Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1938, Page 11

Dýraverndarinn - 01.04.1938, Page 11
DÝRAVERNDARINN ->3 lega blessuö skepnan líSur, yröi þaö hverjum góö- um manni óbærileg hugsun aö fella úr hor. Vrér mennirnir getum hla'Sið utan á oss fötum til hlýinda og variö oss kuldanum eöa flúiö í eitt- hvert húsaskjól, þegar oss veröur kalt. Þetta get- ur ekki blessuð skepnan. Hún velkist úti varnar- laus meöan enginn maöur líknar henni. Hún bíöur aðeins dauðans og hún deyr. * * * Vér hugsum meö hryllingi og viöbjóöi til víg- vallanna hingaö og þangaö um heim, um þjáningar hermannsins, hörmungar hans og daúöastríð, eða um lemstraða limi hans og líkama, það sem eftir kynni aö vera hinnar aumu ævi hans. Oss' ofbýöur jafnvel grimd og óvit þjóðanna. Hver þjóð, sem á í ófriði, lendir í óteljandi vandræðum, hvort sem hún sigrar eða lýtur í lægra haldi. Þau eru meðal annars hordauði hinna stærri þjóða. Hér á landi er, sem betur fer, engum manni otað út í opinn dauðann, en þetta land hefir, því miður, á liðnum öldum átt sinn vígvöll. Á síðari öldum hefir eigi verið mannslífum fórnaö, heldur öörum lifandi verum, skynlausum skepnunum og mest fyr- ir tvísýna hagnaðarvon. Hermaðurinn lætur líf sitt á vígvellinum. Hann lætur eftir sig ekkju og ein- stæðinga. Þjáningin flytzt frá kyni til kyns. Skynlaus skepnan hefir verið látin fórna lífí sínu á íslenzkum vígvelli. Hún lætur aö vísu ekki eftir sig ekkju né einstæðinga, en hún lætur það eina, sem hún á, lífið sjálft. Einmana líður hún óumræðilega þjáning, einmana deyr hún. Þögul jörðin er hennar vottur. Þess vegna: Burt með hinn ljóta smánarblett af íslenzkum söguspjöldum, hordauðann. Enginn láti framar reka á reiðanum, því það merkir líf eða dauöa, líka mannanna sjálfra, landsins l)arna. Að láta reynzluna kenna sér er í þessum efnum svo brýn nauðsyn, að daufheyrast má enginn fram- ar, við slíkri hrópandans rödd. II. Sumarið eftir að eg hafði lokið embættisprófi, lék eg um nokkra hrið og að nokkru leyti lausum hala. Bú föður míns var tvístrað, og réðst eg um þriggja vikna skeið kaupamaður til móðursystur minnar, sem var ekkja og bjó í Landeyjum. Hún var annáluð rausnar- og dugnaðarkona. Hún var reglusöm með afbrigðum og stjórnsöm og gengu allir hlutir vel á heimili hennar úti og inni, enda var góð samvinna milli hennar og hinna uppkomnu barna hennar um allt, sem vel mátti fara. — Mér hafa ávalt síðan verið minnisstæö orð, er móður- systir mín hafði einatt mjög oft á takteinum. Hún ciginlega klifaði á þessum oröum: „Slátturinn er stundaglöggur“. Hún þurfti ekki sérstaklega að gefa mér áminningu. Eg hafði lært þau sannindi, að talsverðu leyti og var þá ungur og duglegur vinnumaður, og hafði einmitt yndi af útivinnu. Eg man hve gamla konan var ánægð, til dæmis í viku- lokin, yfir því, hve allt gekk ágætlega vel, enda var þá góð tíð. Á því heimili bjó vinnu- gleði og hvers virði er hún ekki? Mundi ekki ein- mitt eitt af meinum nútímans, að ekki er ýtt undir vinnugleðina, þetta eitt hið fremsta skilyrði þess, aö flestir hlutir geti gengið vel. Þá var heldur ekki verið að karpa um kaup né æsa hið vinnandi fólk upp til að gera æ hærri og hærri kröfur með æ styttri vinnutíma og fríum og fríðindum. En umgetin orð gömlu sæmdarkonunnar voru greypt inn í meðvitund hennar með stórum stöf- um. Eg hefi enn betur síðar lært að skilja, hve orðin voru sönn: „Slátturinn er stundaglöggur". Hefir mér verið það sönn gleði í hvert sinn, er mér hefir virzt vera farið einmitt eftir þessari gull- vægu reglu. Mér hefir einriig yfirleitt virzt mega treysta því, að hafi þetta veriö eins og yfirskrift á sveitaheim- ili um hinn óðfluga og skammvinna heyskapartíma, hafi heldur ekki þurft að kvíða vetrarfari né vor- harðindum, hvorki heyleysi né hordauða, ef skyn- samlega var að öðru leyti að vetrinum búið með gætilegri heyásetningu. Sé nokkur tími ársins öðr- um fremur þess eðlis, að þá þurfi að vaka og vinna og nota tímann vel, þá er það slátturinn, þessi átta til tíu vikna tími og einkum meðan öll grös eru í blóma, því óðum fölna þau og verða að æ minni notum, er nær dregur hausti. * * * „Vér eigum lög, og eftir vorum lögum á hann að deyja", eins og skrifað stendur. Vér eigum lög, forðagæzlulög og viðurlög við illri meðferð á skepnum. Vér eigum lög, og lög, öll möguleg og ómöguleg lög, en ef lögin komast ekki i meðvitund þjóðarinnar eða samþýðast skap- lyndi hennar og eðlisfari, þá er hætt við, að lögin verði einatt í heild sinni helzt pappírslög, sem hafa

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.