Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1939, Side 11

Dýraverndarinn - 01.03.1939, Side 11
DÝRAVERNDARINN 15 Oýrin og tónlistin. Athugun hefir fariÖ fram um það í dýragörð- um erlendis, hver áhrif venjuleg tónlist muni hafa á hinar ýmsu ’dýrategundir. Þótti ekki alls kostar ófróðlegt, að komast að nokkurri raun um þetta. Talið er, að árangurinn hafi víðast hvar orðið mjög á eina leið: Slöngur virtust ekki verða fyrir neinuni teljandi áhrifum, nema þá helst þeim, að þær langaði til að ganga úr skugga unt, hvaðan ,,óhljóðin“ kæmi. — Krókódílar skriðu á land eða „gengu á hljóðið“ og var svo að sjá, sem þeir nyti tónanna að einhverju leyti, rétt sem snöggvast. Naslryrningar brugðusl illa við og þóttu líklegir til þess, að vilja ráðast á hljóðfærin og ])á, sem með þau fóru. Hundar tóku að spangóla af mikilli ákefð og lintu ekki fyrr en hætt var að leika. — Apar hlustuðu gaumgæfilega ofurlitla stund, en létu síðan sem þeim kæmi þetta ekkert við. Selir virtust njóta tónanna í ríkum mæli, lokuðu augunum og hlustuðu með athygli. Og svo var að sjá, sem þeir söknuðu þess mjög, er hætt var að leika. — Um áhrif tónanna á önnur dýr en þau, sem að ofan getur, er ekki rætt í heimild ]jeirri, sem þetta er eftir haft. Heldur trygð við liestinn sinn. Það er í frásögur fært, og þykir merkilegt á þess- ari lausungar-öld, að ökumaður nokkur vestur i Whitewater i Wisconsin, sem lengi hefir haft hesta í þjónustu sinni og á nú einn eftir, úrvals-grip, af- taki með öllu a'ð láta hann þoka fyrir bifreið, sem honum mundi þó innan handar að kaupa. Jdann má ekki til ]>ess hugsa, að selja hestinn, vin sinn og félaga, láta hann víkja fyrir dauöu flutningatæki og svifta sjálfan sig þar með ánægjunni að sam- starfi við skemtilegan félaga. Honum finst ]>að ó- bærileg tilhugsun, að lóga klárnum, meðan hann er heill heilsu og í fullu fjöri. En keypt hefir mað- urinn skrautleg aktýgi á hestinn, rafljósum prýdd að vild og þörf. Beislið er og með ljósakúlum, svip- an og vagninn sjálfur. Útvarpstæki er i vagninum og fleira til skemtunar og þæginda. „RafstöSin" sjálf er undir sæti ökumannsins. Sagt er aS hestur- inn hafi kunnaS ljósaganginum og útvarpshávaS- anum heldur illa fyrst i staS, en sætti sig nú hiS besta viS hvorttveggja. J^ykist eigandinn jafnvel hafa orSiS þess var, aS hann lifni allur og fjörgist viS glaSan söng og hljóöfæraslátt. Smavegis. Til margs má nota seppa! ÞaS virSist ekki liggja beinlínis í augum uppi, meS hverjum hætti hundar geti orSiö flugsamgöng- unum aS liöi. Samt er ekki loku fyrir það skotiö, aS þeir geti orSiö aö verulegu gagni i þessum efnum. — MaSur er nefndur Carl Evert. Hann er flugmaöur og mun vera búsettur i New York. Hann á hund einn af þýsku kyni, hinn mesta þrekvarg, og hefir kent honum marga hluti. — Eitt er þaö, meSal margs annars, aS verSi rakkinn þess var sjálfur, eöa sé sagt frá því, aö komin sé reka-sprek eöa trjá- kubbar í flughöfnina, sem oft vill verSa, þá legst hann til sunds og reynir af miklum dugnaöi og samviskusemi, aS koma þessu drasli í burtu, svo að lending flugbáta og flugvéla veröi auðveldari og síSur hætt viö slysum. ★ Frábær mjólkurkýr. Göniul og góö búkona norölensk komst stundum svo aS orSi um bestu mjólkurkúna sína: „Hún er bæSi nythá og dropsöm, blessuð skepnan — flæö- ir mjólkinni vetur og sumar.“ — Sú kýr mun oft hafa komist í 22 merkur í mál og fekk þó aldrei antíaö en töðugjöf. — Og kölluS var hún dropsöm, ekki síSur en hámjólk. Fyrir skömmu birtu erlend blöð mynd af frábærri mjólkurkú, sem höfö var á gripasýningu vestur í Argentínu áriS sem leiö. Er hún af hollensk-argent- isku kyni og talin með hestu mjólkurkúm í heimi um þessar mundir. Iúitt áriö (líklega 1937) mjólka'Si hún 10.544 kg. Og samkvæmt rannsöknum á fitu- magni mjólkurinnar heföi mátt vinna úr nytinni 367 kg. af smjöri, ef hún heföi öll fariö í „strokk- inn“ ★

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.