Víðir


Víðir - 14.06.1930, Síða 4

Víðir - 14.06.1930, Síða 4
V f ð I r NYJUNG. Fars—vélar höfum við nú fengið okkur, og verður fars selt héðan tvisvar í viku. Ol og Gosdrykkir seldir beint ur kælir. Kælivélar í gangi að staðaldri, til trygging- ar fyrir matargeymslu. Islensktsmjör og Smjörlfki ávaitgeymt í kælir. Hveiti og Matarkex seljum við, ásamt ýmsum fleiri vörum — mjög ódýrt- Sími 11. MatvöruMðin Sími 11. Til sölu 1 |a hluti m|b Njöröur V. E. 220- Gunnar Olafsson & Co, Saltfisksmarkaður vor í Suður-Evrópu. Z Geta má þess að Guðlaugur Hansson bæjarfulltrúi tók til máls. Var ræða hans losaraleg og óskýr, og engin leið til þess að greina efni hennar. Eftir því er skilið varð úr ræðunni og eftir tónit^um að' dæma, hlaut Guðlaugur að vera með fækkun presta, því eitthvað hafði hann út á prestastéttina að setja, en hvað það var, það var al)t « þoku. Að venju jafnaðarmanna kom hann því að, að tala um fátækt- ina, og að prestarnir gerðu ekki nógu mikið fyrir andlega og likamlega volaða. Endaði svo Guðlaugur með því að hann væri algerlega móti því að fækka prestum. Kom þessi ályktun Guðlaugs, sem sagt, eftir því sem á undan var gengið, eins og skollínn úr sauðarleggnum. Loks samþykti salnaðarfund- urinn svohljóðandi ályktun með öllum greiddum atkvæðum gegn einu. „Fundurinn lýsir óánægju yfir því að hafa landskjörsdag á sunnudegi, og skorar á alþingi að láta alþingiskosningar fram- vegis eigi fara fram á helgidög- um þjóðkirkjunnar." Gortnur. Kiöt af sjálfdauðum beljum. það er víst orðið nokkuð al- gengt hér, að selt sé kjöt af sjálfdauðum skepnum sem 1. flokks kjöt o# með okurverði, til matar. þetta er mjög óvið- feldið og getur stafað hætta af. Að vísu mun kjötið oftast stimpl- að áður en það er selt, en það verk mun framkvæma maður, sem Iítið eða ekkert skyn ber á hvort kjötið er heilbrigt eða ekki. Ekki alls fyrir löngu hefur það ef til vill komið fyrir hér, að kjöt af gamall sjálfdauðri belju hefur verið selt fyrir kr. 2,30 kílóið, og ekki af þeim sem seldi verið minst ó að kjötið væri eins til komið og raun var á. Hér voru þá kjötvandræði og varan gekk út þótt dýr væri. Ber þetta vott um gróðragræðgi, kæruleysi og óskamfeilni gagn- vart þeim, sem vörunnar eiga að njóta. Væri til of mikils mælst að hlutaðeigandi heilbrigðis- og stjórnarvöld athuguðu þetta, ef þau með því gætu komið í veg fyrir að ófyrirleitnir kaupsýslu- menn seldu borgurum þessa bæjar skemda vöru fyrir góða. O. Messinglampi (hengilampi) óskast keyptur í dag. Kirkjuveg 86. Eftir för okkar Helga Guð- mundssonar fiskifulltrúa síðast- liðið vor um Spán, Italíu og Portúgal, varð það að samkcmu- lagi, að hann sendi ríkisstjórn- inni skýrslu um för okkar, og hafði hann áður gert drög að henni í samráði við mig. Við gátum ekki komið því við að gera hana í félagi af því hann þurfti að fara aðra för um Spán ogPortúgal strax eftir heimkomu sína frá Genua, en þar skyldum við, eftir stutta dvöi og ég hélt heim til íslands. En um það ræddum við, að ég ritaði við tækifæri um ýmislegt, sem 'við kyntumst, og birti það opinber- lega. Kafla þá, er hér fara á eftir, ritaði eg í fyrra sumar eftir heimkomu mína. þykir mér rétt að taka það fram vegna ýmsra tilvitnana, sem reyndar bera það með sér, en ekki sé eg ástæðu til að skýra frá, hvers vegna birting þeirra hefur dreg- ist. Tilgangur með för okkar Helga var: 1) Að kynnast sem best kröfum kaupenda um saltfisk. 2) Kynnast vörum keppinauta okkar og athöfnum þeirra. 3) Undirbúa víkkun markaðar og — ef auöið væri — nema ný svið. Skýrsla Helga Guðmundsson- ar skýrir frá því helsta, semfyr- ir okkur bar og við höfðumst að í förinni. Eg flutti erindi um förina á 5 stöðum. Fjallaði það um flest atriðin, sem eru í skýrslu Helga og hefir ekki borið á milli í frá- sögn okkar. Var skýrsla hans fyllri um staðreyndir og sjálft ferðalagið, en eg drap aftur á ýms atriðí í erindum mínum, sem kalla mætti hugleiðingar út af förinni. Eru kaflarnir hér á eftir af því tagi, I. Af því eg var einn á ferð héðan til Barcelona, og að sunn- an aftur hingað, þykir mér rétt að minnast nokkuð á það, sem eg sá á þeirri leið. Eg lagði af stað með Lýru21. febrúar til Bergen. Hentugra hefði verið að fara frá Reykja- vík beint til Hamborgar eða Englands, en þá hefði eg þurft að bíða talsvert í Reykjavtk. Auk þess var mér í hug að kynnast nokkuð fiski heima fyrir í Noregi, ef þess væri auðið. Eg þurfti að bíða eftir skips- ferð frá Bergen í þrjá daga og notaði tímann til þess að skoða fisk þar og í nágrenninu. Sá eg þar fisk, sem ætlað var að fara til Suðurameríku, Portugal og Norðurspánar, einnig mjögléleg- an fisk, sem átti að fara til Afr- íku (Gullstrandarinnar?) Fiskur- inn var upp og niður ekki eins Framh. Fr j ett i r. Messað á morgun kl. 2 e. h. Trúlofun sína l\afa nýlega openberað ungfrú Júlía Matthíasdóttir hér og stúdent þorsteinn L. Jónsson ,í Reykjavik. Einnig ungfrú Birna Hjaltested og Leifur Sigfússon tannlæknir. Dreugur 8 ára Jón Sigurðsson að nefni féll út af bryggju hér í gær. Af til- viljun bar þar að tollþjóninn Sigurjón Sigurjónsson og henti hann sér þegar í sjóinn í öllum fötum og náði drengnum, en það mátti ekki tæpara standa. Var strax farið með drenginn til læknis og leið honum efflr von- um er síðast fréttist. Símfregnir. —-o— Innlendar: F.B. 12. júní 1930. Frá Hafnarfirði. í morgun kl. 8V2 kom eldur upp á efri hæð í gamla Flensborgarhúsi, er þar nú íbúð skólastjóra mannlaus og heimavistarherbergi, húsið er 113 ára gamalt, eldurinn útbreidd- ist skjótt, Ögmundur og sonur hans björguðust mjög naumlega hlaut hann brunasár en ekki hættulega að talið er, eldurinn var slöktur en miklar skemdir urðu af vatni á neðrihæð.senni- lega kviknað út frá rafurmagni. F.B. 13. júni '30. Reykjavík Erlendir blaða- mennfarnirað koma, fyrsti stór- hópur hátíðagestanna kemur með Antontu í kvöld. Tið fundarhöld og búist við mikilli þátttöku t Iandskjörinu. Botnvörpungar eru flestir að hætta veiðum og sumir að búa sig á síldveiðar, tíðin er óstöð- ug en grasspretta góð, túnbletta- sláttur í Rvík er fyrir nokkru byrjaður. Utlendar. F.B. 10. júní. 1930, Oslo. Stórþingið sendir al- þingi ávarp og hyllir fslendinga sem hafa endurreist íslenska rík- ið. Bukarest. Sameinað Rúmen- iuþing hefur kjörið Carol fyrir konung, hann flaug til Bukarast fyrir helgina, verður Carol 2. Skilnaður hans við Helen Grikk- landsprinsessu verður ógiltur. F.B. 13. júní 1930. Búkarest. Carol hefur með konunglegri tilskipun útnefnt Helenu Grikklandsprinsessu til drotningu. Carol falið að mynda stjórn. Víðisprentsmiðja. Vestmaimaeyjum

x

Víðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.