Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 14.05.1957, Page 4

Alþýðumaðurinn - 14.05.1957, Page 4
Ræða Steindórs Steindórssonar Þriðjudagur 14. maí 1957 Frá bæjarstjórn Framhald af 1. síðu. hugsana og þeim sé stjórnað eftir forskriftum valdhafanna. En það sem gerzt hefir meðal vor, er að íslenzkur verkalýður hefir skipzt í tvær andstæðar fylking- ar, sem vegið hafa hvor að ann- arri, þótt þær hafi getað starfað saman að einstökum málum. Sorglegast við þá sundrungu er, að hún stafar ekki af þeim mál- um, sem næst oss eru, heldur eru þar utanaðkomandi öfl að verki, og mestu ræður þar viðhorf til erlendra ríkja og utanríkis- og hagsmunastefna þeirra. Og ef lengra er gáð, þá er um það deilt, hvort starfa skuli eftir leik- reglum einræðis eða lýðræðis. Þótt ég viti, að ýmis ykkar, er mál mitt heyrið séuð mér ósam- þykk, þá vil ég nú benda yður á, að taka yður til og sleppa um sinn öllum fordómum, gleyma í bili persónulegum deilumálum, en taka að skoða málin frá rót- um, láta eins og þér séuð að byrja að skapa yður skoðun um þessa hluti. Mér þykir þá næsta furðulegt, ef þeir verða margir í yðar hópi, sem fremur kjósa bola brögð einræðisins en leikreglur lýðræðisins, eða kjósa að miða afstöðu sína til innlendra mála og manna við erlenda utanríkis- stefnu. Mein vort flestra er, að vér gefum oss ekki nægilegt tóm til að hugsa, látum annars vegar leiðast um of af háværum áróðri, en beitum á hinn bóginn ónauð- synlegri og hættulegri torlryggni gagnvart þeim, sem ekki tala oss eftir eyrunum. í dag er hátíðisdagur verka- lýðsins haldinn um heim allan. í upphafi var hann helgaður bar- áttu, meðan allt þurfti að vinna, og réttleysi verkamanna var svo mikið, að það kostaði atvinnu- sviftingu og jafnvel fangelsisvist að taka þátt í hópgöngu 1. maí. Ef til vill hefir dagurinn hvergi tekið jafn miklum breytingum og á Norðurlöndum. Þar hefir frjáls verkalýðshreyfing unnið sín mestu þrekvirki, og löndin og þjóðirnar umskapast á nokkrum áratugum fyrir tilverknað henn- ar. Sú umsköpun hefir ekki gerzt með blóðsúthellingum og bylt- ingu, heldur á grundvelli þjóðar- uppeldis við frelsi og lýðræði. Oss er vænlegt til eftirbreytni, að skoða dæmi frændþjóða vorra, því að vér getum gert hið sama, ef vér viljum. Þótt margt liafi unnizt síðan íslenzk verkalýðsbarátta hófst, er margt enn óunnið. Enn skortir mjög á um réttláta skiptingu arðs ins í þjóðfélagi voru. Enn skortir á um fullkomið öryggi á vinnu- stöðvum, og umfram allt enn skortir mjög á um almennt at- vinnuöryggi. En öryggisleysið um afkomuna og framtíð einstakl ingsins er ef til vill mesta böl hvers manns. Sá, sem þarf að vera síkvíðinn um hvað fram undan er, lamast að lífsþrótti og starfsþreki, þótt hann geri sér það ef til vill ekki ljóst. Vér getum því á þessum degi tekið fyllilega undir þær kröfur, sem Alþjóðasamband frjálsra verkamanna hefir sett fram í á- varpi sínu, að berjast fyrir: Nægri atvinnu, sífellt bættum vinnuskilyrðum, styttri vinnutíma, sanngjörnum hluta af endur- bótum, sem leiða af aukinni tækni, aðstoð við þróun mála í þeim löndum heims, sem skammt eru komin á veg efna- hagslega, fullum verkalýðsfélagsrétti allra verkamanna alls staðar í heiminum, sjálfræði þjóða í eigin málum, fullum lýðræðis- og mannrétt- indum handa öllum, friði í heiminum undir vernd- arvæng Sameinuðu þjóðanna. Ég fæ ekki betur séð en þarna séu saman dregnar þær hugsjón- ir, sem verkalýðshreyfingin hefir átt og látið stjórnast af frá önd- verðu. Og frávik frá þeirri hug- sjón eru svik við starf og stefnu hreyfingarinnar, í hvers nafni, sem þau eru gerð. Enn skortir mjög á að þessum kröfum sé full- nægt víða um heim. Enn stynja þjóðir undir oki innlends einræð- is og erlendrar harðstjórnar. Og vér erum að bregðast hugsjónum vorum, ef vér með þögninni sam- þykkjum aðferðir kúgaranna eða höfum samúð með þeim, hverju nafni sem þeir nefnast, eða hvar sem þeir eiga heima. En þótt 1. maí sé nú með meiri blæ fagnaðar en baráttu hjá því sem áður var, er hann samt áminning um að standa fast á þeim rétti, sem fenginn er, og hlaða ofan á þann grunn, sem lagður er, unz sú mannfélagshöll er reist, sem réttlæti og mann- helgi sitja að völdum, og vér öll þráum. En til þess að því marki verði náð er oss eining nauðsyn- leg. Sú eining verður að hvíla á þeirri bjargföstu skoðun, að sá einn sigur sé samboðinn málefn- inu, sem fenginn er með lýðræðis legri baráttu og haldið í krafti hennar. Markið er þjóðfélag frelsis og réttlætis, en ekki sam- félag, þar sem nokkrir einræðis- herrar hneppa fjöldann í spenni- treyju skoðana sinna, og stjórna í krafti fallbyssna og hervalds. Þótt þeir geri það í nafni alþýðu og verkalýðs verður hlutur þeirra sízt betri. Ég hefi með þessum orðum mínum viljað leilast við að draga upp það mark, er stefna beri að í íslenzkri verkalýðshreyfingu. En það er einhuga launþegastétt, sem stefnir að betra og réttlátara þjóðfélagi, eftir leiðum lýðræðis- ins með mannhelgina að leiðar- stjörnu. Enga ósk á ég betri íslenzkum launastéttum til handa en þeim megi auðnast að skilja þetta hlut verk sitt, að þeim megi takast að vinna með einum huga og einni hönd að því að gera þjóðlíf vort fegurra og betra. Það borgar sig vel að aug- lýsa í Alþýðumanninum. Hann kemur ó flest heim- ili í Eyjafjarðarsýslu og S. Þingeyjarsýslu, auk heim- ila á Akureyri. Bæj arstj órnarfundur síðastlið- inn þriðjudag var stuttur, enda fátt mála á dagskrá. Þetta var hið helzta: Vatnsveitan Bæjarráð samþykkir að heim- ila bæjarstjóra að taka tilboði Ingólfs G. S. Espholin, dags. 16. apríl s.I., í vatnsveiturör úr as- best. Bæjarráð leggur til, að bæjar- stjórn samþykki svofellda álykt- un: „Bæjarstjórn heimilar bæjar- stjóra að veðsetja Vatnsveitu Ak- ureyrar til tryggingar væntanlegu láni teknu hjá Brunabótafélagi Islands vegna Vatnsveitu Akur- eyrar.“ Meðmæli Valtýr Þorsteinsson, útgerðar- maður, fer fram á meðmæli bæj- arráðs til atvinnutækjanefndar vegna væntanlegra kaupa á fiski- skipi. Bæjarráð leggur til, að bæjar- stjórn mæli með því, að Valtýr Þorsleinsson fái umbeðið leyfi. Heimsókn norsks leikflokks Guðmundur Gunnarsson, for- maður Leikfélags Akureyrar, fer þess á leit með erindi, dags. 26. apríl s. 1., að bærinn láti sam- komuhús bæjarins endurgjalds- laust í té vegna leiksýningar leik- flokks írá Ríkisleikhúsinu í Oslo. Ennfremur spyrst hann fyrir um, hvort bærinn vilji ekki styrkja þessa leikför á annan hátt. Bæjayráð leggur til, að Leikfé- lagi Akureyrar verði veittur kr. 5000.00 styrkur til móttöku á þessum erlenda leikflokki, enda verði greitt fyrir samkomuhúsið eins og venja er til. Fjóreigendafélag Fjáreigendafélag Akureyrar fer fram á með erindi, dags. 23. apríl s.l., að félagið fái leigt Miðhúsa- landið áfram eins og s.l. ár við sama gjald, ársleiga kr. 1000.00, og óskar um leið að girðingiu verði gerð fullkomlega fjárheld. Ennfremur sækir félagið um að fá á leigu hólfið, sem liggur norð- an við Miðhúsalandið, sem nær norður að Tómasartúni. Bæjarráð leggur til, að bæjar- stjórn samþykki að leigja Fjár- eigendafélaginu Miðhúsalandið eins og s.l. ár til næstu þriggja ára, ársleiga kr. 1000.00, enda haldi félagið girðingum við á leigutímanum. Hins vegar getur bæjarráð ekki lagt til að viðbót- arlandið verði leigt. Flugvöllurinn Kristinn Jónsson, f.h. Flug- málastjórnarinnar, sækir um með erindi, dags. 15. apríl s.l., að leyft verði að reisa loftnetsstengur með tilheyrandi útbúnaði austan vestustu hvíslar Eyjafjarðarár, samkv. meðfylgjandi uppdrætti. Bæjarráð leggur til að orðið sé við beiðni Flugmálastjórnar- innar, enda greiði Flugmála- stjórnin leigjendum hólmana skaðabætur fyrir jarðrask og á- troðning, ef þess gerist þörf. Synjað um vatnsæð Erindi frá ábúendum Sólvalla 1 og 2, Þingvalla 1 og 2 og Borg- um, dags. 10. okt. 1956, þar sem farið er fram á að lögð verði vatnsleiðsla að býlunum og bjóð- ast þeir til að taka þátt í kostn- aðinum á sama hátt og ábúendur Nausta o. fl. jarða, sem fengu vatnsveitu á s.I. hausti. Bæjarráð getur ekki lagt til að orðið sé við beiðninni vegna þeirra miklu framkvæmda, sem fyrirhugaðar eru á árinu og ger- ir bæjarráð ekki ráð fyrir að fé verði til ofangreindra fram- kvæmda á árinu. Sl. þriðjudag var samþykkt endanlega frá efri deild alþingis frumvarp þeirra Friðjóns Skarp- héðinssonar, þingmanns Akur- eyringa, Björns Jónssonar, land- kjörins þingmanns og Bernharðs Stefánssonar fyrra þingmanns Eyfirðinga um Tunnuverksmiðj- ur ríkisins. Er í frumvarpinu gert ráð fyrir að ríkisstjórninni sé heimilt að byggja tunnuverk- smiðjuhús við tunnuverksmiðj- una á Akureyri og endurbæta þá verksmiðju að öðru leyti og taka til þessara frapikvæmda allt að 5 millj. króna lán. Ríkisstjórnin starfrækir nú tvær tunnuverksmiðjur, aðra á Akureyri en hina á Siglufirði, og eiga þær að annast smíði á tunn- um fyrir saltsíldarframleiðslu, saltkjötsframleiðslu og í frum- varpinu er stefnt að því að allar tunnur, sem síldarframleiðslan þarfnast séu smíðaðar innan- lands í Tunnuverksmiðju ríkis- ins. ALLAR TUNNUR SMÍÐAÐAR HÉRLENDIS. Við tunnuverksmiðjuna á Siglu- firði hefir verið stórt geymsluhús en slíka geymslu hefur tilfinnan- lega vantað á Akureyri. Tunn- urnar hafa verið geymdar undir berum himni í himinháum hlöð- um og hefir það oft valdið tjóni, þar sem tunnur skemmast eðli- lega við margs konar veðrabrigði sumar og vetur, því að oft kemur það fyrir þegar síldveiði er treg, Fyrsti leikor sonorÉs Fyrsti knattspyrnuleikur sum- arsins hér á Akureyri fór fram um síðastliðna helgi á gamla Þórsvellinum. Áttust þar við Ak- ureyringar og Keflvíkingar, og lauk báðum leikjunum með sigri Akureyringa; á laugardag með 6:3 og sunnudag með 2:1. Dómari var Rafn Hjaltalín. Glöggt báru leikirnir þess merki, að liðin eru ekki enn kom- in í fulla þjálfun og völlurinn heldur ekki vel góður, svo áhorf- endur fengu ekki eins skemmti- lega leiki og þeir annars hefðu gjarnan búizt við, þar sem Kefl- víkingar standa mjög framarlega í II. deild, en Akureyringar eiga nú að mæta til leiks í I. deild við Hafnfirðinga n. k. föstudag. En við þökkum Keflvíkingum fyrir komuna, og vonumst eftir að sjá þá hér oftar, þó þeim tækist ekki að fara með sigur að þessu sinni. Akureyringum óskum við góðrar ferðar á íslandsmótið og vonum að þeim liafi verið þessi fyrsta heimsókn til nokkurs lærdóms í þeim átökum, sem íramundan eru á knattspyrnusviðinu. að geyma verði tunnur frá ári til árs. Af því leiðir að menn hika við að láta smíða mikið af tunn- um í einu og aíleiðingin er svo sú að, þegar mikil síld kemur þá eru ekki fyrir nægilegar tunnu- birgðir í landinu, eins og skemmst er að minnast frá sl. sumri, þegar við sjálft lá að síld- arsöltun á Norðurlandi stöðvað- ist með öllu vegna tunnuskorts. GEYMSLAN RÚMAR 50 ÞÚS. TUNNUR Með þessum nýju lögum er stefnt að því að allar tunnur verði framleiddar hérlendis og jafnframt sé tryggt að ávallt séu til nægilegar birgðir í landinu. Hin nýja tunnugeymsla á Akur- eyri verður gífurlegt mannvirki og á að rúma allt að 50 þús. tunnur. 5 MILLJ. KRÓNA LÁN Nýja tunnugeymslan og endur- bætur á verksmiðjunni eru mjög kostnaðarsamar og er ríkisstjórn- inni því veitt heimild til að taka allt af 5 milljóna króna lán til að koma verkinu í framkvæmd. Tunnuverksmiðjan og fram- kvæmdir við hana munu tryggja mörgum Akureyringum atvinnu um vetrartímann og nú er því að komast í höfn mál, sem Akureyr- ingar hafa lengi hafl hinn mesta áhuga fyrir og munu verða til mikilla heilla fyrir þjóðarbúið í heild. Byggt verði geymsluskýli við tunnuverksmiðjuna á Akureyri Frumvarp Friðjóns Skarphéðinssonar, Björns Jóns- sonar og Bernharðs Sfefónssonar samþykkt endan- lega ó alþingi.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.