Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Qupperneq 2

Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Qupperneq 2
Ég er bjartsýnn á velgengni ÍBA-piltanna í snmar segir Hermann Gunnarsson, þjálfari liðsins EINS og kunnugt er gegnir nú einn þekktasti knattspyrnun’.aíiur landsins, Hermann Gunnarsson, þjálfarastarfi hjá knattspyrnu!i3i ÍBA — og keppir jafnframt með Akureyringum á þessu ári. í fyrstu „orrustum“ liðsins hefur því vegnað vel undir forystu Her- manns. ÍBA-liðið hefur þegar háð 2 leiki við íslandsmeistarana, Keflvíkinga, og í þeim fyrri varð jafntefli á heimavelli 1—1, og skoraði Heilmann mark Akureyringa, Seinni leikurinn er háður var í Keflavík sigraði ÍBA með 2—0 og skoraði Hermann bæði mörkin, en þessi tvö lið eiga eftir að leiða saman hesta sína tvisvar sinnum aftur í Meistarakeppninni. Ilcrmann er einnig þjálfari Þórs í handknattleik og hafa Þórsarar þegar náð undraverðum . árangri í þessari íþróttagrcin undir handleiðslu lians, að athygli hcfur vakið. ... Núna í vikunni leit undirrit- aður inn á afgreiðslu póstsbáts- ins'Drangs, en Hermann er þar skrifstofumaður — og bað hann um stutt spjall, er Hermann sinnti af mestu góðvild, hefur . eflaust skilið mig betur, þá er ; ég tjáði honum að mig munaði : í skyndiviðtal við hann, sökum ■ þess að hann hefur verið blaða- s maður sjálfur við dagblaðið ; VÍSÍ. Hvenær byrjaðir þú að sparka bolta Hermann? i Ég held síðan að ég man fyrst | eftir mér, en þá er ég var 7 ára ! og tók ég þátt í mínum fyrsta | keppnisleik. Og þá auðvitað með Val? Nei, með Víking og var í því í félagi í 2 ár, en „Valsböndin" ? voru það sterk, að þau urðu | þess valdandi að ég gekk í Val. Mínir nánustu voru sannir Vals menn — og með því félagi hefi ég starfað og keppt fyrir þar til nú. En þú fórst til Austurríkis sl. sitmár og gerðist atvinnuknatt- spyrnumaður. Var það ævin- týramennska er olli því? Nei, alls ékki. Ég ’hafði löng- un til þess að kynnast af eigin raun hvað atvinnumennska í knattspyrnu í raun og veru væri og áður en ég fór frá Aust urríki höfðu mér borizt tilboð frá tveim sterkustu knattspyrnu félögum landsins — og miklir peningar voru í boði, en ég ákvað að hverfa heim —og láta 'heldur landið mitt njóta getu minnar, ef einhverjir væru. En reynslan þarna úti var dýr- mætur skóli fyrir mig. Ég kynnt ist bæði kostum og göllum at- vinnumennskunnar í þessari íþróttagein. Hvað hefur þú tekið þátt í mörgum landsleikjum í knatt- spymu? 12 með A-landsliði og 4 í Unglingalandsliði. En hvað marga í handknatt- | leik? i 15 að mig minnir. i Minnisstæðustu leikimir Iler j mann, bæði við innlend og j erlend lið? Ja, ég veit ekki. Það er svo ■'-'Tnargt sem er minnisstætt. En af innlendum vettvangi 'held ég að mór sé minnisstæðast keppni ÍBA og Vals í Bikarkeppninni 1968. Eftir vítaspyrnukeppni stóðu liðin enn jöfn að vígi — cg þá kom til kasta „túkallsins.“ Vinur minn Jón Stefánsson fyrirliði Akureyringa valdi „tú- kallinn“ sennilega ve.gna þess að gengisfelling var þá á hvers manns vörum,. e.n .„túkall“ Jóns beið ósigur — og þar með féllu Akureyringar út úr keppninni. Af erlendri grund er einnig margt minnisstætt, en svona í Hermann Gunnarsson. fljótu hasti hvarflar helzt hugur inn að landsleik okkar við Spán verja árið 1967, er spænskir unnu með 5—3, en leikurinn var háður í 43 stiga hita, og þá var heldur lágt á okkur risið „eskimóunum“ og til mar-ks um það hvað hitinn gekk nærri okkur, vil ég geta þess að fyrir- liði íslenzka liðsins, Árni Njáls- son félagi minn úr Val, féll í yfirlið 5 klst. áður en leikurinn átti að hefjast. Leikurinn var hálfgerð martröð. Nú liefur tilviljun eða örlög lagt leið þína til Akureyrar, Hvernig líkar þér það — og þá< einkum við knattspyrnustrák- ana okkar? Mér líkar vel að vera kominn til Akureyrar. Ég tel mig ekki neinn „útlending" hér, ég hafði áður en ég kom hingað eignazt marga kunningja og vini bæði meðal keppinauta minna, þá er ég háði bardaga við þá, sem Valsmaður á íþróttavellinum — og einnig á meðan ég veitti for- sjá þættinum „Lög unga fólks- ins“ í útvarpinu. Ég er bjart- sýnn á velgengni ÍBA-liðsins, þeir haifa baráttuþrek og sigur- vilja — og meðan ég er Akur- eyringur verð ég einn af ÍBA- strákunum, félagi, sem mun reyna að gera mitt bezta — og ég vil skora á alla Akureyringa að styðja knattspyrnulið sitt í öllum keppnum, sem og á öðr- um sviðum, ef svo verður trúi ég ekki öðru en að við strák- arnir getum haldið merki Akur eyrar hátt á lofti. Bara forvitnisspurning. Hver er aldur þinn Hermann? Ég er orðinn hundgamall, tuttugu og þriggja ára. Sér er nú hver aldurinn hugsa ég gamlinginn. En í lokin vil ég bjóða Hermann velkom- inn til Akureyrar — og ég læt þá ósk mína flakka að örlög eða forlög eða hvað maður á að kalla það, hafi lagt leið Her- manns Gunnarssonar hingað, ekki aðeins um stundarsakir, 'heldur um áraraðir. s. j. TINDASTOLL - ÞÓR Á MORGUN, laugardag, kl. 4 e. h. leika Tindastóll frá Sauðár króki og Þór úrslitaleik í Norð- urlandsriðli í körfubolta — um fyrsta sætið — og það lið er sigrar leikur í fyrstu deild ís- landsmótsins næsta keppnis- tímabil. KAhlaupið VÍÐAVANGSHLAUP KA fyr- ir drengi og stúlkur fer fram n. k. sunnudag og hefst við Gagnfræðaskólann kl. 11 f. h. Um 40 unglingar hafa látið skrá sig til keppni í öllum aldurs- flokkum. Keppendui' eru beðn- ir að mæta hálftíma fyrir keppni. Þeir sem hafa hug á að taka þátt en ekki hafa látið skrá sig hafi samband við Kára Árna son, sími 12070, eða Hreiðar Jónsson, sími 21352. Frjálsíþróttadeild KA. SKAKÞING AKUR- EYRAR hófst 14. apríl kl. 20.00 að Varðborg. Teflt verður á fimmtud. kl. 20.00 og sunnud. kl. 13.30. — Gerið þetta veg- legt mót. Stjórnin. LOKIÐ er fyrri umferð í Thule tvímenningskeppni Bridge- félags Akureyrar, en keppt er um bikara er Sana h.f. gaf. — Meðalárangui' er 210 stig. — Röð efstu manna er þessi: stig 1. Alfreð—Guðmundur 241 2. Birgir—:Birgir 238 3. Dísa—Rósa 236 4. Ármann—Halldór 235 5. Angantýr—Baldvin 234 6. Guðjón—Þormóður 230 SUNNUDAGINN 12. apríl var haldin firmakeppni á vegum Hestamannafélagsins Léttis og fór hún fram á Gleráreyrum að viðstöddum fjölda áhorfenda. 39 fyrirtæki tóku þátt í keppn- inni og var nú í fyrsta sinn keppt um fallegan bikar, sem Kaupfélag Eyfirðinga gaf til keppninnar. Bikar þennan, sem er farandbikar og vinnst aldrei til eignar, hlýtur það fyrirtæki er verður nr. 1 og geymir það bikai'inn í 1 ár eða til næstu firmakeppni. Úrslit í keppninni urðu þessi: Nr. 1 'Sörli. Eigandi Sveinn Guðmundsson, Sauðárkróki. Knapi Þorsteinn Jónsson, og keppti hann fyrir Heildverzlun Valdemars Baldvinssonar. Nr. 2 Bleikur. Eig. Karl Ágústsson, Litla-Garði, cg var hann éinnig knapi, keppti fyrir Skógerð Iðunnar. Nr. 3 Sindri. Eig. Jóhann Kon ráðsson, Akureyri, og var hann einnig knapi, keppti fyrir Ein- ir h.f. Nr. 4 Nös. Eig. Jenny Karls- - dóttir, Akureyri. Knapi Ingólf- ur Magnússon, og keppti hann fyrir Þórshamar h.f. Nr. 5 Svala. Eig. Björn Þor- steinsson, Akureyri. Knapi Árni ■ Magnússon, og keppti hann fyr ir Slippstöðina h.f. Heildverzlun Valdemars Bald 7. Jón—-Hörður 229 8. Frímann—Sævar 228 9. Scffía—Bogi 220 10. Gunnlaugur—Magnús 202 11. Baldur—Ragnar 193 12. Bergsteinn—Gunnar 183 13. Gunnar—Tómas 178 14. Pétur—Reynir 176 15. Jóhann—Valdimar 171 16. Júlíus—Sveinn 166 Síðari umferðin verður spiluð að Bjargi n. k. þriðjudagskvöld kl. 8. LÉTTIS vinssonar hlaut sem fyrr segir farandbikarinn til varðveizlu en eigendur fimm fyrstu hest- anna hlutu áletraða verðlauna- peninga til eignar. Þarna fóru einnig fram boð- reiðar milli eldri og yngri 'hesta manna, og unnu þeir eldri eftir harða keppni og tvísýna og hlutu að launum boðhlaups- bikar Léttis er Kurt Sonnen- feld tannlæknir gaf fyrir nokkr um árurn. Stjóm Léttis þakkar öllum þeim er þátt tóku í keppninni, bæði fyrirtækjum og hesta- mönnum, góðan og drengilegan stuðning. Fimm beztu gæðingarnir. Sigurvegarinn, Þorsteinn Jónsson, er annar frá hægri með hestinn Sörla. Ljósmynd: Björn Mikaelsson.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.