Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 30.08.1960, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 30.08.1960, Blaðsíða 1
XXX. árg. Þriðjudagur 30. ágúst 1960 26. tbl. Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra: Steínan í bankamálum heínr heppnazt (Grein þessi er ein úr greinajlokki, er Gylfi Þ. Gíslason hefir ritað í Al- þýðublaðið undanfarið um áhrif efna- hagsráðstafananna sl. vor. Leturbreyl- ingar eru Alþýðumannsins.) Einn höfuðtilgangur stefnu- breytingarinnar í efnahagsmálum var að taka fyrir hinn stöðuga og sívaxandi halla á gjaldeyrisvið- skiptum þjóðarinnar. Til þess að það mætti takast var ekki aðeins nægilegt að skrá gengi krónunnar á sannvirði, þannig að verðlag og framleiðslukostnaður hér yrði sambæsilegur því, sem gerist í viðskiptalöndum okkar, heldur var einnig nauðsynlegt að hafa strangan hemil á útlánum bank- anna og koma í veg fyrir, að út- lánsaukning þeirra væri meiri en svaraði til sparifj áraukningar. En um mörg undanfarin ár hafa bankarnir aukið útlán sín veru- lega umfram sparifjáraukningu, og það síðan á hinn bóginn vald- ið greiðsluhalla gagnvart útlönd- um. Til þess að ná þessu markmiði voru settar nýjar reglur um end- urkaup Seðlabankans á afurða- víxlum og um önnur viðskipti hans við viðskiptabanka og spari- sjóði. Var með þessum reglum stefnt að því að viðskiptabankar og sparisjóðir fengju ekki aukið fé til útlána frá Seðlabankanum heldur yrði útlánaaukning þeirra að byggjast á vexti innlána og rekstrarhagnaði þeirra sjálfra. Til þess að draga úr eftirspurn eftir lánsfé og jafnframt örva Landsmót U.M.F.Í. að Laogum Undirbúningsnefnd landsmóts Ungmennafélags Islands að Laug- um næsta vor kom þar saman fyr- ir skömmu. Nefndin skipti með sér störfum og athugaði allar að- stæður til hátíðarhaldanna. Þykir staðurinn mjög góður bæði með tilliti til íþróttakeppni og móttöku gesta. Þar er stór og glæsilegur í- þróttavöllur, sem nýbúið er að stækka, en verið er að byggja pall fyrir áhorfendur umhverfis í- þróttasvæðið. Húsakynni skólans að Laugum eru mikil og verið að byggja við þau. í viðbyggingunni á að vera rúmgóður matsalur og eldhús. Væntir landsmótsnefnd þess að viðbótarbyggingunni verði lokið fyrir landsmótið. Að- staða til starfsíþrótta er góð. — Keppt verður bæði úti og inni. Formaður undirbúningsnefnd- ar landSmótsins er Oskar Agústs- son, kennari að Laugum. sparifjánnyndun, voru svo vextir hækkaðir mjög verulega, eins og kunnugt er. Árangur þessara ráðstafana hefir orðið sá, að mjög hefir dreg- ið úr aukningu útlána frá því, sem verið hefir á undanförnum árum. Þannig jukust útlán viðskipla- banka og sparisjóða á jyrstu sjö mánuðum þessa árs um 220 millj. króna, en um 351 millj. króna á sama tíma árið 1959. Þessi aukn- ing er að heita má öll í lánum lil sjávarútvegs og verzlunar með brýnustu nauðsynjar. — Þessi minnkún á aukningu útlána er sérstaklega athyglisverð, þegar tillit er tekið til þess, að þær hækkanir á verði innfluttrar vöru, sem sigldu í kjölfar leiðréttingar gengisins, kröfðust mjög aukins rekstrarfj ár, en á sl. ári var að sjálfsögðu ekki um neina sams konar þörf að ræða. Upphaflega var gert ráð fyrir því, að heildarútlánaaukning við- skiptabanka og sparisjóða á árinu færi ekki fram úr 200 millj. kr. Fjárþörf útvegsins á vetrarvertíð og síldarvertíð reyndist hins veg- ar öllu meiri en við hefði verið búizt, og hennar vegna hefir ekki að fullu tekizt að halda þessu marki. Kemur hér til greina hvort tveggja í senn, erfið fjárhagsað- staða sj ávarútvegsins eftir lang- varandi verðbólgu, og mikill kostnaður vegna nýrrar veiði- tækni. Á hinn bóginn, og það skiptir mestu máli, hefir að fullu tekizt að fara eftir þeim reglum, sem settar voru um viðskipti milli Seðlabankans annars vegar og viðskiptabanka og sparisjóða hins vegar. Hinir síðar nefndu hafa ekki fengið neitt fé frá Seðla- bankanum til útlánsaukningar. Þvert á móti liafa nettóskuldir viðskiptabanka og sparisjóða við Seðlabankann á jyrstu sjö mánuð- um þessa árs lœkkað um 38 millj. kr., en höjðu á sama tíma árið 1959 hœkkað um 56 millj. kr. Það var ekki við öðru að bú- ast en að nokkur tími liði þar til er efnahagsráðstafanirnar færu að hafa áhrif á sparifjármyndun- ina. Kom þar ekki sízt til greina hin mikla óvissa, sem ríkjandi var um þróun launa og þar með alls verðlags í landinu. Ennfremur var líklegt, að frjálsari innflutningur mundi í bili örva innkaup og draga úr sparifjármyndun. — Reynslan varð sú, að sparifjár- innlög lækkuðu mánuðina fyrir og eftir gengisbreytinguna. I apríl mánuði fór spariféð hins vegar að aukast á nýjan leik, og hefir sú aukning haldið áfram síðan. í mánuðunum apríl—júlí varð aukning spariinnlána 188 millj. kr. á þessu ári, en varð á sama tíma árið áður 131 millj. kr. / júlímánuði einum jukust spari- innlán nú um 57 millj. kr., eða um nálega helmingi hœrri upphœð en á sl. ári, en þá varð aukningin í þeim mánuði 32 millj. kr. Um veltiinnlánin gildir allt öðru máli en spariinnlánin. Þau hafa á fyrstu sjö mánuðum þessa árs lækkað um 8 millj. kr., en juk- ust á sama tímabili sl. árs um 40 millj. kr. Lækkun veltiinnlánanna er fyrst og fremst afleiðing af því, hve aukning útlánanna hefir ver- ið lítil. Yeltiinnlánin eru að miklu leyti starfsfé fyrirtækj anna. Því erfiðara sem fyrirtækjum reynist að fá lán, því betur verða þau að nota það fé, sem þau hafa undir höndum, og það dregur úr vexti veltiinnlána. Lítil aukning velti- innlána ber því einmitt vott um, að breytingin á stefnunni í lána- málum hafi borið tilætlaðan ár- angur. Því heyrist oft haldið fram í umræðunum um efnahagsmálin á Alþingi, að rekstur útvegsins og annarra framleiðslugreina myndi stöðvast, ef ríkisstj órnin héldi fast við stefnu sína í bankamálunum, og leyfði útlánum ekki að vaxa meira en ráðgert var. Bæði vetr- arvertíð og síldarvertíð hafa ver- ið stundaðar af kappi, og öll önn- ur atvinnutæki landsmanna hafa verið hagnýtt til hins ýtrasta, það sem af er þessu ári. Spádómarnir um rekstrarstöðvun og atvinnu- leysi hafa ekki rætzt. Þó hefir rík- isstjórnin framkvæmt stefnu sína og haldið útlánum bankanna í öllum aðalatriðum innan þeirra takmarka, sem þeim voru sett í viðreisnaráformunum. Vonirnar um það, að hækkun vaxta og sú alvarlega tilraun, sem með við- reisninni var gerð til stöðvunar verðbólgunnar, mundu leiða af sér aukna sparifj ármyndun, hafa heldur ekki brugðizt. Þó er sú aukning sparifj ármyndunar, sem orðin er, aðeins vísir þeirrar, sem orðið gæti, þegar Ijóst væri, að viðreisnaráformin hefðu tekizt að fullu. leirihlntí bæjarstjóriiar Akrane§§ rísar bæjar- sitjóranum úr §tarfi — en hann neitar að fara Aðeins 2 bæjarfulltrúar af 9 styðja hann. Þau sögulegu tíðindi hafa gerzt á Akranesi, að meiri hluti bæjar- stjórnarinnar — 7 af 9 — hafa samþykkt að segja bæjarstjóran- j um, Daníel Agústínussyni, upp starfi sökum óviðurkvæmilegrar! framkomu við ellilífeyrisþega á Elliheimili Akraness, hundruð! þúsunda fj árfestingu í heimildar-' leysi og óhlýðni við ýmsar sam- þykktir bæj arstj órnar. Daníel hefir hins vegar brugð- izt þannig við þessu að neita að hætta bæjarstjórnarstörfum og telur sig ráðinn út kj örtímabil bæjarstjórnarinnar. Hitt munu fáir skilja, hvernig hann hyggst stjórna bænum með stuðningi að- eins 2 af 9 bæjarfulltrúa. Daníel Ágústínusson hefir ver- ið bæjarstjóri Akraness um 6 ára skeið, studdur af Alþýðuflokkn- um, Framsóknarflokknum og Al- þýðubandalaginu, og eiga tveir síðarnefndu flokkarnir sinn full- trúann hvor í bæjarstjórn Akra- ness. Það var sl. miðvikudagskvöld, sem þessi tíðindi gerðust með samþykkt eftirfarandi tillögu: „Með því að sannað er, að bœj- arstjóri Akraness, Daníel Agúst- ínusson, hefir á eigin ábyrgð dregið bœnum fé af uppbóta- greiðslum til ellilífeyrisþega í ' Elliheimili Akraness, að upphceð J kr. 62.223, nýlega ákveðið fjár- festingu fyrir hönd bcejarins að upphœð 300.000 krónur án sam- ráðs við bæjarstjórn; vanrœkt að framkvœma samþykktir bœjar- ráðs og tíðum stungið undir stól erindum til bœjarstjórnar í stað þess að leggja þau fyrir bœjarráð til úrlausnar, þá samþykkir bœj- arstjórn Akraness að segja hon- um upp bœjarstjórnarstarfinu frá og með 25. ágúst 1960 að telja. Jafnframt samþykkir bœjar- stjórnin að fela forseta bæjar- stjórnar, Hálfdáni Sveinssyni, að gegna bœjarstjórastarfinu fyrst um sinn.“ Með tillögu þessari greiddu at- kvæði fulltrúar Alþýðuflokksins, þrír, og Sj álfstæðisflokksins, fjór- ir, en fulltrúar Framsóknarflokks- ins og Alþýðubandalagsins á móti. Hvorugur stuðningsmanna Daníels, Framsóknarmaðurinn né Alþýðubandalagsmaðurinn, vildi þó afsaka hátterni hans gagnvart ellilífeyrisþegunum, og bar full- trúi Alþýðubandalagsins fram svohljóðandi tillögu á fundinum til úrbóta þessu atriði: „Með tilvísun til álitsgerðar Elliheimllisnefndar dags. 19. júlí 1960 samþykkir bœjarstjórn ÍBA hh froii meH:J Síðastliðinn sunnudag lék ÍBA síðari leik sinn á Islandsmótinu við Fram, Reykjavík, og vann með 6 mörkum gegn 3. Með þess- um leik má segja, að ÍBA hafi tryggt sér setu í I. deild, því að það er nú 1 stigi yfir Keflvíkinga, sem léku sinn síðasta leik síðast- liðinn sunndag yið KR og tapaði. ÍBA á eftir að leika einn leik — við KR hér á vellinum — og verð- ur hann væntanlega næstkomandi fimmtudagskvöld eða sunnudag. Baráttan um íslandsmeistara- titilinn stendur milli Akraness og KR. Leikur ÍBA og Fram sl. sunnu- dag fór fram hér á leikvanginum í bezta veðri og að viðstöddum fjölda áhorfenda, sem létu álit sitt óspart í Ijós. Lið ÍBA hélt uppi linnulítilli sókn fyrri hálfleik og stóðu leikar í lok hans 3:1 ÍBA í vil. Fyrri hluta síðara hálfleiks átti Fram meira í leiknum, en í leiks- lok tóku ÍBA-menn aftur foryst- una og lauk leiknum, eins og fyrr segir, með 6:3. Dómari var Þorlákur Þórðar- Engir samningar enn milli Iðju og atvinnurekenda. Enda þótt nær hálfur mánuður sé liðinn frá því, að Iðja, félag verksmiðj ufólks á Akureyri, setti fram kröfur um 25—30% kaup- hækkun, hafa engar samningauin- ræður hafizt milli hennar og at- vinnurekenda hér enn. Akraness að standa án tafar, þar tilgreindum lífeyrisþegum full skil á lífeyri og lífeyrishœkkun sam- tals kr. 62.223.00 ásamt 6% árs- vöxtum. Bœjarstjórn Akraness harmar þau vítaverðu mistök, sem liér hafa átt sér stað og felur bœjarstjóra að annast um endur- greiðsluna og gera ráðstafanir til að slíkir hlutir endurtaki sig ekki.“ Álitsgerð sú, sem hér er vitnað í, var m.a. undirrituð af fulltrúa Framsóknar í nefndinni, þannig, að allir flokkar hafa lýst andúð sinni hinum „vítaverðu mistök- um“ Daníels í því máli. Eins og fyrr segir, neitaði Daní- el að láta bæjarstjórastarfið laust fyrir Hálfdan Sveinssyni, er þá lét hart mæta hörðu og heimtaði sig settan inn í starfið með fó- getaúrskurði. Var Kristján Kristj- ánsson, borgarfógeti í Reykjavík, skipaður setudómari í málið. Almennur borgarafundur var um mál þetta sl. föstudagskvöld, en eigi munu aðrir hafa staðið að honum en Framsóknarflokkurinn og Alþýðubandalagið auk nokk- urra persónulegra vina Daníels. Skoraði sá fundur á bæjarstjórn að taka brottvikningu Daníels úr bæjarstjórastarfi aftur, ella efna til nýrra bæjarstjórnarkosninga.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.