Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1934, Page 9

Dýraverndarinn - 01.12.1934, Page 9
DÝRAVERNDARINN 61 sínu og virðingu misbo'ðiö, er eg vildi hafa annan liund honum til aðstoðar, og ofan í kaupið ónýtan hvolp, sem ekkert gat og enn minna kunni! En þó sigraði þetta stórlyndi, trygð hans og meðfædd smalahneigð, því að sjaldnast hafði eg hóað nema skamma stund, og hent hvolpinum, er Hauk skaut ]>ar upp cinhvers staðar nærri, og var þá hinn bezti. — Annars haf'ði hann mætur á hvolpum og lék sér við þá, jafnvel á gamals aldri. A efri árum Hauks varð eg mér úti um hvolp, sem eg hugsaði mér, a'ð tæki kannske viö af honum, eða létti að minsta kosti öldungnum vörzlustarfið, er jafnan liafði verið ærinn starfi einum rakka. Þaö mun hafa verið um nýárið, sem hvolpurinn kom hingað. En seint á Þorranum var þa<5 eitt sinn, a<5 all-mikilli lausamjöll hlóð niður. Morgun einn rauk hann svo upp á sunnan með úrhellings rigningu og varð þá krapasull um alla jörð. Eg var vanur að gegna fénu á morgnana, en dró það fram á daginn í von um, að veðrinu létti. En er svo varð ekki, mæltist eg til vi'ð piltana, að þeir gæfi fyrir mig lömhunum og ánum í Sauöhústúni. Sjálfur hjóst eg til að gefa veturgömlu ánum, en þær vóru i húsun- um í fjallinu beint upp frá bænum. Þegar eg var kominn skamt upp í brekkusneiðingana, sá eg hvar Haukur kom upp túnið og hafði hvolpinn með sér. Kallaði eg þá til hans, og sagðist ekkert vilja með hann hafa, en hætti svo við og hyrsti mig nokkuð: „Farðu strax heim með hvolpinn, Haukur!“ Gegndi hann því, og snéri heimleiðis. — Annars var ]rað venja hans að fylgja mér jafnan á húsin, og þurfti aldrei að kalla á hann. Sama var og, ef annar gegndi í minn staö, þá fylgdi hann honum, og alt af ótilkvaddur. En nú víkur sögunni austur að Sauðhústúni. Þeg- ar piltarnir vóru að enda við að gefa ánum, kom Haukur til þeirra og var þá einn síns liðs. Beið hann rólegur, unz gegningum var lokið, og fylg'd- ist svo með piltunum heim á leið. Þegar ofan úr brekkunum kom stefndu þeir út með fjallinu, þvi að lokiö höfðu þeir við að gefa lömbunum, er þeir komu a'Ö heiman. En er Haukur sá, að ekki átti að koma við í Dúðu, tók hann á rás þangað, hvarf fyrir lambhúshornið, en kom þó von bráðar, og var þá með hvolpinn í eftirdragi. Hafði liann geymt hvolpinn í lamhhúsdyrunum, en þar var aíl-mikið rými framan við hurðina. Sennilega hefir hann ekki treyst hvolpinum að ösla krapaelginn upp í fjall, Vetur. Hristir skalla skógargrein. Skænir allar móður. Bgrgir mjallar-blæja hrein bleikan uallar gróðar. Fjallatóin fölnar væn, faldar snjóum víðir. Einiklóin iðjagræn auðan móinn prýðir. Xæða vindar fjöllum frá, fannir strindi þekja. Ljósar myndir líða lijá, lítið yndi vekja. Mjöllin þyknar. Felast fræ. Flestum viknar bráin. Álút kikna undir snæ ellibliknuð stráin. Ljósi vetur, láttu mér Ijómann betur skína. Fæstir grta fagnað þér, fegurð metið þína. E r 1 a. eða ef til vill verið smeykur um að verða gerður afturreka ef hann kæmi með hvolpinn upp eftir. — Ekki gat þó lánazt, að hvolpur ])essi yr'ði Hauk aö liði, eða tæki vi'ð af honum. Þegar átti að fara a'ð venja hann kom i ljós, a'ð hann var heyrnarlaus, og varö því að lóga honum. I vesturhænum var litil telpa á öðru ári, er svo var hrædd við hunda, að í hvert sinn, sem hún kom aúga á þá einhvers staðar nærri, heyg'ði hún af og fór að gráta. Eitt sinn, er komið var með barnið hingað inn í baðstofu, lá Haukur fyrir á gólfinu, en harniö fór að gráta samstundis og það kom auga á hundinn og linti ekki á hljóðunum. Var þá Hauk sagt, að litla stúlkan væri hrædd við hann, og yrði hann því að verða á burt. Gegndi hann því þegar. og lét þá barnið huggast. En í hvert sinn, upp frá þessu, sem komið var með barnið hingað og Haukur var inni, labl)aði hann út, án

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.