Alþýðumaðurinn - 15.04.1975, Qupperneq 2
Ctgefandi: Alþýounolðisfélag
Akureyrar. — Ritstjóri og ábm.
mzm.
FýrsTuí irifeð íþróttafréttir helgarinnar
Afgreiðsla ojfailfelýSÍngSft StfSndgöTu 9,símiT.-13-99.
Prentsmiðja Björns Jónssonar prentaði.
3 'hív anfiIoJ&Tral IxJ ib ovj i '____________
t>h9m nrai! ova ,iíðm uarný ’ibv
- æd ,jjIöailiB>I ,uiöaB>íód ,uíöa
íi >Ia aaéi4 .iuíl9VBÍuírI vr
i ediBiY9'iu|
i ;cj lEv ,m.
JJIb ,'tBb"
um
Kröffluvirkjun
Það er að verða æði stormasamt út af fyrirhugaðri Kröflu-
virkjun, sem verða mun fyrsta gufuaflsvirkjun hér á landi.
Kröfluvirkjunin er að verða eitt mesta hitamál, sem kom-
ið hefur upp hér á Norðurlandi, síðan Laxárdeilan stóð
sem hæst, og hafa menn óspart lýst því yfir, að þarna
muni vera að rísa upp ný „Laxárdeila.“
Allir vita hverju gífurlegu fjárhagslegu tjóni og óþæg-
indum er verið að baka Norðlendingum með því að þrá-
ast við að byggja stíflu í Laxá, sem yrði til þess að full-
nægt yrði orkuþörf Norðlendinga næstu árin, og þar af
leiddi, að hægt færi að flýta sér hægt við gerð Kröflu-
virkjunar, sem virðist ekki vanþörf á, þar sem ekki er
einu sinni iokið fullnaðarrannsóknum eða öðrum nauð-
synlegum undirbúningi, en þó er áætlað að Kröfluvirkjun
verði komin í gagnið seint á árinu 1976 (60 megavött) og
efast þó margir um það. Einnig er ekki vitað til ennþá, og
hefur raunar hvergi komið fram opinberlega hvernig eigi
að nýta alia þessa raforku.
En ætla mætti að hér lægi eitthvað annað að baki en
fyrirhyggjan ein.
Forsvarsmenn Kröflustjórnar eru einmitt þeir, sem hvað
harðasta andstöðu hafa sýnt gagnvart byggingu stíflunnar
í Laxá, og uppi eru um það háværar raddir, að formaður
stjórnarinnar hafi lagt hart að Hermóði í Árncsi, að sam-
þykkja aidrei stíflugerðina og jafnvel lofað því, að þing-
eyskir verktakar skyldu ekki verða afskiptir með að fá
sinn hlut af fratnkvæmdagerð við Kröfluvirkjun.
Stífíugerð í Laxá mundi spara mörg hundruð milljónir
króna á ári, ef miðað er við allan þann olíuausíur, sem nú
á sér stað með keyrsíu hinna ýmsu dieseísíöðva, og óhætt
væri að brjóta stífluna niður, þess vegna, efíir nokkur ár,
ef sýnt yrði, að hún ynni veruleg spjöll á náttúru og líf-
ríki, því þá yrði hún búin að borga sig margfaldlega.
En leitt er til þess að vita, að formaður stjórnar Kröflu-
virkjunar skuli láta svo gjörsamiega ciginhagsmuna- og
fjölskyldupólitík ráða gjörðum sínum, sem raun ber vitni
í Kröflumálinu, og viljum við minna á ummæli þau, er
hann viðhafði í svari til ritstjóra Alþýðumannsins í vetur,
er ritstjórinn lýsti furðu sinni yfir afstöðu formanns
Kröflustjórnar við framkominni tillögu bæjarstjórnar Ak-
ureyrar um aukna grunnorku í Laxá, en þar segir formað-
urkin orðrétt: „Ég tel ekki að störf mín á liðnum árum í
bæjarstjórn, og á öðrum vettvangi hér í bænum, gefi til-
efni til þess að væna mig um eitt eða annað, sem orðið
geti til þess AÐ SPILLA FYRIR HAGSMUNAMÁLUM
BÆJARFÉLAGSINS EÐA NORÐLENDINGA YFIR-
LEITT ,HVORKI \ ORKUMÁLUM EÐA ÖÐRU.“ (Let-
urbr. AM). Þá höfum við það.
En samt vcrður ekki hjá því komist, að minna á það,
að hvergi hefur fengist upplýst um önnur tilboö í vélar í
Kröfluvirkjun en frá Mitsubishi, og hcldur ekki hvað þau
tilboð voru há. Einnig má minna á það, að samið hefur
verið við sunnlenskt verktakafyrirtæki um framkvæmdir
við ICröfiu, en gengið fram hjá stærsta verktakafyrirtæki
á Norðurlandi, sem á annað hundrað akureyringar eru
cigendur að. Þetta er algjört brot á þeirri yfirlýstu stefnu
landshlutasamtakanna, að koma í veg fyrir fjármagns-
flótta úr viðkomandi byggðarlögum til Stór-Reykjavíkur-
svæðisins. Svífast menn orðið einskis, ef hugsanlegt er að
verða sér úti um kross eða orðu til að hengja í brjóstið?
H. H.
IþrOttir
Fleiri fá tæliifæri
Hér kemur viðtal við Þormóð
Einarsson, formann Knatt-
spyrnudeildar K.A.
Meistaraflokkur.
KA-liðið lenti i riðli með
K. S„ U.M.S.S., Leikni og Efl-
ingu. Fyrsti leikurinn verður
á Laugavelii við Eflingu 31.
maí.
Þormóður var hinn bjartsýn
asti á gang liðsins. Taldi K.S.
einna erfiðasta mótherjann,
en KA kæmist í úrslit. Kvað
hann bjartsýni sína byggða á
því hve vel væri mætt á æfing
ar eða um og yfir 30.
„Efniviðurinn sem við höf-
um er mjög góður og félags-
andi sömuleiðis. Við erurn sér-
staklega ánægðir með að hafa
fengið Einar Helgason til að
þjálfa meistaraflokk. Hann er
án efa besti þjálfarinn í III.
deildinni. Vonum við að sú
mikla reynsla og þekking sem
hann býr yfir .geri sitt til að
vera okkar í deildinni verði
stutt. Hann hefur þrjár æfing
ar í viku á Sanavellinum. Það
er svo ætlunin að æft verði
einnig á grasvelii þegar að-
stæður ieyfa.“
Aðspurður um aðstöðu fyr-
ir knattspyrnuæfingar á hinu
fyrirhugaða KA-svæði í Lunds
hverfi, sagði Þormóður að æti
unin væri að hefja fram-
kvæmdir þar í vor og ljúka
þeim á einu ári.
Hann kvað litlar breytingar
á liðinu. Gunnar Blöndai er
genginn i K.S. Hins vegar
mun Sigbjörn Gunnarsson
verða hér í sumar og keppa
með K.A. Þá koma nokkrir ny
ir inn í liðið.
Um æfingaleiki sagði Þor-
móður enn ekkert ákveðið,
enda takmarkað gagn af þeim
fyrr en þá aðstæður væru
orðnar betri. Hefðu Húsvík-
ingar sýnt áhuga á að fá æf-
ingaleik.
Skiflingin.
„Það skapaði afskaplega
slæmt ástand hve ákvörðun-
in um skiftinguna var tekin
seint,“ sagði Þormóður og
hann hélt áfram: „Eitt dæmi
um það er að búið var að til-
kynna ÍBA-liðið í íslandsmót-
ið og annað að okkur tókst
ekki að koma 2. flokk okkar í
íslandsmótið. Málin lágu ein-
faldlega ekki fyrir fyrr en of
seint. Þetta kom eins og
þruma úr heiðskírum himni.
Persónulega er ég fylgjandi
skiftingunni og var reyndar
þeirrar skoðunar að hún hefði
átt að koma er ÍBA-liðið féll
1971. Liðið hefur ekki náð
neinum árangri undanfarin ár.
Það hefur verið einskonar Jó-
Jó milli deilda.
í dag ná liðin að byggjast
upp sjálfstæð. Svo er það ann-
að, að nú fá helmingi fleiri að
spreyta sig og það glæðir áhug
ann.
Það er skoðun mín aðfyrst
þessi skifting er á annað borð
komin á þá eigi hún að vera
afgerandi. Liðið sem heild nær
þá fyrr og betur saman heldur
en ef því yrði splundrað í
leiki fyrir ÍBA. Þá færi betur
á að fara að ráðum Hafnfirð-
inga og senda liðin til skiftis
undir merki ÍBA t. d. í bæja-
keppnir. Vissulega koma upp
vandamál vegna skiftingarinn
ar og þá aðallega fjárhagslegs
eðlis, að vísu er III. deildin
mun ódýrari heldur en II.
deildin.
Yngri flokkarnir.
Eins og að framan getur
mun 2. flokkur ekki taka þátt
í íslandsmótinu. Taldi Þor-
móður það miður, því í ár
væri hann mjög góður. Væri
það því ætlun stjórnar Knatt-
spyrnudeildar að hann fengi
næg verkefni. 2. flokkur mun
taka þátt í Bikárkeppni KSÍ
og leika þeir á móti ÍBK í
Keflavík.
„Undanfarið höfum við mik
ið kvartað yfir því hversu
keppni í Norðurlandsriðli
yngri flokkanna hefur verið
illa skipulögð,“ sagði Þormóð-
ur. „Mótanefnd hefur nú sinnt
þessum kröfum okkar og þurf
um við því ekki að senda flokk
ana sinn í hvora áttina.
Æingar hjá 2. fiokki eru
hafnar og sér Einar Helgason
um þjálfun hjá þeim svo og
6. flókk. Vonumst við til að
geta byrjað æfingar yngri
flokkanna fyrir 1. maí.“
Þess má svo að lokum geta
að með Þormóði í stjórn Knatt
spyrnudeildar eru: Guðmund-
ur Björnsson, Siguróli M. Sig-
urðsson, Eiður Eiðsson og Ör-
lygur ívarsson.
Ég þakka Móða (mikið er
það nú kunnuglegra) fyrir við
talið.
Jeg.
LEYIMIMÓT
Hér fara á eftir frásagnir af
fjórum leikjum er háðir voru
í íþróttaskemmunni nú um síð
ustu helgi. Svo virðist sem
mikil leynd hafi hvílt yfir þess
um leikjum þó um hafi verið
að ræða keppni um íslands-
Framhald á bls. 3
2 - ALÞÝÐUMAÐURINN