Alþýðumaðurinn - 06.05.1958, Side 4
Öxnodalsheiðí 09 Vaðld-
heiði opnaðar
Um miðja síðastliðna viku var
vegurinn yíir Oxnadalsheiði opn-
aður til umferðar. Var snjó rutt
af veginum frá brekkubrún ofan
Bakkasels og vestur fyrir Reið-
gil-
Um helgina var svo Vaðlaheiði
opnuð til umferðar, en fyrst um
sinn er þó þungaflutningur bann-
aður yfir hana.
íbnðarvandamál
Framh. af 1. síðu.
skyldna hér í bæ. En þar sem i
mörgum þeim tilfellum er um
þannig aðstæður að ræða, að al-
veg er útilokað, að viðkomandi
geti nokkuð lagt fram af eigin
rammleik til íbúðarbyggingar
fyrir sig, verður Akureyrarbær að
leita annarra úrræða varðandi þá
en að setja traust sitt á breytingar
á lögum um verkamannabústaði.
Þeim verður semsé aldrei breytt
svo, að ekki þurfi að greiða svo
og svo mikið til að eignast íbúð á
vegum þeirra.
Og þá verður helzt fyrir manni
tvennt til athugunar:
Hið fyrra er aðstoð hins .opin-
bera til útrýmingar heilsuspillandi
íbúðum, aðstoð, sem Akureyri
hefir lítið sem ekki notfært sér,
en mætti ugglaust eitthvað. Hitt er
Byggingalánasjóður Akureyrar,
sem lagt hefir verið í árlega af
tekjum bæjarins um 200 þús. kr.
síðastliðin 10 ár,
EÐA JAFNMIKIÐ OG í
BYGGINGASJÓÐ VERKA-
MANNA ALLT FRÁ 1931.
Þessum sjóði hefir verið varið
til útlána til ýmissa húsbyggjenda
í bænum og gert mikið gagn, en
hann hefir ekki liðsinnt þeim fá-
tœkustu, af því að nokkurrar getu
hefir þurft til að hagnýta sér
hann, alveg eins og varðandi
verkamannabústaðina.
Spurningin er hins vegar, hvort
bærinn gerði ekki réttara að
byggja sér íbúðir fyrir sjóðinn,
íbúðir, er hann ætti og leigði
þeim, sem ekki geta byggt og ekki
fengið íbúðir nema bæjaraðstoð
komi til. Einnig mætti hugsa sér
að lána úr sjóðnum til að kaupa
sig inn í íbúð á vegum Bygging-
arfélags Akureyrar.
Öll ættum við að geta verið
sammála um, að það er til van-
sæmdar bæjarfélaginu að láta
fjölmargar fátækar barnafjöl-
skyldur kúldast ár eftir ár í gjör-
ómögulegum íbúðum, af því að
ekkert boðlegt húsnæði er til
handa þeim af hálfu bæjarfélags-
ins, en geta þeirra og aðstæður
slíkar, að þær eiga einskis úrvöl
sj álfar.
Hér er verkefni sem krefst úr-
lausnar, verkefni, sem krefst fjár-
magns — en ekki síður skduings
og úrbótavilja.
Shíðamót Horðurlands
Ocideyrarskólanum verður slitið laug-
ardaginn 10. maí kl. 5 síðdegis. Þá
verður til sýnis skólavinna barnanna,
einnig sunnudaginn 11. maí kl. 1—1
siðdegis.
var haldið dagana 3.—4. maí í
Hlíðarf j alli. Þátttakendur voru
frá Siglufirði, Suður-Þingeyjar-
sýslu, Ólafsfirði, Eyjafirði og Ak-
ureyri. Fljótamenn mættu ekki til
leiks, eins og skrásett hafði þó
verið. Einnig mættu ekki nema 5
af 15 skráðum Siglfirðingum.
Veður var ágætt og færi sæmi-
legt.
Mótstjóri var Svavar Ottesen.
Úrslit urðu þessi:
Stórsvig, A-flokkur.
Norðurlandsmeistari Magnús
Guðmundsson A. 1.10.9 mín. .2.
Hjálmar Stefánsson A. 1.12.9
mín. 3. Einar Valur Ól. 1.14.5
mín.
B-flokkur.
1. Hákon Ólafsson S. 1.05.7
mín. 2. Páll Stefánsson A. 1.09.8
mín. 3. Ottó Tulinius A. 1.10.1
min.
C-flokkur.
1. Hallgrímur Jónsson A. 51.3
sek. 2. ívar Sigmundsson A. 52.3
sek. 3. Snorri Þórðarson S. 54.0
sek.
4X.5 km. boðganga.
1. Sveit Akureyrar 1.35.32 klst.
Norðurlandsmeistarar í göngu
urðu þessir: Guðmundur Þor-
steinsson, Haukur Jakobsson, Stef-
án Jónasson og Kristinn Steins-
son.
2. Sveit H. S. Þ. 1.40.13 klst.
3. Sveit Siglufj. 1.41.47 klst.
Svig, A-flokkur.
Norðurlandsmeistari Hjálmar
Stefánsson A. 226.5 sek. 2. Magn-
ús Guðmundsson A. 228.6 sek. 3.
Bragi Hjartarson A. 230.1 sek.
B-flokkur.
1. Hákon Ólafsson S. 1.25.7
mín. 2. Páll Stefánsson A. 1.31 0
mín. 3. Ottó Tulinius A. 1.31 5
mín.
C-flokkur.
1. ívar Sigmundsson A. 78.6
sek. 2. Hallgrímur Jónsson A.
86.8 sek. 3. Eggert Eggertsson A.
89.0 sek.
Stökk, 20 ára og eldri.
Norðurlandsmeistari Krisciv. í
Steinsson A. 209.8 stig. 3. Einar
Valur Ól. 209.5 stig. 3. Hjálmur
Stefánsson A. 207.8 stig.
15—16 ára.
1. Jón Halldórsson UMSE 208.2
stig. 2. Níels Kristinsson UMSE
187.2 stig. 3. Valur Jóhansen S.
179.4 stig.
Gestir mótsins voru Haraldur
Pálsson, Marteinn Guðjónsson og
Ásgeir Úlfarsson frá Reykjavík.
Frd MMhi d llliiircyii
Iðnskólanum á Akureyri var
slitið síðastliðið þriðjudagskvöld,
29. apríl.
Jón Sigurgeirsson, skólastjóii,
gaf yfirlitsskýrslu um skólastarfið
á liðnum vetri. Skólinn starfaði í
fjórum deildum, og voru alls 87
iðnnemar innritaðir þennan vet-
ur. Þar af luku nú þrjátíu burt-
fararprófi, og afhenti skólastjóri
hinum brautskráðu skírteini
þeirra við skólaslitin. Hæstu eink-
unn á fullnaðarprófi hlaut að
þessu sinni Haukur Haraldsson,
húsasmiður, 8.94, og næsthæstu
Hörður Tulinius, húsgagnasmið-
ur 8.87. Að skýrslu sinni lokinni
ræddi skólastjóri sérstaklega hús-
næðismál og efnahagsmál iðn-
fræðslunnar á Akureyri, en Iðn-
skólinn hér á ekki enn sitt eigið
skólahús, heldur hefir fengið inni
á húsakynnum Húsmæðraskóla
Akureyrar og Gagnfræðaskólan-
um. Að lokum flutti svo skóla-
stjóri nokkur hvatningar- og
þakkarorð til iðnnemanna og
starfsmanna skólans. Einn úr hópi
hinna brautskráðu iðnnema, Þrá-
inn Karlsson, vélvirki, kvaddi sér
hljóðs og flutti þakkir skólanum,
sérstaklega Jóni Sigurgeirssyni,
skólastjóra og afhenti honum gjöf.
Þessir iðnnemar hrautskráðust:
Albert Valdimarsson, bifvélav.,
Arngrímur Kristjánsson, múrari,
Axel Clausen Jónasson, rafvirki,
Birgir E. Tryggvason, brauðgerð-
arm., Björn S. Sveinsson, renni-
smiður, Brynjar H. Jónsson, bif-
vélavirki, Guðmundur Þ. Bjarna-
son, skipasm., Gylfi Geirsson,
húsasm., Hallgrímur Gíslason,
hifvélav., Ilaukur Haraldsson,
húsasm., Helgi Konráðsson, múr-
ari, Hildur Bergþórsdóttir, hár-
greiðslumær, Hörður Tulinius,
húsg.sm., Ingibjörg Sigfúsdóttir,
hárgr.mær, Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, hárgr.mær, Jón M. Guð-
mundsson, málari, Knútur Val-
mundsson, rafvirki, Kristjáu
Kjartansson, húsasm., Óðinn
Valdimarsson, prentari, Sigurður
Vatnsdal, prentari, Skjöldur Sig-
urðsson, liúsg.sm., Stefán A. Jón-
asson, húsasm., Stefán M. Jóns-
son, málari, Sverrir Ragnarsson,
húsasm., Þór Þorvaldsson, bók-
bindari, Þráinn Karlsson, vél-
virki.
Þessir áttu ólokið prófi í teikn-
ingu og fengu lokaskírteini:
'Gunnar Berg Gunnarsson,
prentari, Hjálmar Stefánsson, hif-
vélav., Kristján H. Magnússon,
bifvélav., Matthías Gestsson, hús-
gagnasmiður.
Friörik Á. Brekkan
rithöfundur látinn
Hinn 22. f. m. lézt í Reykjavik
Friðrik Ásmundsson Brekkan, rit-
höfundur.
Var hann á sjötugasta aldurs-
ári, er hann lézt, fæddur á Ytri-
Reykjum í Miðfirði 28. júlí 1888.
Hann stundaði húfræðinám á
Hvanneyri og síðan lýðháskóla-
og kennaranám í Danmörku.
Kennslu stundaði hann erlendis
nokkur ár og síðar við Gagn-
fræðaskóla Reykjavíkur, en síð-
ustu árin var hann starfsmaður
Þjóðminjasafnsins. Friðrik starf-
aði mikið í Góðtemplarareglunni
og var stórtemplar 1934—1939 og
aftur 1940—’41. Eftir hann liggja
margar bækur, frumsamdar og
þýddar.
Kvæntur var Friðrik Á. Brekk-
an konu af sænskum ættum, Est-
rid Jóhönnu, sem lifir mann sinn
ásamt tveim sonum þeirra hjóna.
Ndmsstyrhur fyrir fslend
ingo frd ssnsha som-
vinnusafnbandinn
Sænska samvinnusambandið
hefir ákveðið að veita ungu fólki
frá Danmörku, Finnlandi, íslandi
og Noregi nokkra styrki til náms
í Svíþjóð. Styrkirnir eru sérstak-
lega ætlaðir þeim, sem hafa á-
huga á samvinnu-, þjóðfélags- og
efnahagsmálum. Þetta fólk verður
að geta varið til þess sex mánuð-
um á Jakobsbergs folkhögskola í
Svíþjóð. Skólinn er 17 kílómetra
frá Stokkhólmi. Skólinn starfar á
sama hátt og aðrir lýðháskólar á
Norðurlöndum, en leggur auk
þess sérstaka áherzlu á efnahags-
leg og félagsleg fræði, samvinnu-
mál, bankamál, bókfærslu og
fleira. Þeir, sem áhuga hafa fyrir
samvinnumálum, eiga því sérstakt
erindi á skólann.
Einnig er kennt við skólann
bókmenntir, saga, þjóðfélags-
fræði, enska og fleira.
Hinn sænski námsstyrkur nem-
ur samtals kr. 1000.00 sænskum,
og þeir, sem hljóta hann, verða
að stunda nám við skólann frá 1.
október iil 1. apríl, að undan-
skildu jólafríi.
Umsóknir um námsstyrkinn
skal senda skólastjóranum, fil. dr.
Thorsten Eklund, Jakobsberg,
Sverige, og skulu þær vera ann-
aðhvort á dönsku, norsku eða
sænsku. Taka skal fram aldur,
starf, menntun og einnig er kraf-
izt góðra meðmæla. Umsóknir
þurfa að hafa borizt fyrir 1. ágúst
næstkomandi.
Áætlaður kostnaður við skól-
ann er um sænskar kr. 1400.00,
en þar við bætast svo ferðir frá
heimalandinu.
Sá möguleiki er einnig fvrir
hendi að sækja um sænskan ríkis-
styrk til Norræna félagsins hér
heima. Sá styrkur, ef hann fæst,
Ólöf Elíasdóttir 100 óra.
í gær varð elzti íbúi Eyjafjarð-
arsýslu, frú Olöf Elíasdóttir, Hóli
á Staðarbyggð, 100 ára. Hún er
ekkja Jóns Benjamínssonar,- bróð-
ur þeirra Kristjáns heitins á Ytri-
Tjörnum og Halldórs á Rifkels-
stöðum, og bjuggu þau hjón
lengi á Hóli.
Ólöf dvelur nú í skjóli harna
sinna og er mjög þrotin að heilsu
og kröftum, sjón að mestu þorrin
og heyrn mikið farin að bila, en
hugsun cr e.:n furðu skýr og
minni.
Þjóðverjar stla oð hefja
Zeppelin-smíðar ó ný
Þegar loftfarið Hindenhurg
fórst yfir Lakeliurst í New Jersey
fyrir 20 árum töldu menn, að þar
með vœru dagar hinna miklu lojt-
skipa taldir. Menn sannfœrðust
enn betur um þetta, þegar þrýsti-
loftsflugvélarnar og eldflaugarnar
komu til sögunnar.
Nú eru þó að gerast þeir at-
burðir í Frankfurt am Main í
Þýzkalandi, sem benda til, að svo
geti farið, að aftur verði hafizt
handa um að byggja loftför. Það
er hinn þekkti, fyrrverandi skip-
herra Hindenburgs, Max Pruss,
sem nú er 67 ára, sem hefir látið
til sín heyra um þessa hluti. Pruss
bjargaðist nauðulega, þegar Hin-
denburg fórst. Hann skýrir svo
frá, að búið sé að teikna hið nýja
loftfar, sem verði stærra, hrað-
fleygara og öruggara en hið
gamla.
Borgarafeðurnir í Friedrichaf-
en, þar sem loftskipin voru byggð
á árunum 1900 til 1933, hafa þeg-
ar veitt fé til uridirbúnings ný-
byggingarinnar. Nefnd, sem í eru
Pruss og nokkrir tæknisérfræð-
ingar í loftfarasmíði, hefir þegar
tekið til starfa og lagt fram frum-
teikningar.
Hið nýja loftfar verður fyllt
helium, en ekki hinu eldfima gasi
eins og áður var. Ytraborðið
verður úr nylön, en ekki alumíni-
umbornum vefnaði. Nylon er létt-
ara og sterkara. Það verður knú-
ið fjórum hreyflum, sem brenna
ódýrri olíu, sem ekki er mjög eld-
fim og á að geta farið með 150
km. hraða á klst. Síðar meir
kæmu svo kjarnorkuhreyflar til
sögunnar og yrði það þá enn ó-
dýrara í rekstri og hraðinn meiri.
LZ-132, sem verður einkennis-
merki hins nýja loftfars, mun
hafa rúm fyrir 150 farþega í eins
og tveggja manna klefum. Þar
verður borðsalur, setustofa, vín-
stúka og skemmtigöngusalur. Eng-
inn hávaði eða titringur mun
finnast í farþegarýmunum. LZ-
132 verður þægilegra farartæki
og það verður ódýrara að ferðast
með því heldur en flugvélum eða
stórum farþegaskipum og allur
aðbúnaður verður stórum betri,
segir Pruss.
er sænskar kr. 840.00 að viðbætt-
um hluta af ferðakostnaði. Mun
láta nærri að báðir styrkirnir
samanlagðir nægi fyrir öllum
kostnaði við skólavistina.
(Fræðsludeild SÍS.)