Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 12.02.1957, Page 3

Alþýðumaðurinn - 12.02.1957, Page 3
Þriðjudagur 12. febrúar 1957 ALÞÝÐUMAÐURINN 3 vel,“ svaraði faðir Borrelli, farið þið bara leiðar ykkar. Við lokum þ'l la Casa og faðir Vesúvlus hælt ir að vera til, því að þá hefi ég misst trúna á þá vináttu, sem binda ■ átti okkur scugnizzana saman.“ Hann snerist á hæli og fór. Augnabliki síðar var upp- reisnin úti. Nokkrum mánuðum síðar kom Pietro aftur til föður Borelli. „Nú gengur það vel í skólanum, faðir Vesúvíus,“ sagði hann hreykinn. „Kennarinn sagði í dag, að ég væri greindarpiltur. Og satt bezt að segja finnst mér, að þeim geðj- ist vel að mér í skólanum.“ Næstu mánuði mátti í raun og sannleika segja, að Piétro tæki stakkaskipt- um. Æðisvipurinn hvarf af and- liti hans og augnatillit hans varð vingjarnlegt í staðinn fyrir hart og kalt áður. Ilæðnisglottið vék fyrir glöðum hlátri. Nú er „Hönd- in“ nemi í vélaverksmiðju og allt bendir til, að honum muni vel farnast. „Flestir scugnizzanna eru greindir, margir jafnvel gáfaðir,“ segir faðir Borrelli. „Það hljóta þeir raunar líka að vera, fyrst þeir hafa getað haldið í sér lífinu á götunni. Galdurinn er að sveigja gáfur þeirra og áhuga inn á rétt- ar leiðir." Erfiðast af öllu reyndist að út- vega elztu piltunum vinnu. Þeir, se:n faðir Borrelli snéri sér til með þeirra erinda, hryllti við til- hugsunina eina. „Ég vil gjarnan leggja eitthvað af mörkum til starfsemi yðar,“ sagði kaupmað- ur einn í varnarróm, „en að taka einn þessara drísildjöfla í vinnu geri ég aldrei!“ En þá gaus Vesúvíus, og þegar gosinu slot- aði, þá hafði kaupmaðurinn látið sér segj ast. Hann réð til sín dreng að nafni Mario sem sendil. Nokkrum dögum síðar sagði Mario við Borrelli: „Faðir Vesú- víus, má ég ekki grípa smáhluti í búðinni? Enginn mun sjá það.“ Faðir Vesúvíus lagði hönd sína á öxl drengnum og horfði í augu honum: „Mario, ég mun upp- götva það, þótt þú takir aðeins saumnálarvirði, og þá neyðist ég til að skýra kaupmanninum frá því. Þá verð ég að loka la Casa, og ég mun ekki geta útvegað nokkrum hinna drengjanna at- vinnu. Viltu, að þetta fari svo?“ „Nei-eih“, muldraði pilturinn loks. „Þá vil ég heldur láta það vera.“ Og hann stóð við orð sín. Nú er hann orðinn afgreiðslu- maður í verzluninni. Nú hefir faðir Vesúvíus fengið hjálparmann við starfið, annan kaþólskan prest, föður Spada. í félagi hafa þeir hjálpað um 300 . scugnizzi til að byrja nýtt líf. . Þeim - hefir ekki öllum farnazt jafnvel, en þrír af hverjum fjór- um hafa haft hamingjuna með sér. Nú rúmar la Casa 80 drengi í einu. Þar eru margir á biðlista, en föður Vesúvíus skortir fé til að auka starfsemina. Til 14 ára ald- urs ganga drengirnir í skóla, en síðan útvegar Borrelli þeim at- vinnu við sendistörf, afgreiðslu, iðnnám eða hótelþj ónustu. Þriðj- ungur launa þeirra gengur til reksturs la Casa, þriðjungur þeirra er lagður á vöxtu og þriðj- ung launanna mega piltarnir nota að eigin vild. Nú er svo komið, að „drengirnir hans föður Vesúvís- ar“ eru eftirsóttir vil vinnu. „Þeir leggja sig betur fram en flestir aðrir,“ sagði einn neapeliskur kaupmaður, sem hefir haft marga í vinnu. „Furðulegt, finnst yður ekki?“ í la Casa gildir ein regla án undantekningar: „Drengirnir eiga að koma heim í síðasta lagi kl. 21. Brjóti einhver þessa reglu er hon- um gefin áminning, en endurtaki brotið sig, er honum tafarlaust vísað brott. „Mér hefir ekki virzt þörf á að banna eða heimta margt annað,“ segir faðir Borrelli. „Drengirnir læra af sjálfu sér að ganga í skóm fremur en berfættir, velja hreina skyrtu fremur en ó- hreina og góðan mat fremur en leifar. Fyrr eða síðar fá þeir löng- un til að betrumbæta sig og þar sem þeir eru ekki knúðir til þess af neinum nema eigin löngun, helzt sú löngun við.“ Fyrir skömmu stóð ég hjá föð- ur Borrelli á leikvellinum fyrir framan la Casa, þar sem hann iðulega leikur knattspyrnu við stærri drengina, en fer í höfrunga- hlaup við þá minni. Lítill snáði hélt fast um hönd honum, en ann- ar hélt í hempu hans, meðan klerkur spjallaði fjörlega við eldri pilt á reiprennandi scugnizzi orðfæri. „Þarna yfir frá,“ sagði faðir Vesúvíus og benti á byggingu í smíðum, er nýja la Casa okkar. „Við höfum orðið að hætta í bili vegna fjárskorts. En fyrr eða síð- ar verður húsið fullgert og þá geta 300 scugnizzi búið þar í einu. Við verðum þá færir um að rétta mörgum þeirra hjálpar- hönd.“ Drengirnir þrír störðu hugfangnir á hann, meðan hann talaði. Glampinn í augum þeirra bar því öruggt vitni, að faðir Vesúvíus mundi bæði vilja og geta framkvæmt fyrirætlun sína. (Lauslega þýtt.) jeoeeeeescíf; Seljum Mýrt: Vinnubuxur kvenna á kr. 25, 35, 75, 95. Sportskyrtur og vinnuskyrtur karlmanna og drengja mjög ódýrar. Nærskyrtur karlmanna kr. 15.00. Nærbuxur karlmanna kr. 15.00. Bakpokar með grind aðeins kr. 125.00, og margt fleira ódýrt. Vöruhúsið h.f. KVENFÉLAGIÐ HLÍF þakkar af alhug góðar óskir, gjaf- ir, blóm og heillaskeyti á fimmtíu ára ajmœli þess 4. febrúar 1957. — Hlíf árnar bœjarbúum allra heilla í framtíðinni. — / guðs friði. Stjórn Hlífar. Þ A K K I R Innilega þakka ég þeim öllum, sem glöddu mig á áttrœðis- ajmæli mínu með gjöfum, árnaðaróskum og á annan hátt. Erlingur Friðjónsson. 1 . er lítil íbúð, eitt stórt herbergi og eldhús, á góðum stað á Oddeyri. Einnig er til sölu smásíldarnót í góðu ástandi. Semja ber við undirritaðan. Bæjarfógetinn á Akureyri. Æskuminning Mlnninganna sœktu í sjó3, sajnaða gulli Braga, kveddu inn í eUiljóð, unað bernskudaga. Sœkir að mér heimþrá hörð, hugurinn leysir böndin, draga hann að sér cettarjörð, œsku- og bernskulöndin. Man ég heima jagurt jlest, jljótið breiða, langa, skógarholtin, hraunið mest, hlíð með grœnan vanga. Blómaskrúð og berjalaut, brekka mels og dranga, sótti ég í þitt sœluskaut, sólskinsdaga langa. lðgrcen stör í vatni vœn, viður í skjóli dajnar, lyng í mó og lautin græn Ijúfum blómum sajnar. Man ég anda og unga jjöld, unað juglaljóða, daga, nætur, kyrrlát kvöld, kveða um landið góða. Landið sem að á sinn óð, eljur straums og vinda, sollið haj og sólarglóð, sveit og jjallatinda. Fylla lojtið kvaki og klið, kveða á sína strengi, taka undir áarnið, œjðum rómi og lengi: Áljt og gæs og æðurin, önd og kría og spói, hávellan og himbriminn, heiðlóa og kjói. Rjúpa, urt og rauðhöjðinn, rita, hrajn og májur, gráönd, staumönd, grœnhöjðinn, gulltoppa og sundhaninn. Lómur, stelkur, lóuþrœll, lítill grátittlíngur, hrossagaukur hress og sœll, liátt í lojti syngur. Syngja alls kyns söngva val sitt á milli fjalla, út við Gjögra og innst i dal, ótal raddir gjalla. Vatnið gljáir vors í blœ, vot er bráin slétta, úti jrá og inn við bæ, upp við bláa kletta. Um það vota tún og torg, tindra geislar skœru, hœngur er i blárri borg, bleikja í vatni tœru. Vatn þó bindi vetraris, vermir á laun minn klettur unga lind, sem aldrei frís, undan hrauni sprettur. Þó að skarti um koll og kinn, kalda, svarta myndin, inn við hjartaylinn þinn undir bjarta lindin. Þú sem kemur, þú sem fer, þarjt að vita meira, i klettinum jmrna álfur er, og eitthvað máski jleira. Þar er gull og þar er eir, þar er hringur jagur, þar er hjálmur, þar er geir, þar er ei nótt eða dagur. Þar er skikkja skarlatsrauð, skrautbúningur glœstur, þar er fullt aj alls kyns auð, ojan i kistu læstur. Áljkona er einnig þar, þó ojt séu dagar kaldir, haja þau búið hér og hvar, i hrauninu i tíu aldir. Hrauns við yndi og höfin blá, hafa þau búið lengi, fuglasöng og jjöllin há, jossa og grösug engi. Þau hafa horjl þann unað á, ættlands jjalla milli, út jyrir Gjögra og Tjörnestá tibrá lojtið jyllL Eftir heitan yndisdag, eyjar og dranga hillir, inn að Sandi sólarlag sjóinn logagyllir. Þó ég fari úr þessupi heim, þó ég reyni að gleyma, þá mun ég leita hingað heim, hugann mun þangað dreyma. Erlingur Friðjónsson.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.