Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Blaðsíða 7

Alþýðumaðurinn - 17.04.1970, Blaðsíða 7
- Húsnæðismálafrumvarp (Framhald af blaðsíðu 1). húsnæðismálastjórnar hækki um 160 þús. kr. Um félaga í lífeyrissjóðum er það að segja, að samkvæmt nú- gildandi lögum eru húsnæðis- málastjórnarlán þeirra skert verulega hafi þeir rétt til láns úr lífeyrissjóði. Reglan, sem farið er og hefur verið eftir er sú, að húsnæðismálastjórnar- lánin til lífeyrissjóðsfélaganna eru skert um sömu upphæð og lífeyrissjóðslánið fer fram yfir 200 þús. kr. Algeng lán til ný- bygginga úr lífeyrissjóðum nema 300 þús. kr. á íbúð. Þeir lífeyrissjóðsfélagar er njóta slíkra lánsréttinda úr sjóði sín- um og hófu byggingu á árinu 1969 fengu því ekki 440 þús. kr. húsnæðismálastjórnarlán held- ur aðeins hámark 340 þús. kr. úr byggingasjóði. Samanlögð lánsupphæð þeirra var því 300 þús. kr. (lífeyrissjóður) + 340 þús. kr. (húsnæðismálastjórn) eða samtals 640 þús. kr. há- markslán úr báðum sjóðunum. Hið nýja frumvarp gerir hins vegar ráð fyrir því, að þessi skerðingarákvæði gagnvart fé- lögum lífeyrissjóða verði alger- lega afnumin. Þeir fái sem sagt fullt húsnæðismálastjórnarlán til viðbótar við fullt lífeyris- sjóðslán. Ef tekinn er samanburður af árunum 1969 til 1971 um lána- möguleika lífeyrissjóðsfélaga yrði hann á þessa leið. 1969: 340+300=640 þús. 1970: 445+300=745 þús. Nýju ákvæðin. 1971: 600+300=900 þús. Samkvæmt frumvarpinu myndu því lánin til meginþorra lífeyrissjóðsfélaganna hækka frá því, sem nú er um 155 þús. kr. og um 260 þús. frá því í fyrra. Eins og kunnugt er þá er það ekki fátítt, að bæði hjóna séu félagar í lífeyrissjóði. Sé svo hafa þau átt möguleika til þess að fá til láns úr lífeyrissjóðnum sem svarar einu og hálfu láni til byggingar nýrrar íbúðar. Ef hvert lífeyrissjóðslán nemur 300 þús. kr. hafa þau þannig átt kost á 450 þús. kr. láni úr sjóðn •um til íbúðarbyggingarinnar. Ef svo á sér stað hefur hús- næðismálastjórnarlánið verið enn frekar skert en í fyrra til- vikinu eða um allt það hálfa líf- eyrissjóðslán, sem við bætist. Miðað við árið 1969 hefðu því hámarkslán til slíkrar fjöl- skyldu numið sem hér segir. Frá húsnæðismálastjóm 190 þús. kr., frá lífeyrissjóði 450 þús. kr. eða alls 640 þús. kr. samtals eða jafn mikið hámarks lán og ef aðeins hefði annað hjóna notið lífeyrissjóðsrétt- indanna. Með nýja frumvarpinu er hins vegar gert ráð fyrir því, að húsnæðismálastjórnarlánin verði ekkert skert, jafnvel þótt bæði hjóna væri aðilar að líf- eyrissjóði og nytu lánsréttinda þaðan. Samanburðurinn lýtur því þannig út ef bæði h; óna njóta lánsmöguieika úr lífeyrissjóði. NOKKURT umtal hefur verið um virkjun efri hluta Laxár, þ. e. frá Helluvaði og niður í Laxárdal, svo og um svonefnda Krákárvirkjun suður af Gaut- löndum í Mývatnssveit. Mikils misskilnings hefur gætt í sambandi við þessar 1969: 190+450=640 þús. 1970: 295+450=745 þús. Nýju ákvæðin. 1971: 600+550=1150 þús. Ákvæðin um verkamannabú- staðalánin í hinum nýju lögum eru jafnframt kapítuli út af fyrir sig. Eldri ákvæði eru þann ig, að heimilt er að lána til verkamannabústaða allt að 80% byggingakostnaðar. Þessi heim- ildarákvæði hafa hins vegar ekki verið notuð að fullu vegna fjárskorts lánasjóðsins og hin síðari ár hafa verkamannabú- staðalánin verið lítið, sem ekk- ert hagstæðari en venjuleg hús næðismálastj órnarlán. virkjunarhugmyndir og til þess að fyrirbyggja frekari misskiln ing vill stjórn Laxárvirkjunar taka fram eftirfarandi: Ofangreindar virkjunarhug- myndir eru settar fram af Orku stofnun í „Áætlun um forrann- sóknir á vatnscrku íslands 1970 —1974,“ ásamt fjölmörgum öðr- um virkjunarhugmyndum. Þar segir m. a.: „Með frumrann- sóknum er átt við þær rann- sóknir, sem nauðsynlegar eru til þess að unnt sé að svara viss um spurningum, þ. e.: 1. Hvort virkjun sé tæknilega framkvæmanleg. 2. Hvort virkjun sé fjárhags- lega gerleg, þ. e. hvort orku- kostnaður frá henní sé inn- an þeirra marka að virkjunin komi fjárhagslega til greina. 3. Hver orkukostnaður virkjun ar sé hér um bil. Forrannsóknir næ'gja hins vegar ekki til þess að ákveða Samkvæmt nýja frumvarpinu er hins vegar sagt, að verka- mannalánin SKULI nema 80% byggingakostnaðar og sé EKKI heimilt að hafa þau lægri. Ef fbúð í verkamannabústað kostar þannig 1.200 þús. kr. nem ur verkamannalánið 960 þús. kr. af þeirri upphæð og þar af eru 360 þús. lánaðar til 42 ára og með 2% vöxtum. Er hér um að ræða lang hagstæðustu íbúð- arlánakjör til þessa og sem dæmi má nefna að hin marg- lofuðu lán, sem fylgja Breið- holtsíbúðunum eru þeim mun óhagstæðari. Af íbúð, er kostar kr. 1.200 þús. þarf íbúðareig- tilhögun og gerð virkjunar í einstökum atriðum. Þar verða fullnaðarrannsóknir að koma til. Forrannsóknir eiga að nægja sem tæknilegur grund- völlur ákvörðunar um það, hvort í virkjun skuli ráðizt, en fullnaðarrannsóknir þarf til að ákvarða hvemig virkjun skuli gerð. Margoft verður ekki úr því skorið fyrir víst, ‘hvort virkjun sé tæknilega framkvæmanleg nema með dýrum og umfangs- miklum borrannsóknum^ sem þó e. t. v. gefa jafnframt svar andi í framkvæmdarnefndar- ibyggingunum í Breiðholti að greiða árlega 57.200.00 kr. í vexti og afborganir en af jafn dýrri íbúð skv. ákvæðunum um verkamannalán í frumvarpinu 'kr. 52.900.00. í frumvarpinu er jafnframt í fyrsta sinn tekið lög ákvæði er heimilar lánveitingar úr byggingasjóði til kaupa á eldri íbúðum. Getur fólk svo sjálft dæmt um það, hvort frumvarpið sé til verulegra umbóta í húsnæðis- málum, eins og Alþýðublaðið heldur fram, eða gagnslaust og lítils virði, eins og stjórnarand- staðan segir. við tveimur síðai’i spurningun- um. Virkjunarhugmyndir þær, sem hér hefur verið getið, eru Laxárvirkjun algerlega óvið- komandi og settar frarn af Orku stofnun til þess eins að benda á hugsanlega virkjunarmöguleika án þess að nokkur ákvörðun um framkvæmd þeirra sé tekin eða verði yfirleitt tekin, enda algjör óvissa um hverjar niður- stöður verða af þessum fori’ann sóknum, ef þær þá á annað borð verða framkvæmdar. | jfarðaríör eiginmanns rníns, föður og tengdaföður, VALTÝS ÞORSTEINSSONAR, útgerðarmanns, Fjólugötu 18, Akureyri, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri 10. þ. m., fer fram frá Akureyrarkirkju laug- ardaginn 18. apríl kl. 1.30 e. h. Dýrleif Ólafsdóttir, Hreiðar Valtýsson, Elsa Jónsdóttir og aðrir vandamenn. BÆNDUR! KAUPUM TÓMA POKA UNDIR FÓÐURBLÖNDUR. KORNVÖRUHÚS KEA Laxárvirkjun við Brúar. Ljósmynd: B. S. Fra Laxárvirkjunarstjórn

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.