Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Qupperneq 4
laiuiiuuiiiiuiuuiiituiiiiiiuuiuuiiiu
Ritstjóri: SIGURJÓN JÓHANNSSON (ób.).
Útg&íandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Aígroiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9. II. hæð. simi (96)11999. —
Prentverk Odds Björnssonar h.i., Akureyri
fiiiiiiiiiHijinllliifntiNiiiiiiiiMiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiniiutiiiiiniitiiiiiiiiiiiNiiimtiiiimiiiiiiiisiy
| Fjórðungssjúkrahúsið
1 Aka verði ríkissplfaii
FRÓÐIR menn Iiafa staðhæft, að fslendingar eigi |
heimsmet í sjúkrahúsahaldi og læknisþjónustu, hvað |
dýrleika snertir. Ekki verður neitt um það fullyrt hér, i
að þetta sé rétt. Hitt vitum við öll, að sjúkrahúsahald |
kemur mjög við pyngjuna, og allar umbætur hlaupa 1
á slíkum risatölum, að hverju sveitarfélagi, sem þann |
vanda þarf að leysa, hrýs hugur við. Þetta er meðal |
annars skýrmgin á því, að nú er orðin knýjandi nauð- I
syn á stórum og dýrum endurbótum á Fjórðungs- I
sjúkrahúsinu hér. Það hefir dregizt aftur úr með biin- i
að og stækkun vegna fjárskorts bæjarins að vinna þar !
Í nógu vel að eftir hendinni á undanförnum árum.
I
NÚ ER það hins vegar svo, að fjórðungssjúkrahúsin i
eru ekkert annað en nafnið, eða réttara sagt: Fjórð- I
ungssjúkrahúsnafnið gefur engin fríðindi né réttindi i
fram yfir önnur sjúkraltús. Að þeim standa ekki mörg |
Í sveitarfélög, eða a. m. k. er svo ekki hér. Akureyri ber i
I veg og vanda af fjórðungssjúkrahúsinu liér ein, önnur f
I sveitarfélög koma þar ekki við sögu um uppbyggingu i
I «é rekstur, en það gegnir hins vegar stóru hlutverki í
i langt út fyrir bæjarfélagið.
| EF TIL VILL þykir einhverjum það nánast frekja, að |
| halda því fram, að eðlilegast væri, að f jórðungssjúkra- §
i liúsið sé gert að ríkisspítala og ríkið taki að sér upp- |
byggingu þess og rekstur, en sterk rök eru fyrir því: §
§
1. Það er áhætta, ef til náttúruhamfara kæmi eða |
styrjaldarógna, að hafa fullkomin sjúkraliús aðeins |
á höfuðborgarsvæðinu. Það væri mikið öryggi í því, i
að eitt fullkomið sjúkrahús a. m. k. væri til annars |
staðar á landinu, og þá gjamast alllangt frá, þar |
sem sama liættan skylli tæpast á samtímis. Sem |
stærsti bær utan höfuðborgarsvæðisins kemur Akur i
eyri þá helzt til greina.
^------------------------
ÆI GÓÐI ERLINGUR.
AM tekur það sárt hve Erlingf
ur Dagsritstjóri er „fattlaus“ en
þetta orð' er nú víst ekki góð ís-
lenzka fremur en orðið „punt“,
sem Erlingur þýðir af sínum al-
kunna virðuleik. Framsóknar-
listinn var nokkuð kynntur í
síðasta blaði AM og er Erling-
ur í síðasta blaði sínu með alls-
konar tilvitnanir í þá kynningu,
sem hann telur að sé Framsókn
arlistanum til gildis, skynjar
ekki háðið um lista maddöm-
unnar er fólst í grein Þyts, sem
jafnvel Stefán Reykjalín hefur
skynjað þrátt fyrir of mikið
sjálfsálit. En Erlingur verður
meira á í messunni en að
„fatta“ ekki háðið. Orðrétt segir
hann í lok andlegheita sinna:
„Segi menn svo, að ritstjóra AM
geti ekki ratast satt orð af
munni öðru hverju.“ í næst síð
asta blaði sínu, er leiðari hans
þakinn tilvitnunum í skrif
kollega hans hjá AM. Hví í
ósköpunum henti hann sú regin
skyssa að vitna í skrif manns,
er hann dróttar að í næsta blaði
sínu að fari oftastnær með lygi-
mál. Þar hefur honum orðið á
skyssa er blaðstjórn Dags ætti
að taka til vandlegrar yfirveg-
unar.
FERÐASKRIFSTOFA OG
SIGURJÓN.
íslendingur—ísafold skýrir
frá því í stuttum bæjarfiéttum
að Sigurjón ritstjóri AM hafi
hug á því að koma upp ferða-
skrifstofu hér á Akureyri.
Nefndur Sigurjón kemur þessi
frétt mjög á óvart og biður fyrrl
nefnt blað um nánari upplýs-
ingar. Sigurjón hefur að vísu
oft látið í Ijósi áhuga á því að
í höfuðstað Norðurlands risi
upp umferðarmiðstöð, svo að
höfuðstaður Norðurlands gæti
með sanni boðið upp á full-
komna þjónustu við þá gesti
sem að garði bera á þessu sviði.
Sigurjóni dettur lielzt í liug að
fyrrverandi ritstjóri ísl.-ísa-
foldar liafi fjármagnað blað sitt
V
=s\\*——
svo vel, að það liafi í liyggju að
veita títtnefndum Sigurjóni lán
í þessu skyni — og Jón G. Sól-
nes hress og glaður eftir Mall-
orkadvöl muni hlaupa undir
baggann lika. Sigurjón bíður
spenntur eftir, hvort getgátur
hans séu réttar varðandi fyrr-
nefnda frétt — og eigi mun
TE.T W '9ÍT'np
JQ8L £1 Æ* JKwi Jmt
S&XJMT
hann skorast undan þvi að
stofna ferðaskrifstofu, þá er for
kólfar íhaldsins færa honum
gullið til rekstursins á silfur-
fati.
HERMÓÐUR OG JÓNAS FRÁ
YZTAFELLI.
Hermóður frá Sandi á svo
sem stuðningsmenn suður í
henni Stór-Reykjavík, sem
styðja við bak hans í andstöð-
unni gegn Gljúfurversvirkjun.
Jónas Jónsson frá Yztafelli hef-
ur t. d„ eftir því sem blaðið
hefur fregnað, stutt Hermóð
dyggilega með því að annast
undirskriftasöfnun meðal bú-
settra Þingeyinga í Reykjavík,
þar sem mótmælt er Gljúfur-
versvirkjun — og þar með stuðl
að að því að við fáum ,Jiund að
sunnan“ varðandi orku til auk-
ins iðnaðar á Norðurlandi, og
má það furðulegt teljast að mað
ur sem Jónas frá Yztafelli, sem
hyggu-r á þingmennsku liklega
sem arftaki Gísla frá Hóli,
skuli eigi hafa reisn yfir sér og
vera meiri Norðlendingur í sór
en vera sendisveinn Hermóðs.
Með því er hann að stuðla að
því að þróunin á Norðurlandi
--------------------s
verði með Iíku sniði og búskap-
urinn hjá Gísla Guðmundssyni
alþingismanni á Hóli. Hvað
segja þingmennimir Ingvar
Gíslason og Stefán í Auðbrekku
um þessa framtakssemi Jón-
asar?
i
SÍMASKRÁIN. HVERS
VEGNA Á 50 KRÓNUR?
Nú þurfum við að greiða 50
kr. fyrir sérskrá varðandi Akur
eyri og sjálfvirkar stöðvar aðr-
ar norðlenzkar, sem birtar eru
í skránni, en liingað til hafal
símanotendur fengið liana
ókeypis. í símaskránni, er nær
til landsins alls, stendur:
„I.andssíminn leggur hverjum
leigusíma til 1 eintak af hverri
útgáfu símaskrárinnar.“ Að
vísu er hér eigi mhinst á sér-
skrár — og ef Landssíminn lief
ur til þessa gefið þær notendum
til þessa, er kannske vart sann-
gjarnt að vcra að ergja sig út af
„fimmtíukallinum,“ heldur frem
ur þakka gjöf Landssímans
fram að þessu. En er nokkur
frekja að fá þetta mál upplýst
af umdæmisstjóra Norðurlands.
Akureyringur.
HVAÐ Á AÐ GERA VIÐ
FLÆKINGSKETTI?
Mig langar til að beina þeirri
spurningu minni til bæjaryfir-
valda, livað eigi að gera við
flækingsketti, sem er sannast
sagt orðin brein plága í bænum.
Senn fara farfuglamir, okkar
góðu sumargestir, að koma —
og sumir komnir þegar, en lítið
griðland virðist orðið vera fyri*
þá á Akureyri fyrir flækings-
köttunum, þeir virðast vera alls
staðar, klifra jafnvel upp í tré
á húsalóðum borgaranna. Þeir
skilja vissulega eftir sig merki,
fiðurdreifu um garða. Ég segi
fyrir mig að ég vil heldur blýða
á fuglasöng en vein í breima
köttum í garðinmn mínum —
og vona ég að fleiri bæjarbúar
séu sama sinnis. — AM tekur
undir þessi orð og spurningu
frá bæjarbúa.
2. Hingað til Akureyrar eru góðar samgöngur á landi i
og í lofti, hvaðan sem er af landinu, en sérstaklega i
mætti ætla, að spítalinn við venjulegar aðstæður 1
þjónaði Norðurlandi og Austurlandi. Síðar meir I
yrði auðvitað að koma einnig fullkominn spítali á |
Austurlandi.
S
3. Meðan stærð þjóðarinnar né auður er ekki meiri i
en nú, verðurn við að sætta okkur við fáa, full- |
komnn spítala, en jafnvel sú nægjusemi kallar þó |
á forsjá ríkisins. Bæjarfélögum er slíkt átak ofraun. |
VH) skulum því horfast í augu við það strax, að okk-i |
ur er brýn nauðsyn á, sjálfra okkar vegna og þeirra I
allra, sem sjúkrahús á Akureyri þarf og á að þjóna, i
að leita fast eftir því og knýja það fram, að ríkið yfir- |
taki f jórðungssj úkrahúsið, byggi við það nauðsynlega 1
viðbót og búi það sem fullkomnustum búnaði, svo að 1
1 það standi jafnfætis Landsspítalanum og Borgarsjúkra- |
I húsinu í Reykjavík. Bæjarfélaginu er ofraun að lyfta> |
þessu grettistaki, en því þarf að lyfta, og hjá ríkinu l
einu er afl til þess. Nú stendur fyrir dyrum að byggja |
við fjórðungssjúkrahúsið. Við skulum vera samtaka i
um að krefjast þeirrar úrlausnar, að hér rísi fullkomið |
RÍKISS JÚ KRAHÚ S.
MESSAÐ verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 11
f. h. (ath. breyttan messu-
tíma). Sálmar: 572 — 372 —
648 — 415 — 682. Barnakór
leiðir eönginn. Eldri sem
yngri hjartanleg'a velkomnir,
en sunnudagaskólabörn og
félagar úr Æ.F.A.K. sérstak-
lega beðin um að fjölmenna
ásamt foneldrum sínum. Þeir
sem vildu njóta aðstoðar til
þess að komast til kirkju
hringi í sima 21045 kl. 9.30—
10.30 sunnudagsmorgun. —
B. S.
FRÁ SJÁLFSBJÖRG.
Annað spilakvöld
verður föstudaginn 17.
apríl kl. 8.30 e. h. að
Bjargi.
SÍMASKRAIN 1970 kemur út i
haust. Sjá nánar í auglýsingu
í blaðinu í dag.
MESSA verður í Lögmanns-
hlíðarkirkju n. k. sunnudag
kL 2 e. h. Sálmar: 509 — 512
— 322 — 219 — 681. Bílferð
verður úr Glerárhverfi kl.
1.30. — B. S.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 19. apríl. Sunnu
dagaskóli kl. 11 f. h. ÖIl böm
velkomin. —• Samkoma kl.
8.30 e. h. Leaið verður úr bréf
um fc'á Skúla Svavarssyni
ki-istníboða. Einsöngur. Tekið
á móti gjöfum tjl kristni’boðs-
ins. — Kristniboðsíélag
kvenna.
OPINBER fyrirlestur: Merking
dæmisagna Jesú, fluttur af
Kjell Geelnard sunnudaginn
19. apríl ki. 16.00. AJlir vel-
komnir. — Vottar Jehóva.
Æ.F.A.K. Fundur allra
deilda verður n. k.
sunnud-ag í kirkju-
kapellunni kl. 4 e. h.
Helgistund. Skemmtiatriði.
Veitingar. Fjölmennið. —
Stjórnin.
BAZAR og KAFFISALA verð-
ur í sal Hjálpræðishersins
n. k. laugardag (18,—4.) kl.
3—7 e. h. Komið og stýrkið
-gott málefni með því að
kaupa muni og drekka eftir-í
miðdagskaffi — Hjálpræðia-
herinn.
*HJALPRÆÐISHER-
INN. Fimmtud. kl. 8 e.h,
r\ Æskulýðssamkoma, —
'Viiuaíy Sunnud. kl. 8.30 e. h,
Almenn samkoma. Allir vel-
komnh.
SKÁKUNNENDUR. Skókþing MINJASAFNTÐ á Akureyri er
Akureyrar er hafið. — Sjáið
nándi’ auglýsingu í blaðinu í
dag.
lokað um óákveðin tíma. Þo
verður tekið á móti skóla- jk - (
fólki eftir samkomulagi. *