Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 14.05.1957, Blaðsíða 2

Alþýðumaðurinn - 14.05.1957, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUMAÐURINN ÞriSjudagur 14. maí 1957 Honnheloi og lýðrœði, leiðarstjðrnur Ræða Steiadórs Steindórssonar I. maí s.l. Endur fyrir löngu dreymdi mig einkennilegan draum, eða ef til vill var það ekki draumur, heldur ævintýri, sem ég hafði heyrt eða lesið, og skaut upp kollinum úr undirvitundinni. Eg var staddur í miklum sal, fullum af fólki. Yið innri gafl salarins var pallur, þar stóðu margar skálar, og brann eldur í hverri þeirra. Þarna var verið að færa guðunum fórnir, og ég vissi, að því hærra sem reykurinn stigi, því þóknanlegri væri fórnin guð- unum. Ég horfði á reykinn um stund, og sá brátt, að einn þeirra steig miklu hæst. Ég spurði einhvern, hvers fórn það væri, er þann reyk ætti. „Fórn vinnunn- ar“ var svarið. Hvort sem þetta var draumur eða ævintýri, hefir þessi mynd orðið mér minnis- stæð, sakir þess mikla táknræna sannleika, sem í henni er fólginn. í allri baráttu mannkynsins, til þess að gera sér jörðina undir- gefna og þróast frá frumstæðum háttum til menningarlífs, hefir grundvöllur valds þess og sigra verið vinnan, vinna liuga og handar. Hún er grundvöllur til- veru mannsins og sú undirstaða, sem þjóðfélagsbyggingin hvílir á. Án vinnu verður enginn fram- leiðsla, og án framleiðslu hryn- ur höll þjóðfélagsins til grunna. Þetta eru sannindi, sem ekki verð ur um deilt. En þótt svo sé, hefir sagan sýnt, að mjög hafa verið skiptar skoðanir um það, hver njóta skyldi arðsius af vinnunni, hvort það væri sá, sem hana leysti af hendi, eða einhver annar, sem skapað hafði sér aðstæður, til að láta annarra hendur mala sér gull í greipar. Og vert er að minnast þess, að hér hefir sama sagan gerst um andlega vinnu og líkamlega. Deilan um þessi atriði hefir verið, og er, undirstaðan undir og uppistaðan í verklýðs- baráttu nútímans. Baráttu sem er furðulega ung, en hlýtur að halda áfram um ófyrirsjáanlega fram- tíð í einhverri mynd. Annað mál er það, að hún skiptir um form og starfsaðferðir eftir því sem aðstæður og tímar breytast. Hún hlýtur alltaf að eiga sín dægur- mál, sem snúast þarf við með sér- stökum hætti, enda þótt hugsjón- in, sem að baki er, sé hin sama. Hugsjón frelsis, jafnréttis og bræðralags. Á þeirri hugsjón mannréttindanna, mannhelginni sjálfri, hlýlur barátta launastélt- anna ætíð að hvíla. Hverju sinni, sem mannhelgishugsjónin er fyr- ir borð borin, er kippt einni sterkustu stoðinni undan þeim baráttugrundvelli, sem á er stað- ið. Ég sagði áðan að baráttuað- ferðir hlytu að breytast og dag- skrármálin fá svip af líðandi stund hverju sinni. Stundum hlýtur sóknina að bera hæst, á öðrum tímum getur varnarbarátt- an átt fyllri rétt á sér. Einn tím- ann er meginþátturinn bein kjara barátta, annan tíma er einkum leitað fram á sviði menningar og félagsmála. Stundum er baráttan með pólitískum svip, á öðrum tímum er haldið fast við stéttar- baráttuna eina saman, allt eftir því sem er sigurvænlegast og nauðsynlegast á líðandi stund. Enn eru ekki liðnir nema um fjórir tugir ára síðan hægt er að segja, að íslenzk verkalýðsbarátta hefjist. Þótt tíminn sé ekki lang- ur, er hann samt nógur lil þess, að tekið er að fyrnast yfir mörg hörðustu átökin og heitustu bar- áttumálin frá fyrstu árunum. Þær réttarbætur, sem unnizt hafa eru nú taldar svo sjálfsagðar, að yngra fólkinu, sem vanizt hefir þeim frá bernsku, vill gleymast, hverja baráttu það kostaði að ná þeim fram, og hverjir voru þar að verki. Það vill gleymast, hversu berjast þurfti fyrir fyrstu togaravökulögunum, fyrir bygg- ingu verkamannabústaða, fyrir hinum fyrstu almannatrygging- um og umfram allt fyrir hinum sjálfsaga rétti verkamannsins að leggja verð á vinnu sína, og til að efna til samtaka um hagsmuna- mál sín. En oss er hollt að rifja upp liðna hluti um leið og vér skyggnumst um í samtíð og framtíð. Þessi fáu atriði, er ég nefndi sýna oss hversu mjög dægurmálin skipta um svip með breyttum tímum. Nú eru þessi mál ekki dagskrármál, nema þar sem umbóta er þörf, en breyttir tímar krefjast ætíð breytinga á lagasetningu og háttum. Þá er ekki verið að knýja fram réttar- bætur heldur lagfæringar á við- urkenndum réttindum, eftir þörí tímans. En þótt dægurmálin laki breyt- ingum, hljóta þó kaupgjalds- og kjaramál í einhverri mynd alltaf að vera á dagskrá í baráttu laun- þeganna. Um alllangt skeið höfum vér íslendingar átt að búa við vax- andi verðbólgu, þannig að erfitt hefir reynzt að halda við kaup- mætti Iauna, þótt þau hafi hækk- að í krónutali. Um þessi mál hafa verið háðar vinnudeilur, og næst- um því árlega hefir horft ófrið- vænlega í þessum málum á há- Steindór Steindórsson tíðis- og baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Að þessu sinni liorfir vænlegar í þessu efni en oft fyrr. Ríkisstjórnin, sem studd er af launþegum og bændum, þeim stéttum, sem verðbólgan hlýtur ætíð að koma harðast niður á, hefir gert tilraunir til að stöðva verðbólguna. Að vísu hafa þær tilraunir enn borið minni árang- ur en æskilegt hefði verið, en alls- herjarsamtök verkalýðsins hafa þó samþykkt að bíða átekta og fresta launahækkunum, unz ljóst verður hvert ber. Engri stétt þjóðfélagsins er nauðsynlegra en launþegum að sæmiieg ró og kyrrð sé á verð- lagi, og peningar fái haldið gildi sínu. Enginn hagnast á verð- bólgu, nema spákaupmenn og braskarar, hún er þeirra keppi- kefli og sæluland. Fjárhagskeríi þjóðarinnar er sjúkt, og hefir verið það alllengi. Enginn sjúk- dómur verður læknaður án sárs- auka. Ekkert þjóðfélagsvandamál leyst án fórna. Þess skulum vér minnast, en jafnframt gæta þess vel og gera kröfur til, að ríkis- stjórn landsins dreifi þcim fórn- um, sem færa þarf, svo að þeir beri þyngstar byrðarnar, sem sterkastir eru, en ekki öfugt eins og oft liefir verið á undanförnum árum. Af þessum sökum verður kjarabaráttan nú einkum sú að kaupmætti launanna verði liald- ið. Enda er það að öllum jafnaði meira virði en launaupphæðin sjálf í krónutali. Annað mál er alltaf jafnungt, og jafnmikilvægt, en það er at- vinnan sjálf. Þótt svo hafi verið háttað í þjóðfélagi voru síðari árin, að atvinna hafi verið næg í landinu, hefir henni verið harðla misskipt eftir landshlutum, og verkamaðurinn getur ekki hlaup- ið oft á ári í atvinnuleit lands- hornanna á milli. Á hverjum stað á landinu þurfa að vera nægileg atvinnutæki. Að vísu eru ýmsir staðir verr settir í þeim efnum en Akureyri, en þó skortir á um að nægilega vel sé um þá hnúta bú- ið, og halda verður fast við þá stefnu, að efla hér iðnað og út- veg, svo að atvinna megi verða hér örugg og bærinn fái vaxið með eðlilegum hætti. Krafa verkalýðsins á hverjum tíma er næg atvinna til handa öll- um, sem unnið geta. Engin at- vinnubótavinna, engar atvinnu- leysistryggingar geta komið í stað hinnar skapandi vinnu. Hún er eins og ég fyrr gat undirstaða þjóðfélagsins. Hitt eru eins konar lyf, sem draga úr sársauka augna- bliksins, en bæta ekki meinið nema síður sé. Ekkert er þjóðfé- laginu dýrara, en að láta vinn- andi hendur skorta viðfangsefni, sem skapað gætu ný verðmæti. Einkum má segja að slík sóun sé hættuleg í landi sem voru. Land- ið er harðbýlt, og þjóðfélagið fá- mennt, en þarf margs við til að geta staðið á eigin fótum. Tilvera vor hvílir því á því að mikið sé unnið, tiltölulega meira en í öðr- um löndum, og um leið, að arð- inum sé skipt réttilega milli þjóð- félagsþegnanna. Röng skipting þeirra verðmæta, sem aflað er með vinnu gerir þau að hefndar- gjöf. Ranglæti og óréttur hefnir sín fyrr eða síðar. Það virðist svo auðsætt, að ekki þyrfti að eyða orðum að því, að þeir, sem auð- æfanna afla með vinnu sinni, eigi fullan rétt á sínum hluta þeirra. En þótt enn skorti mj ög á að alls- herjarlausn þeirra mála sé fund- in, þá hefir sagan sýnt oss, að þar sem frjáls verkalýðshreyfing hefir þróazt í lýðræðisþjóðfélagi, hefir lengst náðzt áleiðis í þess- um efnum, og þeirrar þróunar óskum vér þjóð vorri til handa. Ein af frumstæðustu kröfum mannsins er að hafa þak yfir höfuð. Húsnæðismálin eru því ætið eitt þeirra dægurmála, sem verkalýðsbaráttan hefir á dag- skrá sinni. Ríkisvaldið hefir fyrir alllöngu viðurkennt skyldu sína í því, að styrkja þá sem lakast eru settir í þeim efnum, þrátt fyrir harða andstöðu íhaldsaflanna á sínum tíma, er Alþýðuflokkurinn barðist fyrir lögum um verka- mannabústaði. En hér verður alltaf að vera á verði, vernda það sem unnizt hefir og sækja fram til meiri úrbóta. Ég hefi drepið á örfá atriði, sem alltaf verða baráttumál verkalýðs og annarra launþega. Mál sem allir launþegar hljóta að standa saman um, hverjar sem skoðanir þeirra annars eru, því að hér er einungis um að ræða náttúrlegar kröfur og þarfir hvers einasta manns. En á margt fleira er að líta. í heiminum er uggvænlegt um að litast. Enda þótt þeir af oss, sem komnir eru á miðjan aidur eða eldri, liafi þegar lifað tvær heims- styrjaldir, eru þær óveðursblikur enn á himni heimsmálanna, að illviðrið getur skollið á þegar minnst varir. Atburðir síðasta hausts sýndu oss svo að ekki verður um villzt, að friðurinn í heiminum hangir á veikum þræði. Hvort sem oss íslending- um er það ljúft eða leitt, höfum vér dregist inn í rás heimsvið- burðanna. Einangrun landsins, sem var því skjól og skjöldur í þúsund ár, er rofin. Reynsla síð- ustu heimsstyrjaldar sýndi oss, að hlutleysisyfirlýsingar, hvort heldur íslendinga eða annarra, eru einskis virði í átökunum um heimsyfirráðin. í oss er togað frá austri og vestri. Flest af oss myndu kjósa að fá að vera utan við slíka togstreitu, en þess er ekki lengur kostur. Margt hefir verið rætt um erlenda hersetu í landinu, og vafalaust er hún fá- um ljúf, þótt menn líti á hana misjöfnum augurn. Vér verðum að horfast í augu við þá stað- reynd, að sameinuð ríkisstjórn vor og alþingi hefir séð sig til- neydda, eftir mati hinna fróðustu manna á öryggi landsins, að halda hér hersetu enn um skeið. Enda hlaut slíkt að leiða af sam- stöðu vorri með vestrænum lýð- ræðisþjóðum og samningum við þær. Skoðanir manna eru skiptar í þessum efnurn. En eitt má þó vera öllum mönnum Ijóst, að hið gamla hlutleysi er haldlaus flík, ef til átaka kemur í heiminum, eins og nú er komið málum. En eitt ættum vér að vera sammála um og hafa hugfast. Látum ekki utanaðkomandi öfl varpa ryki í augu vor og marka afstöðu vora. Beiturn vorri eigin dómgreind og höfum það eitt að mælikvarða, sem samvizka vor segir oss að henti bezt íslenzkum hagsmunum. Ekkert annað er samboðið ís- lenzkum mönnum og þá einkum íslenzkri verklýðsstétt. Vafasamt er, hvort verkalýður nokkurrar þjóðar stendur íslenzk um verkalýð framar að almennri menntun og menningu. Af þeim sökum hafa islenzkir verkamenn og konur bæði meiri möguleika til sjálfstæðs skjlnings á hlutun- um og meiri skyldur, til að láta ekki leiðast af óhlutvöndum á- róðursmönnum, eða verða leik- soppar í hendi einræðissinnaðrar forystu, sem skipar þeim að dansa eftir aðfenginni línu, hvað- an sem hún er fengin. í heiminum er barist um ein- ræði og lýðræði. Að vísu eru hugtökin teygð og toguð í allar áttir. En eitt ætti oss öllum að vera Ijóst. Grundvöllur lýðræðis- ins er mannhelgin. Virðingin fyr- ir manninum sem persónu. Skoð- anafrelsi, málfrelsi og réttarör- yggi eru þau mannréttindi, sem oss eru helgust og aldrei munum vér óska, að á þau verði gengið. Vér viljum hafa rétt til að láta skoðanir vorar í ljós, hvort held- ur til samþykkis eða gagnrýni. Um leið og það frelsi er heft er hverskyns spillingu og ofríki í þjóðfélaginu opnuð leið, og veg- ið að hjartarótum mannhelgi og lýðræðis. En svo vel þykist ég kenna íslenzkt hugarfar, að slíkt muni seint verða ósk og vilji ís- lenzkra verkamanna, þegar þeir fá athugað málin. Enda þótt íslenzkur verkalýður standi í fremstu röð stéttar- bræðra sinna og systra um víða veröld að manndómi og menn- ingu, fer því fjarri að hann hafi borið gæfu til samþykkis. Með samþykki á ég ekki við, að allir séu sammála um alla hluti. Ekk- ert er hættulegra mannlegum þroska en að hneppa alla menn í spennitreyju sömu skoðana og Framhald á 4. síðu.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.