Heimir : söngmálablað - 01.04.1924, Page 5

Heimir : söngmálablað - 01.04.1924, Page 5
HEIMIR SÖNGMÁLABLAÐ Hitstjóri! Sigfús Einarsson (ábm.) Rvlli. Póstli 443. - Simi lOíSti. Afgreiöslumaður og' i'jcliiiðii-: Benedikt Þ. Gröndal RAnargötu 24. Reykjavik. - Simi 1003. Afgri'iðsluinaðurinn tekur við auglýsinguin. 2. tbl. — Árgangurinn 3 kr. — borgist fyrirfram, um ieið og blaðið er pantað Apr.—júni 1924 Nokkur orð um »músík«. Eftir Baldur Andrjesson cand. theol. Skáldið Goethe sagði einu sinni í brjefi til vinar síns, að músíkin væri fegursta opinberun Guðs, og þau um- mæli eru eignuð Beethoven, að músík- in sje æðri opinberun en öll mannleg speki. Báðum kemur þeim saman um það, skáldinu og tónskáldinu, að músík- in flytji mönnunum háleit sannindi, jafnvel æðri og göfugri en nokkur önn- ur list. Eitt er víst, að þær kendir og innri sýnir skáldsins, sem hvorki verða klæddar í stein, liti nje orð, fær tónlist- in túlkað svo, að mannshjartað skilji. J>að er því enginfurða,þóttmannsandinn hafi tekið hana snemma í þjónustu sína. En hvað er músíkin í eðli sínu? Af hvaða þáttum er hún ofin? Ef við tök- um eitthvert lag og viljum gera okkur ljóst, hvað það sje, er myndi lagið, þá rekum við augun í þrent, sem aðallega einkennir það. Fyrst og fremst er það 1 a g 1 í n a n sjálf, tónar í ákveðinni röð; Við getum nefnt hvern tón fyrir sig og afstoðu hans til hinna, og svo gildi hans, ef við höfum ofurlitla þekkingu í söng- fræði. I öðru lagi er það h 1 j 6 ð f a 11- i ð, sem einkennir lagið. Sjerhvert lag hefir ákveðið hljóðfall. Og að lokum er lagið samið í einhverri tóntegund, venjulega í dúr eða moll. pótt við vit- um nú alt þetta og getum nefnt hvern tón og hljóm í laginU, skýrt og sundur- liðað, þá nægir það ekki til að skýra það, sem músíkin er í eðli sínu. þar með er ekki skýrt, hvers vegna þessi ákveðna tónaröð og hljóðfall, sem lagið hefir, verkar þannig á okkur, en ekki öðru vísi, hvers vegna lagið vekur hjá okk- ur þessar kendir, en ekki aðrar. pað er svipað með músíkina í sjerhverju lagi eins og ilm og fegurð rósanna. Ef við tökum rósina sundur og nefnum parta hennar þeirra rjettu nöfnum, segjum að rósin sje gerð af krónublöðum, duftber- um o. s. frv. og lýsum því nánar, þá skýrir það á engan hátt fegurð henn- ar og eðli þeirra áhrifa, sem hún vek- ur hjá okkur. Um leið og rósin er tek- in sundur, er ilmur hennar og fegurð horfin. En við vitum, að músíkin talar máli sálarinnar; að hún opinberar okkur þætti úr heimi sálarlífsins. Eins og sál- in þráir lausn úr efnisheiminum og leit- ar guðdómsins, þaðan sem hún er runn- in, þá er því eins varið með músíkina. Öll æðri músík svífur á sviði þess guðlega og yfirskilvitlega. Hún er ekki

x

Heimir : söngmálablað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir : söngmálablað
https://timarit.is/publication/602

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.