Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1937, Síða 11

Dýraverndarinn - 01.05.1937, Síða 11
DÝ RAVERNDARINN 23 hesta feröamanna, sérstaklega i kalsatíö aö haust og vorlagi. Þá var þaS, aS þegar félaginu áskotn- aSist hin mikla gjöf Tryggva Gunnarssonar áriö 1919, fanst mörgum áhugasömum félagsmanni, aö nú væri unt aö uppfylla liina langþráðu ósk, um að Dýraverndunarfélagið eignaöist hestaskýliö og var þá samþykt aö kaupa Tungu. Vafalaust hefir Tunga verið félaginu og málefni þess til mikils gagns fyrstu árin eftir aö félagiö eignaöist hana, ekki eingöngu í þágu dýraverndunar beinlínis, he.ldur einnig sem sýnlegt tákn íélagssltaparins út á viö. En tímarnir breyttust og aðaltilgangurinn með starfsemi Tungubúsins hvarf, þegar bílarnir konux til sögunnar og urðu aöaltxekiö til flutnings á fólki og farangri. líg hefi á aðalfundi hér í fé- laginu þ. io. maí 1935 gert grein fyrir fjárhagsaf- komu Túngubúsins frá byrjun, og sýnt fram á, aö Tunga var orðin sú fjárbagslxyröi fyrir félagið, aö til vandræða horfði. Því var þaö, að vér, sem í stjórn félagsins vórum 1935—!93Ó, tókum að at- huga, hvort eigi væri unt að selja Tungu meö sóma samlega hagkvæmum kjörum fyrir félagiö. Varð það til þess, aö Guöm. Ólafsson bóndi i Austur- hlíð gerði 50 þús. kr. kauptilboð í eignina. Tilboð þetta lagöi stjórnin svo fyrir síöasta aðalfund og bar jafnframt fram tillögu um, að kosin væri nefnd þriggja manna, sem ásamt stjórninni athugaöi til- boðið og ákvæði hvort ganga skyldi aö því; auk þess var til þess ætlazt, að nefndin, ásamt stjórn- inni, athugaaði, hvort unt væri aö koma því skipu- lagi á rekstur Tungubúsins, að það gæti borið sig fjárhagslega. Tillagan um.nefndarkosninguna var samþykt á fundinum og vóru í nefndina kosnir þeir Dan. Daníelsson stjórnarráðsdyravörður, Þorl. Gunnarsson bókbandsmeistari og Magnús V. Jó- hannesson fátækrafulltrúi. Stjórnin og þriggja manna nefndin hélt nú nokkura fundi um máliö og komst að þeirri niðurstöðu, aö hver leið, sem farin væri, mundi hallinn á rekstri TungU í höndum íélagsins verða nálægt 3000 kr. á ári næstu árin, og þar sem Tunga, eins og nú væri komið, hefði mjög litla þýðingu fyrir dýraverndunarstarfsemi félagsins, væri með öllu óverjandi að nota nálega allar árstekjur félagsins til að greiöa með hallann af rekstri Tungubúsins. Þaö var ]?ví einunt rómi samþykt að taka kauptilboði Guðrn. Ólafssonar og var honum seld Tungueignin frá 1. júní 1936 að telja, fyrir 50 þús. kr., enda liafði ekki tekizt aö1 út- vega hærra né hagkvæmara kauptilboð i eignina frá öörum. Nú er ekki svo aö skilja, aö eg eöa þeir, sem’ meö mér störfuðu að sölu Tungu, telji algerlega ástæöulaust fyrir félagið að eiga gripahús, þar sem hýsa mætti skepnur, þegar þess þyrfti með, alls ekki ; eg vil aðeins taka það skýrt fram, að þessi eini liður dýraverndunarstarfseminnar er ekki svo mikils virði, aö hann megi gleypa alt starfsfé félagsins, enda öðrum (t. d. bæjarstjórn) jafnskylt að sjá þessu máli borgið. Eg tel æskilegt, aö félagið eignaöist gripahús með hæfilega stórri hlööu, en í sambandi við það má enginn áhættusamur búrekstur vera; tel eg heppilegast, aö félagið fengi leyfi til að reisa það á landi einhvers búanda í nánd við Reykjavik, eða svo nálægt einhverju býli við bæinn, að ábúandi býlisins gæti annast starfrækslu þess fyrir félagið. IJaö fyrirkomulag yrði áhættuminst fyrir félagið og ódýrast.“ Kosningar. Þá var gengiö til kosninga og var stjórnin ásamt meðstjórnendum endurkosin. Stjórn félagsins skipa þetta ár: Þórarinn hafnarstjóri Kristjánsson, formaöur, Lúdvig C. Magnússon, skrifstofustjóri, ritari, Ólafur kaupmaður Ólafsson, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Björn innheimtumaður Gunn- laugsson og Sigurður iogreglujijónn Gíslason. Varaformaður var endurkosinn Dan. Danielsson stjórnarráðsdyravörður og vara meðstjórnendur þeir ísleifur Jónsson og Einar E. Sæmundsen. Endurskoðendur vóru þeir kosnir: Ólafur fram- kvæmdarstjóri Briern og Guðmundur deildarstjóri Guðmundsson. í stjórn „Ártíðaskrár dýranna“ vóru þeir kosnir: Daníel Danielsson, Hjörtur Hansson og Einar E. Sæmundsen. Prjálsar umræður. Fyrstur kvaddi sér hljóðs formaður útbrei'ðslu- nefndar, Hjörtur heildsali Hansson. Af störfum nefndarinnar kvaðst hann hafa það að segja, að fenginn hefði verið listi yfir barnakennara landsins hjá fræðslumálastjóra, og í samráði við Jón N. Jón- asson kennara, valdir úr rúmir 120 kennarar, víðs- vegar um land, og þeim skrifað og óskað eftir að- stoð þeirra við útbreiðslu Dýraverndarans. En undir-

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.