Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1939, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.03.1939, Síða 10
14 DÝRAVERNDARINN með saniskonar skilyrði að öðru leyti. Þetta er orsök þess, að korn nær betri þroska við sama hita- stig og önnur skilyrði jöfn, sé það norðar, þar sem dagur og sól er lengur á lofti, og þetta er yfir- leitt orsiik þess, að jurtalíf er hér norður i sumar- sólskininu, þróttmeira og kjarnlætra en sunnar, nær miðbaug, þar sem hitinn er meiri og sumarblíðan lengri. Þá er það dýralifið. Ekki notum við 1)laðgrænu, en dýr þurfa sólarljósið samt til líkamlegrar upp- byggingar. Sólarljósið er nokkurskonar aflvaki fyr- ir dýralifið. Það drepur gerla, og er því sóttverjandi. Sólarljósið hefir mikið góð áhrif á vöxt og heilsu ungviðis. Það eru einkum útfjólubláu ljósgeislarn- ir, sem valda ])vi, að skepnan getur hagnýtt sér fosfórsúr kalksölt fóðursins, svo að beinmyndun verður eðlileg. Þetta sést við fóðurtilraunir, ])ar sem annar flokkurinn var í björtu, en hinn í diminu húsi, en fóður og meðferð að öðru eins. Læknar ráðleggja mönnum sólböð; eðlilega gild- ir hið sama fyrir dýrin. Skepnur missa fóstur stundum fyrir það, að þær hafa, fyrir skort birtunnar, ekki náð kalksölt- unum úr fóðrinu. Læt eg nú lokið frásögn minni um það, hvaða áhrif sólarljósið hefir á jarðlífið. Mér flaug í hug áminst tilfelli, ]>egar eg las í fyrravetur greinina ,,Merkilegt áheit“, í i. tbl. Dýraverndarans, bls. 7. — Það er náttúrlega fjarri því, að hundurinn, sem minst er á í greininni „Merki- legt áheit“ hafi lifað í dimmu og þröngu húsi. En eðli hans var hindrað með of mikilli inniveru, og ]>að leiddi af sér hreyfingarleysi, sem heilsa hans þoldi ekki. Það mun oftar en frá er skýrt, að dýrin missi heilsu og lif fyrir skakka meðferð, stundum af van- þekkingu hirðisins. — Þegar eg var unglingur, heyrði eg búfjárskoðunarmenn eitt sinn hafa orð á því, að það væri ergilegt, að þau lömbin, sem gefið væri inni, bjá sumum bændum í sveitinni, væru ver fóðruð en þau, sem út væri beitt með fullorðna fénu. Skyldu þau hafa verið höfð í dimm- um kofahreysum og sjaldan séð fullkomið dags- ljós, meðan á innistöðutímanum stóð? — Sem bet- ur fer, fer þekking manna á eðli og þörfurn skepn- anna ört vaxandi, og byggingu gripahúsa fer mikið fram á seinni árum, að því leyti, að þau eru nú bygð rúmbetri, bjartari og loftbetri en gerðist i gamla daga. Bændur! Kaupið Dýraverndarann. í honum er svo margt um meðferð húsdýra vorra, eðli þeirra og vit. Því betur, sem menn skilja eðli skepnanna, ])vi eðlilegra er, að menn breyti betur við þær og hafi þeirra meiri not. Nesi, Loðmundarfirði, 1. desember 1938. Halld. Pálsson. Innflutningur fugla tll skrauts og skemtunar. Konu nokkurri, frú Isenberg aö nafni, er búsett var — og er kannske enn — á einni af Hawaii-eyj- unum í Kyrrahaíi, datt i hug fyrir eitthvaö 40 árum, aö gaman væri aö reyna, hvort ekki mundi hægt að hagvenja þar á eyjunum framandi fugla, fallega og skemtilega. Og hún lét ekki sitja við hugmyndir einar eöa ráðagerðir, heldur bófst handa þegar í stað. Meðal annars náði hún sér i hóp af lævirkjum frá Austurlöndum. Hafði hún þá í einskonar haldi í garði sínum fyrst um sinn, meðan þéir væri að venj- ist liinu breytta loftslagi og lífsskilyrðum. Slepti þeim siðan lausum og vonaði, að þeir færi ekki leið- ar sinnar. En þeir hurfu þegar og sáust ekki framar. En frúin gafst ekki upp, útvegaði sér nýja læ- virkja og fleiri fuglategundir, svo sem þresti, dúfur og næturgala. Og margra fleiri fuglategunda aflaði hún sér og frá ýmsum löndum. Og smám saman fóru aðrir eyjabúar að dæmi hennar og gerðu slíkt hið sama. Árangurinn varð ekki að óskum hjá nein- um fyrst í stað, en áfram var haldið og ekki gefist upp. Og smám saman tóku fuglarnir að venjast hinum breyttu lifsskilyrðum, tóku að eignast börn og buru i hinum nýju átthögum — og þá var „björn- inn unninn“. Og nú er þarna sægur fallegra og skemtilegra fuglategunda, sem ekki voru áður til á eyjunum, en liafa nú tekið sér þar fasta bólfestu og una hag sínum hið besta. Og fólkið skilur í raun- inni ekkert i því, hvernig eyjaskeggjar hafi getað komist af án þeirra að undanförnu!

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.