Alþýðumaðurinn - 18.03.1972, Qupperneq 2
AÐ UNDANFÖRNU hafa Akureyringar sætt nokkurri
gagnrýni fyrir kröfur sínar um flutning ríkisstofnana til
bæjarins. Hafa þessar gagnrýnisraddir einkum heyrzt
meðal kommúnista, sem nú cins og endranær telja sterkt
ríkisvald frumforsendu þess, að hægt sé að koma á rétt-
látara þjóðfélagi. Enda þótt það sé alkunna, að ritstjóri
Alþýðubandalagsblaðsins sé með öllu ábyrgðarlaus
kreddubókarmaður og því í rauninni ekki svaraverður,
þykir rétt að gera nokkra grein fyrir stefnu Norðlendinga
í byggðamálum, þar sem fram hafa komið ýmsar spurn-
ingar hjá ábyrgu og hugsandi fólki annars staðar á land-
inu. Fjórðungssamband Norðlcndinga hefur í seinni tíð
tekið forystuna um mótun skynsamlegrar byggðastefnu,
sem reist er á traustum þekkingargrunni. Ástæðulaust er
að fara í launkofa með, að núvcrandi framkvæmdastjóri
á þar stóran hlut að máli, enda hefur hann velt meira fyr-
ir sér vandamálum landsbyggðarinnar heldur en sumir
hinna „gaddföstu“ „cinnar bókar manna“. Fjórðungssam-
bandið hefur beitt sér fyrir samvinnu við aðra landsliluta
um hcildarstcfnu í byggðamálum ásamt bæjarstjórn Ak-
ureyrar. Þannig hafa til að mynda bæjarstjórn og Fjórð-
ungssambandið stutt tillögu um staðsetningu -fiskiðnskóla
á ísafirði, um sctningu búnaðarháskóla að Hvanneyri og
fram hafa kómið tillögur um staðsetningu Skógræktar
ríkisins að Hallormsstað. Fjöldamargt fleira kemur til
greina, enda er síður en svo, að til sé fullmótuð heildar-
stefna um flutning ríkisstofnana út á land, en það sem
öllu máli skiptir er, að Norðlendingar hafa beitt sér fyrir
samstöðu allra landshluta um málið. Flausturslegar full-
yrðingar um „Akureyrarmafíu“ eru því úr lausu lofti
gripnar.
Hagsmunasamtök Norðlendinga hafa tckið að sér for-
göngu um starfshóp í Tækniháskólamálinu og hafa þar
nána samvinnu við Fjörðungssambandið og bæjaryfirvöld.
í þessum starfshópi eru fjölmargir aðilar úr hinum ýmsu
samtökum iðnaðarmanna og er það fagnaðarcfni, hversu
vel iðnaðarmannafélögin hafa tekið málinu. Verkfræð-
ingar, tækn'ifræðingar og skólamenn hafa og starfað og
starfa í hópnum, sem ætlar að gerast eins konar fram-
kvæmdaraðili í málinu. Hagsmunasamtökin eru ekki bund
in við Akureyri, hcldur ná þau um allt Norðurland. Þau
vinna markvisst að því að kynna og koma fram framfara-
málum úr öllum þingum f jórðungsins, og er þess skammt
að bíða, að fram komi tillögur úr öðrum sýslum um nauð-
synleg framfaramál liéraðanna, og hljóta þá samtökin sem
heild að beita sér fyrir þeim.
I nágrannalöndum okkar hafa hvarvetna risið upp sam-
tök svipuð Hagsmunasamtökunum, þar sem fram hefur
komið, að fulltrúalýðræðið svonefnda hefur m. a. þá ann-
marka, sem enn hafa aukizt með tilkomu stórra kjör-
dæma, að kjörnir fulltrúar fólksins standa ekki í eins
nánu sambandi við fólkið og áður var, þegar oft virist
nóg að livísla í eyru þingmanna, til þess að koma fram
hagsmunamálum kjördæmanna. Fólkið hefur fundið hjá
sér hvöt til sameiningar um mál sín, þingmönnum til að-
lialds og styrktar, en þeim er oft mikil þörf styrktar úr
kjördæmum sínum. Þetta er krafa tímans og gildir einu
þótt gcðill kalda stríðs nátttröll hafi allt á hornum sér.
Tími miðstjórna og ráðstjórna er hvarvetna á föruin.
B. H.
Framhald af bls. 4.
útboð happdrættislánsins, fyr-
ir hönd ríkissjóðs.
Hönnun happdrættisskulda-
bréfanna og upplýsingagagna
hefur Auglýsingastofan h.f.,
Gísli B. Björnsson, annazt.
Vegur yfir Skeiðarársand
er langþráður áfangi í þjóð-
vegakerfi landsins. Með útboði
þessa happdrættisláns ríkis-
sjóðs er stefnt að því, að ljúka
þeirri mannvirkjagerð á ár-
inu 1974. Landsmenn allir fá
hér tækifæri til að sameinast
um framkvæmd, sem skiptir
sköpum í samgöngumálum
landsins. Ef allir leggjast á
eitt og sýna vilja sinn í verki,
með láni til framkvæmdanna,
mun samtakamáttur þjóðar-
innar hafa beislað ólmustu
jökulfljót landsins og tengt
þannig saman byggðir lands-
ins í eina heild, á ellefuhundr-
uð ára afmæli byggðar á ís-
landi.
(Fréttatilkynning.)
Frá Húsmæðraskóla
Akureyrar
SAUMANÁMSKEIÐ hefst mánudaginn 20. marz.
Upplýsingar í síma 2-16-18 kl. 11—13.
SKÓLASTJÓRI.
Frá Sjúkrasamlagi
Akureyrar
LÆKNINGASTOFAN við Ráðhústorg verður
framvegis opin mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga kl. 16.00 til 17.30, símaviðtalstími kl.
16.00 til 16.30, sími 1-11-92.
Þangað skulu sækja allir þeir sjúklingar, sem
ekki hafa fastan heimilislækni. Einnig er ætlast
til, að sjúklingar snúi sér fyrst og fremst þangað,
ef heimilislæknar þeirra eru forfallaðir.
SJÚKRASAMLAG AKUREYRAR.
Á þessum árstíma er ársuppgjöri lokið og því hægt að sjá, með hægu móti,
verðmæti vörubirgða, véla, áhalda og annarra fækja.
Öllum forsvarsmönnum verzlunar- og iðnfyrirtækja er því nauðsynlegt að
taka til endurskoðunar tryggingarupphæðir og tryggingamál fyrirtækja sinna.
Starfsfólk Aðalskrifstofunnar, Ármúla 3,
og umboðsmenn leiðbeina um hagkvæmt
fyrirkomulag á hvers konar tryggingum.
ÁRMÚLA 3 SÍMI 38500
SAMVINNUTRYGGINGAR
Nú er rétti tíminn
til að endurskoða tryggingarupphæðir
á hvers konar brunatryggingum.
2 — ALÞÝÐUMAÐURINN