Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Qupperneq 1
VerzliS i sérverriun.
ÞaS tryggir gæöin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brckkugötu 5 . Sími 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.00.
FRAMEÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROM YNDIR Akureyri
Flokksbróðir Hauks Árnasonar, Stefán
Vðlgeirsson, hefur fullyrt á hið nýja
Húsnæðismálafrumvarp veríi felll
40. árg. — Akureyri, föstudaginn 17. apríl 1970
9. tölublað
Hvers vegna gekk Sfefán Eiríks-
son úr S já Ifstæðisf lokknum ?
Á ÖÐRUM stað í blaðinu í dag
svarar Haukur Haraldsson
tæknifræðingur klausu er birt-
ist í þætti Jakobs Ó. Pétursson-
ar í íslendingi-ísafold og vill
undirritaður benda á að hann
er skjótari til svars en forkólfar
íhaldslistans, við þeirri spurn-
ingu AM: Hvers vegna Stefán
líkt, sem sé að svara spurningu
minni: HVERS VEGNA STEF-
ÁN EIRÍKSSON HAFI GENG-
IÐ ÚR SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKNUM? s.j.
HAUKUR Árnason lætur birta eftir sig í síðasta Degi ritsmíð, þar
sem skeytum er kastað til jafnaðarmanna varðandi hiisnæðismál
og kastar hann m. a. hnútu til Þorvaldar Jónssonar sökiím þess
að hann var upphafsmaður að eftirfarandi tillögu í bæjarráði, er
samþykkt var af meirihluta bæjarráðs og síðan samhljóða á síð-
asta bæjarstjórnarfundi. Tillagan var svohljóðandi.
Meirihluti bæjarráðs (Þor-
valdur Jónsson, Ingólfur Árna-
son og Sigurður Óli Brynjólfs-
son) samþykkti að leggja fram
svohljóðandi tillögu til bæjar-
stjórnar:
„Bæjarráð Akureyrar leggur
til við bæjarstjóm, að notuð
verði heimild til þess að byggja
verkamannabústaði samkv. IV.
kafla framkomins lagafrum-
varps um Húsnæðismálastofn-
un ríkisins, ef að lögum verður.
Felur bæjarstjórn framkvæmda
nefnd byggingaáætlunar á Ak-
N\\y
%
SVAR FRA HAUKI
Stefán Eiríksson.
Eiríksson hafi gengið úr Sjálf-
stæðisflokknum? Ekkert svar
hefur ennþá fengizt við spurn-
ingu þessari. Jakob ætti nú að
hnippa í flokksbræður sína og'
segja þeim, að það sé ekki nema
sjálfsögð kurteisi að gjalda líku
ÞAR sem ég af tilviljun leit í
síðasta tölublað íslendings-ísa-
foldar sá ég að höfundur þátt-
arins „Á förnum vegi“ hefur
nokkrar áhyggjur af því að ég
er ekki í framboðslista jafnaðar
manna á Akureyri nú sem síð-
ast, vil ég gjarnan létta af hon-
um þeim áhygg'jum, að ákvörð-
un mín að vera ekki í framboði
að þessu sinni stafar ekki af
neinum heimiliserjum innan A1
þýðuflolcksins, og vil taka fram
að ég er meðmælandi A-listans
— og lýsi jafnframt fullu
trausti mínu á Ingólfi Jónssyni
'byggingameistara, er nú skipar
það sæti á listanum, er ég var í
fyrir síðustu bæjarstjórnarkosn
ingar. Það mætti ætla að höf-
undur nefnds þáttar, að þeir
sem á annað borð komast á
framboðslista, sé það skylt að
verða þar mosavaxnir til fram-
búðar — og höfundi til meiri
fróunar vil ég taka fram að ég
tel mig eigi orðinn elliæran þótt
nafn mitt birtist á lista jafn-
aðarmanna við bæjarstjórnar-
kosningarnar 1974. Vona ég að
Haukur Ilaraldsson.
þessar línur verði þess valdandi
að áhyggjur skrifarans réni stór
lega. Að endingu vil ég þakka
það traust er mér var sýnt í
prófkjöri jafnaðarmanna.
Með þökk fyrir birtinguna.
Haukur Haraldsson.
8
in sfefna Framsóknarflokksins?
í SfÐASTA blaði var á það
bent að stefna Framsóknarfl.
væri fremur óglcgg og bezt
lýst með ljóðlínum Indriða
Þorsteinssonar:
Vegir liggja til allra átta
enginn ræður för.
Ritstjórnargrein í Degi
sem út kom 15. þ. m. er ætl-
að að afsanna þetta. Grein
þessi nefnist kosningar og er
að mestu tilvitnanir í ræðu
sem foimaður Framsóknar-
flokksins flutti nýlega sin-
um mönnum til leiðbeining-
ar í hönd farandi kosning-
um.
í ritstj órnargreininni kem
ur fram að formaðurinn hef-
ur gefið liði sínu ákveðið tak
mark að stefna að. Lokaorð-
in tekin úr ræðu formanns-
ins eru þessi: „Það getur
vei'ið að næstu bæjarstjórn-
arkosningar séu lykillinn að
stjórnarráðinu. Það þurfum
við öU að hafa hugfast.“ Þar
með hefur flokkurinn öðlazt
stefnu og takmark og nú
geta hinir óbreyttu Iiðsmenn
hafið kosningabaráttuna.
Framsóknarflokkinn varð-
ar ekki um bæjarmál á Akujr
eyri, það er allt annað sem
um þai’f að hugsa. Floklc-
inn, sem afgreiddi eitt af stór
málum þjóðarinnar með orð
unum já, já, nei, nei, vantar
lykil að stjóiTiarráðinu, „Það
þurfum við öll að hafa hug-
fast“ segir formaður hans.
í þessum kosningaleiðara,
Dags er ekki minnst á eitt
einasta atriði sem væntan-
leg bæjarstjóm Akureyrar
þarf að afgreiða á næsta kjör
tímabili. Akureyri vantar
hitaveitu, skóla, sjúkrahús
o. fl. o. fl. og það þarf að
finna tekjustofna til að
standa undir þessum fram-
kvæmdum, en Framsóknar-
flokkinn varðar ekki um
það. Formaður hans hefur
talað og beðið um lýkil og
undir því glæsta merki hafa
Framsóknarmenn á Akur-
eyri hafið kosningabarátt-
ureyri og stjórn Byggingafélags
venkamanna að hefja nú þegar
undirbúning byggingafram-
kvæmda.“
Stefán frá Auðbrekku hefur
lýst því yfir að frumvarpið verðl
fellt.
Flokksbróðir Hauks Árna-
sonar, Stefán frá Auðbrekku,
hefur lýst því yfir að nefnt
frumvarp verði fellt og telur
því AM Haukur með grein sinni
‘kasta hér steini úr glerhúsi. Sl.
mánudag gerði Alþýðublaðið í
forsíðufrétt ýtarlega grein fyrir
hinu nýja frumvarpi um hús-
næðismál — og þar sem Alþýðu
blaðið er lítt útbreitt hér á Ak-
ureyri og nágrenni birtir AM
orðrett grein Alþýðublaðsins
svo að lesendur blaðsins geti
séð og lesið hvaða þurftarverk
Stefán alþingismaður og flokks
bræður hans ætla hér að vinna.
Alþýðublaðið hefur orðið.
í umræðum á Alþingi hafa
stjórnarandstæðingar dregið
það í efa, að hið nýja frumvarp
um húsnæðismál muni vera til
nokkurs verulegs ávinnings fyr
ir húsbyggjendur. Hafa þeir
viljað gera lítið úr þeim um-
bótum, er frumvarpið gerir ráð
fyrir og haft allt á hornum sér
í því sambandi. Sérstaklega
hafa þeir fullyrt, að með frum-
varpinu sé verið að skerða láns
möguleika þeirra, sem njóta líf-
eyrissjóðsréttinda og muni þeir
eiga í meiri erfiðleikum með
húsbyggingar eftir en áður
vegna skertra lánamöguleika.
Alþýðublaðið hefur áður gert
grein fyrir frumvarpinu á ýtar-
legan hátt og sýnt fram á það,
hversu stórvægilegar breyting-
ar til bóta sé verið að gera í
húsnæðismálum almennings
með tilkomu frumvarpsins. Til
enn frekari glöggvunar á því
máli mun Alþýðublaðið gera
samanburð á lánamöguleikum á
sl. ári, nú og eftir gildistöku
frumvarpsins. Getur fólk þá
sjálft séð, hvorir hafa réttara
fyrir sér í þessum efnum, —
stjórnarandstaðan eða Alþýðu-
blaðið.
Hámarkslán Byggingasjóðs
ríkisins, eins og þau eru og
verða á hverjum tíma:
1969: 440 þús. — 1970: 545 þús.
Skv. ákvæðum frumvarpsins.
1971: 600 þús. — 1972: 600 þús.
1973: 660 þús. — 1974: 660 þús.
Lánin eru veitt miðað við
þann tírna er bygging hefst.
Þeir, sem hófu byggingu á ár-
inu 1969 fá því 440 þús. kr. há-
markslán, þeir, sem hefja bygg-
ingu á árinu 1970 545 þús. kr.
hámarkslán o. s. frv.
Á árunum 1969 til 1971 er því
gert ráð fyrir að hámarkslán
(Framhald á blaðsíðu 7)
=s
Þið munið hann
JÖRUND
FRUMSÝNING á leikritinu Þið
munið hann Jörund eftir Jónas
Árnason var í Samkomuhúsinu
í gærkveldi undir leikstjórn
Magnúsar Jónssonar. Umsögn
um leikinn bíður næsta blaðs.
Myndin sýnir þau Þórhildi Þor-
’leifsdóttur og Sigmund Örn
Arngrímsson á sviðinu. — Ljós-
myndastofa Páls.
■%\\v
Þakkir til Önnu
S
ÁSKORUN Önnu Helgadóttur
til flokkssystra sinna, er birt
var í síðasta blaði virðist ætla
að bera skjótan og góðan árang
ur. Undirbúningur að stofnun
eða endurreisn Kvenfélags Al-'
þýðuflokksins er í fullum gangi
— og mun í næsta blaði verða
skýrt frá hvenær stofnfundur
verður haldinn. Fyrrverandi fé-
lagskonur, sein enn hafa ekki
haft samband við skrifstofu AM
en hafa hug á því að gerast
virkir félagar á nýjan leik, eru
vinsamlega beðnar að tilkynna
það í síðasta lagi fyrir n. k.
þriðjudagskvöld, en að öllu foor
fallalausu mun næsta blað AM
koma út liinn síðasta vetrardag,
22. apríl. Blaðið þakkar Önnu
fyrir áskorunina og seridir
lienni sínar beztu kveðjur.
Viðtal við VALGARÐ HARALDSSON - sjá bls. 5
Leiðarinn: RÍKISSJÚKRAHÚS