Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 30.04.1958, Síða 2

Alþýðumaðurinn - 30.04.1958, Síða 2
2 ALÞÝÐUMAÐURINN Miðvikudagur 30. apríl 1958 \ E I ■OOOOOOOOOOOO'OOO'fr^C’Vr.. ALÞÝÐUMAÐURINN Útgefandi: AlþýSuflokksfélag Akureyrar Ritstjóri: BRAGI SIGURJÓNSSON, Bjarkarstíg 7. Sími 1604. Verff kr. 40.00 á ári. Lausasala kr. 1.00 blaðið. Prentsm. Björns Jónssonar h.f. sooooooooooooootxiooooovt Hver verða næstu skrefin ? Sjóréttarráðstefnunni í Genf er lokið, og er alþjóð manna kunn niðurstaða hennar: Bindandi samkomulag um landhelgi ríkja og fiskveiðilögsögn náðist ekki, en segja má, að reglan um 3ja mílna landhelgi sé raunverulega að fullu úr sögunni, þrengri land- helgi en 6 sjómílur virðist engri þjóð detta lengur í hug að nefna og meirihlutavilji virðist meðal þjóða um 12 mílna fiskveiðilög- sögn. Innan þessa ramma mun ríkis- stjórnin ísl. nú á næstunni verða að taka næstu skrefin í útvíkkun landhelginnar. Það er almanna- rómur, að íslenzka ríkið hafi haldið vel á málstað sínum á Genfarfundinum, en ekki er síð- ur nauðsynlegt að næstu skrefin í málinu séu hnitmiðuð. I ýmsum hlaðaskrifum undan- farið hefir brunnið beiskja til annarra þjóða, er ekki vildu við- urkenna málstað okkar á um- ræddri ráðstefnu. En hví skyldum við sýna slíka vanstillingu? Hví ekki að horfast í augu við þá staðreynd, að frá bæjardyrum Breta og Norðmanna, svo að nær- tækustu dæmin séu nefnd, er ekk- ert eðlilegra en þeir streitist móti útfærslu landhelgi hér. Það er andstætt þeirra hagsmunum. Okk- ar og þeirra hagsmunir fara ein- faldlega ekki saman, og okkur er hollt að horfast strax í augu við það, að frá þessum þjóðum t. d. er ekki aðstoðar að vænta í land- helgismálum okkar. Það er hreinn barnaskapur að nefna nortæna samvinnu í þessu sambandi eða stríðssiglingar með fisk til Bret- lands. Hið fyrra er tiltölulega meinlaust kjaftæði, meðan það sefjar ekki árvekni oklcar, en hið síðara er hrein og skær blekking: Við siglum með fisk til Bretlands á stríðsárunum til að lifa, en ekki fyrst og fremst Bretunum til bjargar. Svo eru skrifin um rýtings- stungu Bandaríkjanna í bak okk- ur. Skelfing eru þau barnaleg. Vorum við kannske að kaupa gott veður hjá Bandaríkjunum með Keflavíkursamningnum, eins og helzt virðist mega lesa út úr rama- öskri sumra blaða hér? Höfum við ekki einu sinni þjóðarstolt til að sjá, hvílík skömm er að láta skína í slíka skoðun? Við skulum horfa á málin í nöktu Ijósi staðreynda: Annað hvort gerðum við samninga við Bandaríkin af frjálsum vilja með t B !. M OWP AIPIMMDIM frjábra vtrUýilsíta Verkamenn um heirn allan! Aiþýðusamband frjálsra verka- iýðsféiaga sendir ykkur ölium innilegustu hróðurkveðjur í til- efni fyrsta maí. Fyrir níu árum voru þessi orð rituð á skjaldarmerki Alþjóða- samhandsins: BRAUÐ FRIÖUR FRELSI Síðan hafa frjáls verkaiýðsfé- lög íengið mikiu áorkað, bæði iivað snertir efnahagslegar um- bætur og auknar atvinnutrygging- ar. Kaup verkamanna hefur hækkað, vinnuskilyrði bætt, vinnustundum fækkað, ekki að- eins í hinum sterkari iðnaðar- löndum, heldur og þar sem efna- hagsaðstæður eru síðri, enda þótt þar sé margt enn ógjört. Fólk liefir kynnzt lióflegri velmegun, einkum í hinum sterkari iðnaðar- löndum. En þó hefur óvættur víð- tæks atvinnuleysis og efnahags- legrar kyrrstöðu enn einu sinni skotið upp koliinum. Það er aldrei hægt að iíta á velmegun sem sjálf- sagðan hiut. Hún fæst ekki nema með vinnu, baráttu og skipulagn- ingu. Ailt frá upphafi hefur Alþjóða-| sambandið stuðlað að því, að komið verði á alþjóðlegri efna- hagssamvinnu á æ víðtækara j sviði. Stofnun aiþj óðlegra efna-! iiagsstofnana eða annarra, sem | hundnar eru við ákveðin lönd eða svæði, er skref í rétta átt, en samtök frjálsra verkalýðsfélaga verða ávallt að vera áhrifamikil innan þeirra, ef þau eiga að geta lagt fram sem ríkastan skerf til velferðar mannkynsins. Alþj óðasambandið her einnig þungar óhyggjur vegna þeirrar óvissu, sem ríkir á sumum vöru- mörkuðum, eins og t. d. á mörk- uðum fyrir plantekruuppskeru og heiztu málmtegundir. Það er nauð synlegt, að komast að alþjóðleg- um samningum, sem miða ekki aðeins að því að skapa öryggi á vörumörkuðum, heldur tryggja verkamönnum einnig sanngj örn og örugg laun. gagnkvæman hag í varnarmálum fyrir augum og þá er um engin önnur eftirkaup að eiga, ella að við vorum neyddir til samning- anna, og þá er enn síður um eftir- kaup að ræða. Engin þjóð með sjálfsvirðingu tekur við, hvað þá ætlast til, náðarhita úr hendi kúg- arans. Séu málin þannig skoðuð, skul- um við einfaldlega sleppa að hrakyrða aðrar þjóðir fyrir af- stöðu þeirra í landhelgismálum okkar, en hugsa því betur og sam- stilltar um það, hvernig við eig- um að færa taflmennina næst. Við höfum á ekkert að treysta nema taflleiki okkar sjálfra. Skilning- urinn á því er grundvallarskilyrð- ið fyrir vituriegum leik næst, leik, sem verður að samrýma hvort tveggja í senn: áræði og gætni. Verkamenn! A þessum degi viljum við einn- ig láta í ljós þá von, að menn í hinum æðstu ábyrgðarstöðum muni halda áfram að beita sér af öllum mætti fyrir því að dregið verði úr ósainlyndi í alþjóðamál- um og reýni að leysa sem mest aðkallandi vandamái okkar daga: að stöðva vígbúnaðarkapphlaup- ið og forða heiminum frá hætt- unni af kjarnorkustyrjöld, sein gæti ekki leitt til annars en enda- loka mannkynsins sjálfs. Þetta er öld stórstígra vísinda- iegra og tæknilegra framfara á svo að segja öllum sviðum mann- legrar viðleitni. Ahrifa sjólfvirkni er þegar farið að gæta alls staðar og skapar það vandamál, sem varða mjög allan verkalýð. Gervi- hnettir svífa umhverfis hnöttinn. Það er meistaralegt afrek manns- andans, þýðingarmikið til að auka þekkingu mannsins, en við- bjóðsiegt, ef þeim er ætlað að slá ótta og óhug á hjörtu mannanna. Um leið og geysimikil viðleitni er gerð til þess að rannsaka hinn ytra geim, skulum við minnast þess, að langtum meira þarf að gera til þess að afmá hungur og kvilla, sem enn ógna miklum liluta mannkynsins, af yfirborði jarð- ar. Á tíu ára afmæli yfirlýsingar- innar á mannréttindastofnskrá Sameinuðu þjóðanna í október 1958 fylkjum við liði með þeim, sem eru reiðubúnir að berjast fyrir framkvæmd hennar um all- an heim. Og við munum jafu- framt halda áfram baráttu okkar fyrir því, að Sameinuðu þjóðirn- ar verði sífellt áhrifameira verk- færi í þjónustu mannkynsins. Verkamenn liins frjálsa heims! I dag helgum við okkur á ný baráttunni fyrir frelsi mannanna og lausn úr efnahagslegum, þjóð- félagslegupi og stjórnmálalegum þrældómi. Ef menn hafa nokkurn tíma gert sér vonir um, að kommúnist- iskt einræði gæti orðið frjálslynt, þá hafa þær vonir brostið fyrir fullt og allt. Reyndin hefur verið sú, að allt frá því að hin djarfa uppreisn ungversku þjóðarinnar og barátta fyrir frelsi var bæld niður á svo svívirðilegan hátt, höfum við liorft á það, að alls staðar hefur verið hert á ólinni. Jafnframt er lialdið áfram þeirri heimsveldisstefnu að binda frjáls- ar þjóðir í þrældóm. Það getur verið, að hópur ein- ræðisherra og hernaðareinvalda hafi minnkað, en það er langt frá því, að fasistahættan sé enn úr sögunni, og hin illræmda Frankó- stjórn er enn við líði. Og ekki geta stjórnmálalegar breytingar leynt hinni sáru fátækt almúgans í mið-Austurlöndum. Enda þótt nýlendustefnan sé á undanhaldi, megum við aldrei linna baráttu okkar fyrir rétti allra þjóða til þess að ráða sjálf- ar örlögum sínum, né heldur hverfa af verðinum, þegar um er að ræða brot ó réttindum þeirra, sem nýlega hafa hlotið frelsi. Styrkur hins frjáisa heims er kominn undir því, að hann sé full- komlega frjáls. Verkamenn hins frjálsa heims! Á þessu stutta tímabili, aðeins níu árum, hefur vegur Alþjóða- sambands frjálsra verkalýðsfélaga vaxið ört, og nú nær það til 137 verkalýðsfélaga í 95 löndum, og meðlimafjöldinn er samtals 55 milljónir. Það talar alls staðar máli verkalýðsins, hinna frjálsu og þeirra, sem enn eru undirok- aðir, og það er enginn sá afkimi til á jörðinni, þar sem rödd þess heyrist ekki. Aldrei liefur nauðsyn á sam- heldni meðal verkamanna allra þjóða verið meiri en nú. Tilmæli okkar um stuðning við sjóð þann, sem stofnaður hefir verið til þess að efla alþjóðlegt samstarf, liafa þegar fengið góðar undir- tektir. Sjóðnum er vel varið í hinni miklu baráttu til þess að styrkja raðir okkar og skipu- leggja hina óskipulögðu. Fylkið ykkur um Alþjóðasam- band frjálsra verkalýðsfélaga í baráttunni fyrir þjóðfélagslegu og efnahagslegu réttlæti og fyrir var- anlegum friði. Sækið fram undir merki frelsis- ins með Alþj óðasambandi frjálsra verkalýðsfélaga! FVæðslwisiofna'Bii liiisiijM^a Lagafrv. fluft af Eggerfi Þorsfeinssyni og Friðjóni Skarphéðinssyni Fyrir efri deild alþingis liggur nú svohljóðandi lagafrumvarp um fræðslustofnun launþega: 1. gr. Stofna skal og starfrækja Fræðslustofnun launþega. Hlut- verk stofnunarinnar er að veita trúnaðarmönnum og öðru starfs- fólki verkalýðsfélaga, félaga opin- berra starfsmanna og annarra launþegasamtaka raunhæfa íræðslu um hlutverk slíkra sam- taka í nútíma þjóðfélagi, sögu þeirra, skiplag og starfshætti. Einnig skal stofnunin veita al- menna fræðslu um efnahagslíf. atvinnu- og félagsmál þjóðarinn- ar og aðrar greinar, er stjórn stofnunarinnar telur samrýmast tilgangi hennar. Aðsetur stofnun- arinnar skal vera í Reykjavík, en umdæmi liennar allt landið. 2. gr. Stofnunin skal gegna hlutverki sínu á eftirfarandi hátt: 1. Með því að reka Félagsmála- skólann, er starfa skal í stutt- um eða löngum námskeiðum, er lialda má á ýmsum stöðum í landinu, eftir því sem henta þykir. Kennsluefni skal vera í samræmi við 1. gr. eftir náu- ari ákvörðun stjórnar Fræðsiu stofnunar launþega hverj u sinni. 2. Með því að gangast fyrir al- mennu fræðslustarfi, t. d. fyrir lestraferðum, öflun og sýningu myndræma, skuggamynda eða kvikmynda, útgáfu fræðslurita, blaða og bóka, stofnun og rekstur hókasafns viðkomandi verkefni stofnunarinnar, sam- vinnu við blöð og útvarp o. s. frv. 3. gr. Stjórn Fræðslustofnunar laun- þega skipa fimm menn. Skulu þrír þeirra kjörnir af miðstjórn Ai- þýðusambands Islands, einn kjör- inn af stjórn Bandalags starfs- manna ríkis og bæja og einn skip- aður af menntamálaráðherra. Stjórnin kýs sér formann. Stjórn- in skal kjörin til fjögurra ára í senn. Stjórnin ræður framkvæmdar- stjóra, er jafnframt sé skólastjóri Félagsmálaskólans, svo og annað starfslið og setur því erindisbréf. Stj órn stofnunarinnar segiur reglugerð um starfsemi Fræðslu- stofnunar launþega, en staðfest skal hún af menntamálaráðherra. 4. gr. Kostnaður við stofnunina greiðist úr ríkissjóði, eftir því sem fé er veitt til hennar á fjár- lögum. 5. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Greinargerð flutningsmanna. Á undanförnum þingum hefur mikið verið rætt um almenna fræðslu cil aukins skilnings á hög- um og háttum ísienzkra verka- lýðssamtaka, tilgangi þeirra og starfsháttum, m. a. til þess að auðvelda samskipti vinnuseljenda og atvinnurekenda. Flutt hafa verið frumvörp og þingsályktunartillögur um þessi efni, og núverandi ríkisstjórn tók: málið upp og hefur lieitið þvii stuðningi. Fyrri flm. þessa frum- varps fiutti ásamt tveim öðruir aiþingismönnum þáltill. á þskj. gg um þetta efni í upphafi yfirs' ianc|. andi þings, en hún hefur e’ ^ enn hlotið afgreiðslu. Á grundvelU jiessarr Q. þáltilj. er þetta frumvarp sarai' ^ og er þess nú freista^ að má' iS nái fram aS ganga í frumvarr psÍQlmi Til rökst«S' nings frumvarpi þessu nægir > JVÍ aS vitna til þeirr. ai gieinarg erSar; er fylgdi þáltill. á þskj. y ^ en þar segir m. a.: ”f lu mvörp um verkalýðsskóla imfa áSur verjS lögð fram á Al- gi, og í málefnasamningi nú- v erandi ríkisstjórnar var stofnun

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.