Alþýðumaðurinn - 25.03.1965, Blaðsíða 1
MAOURINN
í fiskleysinu hafa menn löngum reynt að bjarga sér með þvi að dorga upp
um ísinn. (Ljósm.: E. Sigurgeirsson).
Ársþing Ungmennasamb.
Ársþing Ungmennasambands
Eyjaíjarðar hið 44. í röðinni
var haldið í heimavistarskólan-
um að Húsabakka í Svarfaðar-
dal, laugardaginn 13. og sunnu-
dag.inn 14. marz sl. Formaður
sambandsins, Sveinn Jónsson,
setti þingið, en síðan voru
kjörnir forsetar þeir Jón Stefáns-
son og Eggert Jónsson, og ritar-
ar þeir Haukur Steindórsson,
Sigurður Jósefsson og Hreinn
Ketilsson.
Framkvæmdastjóri U.M.S.E.,
Þóroddur Jóhannsson flutti síð-
an starfsskýrslu sambandsins
fyrir sl. ár, en þar kom fram, að
starfsemin hefur verið fjölþætt
og hún aukizt mikið á árinu. Er
þar helzt að nefna aukna bind-
indisfræðslu, t. d. var efnt til
heimsókna í barna- og unglinga-
skóla héraðsins og húsmæðra-
skólann, komið á fræðslukvöldi
fyrir almenning, aðild að Bind-
indismótinu í Vaglaskógi o. fl.
Sambandið starfrækti sumar-
búðir að Laugalandi í Öngul-
staðahreppi þar sem 60 ungling-
ar nutu tilsagnar í ýmsum íþrótt-
um. Unnið var að söfnun og
skráningu örnefna í héraðinu,
og er það verk vel á veg komið.
Þá gekkst sambandið fyrir
námskeiði í starfsíþróttum, unn-
litlom dreoj bjargað úr löh d Ahureyrorpolli
Þriggja ára drengur, Bjarni
Hallgrímsson, Strandgötu 41,
var hætt kominn er hann féll
niður í vök á ísnum á Akur-
eyrarpolli sl. mánudag. Hafði
hann verið að leika sér ásamt
fleirum litlum börnum á ísnum
sunnan Oddeyrar, en fór út á
veikan ís, þar sem kemur í sjó-
inn afrennsli frá Hríseyjargötu,
og fór þar á bólakaf.
Af hreinni tilviljun tók þrettán
ára stúlka, Gíslína Benedikts-
dóttir, eftir því hvar drengurinn
var að sökkva í vökina, hljóp
hún þegar til og náði til drengs-
ins þegar hann var um það bil
að berast undir ísskörina. Gat
hún, þar sem hún stóð í vökinni,
haldið honum upp úr sjónum,
en ekki komið honum upp á
skörina, þar sem ísinn brotnaði
undan þunganum. Þá bar þar að
Ottó Snæbjörnsson, blikksmið,
og tókst honum að ná drengnum
og koma honum heim til sín.
Ekki mun drengnum né stúlk-
unni hafa orðið meint af volk-
inu, en töluvert frost var er þetta
gerðist.
Áœtlunarsiglingar Eim-
skip milli erlendra hafna
Eins og kunnugt er haslaði
H.f. Eimskipafélag íslands sér
völl á erlendum flutningamark-
aði á árinu 1961 þegar skip fé-
lagsins hófu áætlunarferðir milli
Bandaríkja Norður-Ameríku og
Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn í
siglingasögunni, að íslenzk skip
halda uppi reglubundnum áætl-
unarsiglingum milli erlendra
hafna og því algert brautryðj-
endastarf í alþjóðasiglingum
þjóðarinnar.
Ferðum skipanna hefur verið
hagað þannig, að þau hafa
komið við í íslenzkum höfnum í
báðum leiðum, vestur og austur
um hafið og flutt vörur að og
frá landinu, jafnframt því að
anna flutningum frystivara fyrir
Eyjafjarðar
ið var að skógrækt og á íþrótta-
sviðinu var mikið starf.
Gjaldkeri sambandsins skýrði
reikninga þess, en þar kom fram
að reksturinn hafði verið mjög
kostnaðarsamur, þrátt fyrir það
var rekstrarhagnaður sem nam
34 þús. kr.
Mörg mál voru á dagskrá og
samþykktir gerðar í flestum
þeirra.
Um 60 fulltrúar sátu þetta
þing sem tókst með ágætum og
var mikill áhugi ríkjandi fyrir
störfum sambandsins og ung-.
mennafélaganna við Eyjafjörð. •
Stjórn sambandsins var öll
einróma endurkjörin, en hana
skipa: Sveinn Jónsson, formað-
ur, Haukur Steindórsson, ritari,
Birgir Marinósson, gjaldgeri, sr.
Bolli Gústafsson, meðstjórnandi
og Eggert Jónsson, varafor-
maður.
Þingið naut ágætrar fyrir-
greiðslu að Húsabakka og í
þinglok buðu ungmennafélögin
í Svarfaðardalshreppi, Atli og
Þorsteinn Svörfuður, fulltrúum
til rausnarlegrar veizlu.
í ungmennasambandi Eyja-
fjarðar eru nú 15 félög með 870
félagsmönnum.
erlenda aðila á þeim leiðum,
sem að ofan eru nefndar.
Þegar í upphafi ávann félagið
sér gott orð á erlendum vett-
vangi og varð frystivöruflutn-
ingamagnið brátt allmikið, enda
þótt það væri nokkuð árstíða-
bundið og háð markaðssveifl-
um. Á tímabilinu frá því í marz
1961 til loka síðastliðins árs
fluttu skip félagsins samtals
101.070 tonn af frystivöru milli
erlendra hafna og nema brúttó
gjaldeyristekjur af þeim flutn-
ingum sem svarar til 162 millj-
óna íslenzkra króna.
Það verður ekki annað sagt,
en að þessi tilraun Eimskipa-
félagsins til alþjóðasiglinga hafi
tekizt vel og lofi góðu um áfram-
hald á þessari braut. Þó verða
verkefni þau, sem skipanna bíða
heima fyrir ávallt látin sitja í
fyrirrúmi, því það er og verður
að sjálfsögðu fremsta skylda
félagsins að veita landsmönnum
fullkomna þjónustu. Hefur fé-
lagið og jafnan miðað gerð
skipa sinna við þær kröfur, sem
gerðar eru til þeirra hér heima,
Beint símasamband
Sl. laugardag, hinn 20. þ. m.,
var opnað sjálfvirkt símasam-
Bifreiðaeign landsmanna
fvöfaldasf ó 10 árum
Vegamálaskrifstofan hefur
gefið út að venju bifreiðaskýrslu
þar sem er að finna ýmsar upp-
lýsingar um bifreiðaeign lands-
manna.
Alls eru skrásettar 31924 bif-
reiðir á öllu landinu og 308 bif-
hjól, af fólksbifreiðum eru til
112 tegundir, en sú tegund sem
mest er til af er Ford, Volkswag-
en er næstur í röðinni en þriðju
eru Willys jeppar.
Af vörubifreiðum eru til 109
tegundir, mest af Chevrolet, þar
næst Ford og síðan Dodge.
Árið 1955 voru skrásettar á
landinu alls 15611 bifreiðir og
hefur þeim fjölgað jafnt og þétt
á hverj u ári en aldrei eins mikið
og á síðustu þrem árum.
Elzta skrásetta bifreiðin er frá
árinu 1923, tvær eru af árgerð-
inni 1926, en mest er af árgerð
1963, 3392 bílar.
svo þau geti sem bezt leyst flutn-
ingaþörf landsmanna og félag-
inu er það kappsmál að í engu
þurfi að draga úr þeirri þjón-
ustu, sem það hefur veitt heldur
mikið fremur að bæta hana.
ísinn lokar siglingaleið-
um að austan og vestan
ísinn hefur nú lokað öllum
siglingaleiðum bæði austur og
vestur um, mikill ís er fyrir
Austurlandi og hefur hann þegar
lokað sumum fjörðum fyrir sigl-
.ingum, frá Hornbjargsvita sést
ísbreiða svo langt sem skyggni
leyfir og allir firðir og víkur á
Ströndum eru fullir af ís.
Við Melrakkasléttu og Langa-
nes er ísinn landfastur, einnig er
Þistilfjörður orðinn fullur af
ísnum.
Herðubreið, sem var á austur-
leið, hefur snúið frá, er hún
kom í þéttan ís við Sléttu. Þá er
Stapafellið einnig lokað inni, en
það var að losa olíu hér á Akur-
eyri.
homið ó við Ddhfík
band við Dalvík. Er stöðin þar
gerð fyrir 300 númer, en 178
númer komust í beint samband
við þessa breytingu, en hin 122
númerin koma þá inn, eftir því
sem þarfir heimta og aðstæður
leyfa.
Svæðisnúmer er hið sama og
fyrir Akureyri, 96, en síma-
númer þeirra notenda, er sjálf-
virka símann hafa nú fengið eru
á milli 61100 og 61299.
Mjög óhagstæður við-
skiptajöfnuður við
Austur-Þýzkaland
Á s.l. ári jókst verulega inn-
flutningur hingað til lands frá
Austur-Þýzkalandi, en hins veg-
ar minnkaði útflutningur stór-
lega. Alls nam innflutningur um
kr. 104 millj., en útflutningur
aðeins 15,5 millj. kr.
Þetta er þveröfugt við árin
1958—1964, en þá var útflutn-
ingur íslendinga oftast mun
meiri en innflutningur.