Alþýðumaðurinn - 15.04.1975, Page 3
ÍÞRÚTTIR
Framhald af bls. 2.
meistaratitil og Bikarmeistara
titil. Voru því áhorfendur sára
fáir og er það miður því oft
voru þarna sýndir skemmtileg
ir leikir.
En nóg um það.
HANDBOLTI — 2. flokkur
Þór:Ármann 6-14.
Það var aðeins í upphafi,
sem Þór var yfir 1:0. En það
stóð aðeins í tvær mínútur
1:1 og aðrar tvær og þá 1:2.
Þegar svo til hálfleiks var
flautað var staðan orðin 2:5.
Spil Ármannsliðsins snérist
allt um einn öxul, Pétur Ing-
ólfsson, sem sést kannski best
á því að hann skoraði öll mörk
liðsins í hálfleiknum, að vísu
3 úr vítum.
Þórsarar hugðust nú bæta
ráð sitt og útveguðu Pétri
„frakka“. En þá tóku aðrir
liðsmenn upp á því að skjóta.
Um miðjan síðari hálfleikinn
komust Ármenningar svo í 8
marka mun 12:4. Hélst sá mun
ur út leikinn, sem endaði með
stórsigri Ármanns 14:6.
Lið Þórs virtist aldrei ná
saman enda samankomnir leik
menn úr einum þrem flokk-
um. Liðið fann aldrei svar við
hinum sterka varnarleik Ár-
menninganna. Feilsendingar
og víti klúðrað. Þá er það eitt
atriði, sem ég fæ ekki skilið,
en það er að allan leiktímann
voru þrír menn látnir sitja á
varamannabekknum. Þeim
var aldrei skift inn á! Guð-
mundur Skarphéðinsson var
bestur Þórsara.
Ármannsliðið sýndi mjög
skemmtilegan leik. í sókn
reyndu þeir leikfléttur, sem
sumar gengu upp. Var mikill
hraði í leik þeirra. Vörnin var
sá múr sem Þór tókst ekki að
yfirvinna nema sex sinnum.
Þá var markvarslan mjög góð
einkum í fyrri hálfleik.
jeg.
Ármann-.Haukar 13-13
Það var greinilegt að leik-
menn liðanna tóku þennan
leik sem úrslitaleik. Tauga-
spenna og harka var nóg í
leiknum. Haukarnir tóku það
ráð að taka Pétur Ingólfsson
úr umferð. Hafði það lítil
áhrif á Ármannsliðið svo
Haukarnir hættu því. Hauk-
arnir höfðu yfir í hálfleik eitt
mark 5:4.
Leikurinn var ætíð jafn út í
gegn, þó tókst Ármenningun-
um að komast tvö mörk yfir
í síðari hálfleikmmi 10:8.
Haukarnir unnu þetta bil upp
aðallega með góðum varnar-
leik. Lauk leiknum með jafn-
tefli 13:13.
Þrátt fyrir mistök var leik-
urinn skemmtilegur á að
horfa. Mátti oft sjá falleg til-
þrif hjá þessum upprennandi
handknattleiksmönnum.
jeg/Pá. H.
Þór:Haukar 12-13.
Leikmenn Hauka komu sig-
urvissir til þessa leiks og ætl-
uðu að vinna hann með tíu
marka mun. Þeir urðu að sigra
Þór til að fá úrslitaleik við Ár
mann um íslandsmeistaratitil-
inn. En Þórsarar ætluðu að
selja sig dýrt og stóðu við það.
Haukarnir komust ekki yfir
fyrr en er líða tók undir lok
fyrri hálfleiks. En alltaf
fylgdi Þór fast á eftir og var
staðan 7:6 Haukunum í vil í
hálfleik.
Þórsurum tekst svo að jafna
8:8 í síðari hálfleik og gera
betur, komast yfir 9:8. Sáu
Haukarnir sitt óvænna og
náðu að komast yfir 12:11 en
jafnar Þór 12:12. Leiktíminn
að verða búinn. Tekst þá ekki
Á laugardaginn var háður i
íþróttaskemmunni úrshtaleik-
ur meistaraflokks kvenna i
Bikarkeppni Körfuknattleiks-
sambandsins. Er þetta í fyrsta
sinn sem þessi keppni fer
fram. Gáfu Samvinnutrygg-
ingar verðlaunagrip til keppn-
innar.
Leikurinn:
Þriðji aðilinn í leiknum
„Taugaspeiman“ var allsráð-
andi frá byrjun og til enda.
Þórsstúlkurnar höfðu forystu
allan fyrri hálfleikinn. Fyrri
helming hálfleiksins spiluðu
K. R. stelpurnar „maður á
mann“ eða „kona á konu“
vörn, en gáfust svo upp á því.
Þórsstúlkurnar gáfu ekkert
eftir í vörninni, fengu þær
líka dæmd á sig 8 víti, en
Haukunum að skora sigur-
markið 13:12.
Nú sýndu Þórsarar á sér
aðra hlið heldur en á föstu-
dagskvöldið á móti Ármanni.
Varnarleikurinn var góður, en
þó var markvarslan besti hluti
liðsins. Varði Gunnar oft stór-
kostlega m. a. víti. En sóknin
var veika hhð hðsins, ein-
kenndist stundum um of af
fumi og fálmi fengu menn sér
jafnvel labbitúr með bolta und
ir hendinni í opnu færi. Liðið
vantaði aðeins herslumuninn
á að sigra í leiknum.
Dómararnir:
Sömu dómararnir dæmdu
alla þrjá leikina. Komust þeir
Árni og Kristján bara þokka-
lega frá sínu. — jeg/Páll.
Lokastaða í úi’shtakeppni
um íslandsmeistaratitilinn í 2.
flokki.
Ármann . . . 2110 27:19 3
Haukar .... 2110 26:25 3
Þór.......... 2002 18:27 0
Markhæstu menn:
Pétur Ingólfsson Á.... 13
Ólafur Jóhannesson H . . 9
Jón Hauksson H........ 8
Guðm. Skarphéðinsson Þ 8
fengu sjálfar 4 víti. Vítin
reyndust þó erfið fyrir K. R.,
skoruðu aðeins eitt stig af 8
mögule'gum.
Er kom að hálfleik var stað
an orðin 9 gegn 6, Þór i vil.
K. R. tókst að jafna í síðari
hálfleik í tvígang, fyrst 10:10
og síðan 16:16.
En þegar staðan var 10:10
um miðjan hálfleikinn, tók
Ásta Pálmadóttir til sinna
ráða og skoraði næstu 10 stig.
K.R.-ingra aftur á móti 6 stig.
Urðu þvi loka tölur leiksins
20:16. Var Þór þar með orðinn
fyrsti Bikarhafi KKÍ í kvenna
flokki.
Best hjá Þór var tvímæla-
laust Ásta Pálmadóttir og svo
María Guðnadóttir. — jeg.
Enska knattspyrnan
Spámaðurinn
Síðasti spámaður okkar, Árni
Þorvaldsson, var með 5 leiki
rétta á sínum seðh. Næsti spá-
maður er Siguróh M. Sigurðs-
son, verslunarmaður. Óh, eins
og hann er oftast kallaður, er
mikill áhugamaður um fót-
bolta, enda lék hann með
meistaraflokki ÍBA um 10 ára
bil, og þá yfirleitt sem bak-
vörður. Á sínum yngri árum
var Óli liðsmaður Þórs, en söðl
aði yfir, er hann var í 3. flokki,
og gerðist þá hðsmaður KA og
hefur verið ætíð síðan. Hann
spilaði fótbolta með öhum
flokkum KA, frá 3. flokki allt
upp í meistaraflokk. Uppá-
haldshð Óla í ensku kattn-
spyrnunni er og hefur alltaf
verið Derby. En hér kemur svo
spáin.
Leikir 19. apríl 1975.
Birmingham — Luton 1
Carlisle — Wolves 2
Everton — Sheff. Utd. 1
Leeds — Ipswich x
Leicester — Derby 2
Manch. City — Burnley 1
Middlesbro — Liverpool 2
Q. P. R. — Arsenal 2
Stoke — Newcastle 1
Tottenham — Chelsea 1
Blackpool — Aston ViUa x
Sunderland — Bristol City 1
Körfubolti
Orðsending
frá Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda
Föstudaginn 18. apríl n.k. á milli kl. 1 — 5 e. h.
að Hótel Varðborg verður Sveinn Oddgeirsson,
framkvæmdastjóri F.Í.B. til einkaviðtals fyrir fé-
lagsmenn.
Á föstudagskvöldið þann 18. apríl n.k. kl. 8.30,
verður umræðufundur með félagsmönnum um
starfsemi félagsins að Hótel Varðborg.
Námskeið í skyndiviðgerðum verður haldið á
Akureyri laugardaginn 19. apríl n.k.
Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig sem fyrst
hjá umboðsmanni félagsins, Sigurði Sigurðssyni,
Hafnarstræti 99, sími 1-10-52.
Utanfélagsmenn hafa einnig aðgang að nám-
skeiðinu.
DALVÍKURBÆR
ctboð
Dalvíkurbær óskar eftir tilboðum í smíði og upp-
setningu á hurðum og stigahandriði í heimavistar-
byggingu á Dalvík. Útboðsgögn verða afhent á
bæjarskrifstofunni gegn 5000.00 kr. skilatrygg-
ingu. Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 17.
apríl kl. 13 á skrifstofu bæjarstjóra.
Tilboð sem berast eftir þann tíma verða ekki tek-
in til greina.
FRÁ LANDSSÍMANUM Á AKUREYRI:
Símaskráin
v
fyrir 1975
verður afhent í skeytaafgreiðslu, 1. hæð, fimmtu-
daginn 10. apríl og næstu daga.
SÍMASTJÓRINN Á AICUREYRI.
Læknaritari óskast
á HANDLÆKNISDEILD F.S.A. í hálft starf.
Góð vélritunarkunnátta skilyrði.
Æskilegt að umsækjandi geti skrifað eftir segul-
bandi eitt Norðurlandamál og ensku eða þýsku.
Skriflegar umsóknir, ásamt meðmælum og upp-
lýsingum um fyrri störf, sendist til Gauta Arn-
þórssonar, yfirlæknis.
Handlæluiisdeild F.S.A.
ALÞÝÐUMAÐURINN - 3