. Hún hafðði látið þar fyrir berast, sem hvolp- urinn var tekinn frá henni og lá þar fram á lappir sinar. Þegar hún sá mig nálgast, lyfti hún upp höfð- inu og dillaði skottinu ofur hægt, en augu liennar stóðu full af tárum og runnu þau niður vangana. Ég var nú ekki sterkari á svellinu en svo, að mér rann til rifja sú mikla sorg, sem lesa mátti úr aug- um og svip þessarar vesalings móður, sem skanim- sýni og skilningsleysi mannanna hafði svo hart leikið. Og ég þráði svo mjög að geta huggað hana og létt raunir hennar, ef þess væri nokkur kostur. Ég sett- ist á þúfuna hjá henni og klappaði henni og strauk hana alla, eins hlýlega og mér var unt. Hún virtist kunna þvi vel og sleikti hendur rninar vinalega og dillaði skottinu. Eitthvað reyndi ég að'tala við hana; og þó ég hafi nú gleymt hvernig þau orð féllu, þótt- ist ég sannfærð um þá, að hún mundi skilja mig og vera mér þakklát fyrir. Stundarkorn sat ég hjá Kæpu og strauk henni og klappaði. Þegar ég stóð upp, reis hún einnig á fætur, flaðraði vinalega upp um mig og reyndi að sleikja hendur mínar; það var þakklæti hennar fyrir þann litla samúðarvott, sem ég hafði reynt að sýna í raunum hennar. Síðan skildum við; ég fór aftur til vinnu minnar og litlu siðar lagði Kæpa á stað hcimleiðis. Ekki reyndi Kæpa framar að ná fundi hvolpsins, né að lokka hann heim til sín. En næstu daga sá ég hana oft á gægjum heima hjá sér, og mændi hún þá heim að Hömrum, Miskunnsemi við fugla. í haust, þegar svölurnar vóru að fljúga til Mið- jarðarhafslandanna í stórhópum, skall á þær hríð og kuldi skamt írá austurrísku Ölpunum. Upþgáfust svölurnar þar og gátu enga björg sér veitt. En þá kom dýraverndunarfélagið þeim til hjálpar, lét safna saman öllum þeim lifandi svölum, sem fundust, og sendi ])ær með flugvél yfir Alpana til ítalíu. Og þeg- ar þangað kom í hlýindin, lifnuðu svölurnar við og gátu haldið áfram för sinni. A myndinni sést það þegar verið er að flyjta stóran kassa fullan af svöl- um um borð í flugvél. (Lesbók Morgunbl.). Sagt er að tíminn lækni öll sár, og svo fór hér. Þegar frá leið virtist Kæpa hafa gleymt sorgum sín- um og sætta sig við, eins og komið var. En í hvert sinn, sem fundum okkar bar saman, fagnaði Ivæpa mér með miklum vinalátum, eins og hún vildi með ]>ví sýna, að hún væri seingleymin á það, sem henni var vel gert. En það er meira en sagt verður um suma menn. Arina Sigurðárdötfir frá Þjótandáv

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.