Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 09.06.1976, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 09.06.1976, Síða 1
ALÞYÐUMAÐURINN KK>Os Gróðrarstöðin afhent Akureyrarbæ til eignar 46. árgangur - Akureyri, miðvikudaginn 9. júní 1976 - 21. tbl. Síðastliðinn miðvikudag var Gróðrarstöðin á Akureyri formlega afhent Akureyrar- bæ. Þá um morguninn kl. 11 afhenti landbúnaðarráðherra, Halldór E. Sigurðsson, bæjar- stjóranum á Akureyri, Bjarna Einarssyni, afsalið að viðstödd um bæjarfulltrúum og nokkr- um gestum auk fréttamanna. Að þeirri athöfn lokinni var Gróðrarstöðin skoðuð undir leiðsögn Hallgríms Indriða- sonar skógfræðings og Stein- Listahátíð á Akureyri - Vorvaka 76 Á annan í hvítasunnu var opnuð í íþróttaskemmunni svokölluð Vorvaka ’76 á veg- um Menningarsjóðs Akureyr- ar. Valur Arnþórsson, forseti bæjarstjórnar, setti Vorvök- una og er hún sú fyrsta sínn- ar tegundar, sem haldin er hér á Akureyri. í setningarræðu sinni sagði Valur meðal annars, að full- kominn vilji væri fyrir hendi hjá þeirri bæjarstjórn er nú situr, að hafa þetta árlegan viðburð í menningarlífi Akur eyrarbæjar. Þá væri íþrótta- skemman hentugt húsnæði til þessara nota og ekkert á móti því að nýta hana þann tíma, sem íþróttastarfsemi lægi þar niðri, að mestu leyti yfir sum arið. Auk listahátíðar, með til dæmis myndlist, tónlist, leik- list og fleiru þá kæmi til greina að halda í „Skemm- unni“ kaupstefnur. Við opnun Vorvökunnar lék Strengja- sveit Tónlistarskóla Akureyr- ar og síðan hófst myndlistar- sýning, sem samanstendur af málverkum 4 akureyrskra málara, þeirra Aðalsteins Vestmanns, Gísla Guðmanns, Óla G. Jóhannssonar og Arn- ar Inga. Þá eru einnig á sýn- ingunni listaverk í eigu Akur eyrarbæjar og íslensk grafík. Vorvaka ”76 stendur til 19. júní og verður myndlistarsýn ingin opin á hverju kvöldi frá kl. 6 og á laugardögum, sunnu dögum og 17. júní frá kl. 2 að deginum. Þar fyrir utan verð ur um fjölbreytta dagskrá að ræða svo sem tónlistarkvöld með 60—70 tónlistarmönnum frá Akureyri, ljóðakvöld verð ur og Karlakórinn Geysir syngur. Þá eru ótalin atriði, sem verið hafa á Listahátíð- inni í Reykjavík og verða kynnt í dreifibréfum, sem dreift verður um Bæinn. dórs Steindórssonar frá Hlöð- um. Að því loknu var þeginn hádegisverður í boði Bæjar- stjórnar Akureyrar. Á sínum tíma gaf Akureyr- arbær land undir Gróðrarstöð ina og fylgdi því það skilyrði, að Bærinn mætti kaupa það aftur á sanngjörnu verði. Landbúnaðarráðherra gat þess í sinni ræðu að þetta sanngjarna verð yrði það skil yrði að hirða trjágarðinn og Gróðrarstöðina í framtíðinni. Ákveðið er að Garðyrkju- deild Akureyrar hafi fram- vegis aðsetur í Gróðrarstöð- inni. "" Fjölmennur fundur á Húsavik — S Nýlega hélt Alþýðuflokksfé- lag Húsavíkur aðalfund sinn, sem var bæði fjölmennur og fjörugur. Ný stjórn var kjör- in fyrir næsta starfsár en hana skipa nú, formaður Guð mundur Hákonarson, varafor- maður Brynjar Sigtryggsson, gjaldkeri Gunnar B. Salómons son, ritari Gunnar P. Jóhann- esson og meðstjórnendur þau Bjarni Sigurjónsson og Inga K. Gunnarsdóttir. Eins og fyrr segir var þetta fjölmennur fundur, þar sem rædd voru bæjarmálin, en þar hafði framsögu Arnljótur Sig- urjónsson, og stjórnmálavið- horfið, en þar var framsögu- maður Björn Friðfinnsson. Margir tóku til máls og urðu umræður fjörugar. Þá var samþykkt á fundin- um að sameina öll Alþýðu- flokksfélögin á Húsavík og tal ið að það væri vænlegra til árangurs og betra starfs. “X Bridgemót IMorðurlands Um síðastliðna helgi var Bridgemót Norðurlands hald- ið hér á Akureyri. 11 sveitir tóku þátt í mótinu, en þær voru frá Akureyri, Húsavík, Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Blönduósi. Sigurvegari varð sveit Björns Þórðarsonar frá Siglufirði og hlaut hún 43 stig. Önnur varð sveit Stefáns Jónsson, Dalvík, með 29 stig, þriðja sveit Guðmundar Há- konarsonar, Húsavík, með 27 stig og fjórða, Sveit Jóns Árna sonar einnig frá Húsavík með 21 stig. Mótið hófst í Iðnskól- anum á föstudagskvöldið en á laugardag og sunnudag var spilað á Hótel KEA. Mótsstjóri var Albret Sigurðsson, Akur- eyri. Að öllu forfallalausu verður Norðurlandsmótið í bridge haldið á Húsavík næsta ár. SPURT S 4 4 y t t t t t t t Bjarni Einarsson, bæjarstjóri, tekur við afsalinu úr hendi Iandbúnaðarráðherra, Halldórs E. Sigurðssonar. 1 f. f. t I | 1 x i 1 Hestamaður hér í bæ kom að máli við blaðið og sagði eftirfarandi sögu: Það skeði á kappreiðun- um sl. laugardag, að grár hestur, sem þar keppti var heldur grátt leikinn af dómnefndinni. í undan rásum var hesturinn hestslengd á undan þeim næsta, sem var í fjórða sæti, en dæmdur sjálfur í því fjórða. í úrslitum skeði það svo að sami hestur varð sjónarmun fyrstur í mark, en var dæmdur í annað sæti. Hefur í svona tilfellum dómnefndin ekkert sönn- unargagn í höndunm, svo sem kvikmynd eða annað { 4 t t I til að styðjast við? .«! :-:-:-x-:*x-x-x-x-x-x-x-:-x-x-x-x-x-:-x*x-x-x-:-:*x-:-:« Ertu að byggja? Alltaf eitthvað nýtt. FASTEIGNASALA - LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Þarftu að bæta? Viltu breyta? Amerískar blússur og bolir. ÍBCÐIN KLEOPATRA Steindór Gunnarsson, IögfræOingur. TRYGGVABRAUT 22. - SÍMI: 2-24-74. Strandgötu 23. — Sími: 2-14-09. Ráöhústorgi 1. — Sími: 2-22-60.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.