Alþýðumaðurinn - 15.04.1975, Qupperneq 5
ORÐí BELG
Eins og kunnugt er, var á þingi
Alþýðuflokksins á öndverðum
vetri kosin milliþinganefnd, til
að endurskoða stefnuskrá
flokksins. Enda þótt setja megi
þá ákvörðun þingsins í sam-
band við fylgistap flokksins á
undanförnum árum, er um-
ræða um stefnuna alltaf jafn-
nauðsynleg. En þar sem.flokks
starfið hefur verið í lágmarki,
hefur lítið verið rætt um mark
mið og leiðir. Þá hefur út-
breiðslustarfið gengið illa,
vegna fjárskorts. Af þessum
sökum hefur mörgu flokks-
fólki ekki verið ljós pólitísk
staða flokksins, og það jafnt,
sem aðrir fengið meira að vita
um verk forystunnar frá and-
stæðingunum, en úr flokks-
röðum. í þessu liggur vafa-
laust framar öðru, að fylgi Al-
þýðuf lokksins er smátt, nú um
stundir. Það væri þess vegna
ánægjulegt, ef endurskoðun
stefnuskrárinnar gæti vakið
umræður í flokknum. Sem inn
legg í slíka umræðu, er þessi
grein skrifuð.
Það er í sjálfu sér spurning,
hvort fylgistap Alþýðuflokks-
ins megi ekki skýra með því,
að hann sé búinn að gegna
hlutverki sínu í íslenskum
stjórnmálum. Því er til að
svara, að markmiðinu með
stofnun flokksins hefur enn
ekki verið náð, og svo lengi,
sem einhverjir trúa, að hægt
sé að ná því, hefur hann sitt
hlutverk.
Kjörorð Alþýðuflokksins er
og hlýtur að verða: Frelsi, jafn
rétti, bræðralag. í þessum
orðum felst markmið flokks-
ins. Það þjóðskipulag, sem
flokkurinn vill koma á, skal
byggt á því, sem þau segja
hvert fyrir sig og sameigin-
lega. Þ. e. a. s. samfara frelsinu
verður að vera jafnrétti og
bræðralag o. s. frv.
Til að ná þessu marki, vill
flokkurinn fara lýðræðisleið-
ina. Hann vill vinna máli sínu
fylgi innan hins þingræðislega
skipulags. Sem leiðarhnoða
hefur hann stefnuskrána. Hún
hlýtur að bera þess merki,
hverjir' mynda flokkinn, og til
hvaða fylgis hann vill höfða.
Og hún hlýtur að byggjast á
framsýni, en ekki vera loft-
kastalasmíð.
Hér verður ekki fjallað um
stefnu Alþýðuflokksins til
neinnar hlítar, en aðeins bent
á nokkur atriði. Kannski eru
orðin efnahagur, menning og
sjálfstæði eðlilegar yfirskriftir
þess, sem skiptir mestu máli,
því að án heilbrigðs efnahags-
lífs og öflugrar menningar-
starfsemi er ekkert sjálfstæði
hugsanlegt.
Efnahagsmál eru að sjálf-
sögðu grundvöllur stefnu Al-
þýðuflokksins eins og annarra
jafnaðarmannaflokka. Aðalatr
iðið er, að ríki og sveitarfélög
eigi undirstöðuatvinnufyrir-
tækin og nóg atvinna sé. Þá
þurfa allir að fá sanngjörn
laun fyrir hóflega vinnu. Und-
ir þennan lið heyra og al-
mannatryggingar og húsnæðis
mál, atvinnulýðræði, skatta-
mál og eignarráð á landi, sem
allt hefur verið þingmál Al-
þýðuflokksins.
Undir efnahagsmál fellur
líki nýting innlendra orku-
gjafa og skipulag í sjávarút-
vegi og landbúnaði. Á öllum
þessum sviðum bíða geysiverk
efni. í sambandi við verka-
skiptingu milli ríkis og sveitar
félaga hefur Alþýðuflokkur-
inn verið alltof viljugur til að
auka miðstjórnarvaldið í
Reykjavík. Vissulega getur
sterkt miðstjórnarvald haft
góð áhrif á uppbyggingu og
til skipulags. En að safna
völdum á fárra hendur er ó-
lýðræðislegt og eykur bilið
milli almennings og þeirra,
sem með völdin fara. Efling
miðstjórnarvaldsins hefur líka
beinlínis ýtt undir byggðar-
röskunina, en betri þjónusta,
en verið hefur utan Reykja-
víkursvæðisins hlýtur að
styrkja búsetu þar.
Þá er misrétti kynjanna
fyrst og fremst efnahagslegt,
þar sem störf kvenna eru áber
andi lítilsvirt. En í þessu til-
viki er einnig við rótgróinn
hugsunarhátt að eiga.
í( menningarmálum hlýtur
skólafræðslan að vera efst á
blaði. í fyrsta lagi þarf að
jafna þann mun, sem er á að-
stöðu til náms, milli héraða.
Þá þarf að fjölga námsbraut-
um og auðvelda nemendum
leið milli skóla. Eins þarf að
styrkja og hvetja til fræðslu
fullorðinna.
En með styttingu vinnuvik-
unnar er mjög aðkallandi, að
hlúð sé að hvers konar menn-
ingarlegri starfsemi. Það er
enn brýnna en áður, að fólki
gefist kostur á, ekki aðeins að
njóta listar, heldur taka þátt
í listflutningi. Rímnakveðskap
urinn hafði það fram yfir
kvikmyndir og sjónvarp nú-
tímans, að margir fengu tæki-
færi til, bæði að semja og
flytja rímur, og samband
kvæðamannsins og hlustend-
anna var lifandi.
Hér verður því haldið fram,
að íslendingum sé nauðsyn-
iegra að koma lagi á efnahags
líf í landinu og auka innlenda
menningarstarfsemi, en berj-
ast við meinta erlenda and-
stæðinga. Auðvitað má ekki
gera lítið úr, að með bættum
samgöngum og stórkostlegri
milliríkjaverslun hefur ein-
angrun landsins verið rofin.
En án efnahagslegs og menn-
ingarlegs sjálfstæðis 1 geta
landsmenn aldrei komið fram
af reisn í samskiptum við
aðrar þjóðir. Það verður þó
sjálfsagt að tryggja öryggi
landsins, ef til ófriðar kæmi.
En tími hernaðarbandalag-
anna virðist liðinn, og aðstæð-
ur í Evrópu eru nú allt aðrar
en 1949, þegar íslendingar gerð
ust aðilar að Nato. Endurskoð-
un utanríkisstefnunnar hlýt-
ur að vera á næsta leiti. Og
þá getur Alþýðuflokkurinn
gegnt miklu hlutverki, því að
eðlilegast er, að leita styrktar
hjá hinum Norðurlöndunum,
en þar eru jafnaðarmenn öfl-
ugastir.
Það er augijóst mál, að Al-
þýðuflokkurinn á við þann
vanda að striða, að hann
skortir fylgi til að gera þær
umbætur, sem hann vill koma
fram. En vandinn verður að-
eins leystur af flokksmönnum
sjálfum, ekki andstæðingun-
um. Alþýðuflokksmenn gera
ekkert betra í tilefni 60 ára
afmælis flokksins á næsta ári,
en leysa þennan vanda; ganga
inn í framtíðina samtaka og
starfsglaðir. - Úlfar Bragason.
þessi:
A-flokkur.
1. Júlíus Bogason 6 v.
2. Halldór Jónsson 5% v.
3. Jón Björgvinsson 4% v.
4. —5. Haraldur Ólafsson 4 v.
4.—5. Kristinn Jónsson 4 v.
f B-flokki varð efstur Ólaf-
ur Steinarsson með 5V2 vinn-
ing.
Eftir 5 umferðir í UMSE-
mótinu er röð efstu manna
þannig:
2. Atli Benediktsson 3^2 v.
3. —4. Hreinn Hrafnsson 3 v.
3.—4. Guðm. Búason 3 v.
Þá er fyrir nokkru lokið
hraðskákmóti um Einisbikar-
inn svonefnda, og voru kepp-
endur 24 talsin.s Helstu úrslit
urðu sem hér segir:
1. Gunnl. Guðmundss. 20 v.
2. Hólmgr. Heiðrekss. 18% v.
3. —4. Júlíus Bogason 17 v.
3.—4. Hjörleifur Halldórsson
17 v.
Slysavarðstofa F.S.A.
verður framvegis
lokuð yfir nóttina
og um helgar
Frá og með miðvikudeginum 9. apríl 1975 verður
Slysavarðstofa F.S.A. lokuð frá kl. 16.00 síðdegis
virka daga til kl. 08.00 að morgni næsta dags.
Einnig verður hún lokuð frá hádegi á laugardög-
um til ld. 08.00 á mánudagsmorgni. Með smáslys,
sem að höndum kunna að bera á þessum tímum,
er fólki því bent á að leita til læknavaktarinnar í
bænum um greiningu og meðferð. Eftir tilvísun
heimilislæknis eða vaktlæknis verður tekið á móti
slysum hvenær sem er vikunnar svo sem jafnan
hefur verið. Að sjálfsögðu er einnig tekið á móti
fólki með alvarleg veikindi eða eftir meiriháttar
slys á deildir sjúkrahússins án milligöngu heimilis-
læknis eða vaktlæknis, ef nauðsyn krefur, hvenær
sem er sólarhringsins eins og áður hefur verið. Sjá
að öðru leyti fréttatilkynningu á öðrum stað í
blaðinu.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
f búðir til sölu
Mjög skemmtilegar 3ja herbergja, 70 fm, íbúðir
til söiu í tvískiptu raðhúsi.
Hentugar fólki á öllum aldri.
Afhentar að ósk kaupanda á 4 byggingarstigum.
Fokheldar, — tilbúnar undir tréverk, — tilbún-
ar undir málningu, — fullfrágengnar.
Akurfell
Strandgötu 9. — Sími 2-23-25.
Júlíus Bogason, skákmeistari
Annars urðu helstu úrslit 1. Ármann Búason 4% v.
Skákþingi Akureyrar er ný-
lega lokið. Þátttaka var nokk-
uð góð, miðað við að skákmót
á vegum UMSE var þá byrj-
að. Keppendur voru 16 talsins
í tveimur styrkleikaflokkum,
8 í hvorum flokki. í A-flokki
sigraði hinn gamalkunni meist
ari, Júlíus Bogason, og mun
þetta vera í 18. sinn, sem
hann hreppir titilinn Akureyr
armeistari í skák. Þessi úrslit
eru mjög athyglisverð vegna
þess, að Júlíus er kominn af
léttasta skeiði, og að honum
sóttust þarna yngri menn og
þaulæfðir meistarar eins og t.
d. Halldór Jónsson og Jón
Björgvinsson. Alþýðumaður-
inn óskar Júlíusi innilega til
hamingju með þetta prýðis-
góða afrek, og megi hann sem
lengst fást við skák, sjálfum
sér og öðrum til ánægju og
yndisauka, og til eflingar skák
lífinu í bænum.
ALÞÝÐUMAÐURINN - 5