Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 01.05.1959, Qupperneq 6

Alþýðumaðurinn - 01.05.1959, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUMAÐURINN Föstudagur 1. maí 1959 Hallað réttu mdli í næstsíðasta tölublaði Verka- mannsins er því haldið fram, að fyrirhuguð bygging 6 íbúða á vegum bæjarins í sumar hafi komizt á rekspölinn fyrir for- göngu bæjarfulltrúa Sósíalista- flokksins, Jóns Rögnvaldssonar og Jóns Ingimarssonar. Af því að hér er hallað máli, þykir rétt að leiðrétta þetta, enda þótt báðir þessir ágætu fulltrúar hafi ugglaust áhuga fyrir málinu, og það skuli sízt dregið í efa. Upphaf máls þessa, eftir að nú- verandi bæjarstjórn var kosin, er það, að bæjarstjórinn Magnús E. Guðjónsson athugaði möguleik- ana á því í Reykjavík hjá hlutað- eigandi yfirvöldum, að bærinn fengi lán til húsabygginga til út- rýmingar heilsuspillandi íbúðum. Skýrði hann síðan bæjarráði frá undirtektum, en þær voru á þá lund, að þess mundi ekki kostur á yfirstandandi ári, þ. e. 1958, en gefið undir fót með það í ár, og var þá um það rætt í bæjarráði, að taka yrði upp fjárveitingu til þessa á fjárhagsáætlun bæjarins fyrir yfirstandandi ár. Einhverra hluta vegna þótti fulltrúum Alþýðubandalagsins skemmtilegra, eftir að málið var komið á þennan rekspöl, að bera fram um það tillögu í bæjarstjórn. Þarf varla að leiða getum að því, að slíkt hafi verið gert í öðrum tilgangi en herða á málinu, enda þótt vitað væri, að allt bæjarráð stóð þegar að fyrrgreindum fyr- irætlunum og athugunum. Vildu tillögumenn, að sérstök nefnd yrði kosin til að athuga, hvaða í- búðir væru heilsuspillandi í bæn- um, en ekki var á þá tillögu fall- izt, heldur ákveðið, að bæjar- verkfræð.ingur og byggingafull- trúi önnuðust athugun þessa. í framhaldi af þessu talaði bæj- arráð svo um, að verja fé úr fram- kvæmdasjóði til bygginga þess- ara, en þó var þeirri fyrirætlan sýnd nokkur hliðarárás af bæjar- fulltrúum Alþýðubandalagsins, er vildu við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar bæjarins lækka framlag til framkvæmdasjóðsins um 1 millj- ón kr. og þannig veikja hann til hlutverks síns verulega. Þessu fengu þeir þó ekki ráð- ið. Hið síðasta sem svo hefir gerzt í þessu máli er það, að bæjarráð og síðan bæjarstjórn hefir nýlega samþykkt samkvæmt tillögu bæj- arstjóra, að hefja undirbúning að byggingu 6 raðhúsaíbúða í sumar til útrýmingar heilsuspill- andi íbúðum. Athyglisvert er, að Verkamað- ur.inn getur ekki um, hver er frumkvöðull að þeirri tillögu né heldur, hver hóf að athuga þessa leið á raunhæfan hátt. Sennilega hefir blaðið ekki vitað hið rétta vegna ónógra upplýsinga og er þeim þess vegna komið hér með á framfæri. Að vegog meta — (Framh. aj 2. síðu.) ríkin íslenzka ríkinu nauðsynlega og vilja með engu móti, að ís- land dragist inn í hina austrænu blokk, þó að þeir vilji hins vegar góða sambúð við allar þjóðir. Vegna hinnar vestrænu sam- vinnu hefir ísland gengið inn í Atlantshafsbandalagið og tekið á sig þá umdeildu kvöð að hafa er- lent gæzlulið í landi. Eins og allir þekkja, sem nokk- uð fylgjast með heimsmálum, er Sovétstjórn Atlantshafsbandalag- ið sár þyrnir í holdi. Það vekur óneitanlega þann grun, að banda- lagið sé fyrirætlunum hennar ó- þægur Ijár í þúfu. Hvarvetna í vestrænum löndum berjast kommúnistar hatramlega gegn handalaginu. Sú barátta hef- ir ekki sízt vakið trú á nauðsyn þess hjá mörgum. Barátta Sósíalistaflokksins og nú Alþýðubandalagsins hér í landi gegn Atlantshafsbandalag- inu og dvöl erlends varnarliðs hefir í hugum landsmanna verið barátta kommúnista fyrir hags- munum Sovétríkjanna eða öllu heldur stjórnar þeirra. Af þessum sökum hefir sú orð- ið reyndin á, að öll barátta til að losna við herdvölina og þá spill- ingu, sem óneitanlega flýtur af henni, hefir runnið út í sandinn. Hávaði kommúnista í þeirri bar- áttu hefir vakið grunsemdir. Eftir líkum leiðum fer meining- armunur lýðræðisflokkanna og Alþýðubandalagsins, hvernig vinna skuli að lausn landhelgis- deilunnar v.ið Breta: Alþýðubandalagið hefir mjög mælt fyrir þeirri málsmeðferð að fylgja málstað okkar eftir með fyllstu hörku: stj órnarslitum við Breta, úrgöngu úr Atlantshafs- bandalaginu og kæru fyrir Sam- einuðu þjóðunum. Alþýðuflokkurinn, sem farið hefir með mál Islands út á við, meðan þessi deila hefir staðið, hefir hins vegar ráðið annarri málsmeðferð: að beita lagni sam- fara festu, kynningarstarfsemi meðal nágrannaþjóða og setu í Atlantshafsbandalaginu til að vinna málinu framgang. Vel er hugsanlegt, að þessi málsmeðferð falli ekki í smekk reiðrar þjóðar, sem finnur sig beitta órétti. En reiðin er sjaldan góður ráðgjafi. Og það er ómót- mælanleg staðreynd, að málsmeð- ferð Alþýðuflokksins á landhelg- ismálinu hefir orkað því, að allar þjóðir — nema Bretar — hafa í raun viðurkennt stækkun fisk- veiðilandhelgi okkar, og enn hafa engin glappaskot verið framin af hálfu íslendinga í málinu, sem gert hafi hina aumkunarverðu að- stöðu Breta þeim hagkvæmari. Þvert á móti. Vígstaða Alþýðuflokksins. 1 kosningunum í vor er víg- staða Alþýðuflokksins fyrst og fremst frábrugðin hinum flokk- unum að því leyti, að hann ber á- byrgð bæði á fyrrverandi og nú- verandi ríkisstjórn. Verk hans liggja skýrt fyrir, stefna hans í efnahagsmálum og utanríkismál- um er deginum ljósari: Hann tel- ur það höfuðnauðsyn, að þjóðin komi efnahagsmálum sínum í jafnvægi af festu og virðuleik, þó ! að það kosti átök og fórnir. Ilann telur sjálfsagt, að þjóðin sæki og verji rétt sinn gagnvart öðrum þjóðum, en vill gera það af lagni í og þolgæði samfara festu og halda góðri sambúð við nágrannaríki sín, sé þess nokkur viðhlítandi kostur, sem og allar þjóðir. Hann vill ekki skorast undan sanngjörnum sambúðarkvöðum í samfélagi grannþjóða, en að sjálf- sögðu telur hann ófrávíkj anlega skyldu að meta það og vega eftir ástandi heimsmálanna hverju sinni, hverjar þær kvaðir skuli vera. Með öðrum orðum: Alþýðu- flokkurinn höfðar til dómgreind- ar, ábyrgðarkenndar og öryggis- hyggju þjóðarinnar i málflutn- ,ingi sínum. Hann trúir ekki á æsimálflutning og vill ekki beita honum. Hann telur ósæmandi að gera kjósendum óraunhæf ginni- boð, leyna þá sannleikanum um það, hvað þurfi að gera og hvað ekki megi gera, hvað hœgt sé að gera og hvað verði að bíða. Mótherjar Alþýðuflokksins virðast ekki trúa á ábyrgan mál- flutning. A það virð.ist benda sú stjórnarandstaða Sjálfstæðis- flokksins gegn fyrrverandi ríkis- stjórn að gagnrýna allar efnahags- aðgerðir hennar, en benda á eng- ar leiðir sjálfur. A það virðist benda sams konar vinnubrögð Framsóknarflokksins nú gegn nú- verandi ríkisstjórn. A það virðist benda ofsalegt persónuníð Þjóð- viljans um forystumenn Alþýðu- flokksins. Það verður fróðlegt að sjá, hver dómur kjósendanna verður. Ný epli Nýjar perur. Kaupfélag verkamanna Kjörbúð og útibú. Frif (MrcMliiH 0 Ak. Sýning á handavinnu og teikningum nemenda, ásamt nokkr- um sýnishornum á annarri nemendavinnu frá sl. vetri, verður opin almenningi í skólahúsinu n. k. sunnudag kl. 1—9 síðd. Akureyri, 28. apríl 1959. JÓHANN FRÍMANN, skólastjóri. Frá ÍMkilii Akureyrar Sýning á skólavinnu barnanna verður opin fimmtudag 7. maí (uppstigningardag) frá kl. 2—6. Allir velkomnir. Föstudaginn 8. maí verður inntökupróf 7 ára barna (fædd 1952) kl. 1 síðdegis. Af Oddeyrinni mæta börn úr Hólabraut, Glerárgötu og Lundargötu. Áríðandi að tilkynnt séu forföll. Skólaslit laugardag 9. maí. Foreldrar velkomnir meðan hús- rúrn leyfir. Vorskólinn hefst á mánudaginn 11. maí kl. 9 árdegis. Skólastjóri. GEYMIÐ ÞESSA AUGLÝSINGU. frá Oddeyrarshólanum Skólanum verður slitið laugardaginn 9. maí kl. 5 síðdegis. Skólavinna barnanna verður þá til sýnis í kennslustofum. — Skólasýningin verður einnig opin á sunnudag kl. 2—5 síð- degis. Allir velkomnir. Inntökupróf barna, sem fædd eru 1952, fer fram í skólan- um föstudaginn 8. maí kl. 3 síðdegis. Vorskólinn hefst mánu- daginn 11. maí kl. 9 árdegis. , Skólastjóri. GEYMIÐ ÞESSA AUGLYSINGU. •................... • prÓBntt ðfslÁttar gefinn af öllum vörum verzlunarinnar 1. maí. Markaðurimi Sími 1261. I ÞVOTTim: Ómo Rinsó Perla Geysir Sólarspænir Kristalsópa Sólsópa Sun light sópa Verdol Vise Klórax. Kaupfélag verkamanna Kjörbúð og útibú. °9 feygja nýkomið. Kaupfélag verkamanna Vefnaðarvörudeild.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.