Víðir


Víðir - 13.02.1937, Síða 1

Víðir - 13.02.1937, Síða 1
VIII. árg. 4. tbl. Vestmannaeyjum 13. febr. 1937. Vöraskorturoíeinokun Hvót til æsknlýðsins, flutt á skemtun í Vik, 1. des. 1936. Ég vil helga þér ljóð mitt, á hátíðiskveldi, þú hugprúði, glaðværi, æskunnar lýður. þjáttu hefjast þitt brjóst, undan áhugans eldi, eftir átökum vilja þíns, framtíðin bíður. Þú átt heiJaga þrá, til að þroskast og stækka, þrá, sem er æskunnar göfuga merki. Lát ei slokkna þann eld, láttu huga þinn hækka. Láttu hönd þína starfa að göfugu verki. Lyftu sál þinni hátt upp úr duftsins dróma, þar dáðleysi’ og ómenning réttir þér hendur. Stefn á tindinn, sem glampar af geislandi ljóma, þó að grýtt, sé að klífa um óruddar lendur. Findu vaxa þitt afl, undan átökum stærri, láttu aldrei hrekjast af manndómsins vegi. Sjáðu stefnumörk anda þíns hærri og hærri, móti hækkandi menning og rísandi degi. Það blasa við auganu ónumdar lendur, á akri þíns þjóðlífs, er margt til að græða. Upp í afdalsins kyrð, fram við úthafsins strendur, láttu áhrif þín, menning, og viðsýni glæða. Það er skylda þín æska, að eflast að megin, því óðar en líður þú tekur við völdum, Láttu sannleikans eldstólpa vísa þér veginn, þá mun vaxa þinn hróður á komandi öldum. Herm. Einarsson.' Nú heyrast kvartanir hvaðan- æva af landinu um tilfinnanlegan og ískyggilegan vöruskort. Stjórn þeirra mála hér á landi, — sem ráðherrarnir auðvitað eru höf- uðin á — hefir skamtað vöru- innflutningsleyfin, eða öllu held- ur gjaldeyrinn til að borga vör- una með, svo imátt, að til vand- ræða horfði um síðustu áramót. Mun svo enn vera að skortur bó á ýmsum nauðsynjavörum. í síðasta mánuði var t. d. kola- lítið mjög í sjálfri Reykjavík, og hér í Vestmannaeyjum hefir ekki fengist kolablað keypt, hina síðustu daga, Þar sem nú er- öllu kaldara hér en verið hefir hin síðari ár, þá eru vandræðin, sem af slíku atafa auðskilin. Það þýðir ekkert að segja, að menn lifi ekki á eldsneyti. Maturinn sé meiri nauðsynja- vara. Það getur verið einhver sannleiki í þessu, en hann er ekki nema hálfur, því þeir munu margir, sem fremur vilja vera lítið svangir en mikið kaldir, þó að slept só hinni þektu nauð- syn að elda matinn. Það eru vitanlega fleiri nauð- synjavörur en kolin, sem skort- ur er á, T. d. eru skófatnaðar- birgðir ærið litlar á flestum stöðum og mjög kvarta vefnað- arvöruverslanir um vöruleysi. Matvara er af skornum skamti, og þannig mætti lengi telja. Innfiutning8höft og gjaldeyr- ishömlur eiga drýgstan þátt í því, að láta verslunarjöfuuð rik- isins, Bem ráölierrarnir töluðu borginmannlega um í útvarps- ræðum nýiega, líta sæmilega út á pappírnum. En ekki er svo lítill blekkingarsvipur á tölum þeim, er þeir tala um, þegar það er athugað, að vörubirgðir eru eð mestu horfnar og skort- ur á nauðsynjum fyrir dyrum, og allar vörur stórhækka í Vcðrlð hefir verið fremur kalt síðustu viku og dálítill snjór.á jörðu, Nú er þýðviðri og snjórinn verði. Það rnyndi þykja lóleg búmenska af svcitabónda, cf hann trassaði að kauþa mat þangað til alt væri uppétið, vit- andi þó að verðið stigi risafet- um. En slíkir búmenn eru stjórnendur islensku þjóðarinn- ar. Einokun. Sósialistar og Framsókn hafa ósleitilega unnið að því, að inn- leiða hér aftur verslunareinok- unina gömlu, sem á sínum tíma leiddi hinar mestu hörmungar yfir laud og þjóð. Einokun sem um árafjölda kostaði erfiði hinna ágætustu manna að vinna bug á, og þar með gera versluniua frjálsa, og bæta hag lands og þjóðar. Með verslunarfrelsinu jókst þor og framtak fólksins og verkin sýna merkin á landi. Og síðan hefir menning þjóðarinn- ar aukist í öllum greinum. Það skiftir engu máli hvort okrarinn lieitir ríki, kaupfélög eða einstaklingsverslun, Sá valdhafi, sem ekki skilur það, að fólkið á alveg jafn erf- itt með að kaupa rándýra vöru af ríkinn, eins og hverri annari verslun, hann er okki í valda- 8essi hæfur. Sá fátæki kaupir þess minni vöru sem hún er dýrari, hvað sem þörfinni líður. Þetta ættu þeir að skilja, sem þykjast vera vinir hinna fátæku, þegar þeir taja við fólkið. En hinn rauna- legi sannleiki er sá, að annað- hvort skilja þeir það ekki, eða þeir hugsa aðeins um að vinna fyrir sjálfa sig — sýna eigin hagsmuni, og reyna að halda völdunum, hvaö sem öðrum l'íður. Þetta er álit mesta fjölda lands- manna á einokunarsmið ríkisins, hinni rauðu samfylking. að hverfa. Qóð sjóveður hafa veríð daglega, en fiskirí fremur tregt, Þó mun fiskirí ekki minna en áður á sama tíma. Xveldulfur. Það er löngu kunnugt flestum hugsandi íslendingum, að hluta- félagið Kveldúlfur í Reykjavík er hið langstærsta og athafna- mesta atvinnufyrirtæki hér á landi. Útgerð 7 togara frá Reyk- javík, Sildarbræðsla á vestur- landi og fiskkaup á ýmsum stöð- um, hefir veitt svo miklum fjölda fólks atvinnu, að slíks eru ekki dæmi hjá öðrum fyr- irtækjum hér. Ennfremur er það alkunna, að sambúð hins vinnandi fólks, við stjórnendur Kveldúlfs, hefir alt af verið og er í besta lagi. Og sjómönnum þeim, sem unn- ið hafa á skipum félagsins, hefir fundist hag sínum velborgiðað hafa vinnu hjá þeim, enda hafa þeir oft borið meira úr bítum þar, en aðrir hafa fengið ann- arsstaðar. Nú er svo komið, að hin rauð- flekkóttu blöð Reykjavíkurleggja Kveldúlf í einelti meðallskonar álygum, og heimta að hann sé gerður upp sem gjaldþrota. Það er svo mikil ósvífni gagn- vart fólki því, sem félagið veit- ir atvinnu, að ólíklegt er að það eigi rísi öndvert gegn hinum róggjörnu vandræðamönnum.sem fylla dálka hinna rauðu sam- fylkingarblaða, með óhróðri og hinni ótrúlegustu lýgi um at- vinnufyrirtæki það, sem vinnu- þurfa fólk fær mesta atvinnu hjá. Það er ómöguiegt annað en álíta, að þessi bægslagangur rauðliða eé brjálæðiskend, póli- tísk ofsókn gegn þeim meiri og betri mönnum. Að þessi skilningur á fram-

x

Víðir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.