Alþýðumaðurinn - 09.07.1964, Síða 2
ALÞÝÐU
m—m ■ ■ | Bbnr ■mP
MAÐURINN
RITSTJÓRI: BRAGI SIGURJÓNSSON . BJARKARSTÍG 7 . SÍMI 1604
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUREYRAR . VERÐ KR.
100.00 Á ÁRI . LAUSASALA KR. S.00 BLAÐIÐ . SETNING OG
PRENTUN: PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. . AKUREYRI
Krossgötur
Ýmislegt bendir til þess, að íslenzka þjóðin standi innan
tíðar á krossgötum varðandi flokkaskipun í landinu.
Það er opinbert leyndarmál, að Þjóðvarnarflokkstilraunin
hefur beðið algert skipbrot. Hitt veit almenningur ekki enn,
að Sósíalistaflokkurinn er að brotna upp, en fær þó í sífellu
ýmis augljós dæmi um þetta upp í hendurnar.
Um þetta farast Jóni Baldvini Hannibalssyni, sem fyllti
ílokk kommúnista um skeið, en var fljótur að átta sig á því,
að hann var þar í dauðra manna húsi, m. a. svo orð í Frjálsri
þjóð 3. júlí s.l.:
„Sameiningarflokkur alþýðu er einfaldlega ekki það, sem
hann segist vera og verður ekki úr þessu. Hafi hann einhvern
tíma átt að sameina íslenzka alþýðu, þá er það fyrir löngu
sannanlega borin von. Flokkur, sem ekki getur sameinað j
sjálfan sig, sameinar ekki aðra.“
Um brotafylgi þessara tveggja flokka verður barizt á næst-
unni, og það verður örlagaríkt fyrir íslenzka þjóð, hvernig
sú barátta fer.
Framsóknarflokknum er orðið ljóst, eftir hverju er að
slægjast: Nái hann þessu fylgi að meginhluta til sín — en
þar bar hann í fyrstu lotu sigurorð af Sósíalistaflokknum um
Þjóðvarnarfylgið sbr. síðustu þingkosningar — er hann kom-
inn með sterk spil á hendina að knýja íslenzk stjórnmál inn í
tveggja flokka kerfi líkt og í Bandaríkjum Norður-Ameríku,
þar sem tveir borgaralegir flokkar tefla einráðir um öll völd,
hug og háttu fólks í krafti ofboðslegra fjárráða. Óskum vér
slíkrar flokkaskipunar hér?
Ef vér athugum hugsunarhátt og lífsskoðun þess fólks, sem
fyllt hefur þá tvo flokka, sem nú eru að leysast upp, kemur
strax í ljós, að þar er um menn og konur að ræða, sem ýmist
eru eða standa mjög nærri jafnaðarmönnum að hugsunar-1
hætti. Þau hafa ýmist yfirgefið Alþýðuflokkinn eða aldrei \
fyllt hann, af því að þeim hefur verið talin trú um, að hann
hafi brugðizt sínu sósíal-demókratiska hlutverki. Þetta fólk
allt þráir innst inni sterkan sósial-demokratiskan flokk, sem
það geti fyllt og starfað fyrir, svipaðan flokk og brezku og
norsku verkamannaflokkarnir eru í augum þeirra, og ef það
dreymir um tveggja flokka kerfi, þá væntir það vinstra
flokks gegn hœgri, það er tvær andstæður, en ekki tveggja
borgaraflokka með örlítið tilbrigðilegum íhaldsblæ.
Það væri því næsta grálegur örlagaleikur, að þetta fólk
yrði til þess í áttavillu sinni að efla Framsókn sem leiknaut
Sjálfstæðisins. Hér er það, sem Alþýðuflokkurinn á að verða
skapandi afl í rás viðburðanna:
Hann er eini fasti vinstri kjarninn í landinu.
Hann hefur aldrei hvikað frá grundvelli jafnaðarstefn-
unnar.
Hann á gáfuðu og mikilhæfu forustuliði á að skipa.
Honum ber því að taka forystu í því að byggja upp sterkan
vinstri flokk, sem getur rúmað allt það fólk, er nú hefur
skilið skipsbrot Þjóðvarnar og Sósíalistafl., en vill stuðla að
raunhæfri vinstri pólitík.
Stórborgin London er
höfuðsetur lista, mennta
og heimsviðskipta.
London er brennipunktur flugsamgangná
um allan heim. Við fljúgum 10 sinnum í
viku til Bretlands í sumar, þar af þrjár
ferðir beint til London. Tíðustu ferðirnar,
þægilegustu ferðirnar, beztu ferðirnar,
það eru ferðir Flugfélagsins.
FERÐIR
I VIKU
BEINA LEIÐ
TIL
L0ND0N
Auðvitað verður þessi sameining erfitt vandaverk. Mörgu
því fólki, sem nú er á lausum kili frá Þjóðvörn og Sósíalista-
fb, þykir sú villan sárust, að það hafi ekki dæmt Alþfl. rétt.
Það heldur dauðahaldi í þann fordóminn, að Alþfl. sé einnig
úr leik. Innst inni dáist það þó að þreki og festu flokksins
að hafa komizt sterkur og traustur út úr þeim vopnaburði,
sem á bonum hefur staðið allt frá 1930.
Hér verða allir að skilja, að mestu máli skiptir að taka
raunhæft á hlutunum, strika yfir fornar væringar og fordóma
og fylkja liði til sóknar á ný, ná inn í þá sóknarfylkingu
hverjum þeim nýtum og gegnum Þjóðvarnarmanni og Sósíal-
istaflokksmanni, sem er sósíaldemókrat að skoðun og vill
þjóð sinni vel, og setjast svo niður og finna, að hverju þessi
fylking getur og vill vinna saman. Hitt getur beðið um sinn,
sem hún er ekki alveg sammála um, því að hitt munu ærin
verkefni.
Og þegar þau eru leyst, munu menn sjá, að ýmis ný verk-
efni bíða, sem þeir geta vel orðið sammála um, hvernig leysa
skuli. Tortryggnina hefur tekið upp í sunnanvindi sam-
vinnunnar.
Verður Siglufjörður
heifur bær
Tilraunaborun fer nú fram á
Siglufirði eftir heitu vatni í
Skútadal.
Hinn 1. þ. m. var komið niður
á 25 m dýpi og gaus þá borholan
2 m vatnssúlu 50° heitri og
mældist rennsli 7 sek. lítrar.
Hætta varð borun í bili, en
sérfræðingur athugar aðstæður
nánar.
Gera Siglfirðingar sér nú
vonir um, að fyrir bæ þeirra eigi
innan tíðar að liggja að komast
í tölu heitra bæja, þ. e. upphitun
húsa verði frá jarðhita.
Matthíasarsafnið opið kl. 2—4
e. h. alla virka daga, nema laugar-
daga.