Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Síða 6
AUGLÝSING
um skoðun bif reiða í lögsagnarumdæmi
Akureyrarkaupstaðar og Eyjafjarðar-
sýslu
árið 1970
SKOÐUNIN FER FRAM SEM HÉR SEGIR:
Föstudaginn 24. apr. A— 1- 100
Mánudaginn 27. apr. A— 101- 200
Þriðjudaginn 28. apr. A— 201- 300
Miðvikudaginn 29. apr. A— 301- 400
Fimmtudaginn 30. apr. A— 401- 500
Mánudaginn 4. maí A— 501- 600
Þriðjudaginn 5. maí A— 601- 700
Miðvikudaginn 6. maí A— 701- 800
Föstudaginn 8. maí A— 801- 900
Mánudaginn 11. maí A— 901-1000
Þriðjudaginn 12. maí A-1001-1200
Miðvikudaginn 13. maí A-1201-1300
Fimmtudaginn 14. maí A—1301—1400
Föstudaginn 15. maí A—1401—1500
Þriðjudaginn 19. maí A—1501—1600
M iðvikudaginn 20. maí A-1601-1700
Fimmtudaginn 21. maí A—1701—1800
Föstudaginn 22. maí A—1801—1900
Mánudaginn 25. maí A-1901-2000
Þriðjudaginn 26. maí A—2001—2100
Miðvikudaginn 27. maí A-2101-2200
Fimmtudaginn 28. maí A—2201—2300
Föstudaginn 29. maí A—2301—2400
Mánudaginn 1. júní A-2401-2500
Þriðjudaginn 2. júní A-2501-2600
Miðvikudaginn 3. júní A—2601—2700
Fimmtudaginn 4. júní A—2701—2800
Föstudaginn 5. júní A-2801-2900
Mánudaginn 8. júní A—2901—3000
Þriðjudaginn 9. júní A—3001—3100
Miðvikudaginn 10. júní A—3101—3200
Fimmtudaginn 11. júní A-3201-3300
Föstudaginn 12. júní A-3301-3400
Skoðunin f'er fram við skrifstofu bifreiðaeftirlits-
ins í lögreglustöðinni við Þómnnarstræti.
Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugar-
dögum. Aðra virka daga verður skoðun fram-
kvæmd frá kl. 9—17 daglega
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu
fylgja bifreiðum. til stkoðunar. Við skoðun skulu
ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild öku-
skírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiða-
skattur og vátryggngagjald ökumanna fyrir árið
1970 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi.
Þeir bifreiðaeigendur sem hafa viðtæki í bifreið-
um sínum skulu sýna kvittun fyrir greiðslu af-
notagjalds til ríkisútvarpsins fyrir árið 1970, ann-
ars að greiða gjaldið við skoðun ökutækisins.
Ennfremur ber að framvísa vottorði frá viður-
kenndu bifreiðaverkstæði urn að ljós bifreiðar-
innar hafi verið stillt.
Létt bifhjól mæti á áðurgreindum skoðunartíma
svo og þær bifreiðir sem skrásettar eru í öðrum
umdæmum en eru í notkun hér í umdæminu.
Vanræki einhver að /koma bifreið sinni til skoð-
unar á réttum degi verður hann látinn sæta sekt-
um samkvæmt umferðarlögum og lögum um bif-
reiðaskatt og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem
til hennar næst.
Skoðun bifreiða í Dalvíkur- og Svarfaðardals-
hreppum fer fram dagana 16., 18. og 19. júní.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Akureyri, 13. apríl 1970.
Bæjarfógetinn á Akureyri og sýslumaðurinn í
Eyjafjarðarsýslu,
ÓFEIGUR EIRÍKSSON.
A5 gefnu tilefni viljum við vekja
afhygli viSskiptavina okkar á
eftirfarandi sfaðreyndum:
Siðan fyrirtækið var stofnað fyrir 57 árum — 1913 — hefir það verið okkar
fyrsta boðorð, að sjá neytendum fyrir eins vandaðri vöru og nokkur tök
eru á; framleiddri úr beztu fáanlegum hráefnum, sem á heimsmarkaði hafa
boðizt á hverjum tíma.
Ölgerð hefir þróazt um aldir og við hana skapazt hefðir, annarri drykkjar-
framleiðslu framar. — Hér er ,um viðkvæma framleiðslu að ræða — og því
höfuðnauðsyn, að þekking og reynsla sé fyrir hendi, til að ná því bezta út
úr þeim hráefnum sem notuð era.
Þetta höfum við frá upphafi gert okkur ljóst. Því hefir fyrirtækið um ára-
tugi haft í sinni þjónustu háskólamenntaða sérfræðinga í ölgerð, flesta
menntaða í Þýzkalandi, höfuðstöðvum evrópskrar ölmenningar. — Frá árinu
1953, eða síðastliðin 17 ár, höfum við haft í okkar þjónustu og neytenda:
HERMANN RUDOLF RASPE Dilplom Braumeister VLB
og hefir hann haft yfirumsjón með allri framleiðslu okkar þann tíma. Brau-
meister Raspe er menntaður við ölgerðarháskólann í Berlín, Versuchs- und
Lehranstalt fiir Brauerei, sem er annar tveggja þekktustu háskóla heims í
þessari grein. (Hinn háskólinn er í Weihnstephan í Þýzkalandi). Áður en
hann kom til íslands hafði Raspe hlotið áratuga reynslu við ýmsar þekktar
ölgerðir í Þýzkalandi, meðal annarra KINDL BRAUEREI AG í Berlín,
þar sem hann um tíma var tæknilegur framkvæmdastjóri. Auk ofangreinds,
hefir ölgerðarháskólinn í Berlín, Versuchs- und Lehranstalt fúr Brauerei, ver-
ið fyrirtækinu ráðgjafi um áratugi og reglulega fylgzt með framleiðslu þess.
Neytendur hafa í 57 ár sýnt, að þeir meta framleiðslu okkar að verðleikum,
enda sanna ofangreindar staðreyndir, að við byggjum framleiðslu okkar
á því vandaðasta sem völ er á.
Við þurfum ekki að afsaka okkur.
HF. ÖLGERÐIN
‘ C- *• % ; ^ \
EGILL SKALLAGRlMSSON
i