Alþýðumaðurinn - 02.03.1967, Blaðsíða 2
f .............. ■.^
Íþróttasíáa A.M.
.....................
RITSTJÓRI: FRÍMANN GUNNLAU GSSON
..IMI.I..IMMMIIMMIII.MMMMMI MIMMMMMMMMMMMH*l«MMMMMMMMMMi:'I.IIMIM.IIIIIIIMIIIIMIIMMIMIMIMJ»MIMMIMMMIMMMMMMMIMMIIIMIMMIMMMMIIIMIIIU
Ég vil hvetja allt ungt fólk til að stunda íþróftir
segir Karl
MNÁÐI stuttu spjalli við
Karl Erleudsson, annan
liinna ungu Akureyringa, sem
kepptu á Drengjameistaramóti
íslands í frjálsum íþróttum, í
Kópavogi fyrir nokkru.
Þar sigraði Karl Erlendsson
í þrem greinum, í hástökki með
og án atrennu og þrístökki án
atrennu og einnig varð hann
annar í langstökki án atrennu.
Afrek Karls voru þessi: m.
Hástökk með atrennu 1,72
Hástökk án atrennu 1,50
Þrístökk án atrennu 9,09
Langstökk án atrennu 2,92
Félagi Karls, Halldór Matt-
híasson, varð annar í hástökki
með atrennu og stökk hann
sömu hæð og Karl, 1,72 m. Þeir
félagar eru báðir meðlimir í
KA.
Karl er 17 ára, geðþekkur
piltur, frjálslegur í framkomu,
einn af þeim mörgu fulltrúum
æskunnar, er undirritaður ber
traust til. Það er alltaf gaman
að fá fulltrúa frá æskunni inn
á kompu AM og því fannst mér
Karl aufúsugestur.
Hvenær byrjaðir þú að æfa,
Karl?
Ég var í Alþýðuskólanum á
Laugum í fyrra vetur og þá
fékk ég áhuga fyrir frjálsum
íþróttum.
Var aðstaða þar góð til æf-
inga?
Ekki get ég nú sagt það. —
íþróttahúsið þar er orðið gam-
PARAKEPPNIN.
YLOKIÐ er parakeppni í
Bridge á Húsavík og tóku
24 pör þátt í keppninni. — Átta
efstu pörin urðu þessi:
—..—S
- KIRKJUVIKAN
(Framhald af blaðsíðu 1)
um. Framkvæmdastjóri kirkju-
vikunnar frá upphafi hefur
verið Jón Kristinsson forstjóri,
en í undirbúningsnefnd eiga
sæti: Jón Júl. Þorsteinsson,
formaður sóknarnefndar, séra
Birgir Snæbjörnsson, séra Pét-
ur Sigurgeirsson, Dúi Björns-
son, kirkjugarðsvörður, Jakob
Tryggvason, söngstjóri, og Rafn
Hjaltalín, kennari.
Erlendsson
alt og engan vegin nýtízkulegt.
En það er nú sama. íþrótta-
bakterían var meðai nemenda,
og flestir æfðu.
Svo hefur þú æft í sumar?
Nei, síður en svo. Ég var í
vinnu utanbæjar og fyrri hluta
vetrar æfði ég heldur ekkert.
Æfðir þú þá ekkert fyrir
Drengjameistaramótið?
Jú, ég byrjaði að æfa eftir
áramótin. Með tilkomu íþrótta-
skemmunnar batnaði aðstaðan
mikið. Nú eru æfingar 2 kvöld
í viku. En áhuginn virðist lítill
fyrir frjálsum íþróttum, — því
miður.
Kom ekki sigur þinn þér á
óvart?
Jú, svo sannarlega.
Og þú ert ákveðinn í því að
stunda íþróttir áfram?
Já, ég hefi áhuga fyrir því.
En ég veit nú ékki hvernig
verður með næst'a sumar, þá
verð ég líklega í vinnu á Rauf-
arhöfn.
En telur þú það ekki heilla-
vænlegt fyrir ungt fólk, að
stunda íþróttir?
Jú. Ég vil, eftir þau kynni,
sem ég hefi haft af íþróttum,
hvetja allt ungt fólk til meiri
þátttöku, ekki endilega í frjáls-
um íþróttum, heldur líka öðr-
um íþróttagreinum. íþróttirnar
þroska bæði andlega og líkam-
lega og ég vil minna á, að
íþróttafélögin hér í bænum
standa ávallt opin öllum þeim,
1. Magnús Andrésson og frú
með 255 stig. 2. Óli Kristinsson
og Steinunn Sveinsdóttir 249.
3. Ólafur Aðalsteinsson og frú
247. 4. Guðjón Jónsson og Ása
Stefánsdóttir 244. 5. Björn Jóns
son og Svava Jóhannesdóttir
243. 6. Þórður Ásgeirsson og frú
239. 7. Guðmundur Hákonarson
og frú 328. 8. Þorvaldur Árna-
son og Þorgerður Þórðardóttir
232 stig.
T V ÍMENNIN GSKEPPNIN.
Hafin er tvímenningskeppni og
er það 5 kvölda keppni. Eftir
fyrstu umferð eru efstir:
1. Óli og Jóhann með 260 stig.
2. Jón og Þorvaldur 252. 3. Guð
jón og Guðmundur 230. 4. Ól-
afur og Karl H. með 236 stig.
Karl Erlendsson.
er áhuga hafa og vildi ég skora
á unga fólkið að ganga í íþrótta
félögin. Nú hafa skilyrði stór-
batnað til æfinga eftir að íþrótta
skemman var opnuð.
AM þakkar Karli fyrir spjall
ið og óskar honum velfarnaðar
í framtíðinni og- væntir þess að
heyra oft nafn hans nefnt í
drengilegum leik og starfi í
framtíðinni. s. j.
MUNIÐ VELTUNA
hafði samband við for-
mann Lionsklúbbsins
Hugins, Gísla Eyland, og innti
hann eftir, hvernig 100 krónu
veltan gengi, s.l. mánudag.
Eins og sagt var frá í síðasta
blaði rennur agéðinn til fyrir-r
liugaðrar skíðalyftu í Hlíðar-
fjalli.
Gísli kvað byrjunina lofa
góðu og væru þegar komnir
rúmlega 300 áskorendur og
var hann bjartsýnn á stuðning
bæjarbúa.
AM fagnar því, hve bæjar-
búar hafa tekið veltunni vel,
þegar í byrjun, og veit að þeir
muni leggja sitt lóð á vogar-
skálina, svo að SKÍÐALYFTA
í HLÍÐARFJALLI verði orðin
að veruleika fyrir næsta vetur.
AM segir því enn: SAMTAKA
AKTJREYRINGAR, þá verður
það staðreynd, að skíðalyftan
OKKAR er risin fyrir næsta
vetur.
U.M.F. Reynir 60 ára
Ungmennafélagið REYNIR á
Árskógsströnd er 60 ára á
þessum vetri, og minnist félagið
afmælisins með hófi í Árskógar
skóla annað kvöld, föstudags-
kvöldið 3. marz, og eru allir
gamlir félagar boðnir til fagn-
aðarins, einnig stjórn og fram-
kvæmdastjóri UMSE.
BRIDGEKEPPN! Á HÚSAVÍK
- ÆskulýSshús á Akureyri
(Framhald af blaðsíðu 5.)
hafa um það langt mál að sinni.
Aðeins örfá orð um staðsetn-
ingu hússins.
Ég tel, að staðsetja verði hús-
ið í námunda við framhalds-
skóla bæjarins og finnst mér
helzt koma til greina túnið fyr-
ir sunnan su ndlaugina. Skól-
unum er ætlað að eiga fulla
aðild að húsinu, og við verðum
að líta á þá staðreynd, að á
komandi árum mun um 90% af
æskunni frá 13—18 ára aldurs
sækja einhvern skólann þar í
nágrenninu.
Tillögunni er ætlað að vera
eins konar svar bæjarstjómar
til æskunnar, og að bæjai’stjórn
sé fús til þess að taka upp sam-
starf við .æskuna um þau mál-
efni sem efst eru á baugi hjá
henni.
Við hátíðleg tækifæri er oft
minnzt á mannvænlega, — já,
og hvað eigum við að segja, —
kraftmikla æsku. Hví skyldi
ekki vera hægt að virkja það
afl, sem í henni býr, til fram-
dráttar góðu málefni.
í þriðja lagi má benda á það,
að skilyrði til þess að halda
uppi kerfisbundinni æskulýðs-
starfsemi og fjölþættu fræðslu-
starfi eru næsta bágborin. Ekki
svo að skilja, að viljann vanti
til að gera betur, heldur vegna
skorts á húsnæði og skipulagn-
ingu málanna.
Sum af þeim verkefnum, sem
Æskulýðsráð Akureyrar hefur
beitt sér fyrir, tel ég vera
hreina og beina tímasóun, og
tímasetning námskeiðanna
mjög vafasöm. Ég sé t. d. ekki,
að það geti verið í verkahring
Æskulýðsráðs að ánnast bama-
gæzlu, og óbeint að losa um þá
ábyrgð, sem heimilunum er
ætlað að sýna í uppeldinu. Ég
segi þetta ekki Æskulýðsráði til
hnjóðs, heldur til að vara við
hættunum. Börn þurfa á leið-
sögn foreldra sinna að halda,
foreldra, sem hafa fastar og á-
kveðnar skoðanir á hlutunum.
Heimilið er sá heimur, sem
barnshugurinn snýst um. Eftir
því sem fleiri aðilar úr umhverf
inu skerast þannig inn í, er hætt
ara við árekstrum. Öll félags-
starfsemi ætluð börnum verður
að taka fullt tillit til heimilis-
ins og stöðu þess í þjóðfélag-
inu. Enda á allra vitorði, að um
siðgæðis- og uppeldisáhrif jafn
ast enginn aðili á við góð heim-
ili.
Hins vegar væri æskilegt, ef
Æskulýðsráð gæti beitt kröft-
um sínum, að þeim verkefnum,
IMA, er 30 ára og í tilefni
1 þess fer keppni í körfu
og handbolta fram á milli MA
og MR í Iþróttaskemmunni á
morgun.
þar sem þöríin er brýnust, —
einkum meðal unglinga. Mjög
jákvætt starf er útbreiðsluritið
„Unga Akureyri“.
Þá hefur borið við í þessum
bæ, að skorist hefur í odda
milli aðila, sem hafa æskulýðs-
starf á sinum snærum og skól-
anna. Slíkt er allsendis óverj-
andi og ber að harma. Allir
skólar hafa rétt til að setja sér
reglur og sjá um, að þeim sé
framfylgt. Hér er um misskilið
„víðsýni“ að ræða, — hin öfga-
kennda kenning (var reyndar
námskenning) um frjálst upp-
eldi er löngu dottin upp fyrir.
Það kom líka greinilega í ljós
á fundi ungmennanna, — að
æskan vill aðhald, — og hún
vill leiðsögn.
Tillögunni er ætlað, að sam-
eina alla aðila, — heimili, skóla,
félög og stofnanir, — sem að
uppeldis- og æskulýðsmálum
starfa til samstilltra og heilla-
ríkra átaka.
Um síðari hluta tillögunnar
vil ég taka þetta fram: Skv.
þeim upplýsingum, sem ég he£
fengið, mun vera langt í land
með það, að bæjarfélagið geti
tekið byggingu æskulýðshúss
inn á sína framkvæmdar-áætl-
un. Önnur viðfangsefni, öll
sjálfsagt aðkallandi, sitja þar í
fyrirrúmi. En tíminn er dýr-
mætur, málefni æskunnar þolir
ekki öllu lengri bið, — og því
verður a, reyna nýjar leiðir, —
skírskota beint til almennings
um aðstoð.
E. t. v. kann bæjaríulltrúun-
um að þykja tillagan nokkuð
hátt uppi í skýjunum. En hér
eru á ferðinni ný viðhorí og
hýtt mat á hlutunum. Reyndar
er það svo með allar breyting-
ar, er gerast í þjóðlífinu. Að
sönnu eru breytingar misfljót-
ar að koma í ljós. Verklegar
breytingar ganga hraðar fyrir
sig, en breytingar á andlega
sviðinu. Við getum. því ekki
lagt sama mælikvarða’ á fjár-
upphæð, sem lögð er til æsku-
lýðsstarfsemi og t. d. þeirrar,
sem varið er til gatnagerðar. Ef
við leggjum fram 2 milljónir til
gatnagerðar, kemur árangurinn
strax í ljós að verkinu loknu,
þegar farið er að aka veginn.
Hins vegar á sviði æskulýðs-
og uppeldismála er öllu erfið-
ara að mæla eða sjá árangur af
sömu fjárfestingu. Því verður
að hefja öflugan áróður fyrir
markvissu æskulýðsstarfi.
En til þess að koma í veg fyr-
ir, að þessi mál falli í sömu
gryfju og skólamálin, en þar á
ég við fráhvarf og á stundum
áhugaleysi fólksins gagnvart
málefnum skólans, töldum við
rétt að skírskota tií samtaka-
máttar almennings, — einkum
unga fólksins.