Alþýðumaðurinn - 23.05.1956, Blaðsíða 1
XXVI. árg.
Miðvikudagur 23. maí 1956
19. tbl.
Sam Irœndi sýnir tcnmr
Bær íhaldið undir?
Brezkur skopteiknari hefir ný-
lega teiknað mynd, sem segja má
að sé sýnishorn af viðhorfi allrar
alþýðu þjóða á meðal varðandi
hersetu á erlendri grund. Skop
teiknarinn tekur að vísu aðeins
Sam frænda og Jón bola, þ. e.
Bandaríkin og Bretland, „í gegn“
í skopteikningu sinni, en að sjálf-
sögðu gildir þetta um hvaða her-
veldi sem er, sem hefir hersetu á
erlendri grund og steitist við að
halda henni áfram, undir merkj
um vináttu og gagnkvæms trausts,
meðan imnt er, þar næst með
leynilegum undirtökum, ef fært
þykir, en loks með ógrímuklæddu
ofbeldi, sé ekki annars kostur, og
þá setið meðan sætt er.
Skopteiknarinn dregur upp
litla mynd af íslandi annars veg-
ar, en á því situr John Foster
Dulles, utanríkismálaráðherra
Bandáríkjanna í jötunstærð og
yfir stendur stórum stöfum: ís-
land fyrir íslendinga. Hins vegar
er svo hliðstæð mynd af Cypur,
og situr þar Eden forsætisráð-
herra Breta. Hafa þessir áminnztu
félagar símasamband milli sín.
ísland hefir um skeið allofl
verið nefnt í heimsfréttum und-
anfarið vegna þeirrar samþykktar
nýlokins Alþingis að óska eftir
endurskoðun hervarnarsamnings-
ins 1951 og þeirrar yfirlýsingar
þess, að samningi þessum skuli
sagt upp með umsömdum upp-
sagnarfresti, náist ekki viðunandi
samkomulag um endurskoðunina,
þar á meðal það grundvallarat-
riði, að hér sé enginn erlendur
her á friðartímum.
Eins og alþjóð veit, stóðu allir
flokkar á Alþingi að þessari sam-
þykkt — nema Sjálfstæðisfloklcur
íslands, hann einn vildi ekki
hrófla við hersetunni.
Það hefir ekki farið leynt, að
flokkur þessi hefir reynt að koma
þeirri skoðun á framfæri erlendis,
að áðurgreind samþykkt væri
miðuð við það að hafa áhrif á
kosningaúrslit í sumar Alþýðufl.
og Framsóknarfl. í hag. Undir
þann áróður hafa kommúnistar
tekið þannig að halda þeirri
skoðun að fólki, að því aðeins
yrði við þessa samþykkt Alþing-
is staðið, að áhrif kommúnista
ykist á Alþingi, og líkan söng
syngur Þjóðvörn fyrir sig. En
ekki er vitað til, að hún hafi
framið það þegnleysisbragð að
lita fregnir til útlanda þessum
áróðri.
Nú munu fæstir íslendingar
hafa gengið að því gruflandi, að
fyrrgreind samþykkt mundi mið-
ur vel séð í hermálaráðuneyti
Bandaríkjanna. Hér á landi má
sú skoðun heita sjálfdauð fyrir
nokkru, að flugherstöðin í Kefla-
vík sé enhver varnarstöð fyrir ís-
land og íslendinga. Meginhluti
landsmanna lítur á hana fyrst og
fremst sem útvarðstöð fyrir
Bandaríkin sjálf og hlekk í því
samvirka varnarkerfi, sem Atlants
bandalagið — og þá fyrst og
fremst Bretar og Bandaríkjamenn
hafa byggt upp, hlekk, sem vafa-
laust er talsverðs virði, en ósam-
rýmanlegur á friðartímum ís-
lenzkum hagsmunum, hvað áhrií
öll snertir.
Þar sem íslendingar hafa fram
tif þessa litið á Bandaríkjamenn
sem mikla menningarþj óð um
marga hluti, víðsýna og frjáls-
'lynda, þá munu þeir að miklum
meiri hluta hafa vænzt þess, að
þetta stórveldi tæki afstöðu vorri
í hervarnarmálinu af skilningi.
Fyrstu fréttir bentu og til, að
svo yrði. Haft var eftir utanríkis-
málaráðherranum John Foster
Dulles, að hann skildi vel afstöðu
Islendinga og vonaðist til, að mál
þessi leystust með góðu sam-
komulagi. Munu flestir hafa skil-
ið þessi orð á þá lund, að Banda-
ríkin hygðust koma til móts við
endurskoðunarkröfuna á her-
varnarsamningnum með góðum
samkomulagsvilj a.
Enn liggur að vísu ekkert bein-
línis fyrir um það, að svo verði
ekki, en óneitanlega er þá fram-
koma varnarmálaráðuneytis
Bandaríkjanna næsta klaufaleg
þessa dagana og virðist auðveld-
ast að túlka hana sem klunnalega
tilraun til leika að einhverju leyti
með í íslenzkum kosningum. Það
hefir semsé birt yfirlýsingu þes3
efnis, að allar framkvæmdir á
vegum hers þess hér á landi verði
stöðvaðar fyrst um sinn, eins
nauðsynlegt viðhald á flugvellin-
um á Keflavík og þegar umsamd-
ar framkvæmdir sem nýfram-
kvæmdir allar óumsamdar, en
orðaðar.
Vegna látlausra skrifa Sjálfs-
stœðis blaðanna undanfarið að
þessi kynni einmitt að verða af-
leiðing samþykktar Alþingis,
leggst undir eins í almenning sá
ónotagrunur, að eitthvert óhugn-
anlegt leynisamband sé milli þess-
arar máltúlkunar Sjálfstœðisblað-
anna og yfirlýsingar varnarmála-
ráðuneytis Bandaríkjanna.
Auðvitað var og sjálfsagt, að
engar óumsamdar nýframkvæmd-
ir á vegum hersins hæfust hér að
gerðri samþykkt Alþingis, en að
viðhald gerðra mannvirkja og
í Bf"* *r< “
Stalín liefir verið steypt af stalli, en nú þarf að slcíra upp allar þess-
ar Stalínborgir allt frá Austur-Þýzkalandi til Síberíu.
smíði þegar umsamdra mar.n-
virkja eigi að stöðva, áður
Framh. á 4. síðu.
Ólafur Þ. Kristjánsson,
skólastjóri, verður fram-
bjóðandi Aíþýðuflokksins
í Vesfmannaeyjum.
Ólafur Þ. Kristjánsson, settur
skólastjóri Flensborgarskólans í
Hafnarfirði, verður frambjóð-
andi Alþýðuflokksins í Vest-
mannaeyjum við alþingiskosning-
arnar í sumar. Framsóknarflokk-
urinn býður þar ekki fram, sam-
kvæmt samkomulagi hans og Al-
þýðuflokksins um kosningabanda-
lag, heldur styður framboð ÓI-
afs.
___
Bragi Sigurjónsson
frambjóðandi fyrir Al-
þýðuflokkinn í Austur-
Húnavatnssýslu.
Bragi Sigurjónsson, ritstjóri,
Akureyri,verður frambjóðandi AI
þýðuflokksins í Austur-Húna-
vatnssýslu við alþingiskosning-
arnar í sumar. Framsóknarflokk-
urinn býður ekki fram í sýslunni,
en styður framboð Alþýðuflokks-
ins samkvæmt samningum flokk-
anna um kosningabandalag.
___*___„
Atkvæðagreiðsla utan
kjörstaðar hefst n.k.
sunnudag.
Framboðsfrestur til alþingis-
kosninganna í sumar rennur út í
kvöld kl. 12 á miðnætti.
Atkvæðagreiðsla utan kjörstað-
ar má samkvæmt kosningalögun-
um hefjast næstkomandi sunnu-
dag, þ.e. hjá bæjarfógetum, sýslu-
mönnum og hreppstj órum. Einnig
ræðismönnum íslands erlendis.
_________________
sms i
Framboðslisti Alþýðuflokksins
í Reykjavík hefir verið ákveðinn,
og er hann þannig skipaður:
1. Haraldur Guðmundssson, al-
þingismaður.
2. Gylfi Þ. Gíslason, alþingism.
3. Rannveig Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur.
4. Eggert G. Þorsteinsson, al-
þingismaður, form. Múrarafélags
Reykjavíkur.
5. Jóhanna Egilsdóttir, form.
Verkakvennafélagsins Framsókn.
6. Egill Sigurgeirsson, lögfr.
7. Kristinn E. Breiðfjörð,
gjaldkeri Sveinafél. pípulagning-
armanna.
8. Hjalti Guðmundsson, báts-
maður.
9. Kristján H. Benediktsson,
kennari.
10. Ellert Ág. Magnússon, rit-
ari H. í. P.
11. Grétar Fells, rithöf.
12. Skeggi Samúelsson, járnsm.
13. Guðbjörg Arndal, frú.
14. Pálmi Jósefsson, skólastj.,
form. Kennarasambands íslands.
15. Jón Eiríksson, læknir.
16. Sigurður Guðmundsson,
verkamaður.
Hljómleikar Symíónínhljóm-
sveitar íslands
Eins og áður hafði verið boðað
hér í blaðinu, hélt Symfoníu-
hljómsveit íslands hljómleika í
Akureyrarkirkju að kvöldi ann-
ars hvítasunnudags, eftir að hafa
þá fyrr um daginn haft hljóm-
leika að Skjólbrekku í Mývatns-
sveit.
Hljómleikarnir hófust í kirkj-
unni kl. 22 eða rúmlega það og
stóðu til miðnættis. Var hver
bekkur, auk nokkurra hliðarsæta,
fullskipaður áheyrendum, er
stjórnandi hljómsveitarinnar, Páll
ísólfsson, steig á stjórnpallinn.
Fyrst lék hljómsveitin þjóðsöng-
inn, en því næst lék hún þessi við-
fangsefni: Fingalshelli, forleik op.
26 eftir Mendelsohn, músik úr
sjónleiknum Rósamundu eftir
Schubert, konsert í A-dúr fyrir
klarinett og hljómsveit, K. 622,
og var Egill Jónsson einleikarinn,
og loks symfoníu nr. 1 í c-dúr,
op. 21 eftir Beethoven.
Að loknum hljómleikum voru
stjórnanda og einleikara færðir
fagrir blómvendir, en Þórarinn
Björnsson, skólameistari, þakkaði
í nafni Tónlistarfélagi Akureyrar,
hljómsveitinni fyrir komuna og
hljómleikana, og Jón Þórarins-
son, framkvæmdarstjóri hljóm-
sveitarinnar, ávarpaði áheyrend-
ur nokkrum orðum og þakkaði
móttökur.
___*____
Vísitalan 181 st.
Kauplagsnefnd hefir reiknað út
vísitölu framfærslukostnaðar í
Reykjavík hinn 1. maí þ. á. og
reyndist hún vera 181 stig.
Ennfremur hefir kauplagsnefnd
reiknað út kaupgjaldsvísitölu fyr-
ir mánuðina júní-ágúst þ.á., mcð
tilliti til ákvæða 2. gr. laga nr.
111, 1954, og reyndist hún vera
168 stig, þ.e. vísitala á kaup verð-
ur 178 stig frá 1. júní til 31. á-
gúst n. k.