Alþýðumaðurinn - 01.05.1959, Qupperneq 3
Föstudagur 1. maí 1959
ALÞÝÐUMAÐURINN
3
,/Vakið OA s0OAÍð
Nýtt leikrit sýnt bróðlega
dórsson fró
Leikfélag Akureyrar sýnir bráð-
lega fjórða og síðasta sjónleik
sinn á þessu leikári, „Vakið og
syngið“. Það er eftir hinn kunna
ameríska leikritahöfund Clefford
Odets. Eftir hann eru m. a. Brúin
til mánans og Vetrarferðin. Þýð-
inguna gerði Ásgeir Hjartarson
og leiktjöld teiknaði Magnús Páls-
son, en þau málar Aðalsteinn
Vestmann.
' Þjóðleikhússtjóri hefir sýnt L.
A. þann sóma að lána félaginu
leikstjórann, Baldvin Halldórsson,
og er það í fyrsta skipti að leik-
félag úti á landi nýtur slíkrar
rausnar. Leikendur eru 9 og 3 af
þeim nýliðar.
. - Leikstjóri Baldvin Hall-
Þjóðleikhúsinu.
Æfingar hafa gengið vel og
frumsýning verður næstkomandi
laugardagskvöld.
Hið nýja leikrit „Vakið og
syngið“ er alvarlegs efnis með
vissum léttleika þó og kímni, og
þykir fuilrar athygli vert.
Leikfélag Akureyrar hefir nú
sýnt tvo gamanleiki hvern af
öðrum undanfarið við mikla að-
sókn, en það telur sér einnig skylt
að mæta óskum þeirra leikhús-
gesta, er vilja annað og meira en
gamanleiki eina. Með leiknum
Vakið og syngið er þessa freistað,
og er það von félagsins, að bæjar-
búar kunni vel að meta tilbreytn-
ina.
Að §¥ifirða isjálfan sig:,
§kola §inn og bæ §inn
Undanfarin ár hafa nemendur
skóla eins úr Reykjavík heimsótt
Akureyri nær ár hvert, ef ekki ár-
lega, og því miður kynnt sig af
endemum einum. Þetta eru Verzl-
unarskólanemar. Þeir hafa verið
með ólæti, framið spjöll, drukkið
frá sér vit og rænu.
Einn skóli norðanlands hefir í
eitt skipti fyrir öll lokað gistidyr-
um sínum fyrir nemendum þessa
skóla vegna ósiðlegrar hegðunar.
Árlega heimsækja Akureyri
skólanemar víðs vegar að. Við
framkomu flestra þeirra hefir
ekkert þótt athugavert, það hefir
verið kátt og lífsglatt æskufólk,
eins og vera ber, og prútt. Nem-
endur eins skóla hafa skorið sig
úr, eins og fyrr getur, Verzlunar-
skólans. Hvað veldur þessu? spyr
fólk. Er skólanum eitthvað áfátt?
Sækir hann sérstök gerð nem-
enda? Er sú reykvíska æska á
lægra menningarstigi en annað
æskufólk? Og hvað á það að
þýða, að senda þessa nemendur
hingað eftirlitslausa af skólans
hálfu, eins og nú hefir verið gert?
Það er von, að fólk spyrji.
Og þetta leiðir hugann að því,
hvort hinir athugunarlitlu nem-
endur Verzlunarskólans renni alls
ekki grun í, hvað þeir eru að að-
hafast með þessari framkomu
sinni: Þeir eru ekki einungis að
setja blett á sjálfa sig, heldur eru
þeir að varpa skugga á veg næsta
árgangs, svívirða skóla sinn og
kasta rýrð á bæjarfélag sitt, upp-
alendur þess og æskufólk. Þetta
þurfa viðkomendur hins unga
fólks að gera því ljóst hið fyrsta.
Ugglaust er það fólk eins og geng-
ur og gerist, en það virðist hald-
ið óvenjulegri blindu, sem nauð-
syn er að lækna það af.
Býður Jietta lelagrsform
hættunni lieim ?
Á síðari árum hefir verið stofn-
að allmargt hlutafélaga, sem eru
með þeim hætti, að þau eru skoð-
uð sem hálfopinber. Hér er dæm-
ið um Útgerðarfélag Akureyringa
h.f., sem Akureyrarbær á stærstan
hlut í, en ber þó ekki ábyrgð á
bókhaldi þess né rekstrarhætti
nema gegnum stjórnarnefnd, sem
hefir takmarkaða aðstöðu til að
fylgjast með daglegu framferði í
rekstrinum. Afleiðing þessa komu
bæjarbúum eftirminnilega í koll
1957.
Á vegum Sambands ísl. sam-
vinnufélaga er þessu rekstrar-
formi allmjög beitt, og eru þar
kunnust félögin Hið ísl. steinolíu-
félag og Olíufélagið h.f.
Félög þessi, annað eða bæði,
lentu fyrir nokkrum árum í fjár-
drætti, svo sem kunnugt er. Reikn-
uðu vöru sína á röngu verði.
Nú hafa þau á ný lent í mjög
alvarlegu misferli í sambandi við
rekstur sinn á Keflavíkurvelli, og
þó enn séu ekki komin öll kurl til
grafar, er ljóst, að mjög alvarleg-
ir hlutir hafa þar gerzt.
Mönnum verður á að spyrja:
Hvernig getur svona gerzt? Er
bókhald svona félaga undir veik-
ara eftirliti en einkahlutafélaga og
svo alopinberra félaga? Býður
þetta hlutafélagsform hættunni
heim vegna þess að nægt aðhald
skorti?
TVEIR SÆKJA
um yfirlögregluþjóns
Hinn frcii loignfnnilnr
stöðuna.
Frestur til að sækja um yfirlög-
regluþjónsstöðu þá, sem auglýst
var hér í bæ fyrir nokkru, rann út
25. þ. m. Höfðu þá borizt 2 um-
sóknir: Björns Guðmundssonar,
varðstjóra, Akureyri, og Gísla Ól-
afssonar, varðstjóra, Akureyri.
Formlega ræður bæjarstjórnin
í starfið eftir ábendingu lögreglu-
stjóra, en ekki hefir málið kom.ið
til afgreiðslu enn.
------X-------
ÁREKSTUR
Á mánudagskvöldið var varð
harður árekstur á gatnamótum
Byggðavegar og Þingvallastrætis.
Kom fólksbifreiðin A-206 neðan
Þingvallastræti, en vörubifreiðin
A-391 norðan Byggðaveg, og óku
þær saman á verulegri ferð á
gatnamótunum með þeim afleið-
ingum, að fólksbifreiðin skemmd-
ist mjög mikið og vörubíllinn tals-
vert. — Ekki varð slys á mönnum.
Hinn almenni stjórnmálafund-
ur, er Karl Kristjánsson, alþingis-
maður Suður-Þingeyinga, boðaði
að Laugum laugardaginn fyrir
páska, hefir mörgum orðið um-
hugsunarefni.
í fyrsta lagi þótti fundarhús
einkennilega valið, skólastofa í
opinberum skóla. Hver leyfði
fundarstaðinn? spyr fólk. Er
heimilt að lána starfandi skóla
undir flokkspólitíska fundi?
Hvorki skólastjórinn á Laugum
né alþingismaðurinn hafa gefið
skýringar á þessu máli.
Annað vakti og athygli. Það
var fundartíminn. Fundurinn með
hvössum deilum og ýmiss konar
áburði á andstæðinga fundarboð-
anda stóð til kl. 7.30 eða 8 e. h.,
þ. e. íy^—2 tíma fram á sjálfa
páskahelgina eftir kenningu þjóð-
kirkjunnar. Þetta gerist í skóla-
húsi, þar sem skólastjóri er guð-
frœðingur.
Enn gerist það á þessum fundi,
samkvæmt því sem blaðið íslend-
ingur upplýsir, og hlaðið Dagur,
málsvari alþingismannsins, hefir
ekki treyst sér til að hrekja, að
fáeinir meðlimir úr Bændafélagi
Þingeyinga eru kvaddir af fund-
inum í hliðarstofu við fundarsal
og látnir þar samþykkja í nafni
félagsins umræðulaust tillögu í
kjördæmamálinu.
Hér er um svo grófa misnotkun
á félagsrétti að ræða og opinber-
ar svo djúpa fyrirlitningu á því
kerfi, sem almenn félagssamtök
byggja á — þ. e. að svíkjast ekki
með skoðanir og ályktanir óvör-
um að meðlimum sínum, heldur
boða til funda með dagskrá, þar
sem fundarefni er tilgreint — að
furðu sætir.
Er ekki eitthvað sérstaklega
veikt og Ijósfælið við málstað,
sem beitir svona starfsaðferðum?
spyr nú margur.
Eitt er víst, að félagsþroskuð-
um mönnum sæmir hann ekki.
»Loftleiðir« hafa ákveðið kanp á
tveim Cloudmaster-vélnm
EYFIRÐINGAR
gera að gamni sínu.
Sú saga gengur nú meðal Ey-
firðinga, að væntanlegur fram-
boðslisti Framsóknarflokksins hér
í firðinum verði þannig skipaður:
1. Bernharð Stefánsson, alþm.
2. Guðmundur Eiðsson,
tengdasonur
3. Steingrímur Bernharðsson,
sonur
4. Hrefna Guðmundsdóttir,
eiginkona.
Framboðslistinn, eða sagan að
baki honum, mun ekki þurfa skýr-
ingar við.
------X—------
Kaupið og lesið
Alþýðumanninn.
Lojtleiðir hafa nú um 21/*) árs
skeið leitað ejtir hagkvœmum
kaupum á flugvélum til endurnýj-
unar á flugflota sínum. Nýlega
voru undirritaðir samningar við
Pan Amerícan-félagið um kaup á
2 flugvélum af gerðinni Douglas
DC-6B, Cloudmaster.
80 farþegar.
Douglas DC-6B geta flutt 80
farþega með góðu móti og geta
flogið í 5—6 km. hæð, en farþega-
klefinn er útbúinn þrýstikerfi,
þannig að loftþrýstingur í far-
þegarúmi samsvarar miklu lægri
flughæð, og veldur hann því far-
þegum engum óþægindum.
Vélar þessar eru þriggja ára
gamlar og þær yngstu af þessari
gerð, er Pan American-félagið á.
Ending Cloudmaster-vélanna er
talin mjög góð, en reksturskostn-
aður mun vera nokkru meiri en á
Skymaster-vélum þeim, sem Loft-
leiðir eiga nú.
465 km. á klst.
Flugliraði vélanna er að meðal-
tali 465 km. á klst., og til dæmis
um flugþolið má geta þess, að
Cloudmaster-vélin getur farið
fimm sinnum fram og aftur milli
Glasgow og Reykjavíkur án þess
að taka eldsneyti, eða rúmlega
þrisvar sinnum milli Kaupmanna-
hafnar og Reykjavíkur.
Vélar þessar eiga alla jafna að
gela lent á Reykjavíkurflugvelli,
en eins og kunnugt er, stendur
lenging einnar flugbrautarinnar
fyrir dyrum nú.
Til viðskiptamanna vorra.
Allor iMtvöro- og mjóMir vorar
verða opnaðar
kl. 8,30 á laugardögum í sumar
Það eru vinsamleg tilmæli vor til húsmæðra, að þær
geri innkaupin til helgarinnar á FÖSTUDÖGUM,
eftir því sem hægt er, til að grynna á laugardags-
ösinni.
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA