Dýraverndarinn - 01.07.1963, Síða 2
Enn um olíumengun sjávar
Fuglum og fjörulífi stendur síaukin hætta af olíumengun sjávar,
jafnt við strendur landsins og inni á höfnum.
OLÍUSKIPIÐ LITLAFELL VELDUR
FUGLADAUÐA Á EYJAFIRÐI.
Nokkru ei’tir sumarmálin sá ritstjóri Dýravernd-
arans það í blaði, sem út er gefið á Akureyri, að
sjórinn í höfninni og nánd við hana hefði verið
svo mengaður af olíu, að fjöldi æðarfugla og anda
væri nær dauða en lífi af völdum þessa óþverra.
Ritstjórinn gerði aðvart ritara Sambands dýravernd-
unarfélaga Islands, og brá hann þegar við og hringdi
til bæjarfógetans á Akureyri, Friðjóns Skarphéðins-
sonar. Bæjarfógetinn lét þegar rannsaka málið, og
kom þá upp úr dúrnum, að olíuskipið Litlafell hafði
losað olíusora í höfnina. Mun vera að vænta írek-
ari aðgerða í þessu máli, því að þótt ekki sé enn
komin reglugerð sú, sem gert er ráð fyrir í lögum
um aðild íslands að alþjóðasamþykkt gegn olíu-
mengun sjávar, mun unnt að láta skip sæta ábyrgð
samkvæmt ákvæðum sjálfra laganna.
OLÍUMENGUN í GRENND VIÐ REYKJAVÍK.
Miðvikudaginn fyrir uppstigningardag varð svo
vart mikillar olíubrákar á ytri höfninni í Reykja-
vík, í Sundunum og allt út fyrir Gróttu. Var málið
athugað, og kom í Ijós, að fuglar höfðu þegar beð-
ið tjón af völdum þessarar brákar, svo sem sjá má
á myndinni, sem hér íylgir. Morgunblaðið fylgdist
með í athugun lögreglunnar á þessu máli, og skýrði
það frá því, að bilað hefði olíuleiðsla íyrir um það
bil mánuði hjá stöð Essó í Örfirisey, en ráðamenn
stöðvar B.P. í Laugarnesi vildu alls ekki viðurkenna,
að nein olía hefði þar farið í sjóinn frá stöðinni.
Rússneskt skip hafði losað olíu í Laugarnesi dagana
á undan, en rúmenskt í Örfirisey, en ekki varð þó
vitað, hvort þau hefðu losað botntanka, og yfirleitt
fékkst ekki við Jjá upphafsrannsókn, sem gerð var,
nein ákveðin vitneskja um, hvaða aðilar væru vald-
ir að olíumenguninni.
Þorsteinn Einarsson, ritari Sambands dýravernd-
unarfélaga fslands, kom úr ferðalagi í flugvél ein-
mitt sama dag og Morgunblaðið birti grein sína
um olíubrákina, og sá hann greinilega, að á öllu
svæðinu irá Gróttu og inn fyrir Laugarnes var sjór-
inn mjög mengaður olíu. Hann kærði málið til
sakadómara, og einnig mun iormaður fuglavernd-
unarfélagsins, Björn læknir Guðbrandsson, hafa
sent kæru, enda var hann í för með lögreglunni,
þegar hún fór á báti og kannaði, hve víðtæk meng-
unin væri. Er málið í höndum sakadómara, en óvíst,
Svarlfugl, sem olian i Reykjavikurhöfn varð að bana.
DÝRAVERNDARINN
34