Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 09.07.1964, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 09.07.1964, Síða 4
Rðmlefo 14 |é. mdl í Krosune Síldarverksmiðjan í Krossanesi hefur nú tekið ó móti 74312 mál- um af síld til bræðslu. Síðustu landanir voru á þriðjudagskvöld en þá komu Sigurður Bjarnason með 1108 mál, og Ólafur Magnússon með 649 mál, áður í vikunni höfðu komið Hafþór með 1015 mál og Baldur, Dalvík, með 64*9 mál. Bræðsla hefur gengið vel, og verið unnið allan sólarhringinn. Enn er nokkuð magn óbrætt. Flutningaskipið Aska hefur komið með einn farm til verk- smiðjunnar, en áður hafði hún flutt farm til Hjalteyrarverksmiðju. Þegar er farið að flytja mjöl frá Krossanesi, ó þriðjudag tók ísborg þar um 80 tonn. Það óhapp vildi til þegar verið var að grafa fyrir vatnslögn í Glerárhverfi að jarðstrengurinn í verksmiðjuna hjóst í sundur, fór rafmagn skyndilega af og allar vélar stöðvuðust. Þurrkarinn var fullur af mjöli, og því mikil hætta á bruna, en sem betur fór tókst svo vel til að eldurinn var kæfður í þurrkaranum áður en nokkurt verulegt tjón hlauzt af. Staðreyndir mn pg Tjinabtetur Samimnytrygginga 90.< nlljðnir hr. Aðalfundir Samvinnutrygg- inga og Líftryggingafélagsins Andvöku voru haldnir á Hall- ormsstað 30. júní. Fundinn sóttu 21 fulltrúi víðsvegar að af land- inu, auk stjórnar og starfsmanna félaganna. í upphafi fundarins minntist formaður félagsstjórnar, Erlend- ur Einarsson, forstjóri, tveggja forvígismanna félaganna, sem látizt höfðu frá síðasla aðal- fundi, þeirra Sigurður Kristins- sonar forstjóra og Jóns Eiríks- sonar frá Volaseli. Fundarstjóri var kjörinn Björn Stefánsson, kaupfélags- stjóri, Egilsstöðum, en fundar- ritarar þeir Jón S. Baldurs, fyrrv. kaupfélagsstjóri, Blönduósi, Ósk- ar Jónsson, fulltrúi, Selfossi, og Árið 1961 flutti Emil Jónsson félagsmálaráðherra frumvarp á Alþingi um hækkun hámarks- lána húsnæðismálastjórnar úr 100 þús. kr. í 150 þús. og verka- mannabústaða úr kr. 140—160 þús. kr. í 300 þús. á hverja íbúð. Til ársins 1959 höfðu lán húsnæðismálastj órnar í raun- veruleikanum sjaldan farið yfir kr. 70 þús. kr. á íbúð. Árið 1962 vann bankastjóri norska Húsbankans Jóhann Hoffmann hér að athugun um húsnæðismál á vegum Samein- uðu þjóðanna og setti síðan fram tillögur sínar í mjög ítarlegri og greinargóðri skýrslu, sem send var ríkisstjórn og öllum alþingis- mönnum og sveitarstjórnum á fyrrihluta s.l. árs. Skömmu eftir útkomu skýrsl- unnar fól félagsmálaráðherra húsnæðismálastjórn að taka hana til athugunar og gera nýjar tillögur í húsnæðismálum al- mennt og þó sér í lagi fjármála- hlið þeirra. Húsnæðismálastjórn hafði þessar tillögur til meðferðar á mörgum fundum s.l. vetur og skilaði áliti sínu til ríkisstj órnar- S U M A R F R í Þetta verður síðasta blað AI- þýðumannsins fyrir sumarfrí. Næsta tölublað kemur því ekki út fyrr en 13. ágúst n. k. innar um mánaðamótin marz og apríl s.l. Húsnæðismálastjórn varð ekki sammála um niðurstöður sínar, og væntanlega verður upplýst áður en langur tími líður, í hverju sá ágreiningur fólst. Tveimur vikum eftir að hús- næðismálastjórn hafði sent til- lögur sínar til ríkisstjórnarinnar hirti Alþýðusambandið ályktun sína með ósk um viðræður við ríkisstjórnina, þ. á m. um hús- næðismál. Síðan hafa tillögur húsnæðis- málastjórnar og verkalýðssam- takanna orðið hluti af samkomu- laginu við ríkisstjórnina. Nýju vélarnar hans Tryggva Hclgasonar. (Ljósm.: S.) Tvær flugvélar til Akureyrar Fimmtudag s.l. komu hingað til Akureyrar tvær flugvélar Tryggva Helgasonar sem hann hefur fest kaup á í Bandaríkjun- um. Margir lögðu leið sína á flugvöllinn til þess að fagna nýju vélunum, sem eru af gerðinni Beechraft C—45 H, og taka 8 —9 farþega í sæti, hreyflar tveir 450 ha hvor. Þá eru vélarnar búnar fullkomnum blindflugs- tækjum, fjarskiptaútbúnaði og enn fremur ísvarnartækjum. Flughraði er 250—300 km. Fjórir amerískir flugmenn flugu vélunum hingað, en með Steinþór Guðmundsson, kennari, Reykjavík. Stjórnarformaður, Erlendur Einarsson, forstjóri, flutti skýrslu stjórna félaganna og framkvæmdastjórinn, Ásgeir Magnússon, skýrði reikninga þeirra. Heildariðgjaldatekjur Sam- vinnutrygginga á árinu 1963, sem var 17. reikningsár þeirra, námu kr. 130.068.699.00, í brunadeild kr. 24.809.718.00, í sjódeild kr. 48.322.524.00, í bif- reiðadeild kr. 35.714.548.00 og í endurtryggingadeild kr. 21.221- .909.00. Höfðu iðgjöldin aukizt um kr. 27.668.222.00 frá árinu áður og hefur iðgjaldaaukningin aldrei verið jafn mikil að krónu- tölu. Tjónabætur námu 90.6 millj- ónum króna eða 16.1 milljón meira en árið áður. Verulegt tap varð á bifreiða- tryggingum á árinu, en unnt var að endurgreiða í tekjuafgang svipaða upphæð og áður af bruna-, dráttarvéla-, slysa-, farm- og skipatryggingum eða kr. 7.050.000.00 auk bónusgreiðslna til bifreiðaeigenda fyrir tjón- lausar tryggingar, sem námu kr. 6.124.000.00. Frá því Samvinnutryggingar hófu að endurgreiða tekjuaf- gang árið 1949 hafa þær samtals endurgreitt hinum tryggðu tekjuafgang, sem nemur 51.7 milljónum króna, auk bónus- greiðslna til bifreiðaeigenda. Iðgjaldatekjur Líftrygginga- félagsins Andvöku námu kr. 2.326.000.00 árið 1963, sem var 14. reikningsár þess. Trygginga- stofn nýrra líftrygginga á árinu nam kr. 6.642.000.00 og trygg- ingastofninn í árslok kr. 103.902. 000.00. Trygginga- og bónus- sjóðir námu í árslok tæpum 25 milljónum króna. Á árinu var opnuð ný um- boðsskrifstofa á Akranesi, og veitir Sveinn Guðmundsson fyrrv. kaupfélagsstj óri henni forstöðu. í lok ársins festu Samvinnu- tryggingar kaup á tveimur hæð- um í nýju skrifstofuhúsi að Ár- múla 3 í Reykjavík, og munu félögin flytja aðalskrifstofur sín- ar þangað á þessu ári. Ur stjórn áttu að ganga Isleif- ur Högnason og Kjartan Olafs- son frá Hafnarfirði, sem baðst eindregið undan endurkjöri. Kjartan hefur verið í stjórn fé- laganna frá upphafi, og færði stjórnarformaður honum sér- stakar þakkir fyrir störf hans í þágu félaganna. ísleifur Högnason var endur- kjörinn og í stað Kjartans var kj örinn Ragnar Guðleifsson, Keflavík. Á aðalfundinum flutti Baldvin Þ. Kristj ánsson, útbreiðslustj óri, erindi um félagsmál. Að loknum aðalfundinum hélt stjórnin fulltrúum og allmörg- um gestum úr Austfirðingafjórð- ungi hóf að Hallormsstað. Stjórn félaganna skipa: Er- lendur Einarsson, formaður, ísleifur Högnason, Jakob Frí- mannsson, Karvel Ogmundsson og Ragnar Guðleifsson. Framkvæmdastjóri félaganna Ásgeir Magnússon, en auk er hans eru í framkvæmdastj órn Jón Rafn Guðmundsson og Björn Vilmundarson. Akareyrintar sigra Fram með 8:1 í förinni var Björn Sveinsson flugvirki, hefur hann annast eft- irlit og lagfæringar sem gerðar voru á vélunum í Bandaríkjun- um. Við komuna tóku á móti vél- unum Tryggvi Helgason og kona hans Petra Konráðsdóttir og færðu þau flugmönnunum hlóm- vönd. Þessar flugvélar verða teknar í notkun svo fljótt sem unnt er og notaðar til alls konar leigu- flugs. Norðurflug á nú sex flugvélar, þar af þrjár kennsluflugvélar. Um síðustu helgi kom knatt- spyrnulið frá Fram hingað til Akureyrar og keppti gestaleik við lið ÍBA. Beið lið Fram hinn herfileg- asta ósigur fyrir Akureyringum sem skoruðu 8 mörk gegn 1, staðan í hálfleik var 2:1 Akur- eyringum í vil. Akureyringarnir áttu mjög góða leikkafla í þessari viðureign og bar þar mest á Kára, Valsteini, Steingrími og svo Magnúsi og Jóni í vörninni. Það er alls ekki í fyrsta skipti sem ÍBA-liðið leikur lið þeirra stóru úr Reykjavík svona grátt, skemmst er að minnast leiksins gegn Val í Reykjavík. Það vekur því undrun nokkra að lið sem leikur í II. deildar keppninni þetta tímabil skuli ná slíkum árangri, eða segir þessi deildaskipting raunverulega ekk- ert um styrk liðanna? Von er á liði KR hingað n.k. sunnudag, verður gaman að sjá hvernig sá leikur fer, þar sem þeir eru núverandi íslandsmeist- arar, en eins og flestir vita var lið Fram íslandsm. 1962. SKEMMTI FERÐ Ennþá eru nokkur sæti laus í skemmtiferð Alþýðuflokksfélag- anna sem farin verður um ri'k. helgi. Þeir sem hug hafa á að fara í þessa ferð ættu að til- kynna þátttöku sem fyrst til Sig- mars Sævaldssonar í síma 1399 eða 2726 eða Þorvalds Jónssonar í síma 2252. Þátttökugjald er 250 kr. ALÞYDU MADURINN

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.