Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.11.1931, Qupperneq 10

Dýraverndarinn - 01.11.1931, Qupperneq 10
6o DÝRAVERNDARINN Til kaupenda. Þó a'Ö Dýraverndáranum þylci leitt, þá verÖur ekki hjá því komizt, að vekja athvgli á, a'ð mjög treglega hefir gengið á þessu ári, að .fá andvirði hlaðsins greitt. Eins og kunnugt er, þá er gjalddagi ldaðsins settur i. júlí ár hvcrt, og ætlazt til að frá þeim degi megi reikna með, að andvirði hlaðsins greiðist af- greiðslumanni skilvíslega. En nú hefir svo farið, að mjög lítilkhluti af andvirði hlaðsins hefir, enn sem komið er, borizt ‘afgreiðslumanni. Að vísu er það vitað, að kreppa sú, sem skollið hefir yfir þjóðina, gerir mörgum manni erfitt að standa í skilum, og að einstaklingar hafa i. mörg horn að líta um afkomu sína og sinna. En þegar hins er gætt, að hér er um svo litla upphæð að ræða fyrir hvern einstakan kaupanda blaðsins, þá verður að álykta sem svo, að fremur muni þó vera um hirðuleysi að kenna, en getuleysi, að svo hefir farið um greiðslu fyrir blaðið i þetta sinn, eins og raun ber vitni. Því yerður og tæplega neitað, að tíðk- azt hefir helzt um of,. að menn dragi við sig að greiða blöð á réttum gjalddaga, en slíkt kemur sér ærið illa fyrir þau blöð, sem ekki standa á traust- um fjárhagslegum grundvelli.. Dýraverndarinn hefir ekki á öðrú að byggja fram- tíð sina, en áhuga sem ílestra góðra manna'og dýra- vina fyrir því rnikla mannúðar- og uppeldismáli allra þjóða, sem hann berst fyrir: að þroska .og glæða þann skilning á öllu þvi, sem stefnir að verndun dýra og bættri meðferð þeirra. En hvar er þá áhugi ykkar, góðir dýravinir, ef þið reynið að humma íram af ykkur að greiða þessa litlu upphæð — aðcins þrjár krónur -—, sem blaðið kostar á ári ? Og finst ykkur vansalaust til þess að hugsa, aÖ svo getur farið, að Dýraverndarinn, eina málgagn dýranna hér á landi, verði að draga sainan seglin, koma sjaldnar út, fækka myndum, eða ef til vill að leggjast með öllu niður, aðeins vegna hirðuleysis kaupendanna um að greiða andvirðið? En slíkt má aldrei um ykkur spyrjast, góðir dýra- vinir! DÝRAVERNDARINN kemur að minsta kosti átta sinnum út á ári. Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er gefið út hér á landi- Argangur hans kostar að eins 3 krónur. Ætlunarverk Dýraverndarans er að vimia að upp- cldis- og menningarmáli allra þjóða, en þaS er sú siðbót, sem fram kemur i verndun málleysingja og miskunnsemi viS munaöarlausa. Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og i honum munu verSa ritgerSir og sögur eftir ritfæra menn og merka. Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra góSra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sízt leitaS liSsinnis kennara og ungmennafélaga um aö kynna blaSiS. Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýravemdar- anum, eSa fleiri, fá 20°/o i sölulaun. Þeir kaupendur Dýraverndarans, sem enn eiga ógreitt andvirSi hans, eru vinsamlega beSnir aS gera skil sern allra fyrst. Afgreiðslumaður HJÖRTUR HANSSON, Austurstræti 17. — Reykjavik. — Pósthólf: 566. Hundurinn og stúlkan. ViS Kingsdown í Englandi tólcu menn eftir, aS hundur einn gelti ákaflega og i langan tíma neðan viö 200 fetá háa hamra. Þótti athæfi hans undar- legt og var fariS aS gá aS hverju þaS sætti. Kom þá í ljós, aS hundurinn sat þarna yfir meSvitundar- lausri stúlku, sem hrapaS hafSi fram af hömrun- um. Var stúlkan flutt á sjúkrahús, en lézt þar. (Alþbl.) Alf efni, sem í blaðinu á að birtast, sendist ritstjóranum, en hcimilisfang hans er á Grettisgötu 67, Reykjavik. — Állskonar sögur um dýr, vitsmuni þeirra og háttu, eru vel þegnar. Ritstjóri: Einar E. Sæmundsen. Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands. FélagsprentsmiSj an.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.