Víðir


Víðir - 14.06.1930, Síða 2

Víðir - 14.06.1930, Síða 2
2 vmr é “Dttir - Kemur út einu sinni í viku. - Ritstjóri: O . EOOERZ.' Afgreiðslumaður: j ón magnússon: Sólvangi. Sími 58. Pósthólf 4! Verð: Innanbæjar kr. 0;50 á mánuði, úti um land kr. 6.50 árgangurinn: Auglýsingaverð: kri 1!50 cm. til Siglufjarðar árla morguns og vorum þar allan daginn. Jón þorláksson fyrv. ráðherra var með skipinu í fundaleiðangri og ætlaði frá Siglufirði með vélbát til Sauðárkróks og landveg það- an til Borgarness. Bauð hann mér að slást með í förina og tók ég því með þökkum, því það gaf mér tækifæri til að vitja æskustöðva minna í Húnaþingi Varð það að samkomulagi, að hann skyldi ekki hafa fundi lengri en það, að ég heíði tíma til að fiytja fyrirlestur minn í fundarlok. Sparaði það mér húsaleigu og gat ég því flutt hann ókeypis áþeim stöðum sem eftir voru. En á Siglufirði hafði umboðsmaður minn verið búinn að auglýsa hann kl 5, og átti inngangurinn að kosta 1 krónu. Breytti ég því um fundartíma og hélt hann í fundarlok hjá Jóni um kvöldið ókeypis, en lét þess getið opinberlega áður, að þeir sem hefðu ætlað að kaupa sig inn gætu eins borgað krónu við útganginn, og rynni það fé þá í Ekknasjóð bæjarins. Get ég þessa hér af því að Tímamenn breyddu það út á eftir að ég hefði ætlað að véla fólkið til að borga mér sjálfum krónu við út- ganginn, — og sýndu þeir þar sem oftar sannleiksást sína. — Rak eg þessa sögu sfðar ofan í Jónas þorbergsson á Hvamstanga. Á Siglufjarðarfundinum var talsvert af kommunistum og vitn- uðu tveir þeirra um trú sína á fundinum. Undir ræðu Jóns þorlákssonar viðhöfðu þeir öðru- hvoru fótaspark og þegar ég ætl- aði að byrja fyrirlestur minn tóku þeir að kyrja rússneskan kommúnistasálm (internationale) og gengu syngjandi út, en eftir voru hátt á annað hundrað manns. Var þetta látið heita svo hjá Tímamönnum, sem 400 hefðu farið út, en 50 orðið eftir. Á Siglufirði hélt félag Sjálf- stæðismanna. okkur veislu um kvöldið. Að því búnu héldum við með vélbát til Sauðárkróks, sem er 5 tíma ferð. Logn var á og bliðviðri og naut hin fagra og bjarta norðlenska nótt sín sem best, enda fór sólin að rísa úr hafi um kl. 1. Er mikill munur á því, hvað vornóttin er bjartari þar en hér, enda er skamt frá Siglunesi til norður- heimsskautsbaugs. Ég var uppi fyrstu 2 klukkutímana bæði til þess að njóta næturfegurðarinn- ar og til þess að geta séð inn í Fljótin, mestu snjóasveitina hér á landi, en þangað á ég kyn mitt að rekja langí fram í ættir, því langalangafi minn, Sigfús Bergmann, fluttíst þaðan fyrir 130 árum vestur í Húnaþing, og gerðist þár ættfaðir í stórum stíl. Koma þar saman framættir hans og þeirra Víðivallabræðra (Pét- urs biskups), Stephensenanna og Egilsenanna, sem allir eiga kyn sittað rekja út á þetta hrikalega og fannþunga annes milli Eyjafjarð- ar og Skagafjarðar. Um sunnudagskvöldið 1. júní var mjög fjölmennur fundur á Sauðárkróki, svo fult var út fyr- ir dyr. Var Jón Þorláksson frummælandi, en af Framsókn- arhálfu töluðu Jón í Stóradal og Steingrímur skólastjóri á Hól- um og af jafuaðarmönnum Jón Baldvinsson, sem slóst síðan í för með okkur og varð okkur samferða til Reykjavíkur. í fundarlokin þegar fyrirlest- ur minn átti að fara að byrja hélt Gunnar Tboroddsen stutta en snjalla ræðu og deildi þar á dómsmálaráðherra fyrir afskifti hans af mentamálum. Iíljóp þá berserksgangur i Framsóknar- menn og vildu margir fá orðið, en við það var ekki komandi, þvi þá átti fyrirlestur minn að byrja. Varð þá skólastjórinn á Hólum æstur mjög og skoraði á alla Framsóknarmenn að ganga af fundi og íylgdu honum um 20—30 manns, en sumir þeirra læddust aftur inn um bakdyrn- ar af forvitni, og sannaðist þar sem oftar, að forboðnu ávext- irnir eru freistandi. Yfirleitt varð ég þess var, að Framsókn- arforkólfum var meinilla við er- indi mitt, og voru hræddir við við að láta fiokkBmenn sína hlusta á það. Vissu þeir sem vai', að málstaðui' þeirra var slæmur, þar sem blað þeirra hafði mánuðum saman borið lygar og róg á læknastéttina, trystandi því að margir bændur sjá aldrei annað blaðenTímann og eiga því ekki kost á að sjá rétt skýrt frá. En nú verður þeim ekki kápan úr þvi klæð- inu, að því er Bnertir óhróður þeirra um læknanna, því bæði hef ég haldið fyrirlesturminn um það mál 10 sinnum víðsvegará landinu, og auk þess hefur Heimdallur, félag ungra Sjálf- stæðismanna í Reykjavik, gefið hann út í 12 þúsund eintökum, og hefur ekkert annað rit á Is- lenska tungu verið gefið út í svo stóru upplagi. Verðurhann því sendur í hverja sveít á land- inu og opnar vonandi augun, á einhverjum fyrir samviskusemi Tímaklíkunnar. Gunnar Thoroddsen, sem ég áður nefndi, er 19 ára gamall student úr stjórn Heimdals. Ferðaðist hann með okkur og stofnaði félög ungra Sjálfstæðis- manna hingað og þangað. Á Sauðárkróki gisti ég hjá Jónasi lækni Kristjánssyni, sem veiti mér bestu viðtökur, ók mér út í Hegranes til þess að sýna mér austurhluta Skaga- fjarðar og fylgdi okkur morg- uninn eftir í bíl sínum fram að Reynistað, en þar býr Jón Sig- urðsson alþingismaður mjög myndarlegu búi á hínu forna og fagra höfuðbóli. Frá Reynistað var svo hald- ið áfram fram Skagafjörð sem leið liggur, yíir Stóra Vatns- skarð og til Blönduóss. Var drungi í lofti og nutum við því ekki eins vel og skyldi hins fagra útsýnis yíir Skagafjörð frá Arnarstapa á Vatusskarði. Samferðamenn mínir gistu á Blönduósi, en ég hélt um kvöld- ið áfram fram að Torfalæk, þar sem ég er fæddur og uppalinn, en þar býr nú bróðir minn Jón, á8arat 2 sonum sínum uppkomu- um. Var ég þar 2 nætur. Á Blönduósi varhaldinn fund- ur sem víðar og voru þar haldn- ar margar ræður, enda þykja Húnvetningar vera málskrafs- menn miklir á fundum og eru pólitiskir mjög. Þó fór alt fram með friði og spekt, þangað til ég skyldi halda fyrirlestur minn i fundarlok:. Kom þá upp á pallinn Hannes þingmaður Vest- ur-Húnvatninga og var þá ekk- ert syfjandalegur. Veifaði hann að mér staf einum allníiklum með silfurhnapp á og gói gald- ur mikinu. Hugðist hann að hrekja mig á brotí, eins og þeg- ar magnaðar afturgöngur voru áður fyr hraktar á flótta með því að skjóta á þær silfurhnöpp- um. En ég var það magnaðri en draugarnir, að ég hopaði hvergi fyrir silfurhnappinum né særingum þingraannsins. Gerð- ist þá hark nokkurt í salnum, því tveir bitlingamenn úr liði Framsóknar tóku að stappa fót- um j,! ákafa. Voru það þeir fyrverandi sparnaðarnefndar- maður og fyrverandi kirkju- málanefndarmaður, sá er „Þór* bar beinin vegna á skerjunum fyrir utan Blönduós. Sjálfstæðis- menn frammi í salnum hrópuðu þá upp og heimluðu að þing- manninum yrði hent út. Kom þá fram á sjónarsviðið húsráð- andinn, sterkur mgður og ein- beittur, tók í öxl Hannesi og bað hann að hafa sig hægan. Æpti þá þingmaðurinn upp, að verið væri að leggja hendur á sig og eggjaði menn sína, en enginn varð til þess að leggja honum lið. Var honum ýtt niður af pallinum og sagt að hafa sig á brott. Brost þá flótti í líð Fram- sóknar, svo foringjarnir hrökl- uðust út, en hinum óbreyttu liðsmönnum voru gefin grið. Flutti ég siðan fyrirlestur minn og var gerður góður rómur að, enda hefur Auatur Húnavatns- sýsla lagt Iandinu til fleiri lækna en nokkur önnur sýsla og Tíma- rógurinn um læknastéttina þvi fengið þar lítinn byr. Allmiklar breytingar sá ég að orðið höfðu í Húnaþiugi, síðan ég var þar síðast á ferð fyrir 7 árum. Myndarleg steinhús höfðu ver- ið reist á ýmsum stöðum og jarðabætur verið að gera mjög víða, bæði þar og í Skagafirði, jafnvel á heiðarbýlunum uppi á Stóra Vatnsskarði. Verður von- andi ekki langt að bíða þess, að ekki sé lengur hagt að segja, að „Sinumýrar, rotnar, rýrar, reiti svörul lijú“, því með sama á_ framhaldi verður alt slægjuland á mörgum bæjum orðið véltækt eftír nokkur ár. Þannig var t.. d. á Torfalæk verið að rækta út og vinna með traktor flag, sem er 13 dagsláttur að stærð, og á Bíðan að taka aðra jafn- stóra 8pildu fyrir, þegar þessi er komin i rækt. Traktor þenn- an hafa 2 hreppar keypt i fél- agi. Frá Blönduós var haldið til Hvammstanga og var þá mislitur söfnuður í bílnum, því í honum voru Sjálfstæðismennirnir Jón þorláksson, Gunnar Thoroddsen og undirritaður, Alþýðuflokks* maðurinn Jón Baldvinsson og Framsóknarmennirnir Jónasþor- bergsson ritstjóri og Páll Her- mannsson þingmaður. þó var samkomulagið ekki verra en það, að stórmeiðsli hlutust eng- in, hvorkí á limum eða mann- orði. Á Hvammstangafundinum og eins í Borgarnesi flutti eg ræðu um viðskifti dómsmálaráðherra og læknafélagsins, en ekki lyr- irlestur minn, því hann var kominn prentaður á þá staði báða og í hendur almennings. Frá HvammBtanga var haldið næsta dag af stað árla morguns. Fórum við riðandi yfir Holta- vörðuheiði, því við treystum ekki bílfærinu þar, og síðan á bil áfram til Borgarness, því þar var fundur um kvöldið. Voru þar fjöldi manna saman- kominn og ræðumenn margir, þar á meðal Pétur Magnússon, Pétur OfteBen, Bjarni Ásgeirsson og Guðbrandur Magnússon. Eru Borgfirðingar myndarmenn og búhöldar góðir og sá ég einna gjörfilegasta menn þar samankomna í ferðalaginu. Einkennilegt var það á öllum þessum fundum, að hversu harð- lega sem de.ilt var á stjórnina og þó einkum dómsmálaráðherra þá reyndi enginn Framsóknar- manna að mæla gerðum hans í seinni tíð bót. Ræður þeirra snérust aðeins um Hokkinn, en stjórnarráðstafanirnar fóru þeir f kringum eins og köttur um heit- an graut. Jón Baldvinsson sló sér upp á þvi að hæðast að Tímanum fyrir skrum hans og skjall um dómsmálaráðherrann. Sagði hann að varla tæki maður svo ofan fyrir ráðherranum á götu, að ekki útbásúnaði Timinn það sem vott þeirrar virðingar og vinsældar, sem liann nyti hjá þjóðinni. Eftir Borgarnesfundinn var um nóttina haldið til Reykjavíkur með Suðurlandi. Jþaðan fór eg I

x

Víðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.