Víðir


Víðir - 08.12.1951, Blaðsíða 2

Víðir - 08.12.1951, Blaðsíða 2
VÍÐIR 2>ið£r kemur iit á laugardögum Fylgirit: GAMALT OG NÝTT Ritstjóri: EINAR SIGURÐSSON Sími 66G1 Víkingsprent Ríkið krefur — deilir. Þessa dagana vekur mikla athygli hinn geysimikli tekju- afgangur ríkissjóðs í ár, en hann á einkum rót sína að rekja til söluskattsins og mik- illa tolltekna vegna aukins innflutnings. 100 miljónir króna eða meira er talað um. Það lastar enginn, að afkoma ríkissjóðs sé sæmileg, en fyrr má nú gagn gera. Það hefur verið skorin upp herör til að ná eins miklu fé úr umferð og hægt er, og all- ar stofnanir, sem gátu haft þar á nokkur áhrif, hafa gert allt, sem í þeirra valdi hefur stað- ið, til þess að draga úr kaup- getunni, sem átti að' vera rót alls ills. Víst gerði hin mikla kaupgeta þjóðinni mjög erfitt fyrir með að hafa nægan gjaldeyri til þess að fullnægja eftirspurninni. En það er svo oft hér á landi of eða van. Er skemmst að minnast, þeg- ar fjárhagsráð var sett á lagg- irnar, hve víðtæk skömmtun- in var, innflutningshöftin og fjárfestingarbannið. Nú er ekki aðeins búið að létta mik- ið á þessu, heldur er beinlínis íarið að hvetja til hins gagn- stæða, eins og með auknum lánveitingum til íbúðarhúsa- bygginga. Þá er ríkið’ ekki siður stór- tækt í skattheimtu sinni, þegar það snýr sér að því. Það hefur kannske alltaf ver- ið það. Er nú samt skemmst stórra högga á milli í þeim efnum, eignakönnunin, sölu- skatturinn og stóreignaskatt- urinn. Nemur þessi nýja skattheimta ein hundruðum miljóna króna, Ofan á þetta bætist svo, að bankarnir kippa að' sér hendinni með lánveitingar, draga inn eldri lán, eins og hægt er, og veita lítið ný nema rekstrarlán fyrir útflutningsframleiðsluna. Þessi skattheimtu- og lána- stefna hlýtur að segja til sín í þverrandi getu einstakling- anna til þess að halda uppi atvinnu og ráðast í nýjar framkvæmdir. Þegar fiskileysi bætist svo ofan á, er ekki undarlegt, þótt ýmis sveita- og bæjarfélög, einkum á Norður- og Vesturlandi, séu illa sett í atvinnulegu tilliti. En það er annað, sem ekki er síður athyglisvert í þessu sambandi. Og það er þróunin yíir í bæjar- og ríkisrekstur. Einstaklingnum eru allai bjargir bannaðar, en ríkið er með fullar hirzlur fjár og st.yð- ur bæina óspart til atvinnu- rekstrar eð'a ræðst sjálft í framkvæmdir. Ástandið er þannig, að forráðamenn bæj- ar- og sveitafélaga telja sig ekki lengur geta bygg’t á hinu lamaða einkaframtaki, þegar um forsjá fólksins er að ræða, og því vilja þeir heldur fá það opinbera sein atvinnurek- anda, bæinn eða ríkið, því að þeir vita, að engin stöðvun verður á atvinnurekstrinum, þegar þeir að'ilar eru einu sinni byrjaðir. Þeir geta veitt nýju fjármagni inn í hann til þess að mæta töpunum, þó að það sé með skatt- eða útsvarsá- lagningu og þannig tekið úr öðrum vasanum og látið í hinn. En heilbrigður er slík- ur atvinnurekstur ekki í sam- keppni við einkarekstur. Það er ekkert athugavert við þessa þróun frá sjónar- miði þeirra, sem aðhyllast ein- göngu ríkis- eða bæjarrekst- ur, en það má merkilegt heita, að hinum skuli ekki vera ljóst, hvert stefnir í þessum efnum með sama áframhakli: Eftir því sem atvinnurekendurnir falla hver af öðrum fyrir hinni lamandi skattaáþjan óg fjár- málastefnu, færist feigðin nær annarri efnahagsstarfsemi ein- staklinganna í landinu. vlVv^l’iin og Ijázfnát Rœðið við kunningja yklcar og vini um blað- ið. Sendið þvi nöjn þeirra, sem liaja sömu áhugamál og blaðið rœðir. Framboð á íbúðarhúsum er heldur lítið eins og stendur. Verð á steinhúsum á hita- veitusvæðinu er frá 2400 krónum til 3000 króna fer- meterinn og er heldur hækk- andi. V firleitt hvíla ekki mikil lán á íbúðarhúsum, þar seip veðdeildin hefur lánað mjög lítið og erfitt hefur verið að selja bréfin upp á síðkastið nema með mjög miklum af- föllum, 20—25%, og bank- arnir hafa ekki lánað út. á íbúðarhús nokkur síðustu ár- in. ITelz't hafa það þá verið nokkrar stofnanir, sem lánað hafa út á fasteignir, og eitt- hvað lítilsháttar einstaklina- ö ar, sem nú mun vera orðið mjög lítið um, nema þá til mjög stutts tíma, aðallega til að fullgera hús. Menn, sem kynnu að vilja selja, eiga því yfirleitt mikið í húseignum sínum, og þurfa að fá mikla útborgun, ef þeir ætla að byggja eða kaupa annars staðar. Algengast hef- ur verið að krefjast 80% út- borgunar, en síðan fór að kreppa að með peninga, era fáir, sem geta greitt meira en 60%, Yfirleitt er þungur róð- ur, hvað sölu á húsum snertir. Nokkuð er jafnan um hús- hyggingar, en þær ganga nú orðið mjög hægt. Ekki mun þó svo mikið um að kenna efnisskorti, heldur miklu frek- ar peningalevsinu, því nú er mjög dýrt að byggja. Verð á algengustu tegund- um byggingarefnis er nú: Sement kr. 114.00 tn. Steypujárn kr. 4.00 kg. Timbur l”x6” kr. 1.80 fet. Fyrir stríð var þetta: Sement kr. 12.00 tn. Steypujárn kr. 0.40 kg. Timbur l”x6” kr. 0.16 fet. Byggingarkostnaður húsa er nú talinn 700 krónur tenings- meterinn, og er þá átt við venjuleg tveggja hæða hús. Annars er þetta misjafnt, eins og gengur og gerist. Alhnikið er um byggingar smáíbúðarhúsa, þar sem bær- inn úthlutaði lóðum fyrir inn- an Bústaði. Menn vinna mik- ið að þessum byggingum sjálfir, og margur byrjar þar án þess að hafa mikið fé handa á milli. Sumir hafa t. d. byrjað, þótt þeir hafi ekki átt nema fyrir sementinu í plötuna. Akureyrarbær hefur lánað efnalitlum mönnum 15.000 krónur til slíkra bvgg- inga. Þó að það sé ekki mikið, getur það verið nokkur hjálp með öðru og jafnvel eitthvað til að fara af stað með, þar sem herkja er á bak við, því að mikill sannleikur er í gamla máltækinu: Tóftin aflar trjánna. Eða: Hálfnað er verk, þá hafið er. Það er venja að telja, að hús þyrfti að gefa 10—12% af verði sínu í leigu, ef það var leigt út. Miðað við sölu- verð húsa nú væri 10% leiga tvisvar og þrisvar sinnum hærri en ákvæðin um liúsa- leigu gera ráð fyrir, en það er 7 kr. ferm. á mán. í húsum byggðum fyrir 1942, 9 krón- ur í húsum byggðum eftir 1942 og fram að 1947 og 11 krónur í húsum byggðum eft- ir það. Miðað við utanmál. Þó er þetta dálítið breytilegt eftir því, hvort maðurinn býr í húsinu sjálfur. Og eins ef húsin eru byggð fyrir 1940, þá er það grunnleiga og vísi- tala. Það er því dýrt að búa í húsum keyptum í dag eða byggðum. Nú er það svo, að það er eins með húsaleigulögin og önnur lög eða ákvæði, sem eru ekki í samræmi við hið gamla lögmál um framboð og eftirspurn, að það er farið í kring um þau, og menn telja sér ekki skylt að fara eftir þeim. Því er það opinbert leyndarmál þégar um nýja leigu er að ræða, að almennt er farið eftirxþví, sem gerist í þeim efnum, sem er þó ekk- ert í samræmi við söluverð húsa eða byggingarkostnað. Þannig mun algeng leiga. á íbúðum nú á hitaveitusvæð- inu vera sem svarar 300—400 krónum herbergið á hæð og um hundrað krónum minna, þar sem súð er. Þannig er eklíi óalgengt að leiga á tveggja herbergja íbúð með eldhúsi sé 900—1200 krónur. Leiga er þó að sjálfsögðu alltaf mjög háð legu og ásigkomulagi hússins og breytileg eftir því. Þá er það ekki óalgengt að krefjast nokkurrar fyrirfram- greiðslu, 10—20 þús. króna. Með síhækkandi cldsneyt- iskostnaði og hækkun á . 7 stræ11svagnagj ö 1 dum er orð- inn gerður mjög mikill grein- armunur á húsnæði á hita- veitusvæðinu og fyrir utan FARMAND: -f AlþjóSastjórn eða Evrópustjórn. I danska blaðinu „Inform- ation“ var fjármálaráðherra landsins nýlega boðinn vel- kominn heim af einni af hin- um mörgu ráðstefnum. Hin glettna kaldhæðni, sem þar kemur fram, gæti eins vel átt við víðar. Sjaldséður gestur er þessa dagana í heimsókn i landi voru. Það er danski jjármála- ráðherrann, Thorkil Kristen- sen. Hann kom til Kastrup- jlugvallar jrá París, en þar hejur hann dvalið nokkrar vikur að lokinni heimsókn til höjuðborgar Kanada, Ottawa. Danski jjármálaráðherrann sagði blaðamönnum, þegar hann kom, að hann væri glað- ur yjir að sjá Danmörku ajt- ur, sem hann hejði komið til áiður, en liann harmaði, að dvöl lians gœ.ti heldur ekki orðið löng að þessu sinni, þar sem aðkallandi verkejni biðu hans í París þegar í nœstu viku, og þegar þau hejðu ver- ið leyst, hejði hann í hyggju að jara til Rómar. Um jram- tíðarájorm sín að því búnu gat ráðherrann ekki, en hann vonaði, að þetta væri eklci síðasta sinn, sem hann kœmi til Danmerkur, þar sem hann ætti vini og starjsjélaga og þaðan sem hann ætti svo á- nægjulegar endurminningar . . En greinin var síður en svo árás á förusveininn í ríkis- ráðinu, heldur staðfesti aðeins þá tvímælalausu staðreynd, að ákvarðanir, sem hafa mjög víðtæka þýðingu nú á dögum, eru ekki teknar í rík- isráðum einstakra landa, heldur á alþjóðaráðstefnum, sem eru ekki ábyrgar gagn- vart þjóðþingi neins þátt- tökuríkjanna. Það er vel þess vert að veita þessu ástandi nána at- hygli. Það kemur stöðugt greinilegar í Ijós, að Stórþing- ið og starf norsku stjórnar- innar takmarkast meir og meir við Noreg sjálfan. Á- kvarðanir varðandi utanríkis- stjórnmál, hmdvarnir og verzlun eru nú á dögum tekn- ar á fundum utan landamæra landsins sjálfs, á ráðstefnum, þar sem fulltrúar okkar koma frarp, en hafa þó eklci neinn ákvörðunarrétt. Hið fullvalda norska Stór- þing þarf svo bara að leggja blessun sína á þessar ákvarð- anir. Því fer fjarri að harma beri þróun þessa. Hin nána sam- vinna, sem stöðugt eykst, er eina vonin til að Evrópuríkin vinni bug á vandamálunum. Hin skammsýna þjóðernis- stefna er úrelt í heiminum eins og hann er með allri sinni nútímatækni. En vinna verður bug á mörgu, sem snertir viðkvæma strengi þjóðernistilfinningarinnar, áður en landamærin eru úr sögunni. Allir þessir fundir og ráð- stefnur hafa ekki svo mikla þýðingu hvert um sig. Oftast er árangurinn lítill í hlutfalli við málþóf og tímaeyðslu og formlegar dagskrár. Blaða- fulltrúinn í utanríkisráðu- neytinu getur verið uppgefinn og kærulaus, þegar um það er að ræða að gefa skýrslu um árangur og niðurst.öður. En það er aðeins svo, þegar litið er á málin hvert í sínu lagi, eitt og eitt. Sem hlekkur í þróunarkeðjunni eru þau skapandi og hafa miklu meiri þýðingu en vandamálin í austri og aðrir enri raunalegri atburðir. England og Evrópa. Nú í dag eru Englending- um settir kostir. Vegna ítaka sinna í öðrum heimsálfum hafa þeir ekki litið á sjálfa sig sem evrópiskt veldi. Einu sinni var heimsveldið þeim mikilvægara en Evrópa, þ. e. a. s. samveldislöndin. Hefur það leitt til stjórnmálaað- gerða, sem oft hafa verið Evrópuríkjunum í óhag, og stafa vissulega af hinni at- hafnasömu stefnu Englend- inga í verzlunarmálum.

x

Víðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.