Dýraverndarinn - 01.12.1934, Síða 12
64
DÝRAVERNDARINN
Margar tegundir skeifna hafa veri'Ö fundnar
upp meö mismunandi hökum, og nokkurar þeirra
hafa gefizt sæmilega. Þó rná segja, að þær hafi ekki
orðiö annað en smá linun á þjáningunum, og rnest
ger'Öar til þess aÖ skyggja á galla gömlu skeifn-
anna, og verða þær því engin hjálp til lengdar.
Það er ekki nóg að járna hesta með flötum skeif-
um, því aÖ sumar skeifur, þótt flatar sé, eru svo
þykkar, að hóftungan nemur ekki við jörðu. Það
verður því að járna með nokkuð þunnum, breiðum
og hæla gleiðum skeifum úr góðu járni; þá fær
hóftungan notið sín eins og henni er ætlað.“
* * *
Þó að þetta, sem eg hefi nú uppritað, sé upphaf-
lega miðað .við enska staðháttu, ættu Islendingar
þó aÖ festa sér þaÖ vel í minni. ÞaÖ er sannarlega
kominn tími til þess, að við sýnum fótum hestsins
meira sóma, en átt hefir sér stað hér í landi, og
á eg þá einkannlega við þau gálausu ódáðaverk, sem
títt hafa átt sér stað um járningu hesta, svo sem með
því að tálga hóítunguna, að tálga aftur úr hæl-
grófunum („opna hælana“), sverta undan hnykk-
ingum og fleira af slíku tæi. Það er vitan-
legt, að við getum ekki losnað við skaflana
á vetrum, en við getum haft þá lægri og
skeifurnar þynnri, og er það hvort tveggja spor í
rétta átt. Eigi er hér í landi urn liála vegi að ræða,
nema spotta og spotta hér í Reykjavík, enda fá þeir
fáu akhestar, sem enn eru hér, að kenna á því.
Þessir hestar eru enn þá járnaðir með háum hæla-
og tásköflum, sem valda því, að hóftungan fær
aldrei numið við jörðu, og vinnur þar aí leiðandi
ekki sitt ætlunarverk. Lagðir vegir út um sveitir
eru harðir, en ekki hálir; ætti því að varast aÖ hafa
skafla eða táhök á skeifum þeirra hesta, sem þá vegi
verða daglega að troöa, og mundu þá færri hestar
fá sinaskeiðabólgu, eða aðra slæma fótakvilla.
Það hafa altof fáir menn gerzt til þess hér í landi
að leiðbeina alþýðu um þá hluti, sem lúta að réttri
meðferð hesta, og því hafa mistökin á því sviði
orðið mörg og stór. En vonandi fara að vekjast
upp fleiri menn, sem sjá þörf á því að fræða al-
menning um eitt og annað í þessu efni.
Að endingu vil eg svo segja þetta:
Mín reynsla er sú, að hestur með heilbrigða og
vel þroskaða hóftungu kernur betur við, ef hóf-
tungan fær að nema við jörðu — gangur hestsins
verður þá fjaðurmagnaðri og öll hreyíing hans
mýkri.
Dan. Daníelsson.
* * *
Rétt þykir, í sambandi við ofanritaða grein, að
vekja athygli á hinni ágætu „Dýralœkningábók“,
er Magnús Einarson dýralæknir tók saman og
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar gaf út árið
KAUPENDUR DÝRAVERNDARANS!
Yður tilkynnist hér með, að gjalddagi blaðsins
var i. júli síðastliðinn. Það eru því vinsamleg til-
rnæli vor, er stöndum að útgáfu þessa blaðs, að
þeir kaupendur, er ekki hafa enn sýnt blaðinu skil,
en skulda því, — surnir fleiri árganga, — að þeir
sýni málgagni þessu, er berst fyrir verndun hinna
mállausu og munaðarlausu, hluttekningu i starfinu,
með þvi að greiða blaðið skilvislega. Það veltur
einungis á því, að blaðið geti haldið áfram að koma
út, að fjárhagur þess ekki skerðist frá því, sem
nú ér, og kaupendur sýni því full skil.
Enn frernur er það ósk vor, að kaupendur blaðs-
ins reyni að útvega því kaupendur, ])ótt ekki væri
nema einn nýjan áskrifanda frá hverjum kaupanda
þess nú, því það mundi veita blaðinu mikla hjálp
fjárhagslega.
Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er
gefið út hér á landi. Argangurinn kostar að eins 3
krónur. Af honurn koma, að minsta kosti, átta tölu-
blöð út á ári. Dýraverndarinn verður eftirleiðis, eins
og áður, prýddur myndum í sambandi við ritgerðir
og sögur eftir ritfæra menn og meríka.
Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýraverndar-
anum, eða fleiri, fá 20% í sölulaun.
Veitið dýraverndunarstarfseminni stuðning yðar,
það mun óefað auka farsæld yðar.
Afgreiðslumaður
HJÖRTUR HANSSON
Laugaveg 28 (Verzlunin Vaðnes). — Reykjavík.
Pósthólf: 566.
1931. — I bók þessari er, meðal annars, all-langur
kafli um ýmissa hófgalla: af hverju þeir stafi og
hvernjg þeir verði læknaðir.
Kaupendur
eru beðnir aÖ virða á hægra veg, að blaðið var'Ö
nú síðbúnara, en heitið hafði verið. Ollu óvenju-
miklar annir prentsmiðjunnar fyrir jólin.
Bitstjóri: Einar E. SíEnmndsen.
ÍJtgefandi: Dýraverndunarfélag íslands.
Félagsprentsmiðj an.