Alþýðumaðurinn - 09.06.1976, Page 2
0 AL iM ÞÝ€> Otgefandi: Alþýðuflokksfélag Akureyrar. — Ritstjóri og ábm. - Hjtírleifur Hallgríms. UMAÐURINN —
Afgreiðsla og auglýsingar Strandgötu 9, sími 1-13-99.
Alþingi
óvirt
Svo sem við spáðum í síðasta blaði, höfðu ríkisstjórnir
íslands og Bretlands samið um veiðar breta innan 200
mílna fiskveiðilögsögu okkar áður en það tbl. komst í
gegnum prenfun. Samningar þessir voru líkir og blaðið
sagði fyrir af lausafréttum og hafa nú birst almenningi.
Er þarflaust að rekja þá nákvæmlega hér.
Viðbrögð almennings við samningunum eru mjög mis-
jöfn: margir fagna þeim og telja þá sigur málstaðar okk- **
ar, en margir líta þveröfugt á: hér hafi verið samið af
þarflausu, þegar lokasigur var í sjónmáli, en honum glopr-
að niður vegna rangs mats á hlutunum. I þeim hópi er
sagður meginhluti gæsluliðs okkar á sjðnum, og því finn-
ist til lítils hafa verið barist, eins og endahnúturinn hafi
verið hnýttur á, og viðbrögð fjölmargra sjómanna eru
Iík.
Ekki virðist afstaða manna til samninganna skiptast
nema að takmörkuðu leyti eftir því, hvort menn fylgja
ríkisstjórnarflokkum eða stjórnarandstöðu að málum:
Til eru menn í stjórnarandstöðu, sem telja vel, að samið
var, en einnig eru fjölmargir í stjórnarbúðum, sem telja
samningana fljótræði:
Bretar hafi verið búnir að tapa leiknum og alveg á
mörkum að gefast upp, en með samningum hafi þeir
unnið sér nýja taflstöðu mcð EBiE í bakhönd, sem kunni
að verða okkur örðugur viðfangsaðili, þegar á þann hólm
kemur.
Alfarið er það víst, að svo sem málum er kornið, skipt-
ir afar miklu máli, hvernig á spilum verður haldið næstu
mánuði og þeir leikir þaulhugsaðir, sem leika skuli, þeg-
ar kemur að 1. des. n. k. Á þessu getur oltið, hvort sam-
ið hefir verið til tjóns eða góðs, og enn er það óttinn við
lina ríkisstjórn, sem brennur með almenningi.
Það þykir ekki spá góðu, að jafnsterk ríkisstjórn að
þingfylgi og núverandi ríkisstjórn er, skuli leyfa sér þá
yfirtroðslu við þingræði í landinu að kalla ekki þegar
saman þingið til að fullgilda samningana, heldur hyggst
láta þá gilda ófullgilta af þingi svo mánuðum skiptir.
Slíkt er frekleg óvirðing við æðstu stofnun ríkisins og
kann að leiða ófyrirsjáanlcg óhappaspor af sér, ef Al-
þingi bregst ekki hart við til að verja völd sín og heiður.
Margir af færustu lögfræðingum landsins vilja líka
staðhæfa, að hér sé ríkisstjórnin að fremja stjórnarskrár-
brot, og kann vel svo að fara, að eftirleikurinn þyki
óvandaður, ef ekki er hér stemmt á að ósi. Þetta ættu
allir alþingismenn vel að athuga, hvar í flokki sem þeir
standa. Heiður Alþingis og sóma á að meta meir en
flokksböndin. (IX)
-----------------------------------------------í
f ÞRÓTTIR
KA tapaði fyrir Armanni
í tilþrifalitlum leik 0:2
Glímufélagið Ármann fór frá
Akureyri með 2 dýrmæt en
ódýr stig í baráttunni um
toppinn, en KA missti hins
vegar sennilega af lestinni
endanlega enda barátta liðs-
manna liðsins miður. Varla
var leikurinn nema 35—45
sekúndna gamall er knöttur-
inn lá í netinu hjá ráðvilltum
Akureyringum og þvílík mis-
tök. Jón Hermannsson tekur
aukaspyrnu á miðjum vallar-
helmingi KA út við vinstri
hliðarlínu, boltinn er fremur
hár og svífur inn í teiginn og
á einhvern óskiljanlegan hátt
láta varnarmenn KA-liðsins
hann fara og Sveinn Ævar
markvörður er einnig seinn
og knötturinn siglir inn og
eitt ódýrasta mark sem undir
ritaðir hafa séð er staðreynd.
En þrátt fyrir dæmt mark var
það mjög umdeilt og má sjálf
sagt mestu kenna um reynslu
leysi línuvarðarins, því hann
setti flaggið strax niður og þá
tók dómari leiksins, Grétar
Norðfjörð, ekkert mark á
„sveiflu“ línuvarðarins. En
ekki verður deilt við dómar-
ann og markið var dæmt gilt
KA-mönnum til undrunar og
gremju.
En KA-menn gáfust ekki
upp og næstu 15 mínútur er
leikurinn algerlega í höndum
þeirra og mikil var óheppni
þeirra að skora ekki 1—2
mörk á þessum tíma. Gunnar
Blöndal átti 2 góð skot og Sig
björn eitt auk margra ann-
ara. En þegar líða tók á hálf-
leikinn jafnaðist leikurinn og
á markamínútunni miklu, 43.
mín., skora Ármenningar sitt
seinna mark og voru varnar-
menn KA þá gersamlega sof-
andi. Magnús Þorsteinsson
fær knöttinn inn í teig KA og
fékk síðan góðan tíma til að
laga knöttinn fyrir sig og átti
síðan ekki í vandræðum með
að senda knöttinn í netið og
tryggja stöðu Ármanns, 2:0.
En fyrr í hálfleiknum hafði
Magnús Þorsteinsson gert sig
sekan um mjög ljótt brot á
nafna sínum Vestmann og var
knötturinn þá víðs fjarri
þannig að brotið verður enn
grófara fyrir vikið.
í seinni hálfleik hélt leikur
inn áfram jafn eins og seinni
hluta fyrri hálfleiks og áttu
bæði liðin ágæt færi. En þeg-
ar líða tók á hálfleikinn óx
sóknarþungi heimamanna
jafnt og þétt svo Ármenning-
ar urðu sjaldséðir á vallar-
helmingi KA langtímum sam-
an. Var samleikur KA-manna
oft á tíðum stórgóður og léku
oft mjög illa á vörn Ármanns
en markið lét ætíð bíða eftir
sér. Skotin dundu á vörn Ár-
manns, en vörnin var þétt
með Gunnar fyrirliða Andrés-
son sem besta mann og þau
skot er rötuðu að marki varði
Ögmundur Kristinsson mjög
vel. Er líða tók á hálfleikinn
tók örvæntingin að grípa KA-
menn og Einar Helgason
reyndi að glæða sóknina nýju
blóði með „gömlu“ kempunni
Kára Árnasyni en ekkert
dugði. Kári týndist oft á tíð-
um í leiknum, en hann kom
inn á fyrir Steinþór Þórarins-
son, sem var eitthvað miður
sín í leiknum. Síðustu 10—15
mínúturnar færðist líf að
nýju í Ármenninga og áttu
þeir nokkrar ágætar sóknir,
sem vörn KA tók að vísu auð-
veldlega, en sigurinn var í
höfn.
Lið KA átti ekki mjög góð-
an leik og var það heldur dap-
urt að tapa fyrsta heimaleikn
um á sumrinu eftir tvo ágæta
sigra — unnu Völsung 3:1 ör-
ugglega fyrir austan í góðum
leik á miðvikudagskvöldið —
á undan. Vörnin er föst fyrir
þegar á þarf að halda en þess
á milli leka inn hrikaleg
klaufamörk, sem oftast koma
vegna misskilnings milli varn-
ar og markvarðar. Leikmenn
KA hafa oftsinnis sýnt fram á
það að liðið getur leikið góða
og skemmtilega knattspyrnu
en þess á milli ríkir meðal-
mennskan og varla það. Allan
brodd vantar í liðið og þess
vegna gengur ekki sem skyldi.
T. d. eru miðjumenn liðsins,
sem eru allir mjög leiknir,
allt of linir eða latir við upp-
dekkingu og þess vegna geng-
ur ekki sem skyldi. í leiknum
hefði Einar þjálfari betur gert
með að færa Hörð á miðjuna
fyrir framan og setja Helga
Jónsson á miðjuna aftur með
Haraldi Haraldssyni. En eins
og flestum er kunnugt hafa
fáir leikmenn jafn mikla yfir-
ferð og einmitt hann, fljótur,
lipur og útsjónarsamur. En
allt um það, KA-liðið er allt
að því búið að kveðja annað
af 2 efstu sætunum í deildinni
í ár og er það leiðinlegt, þar
sem liðið getur gert betur.
Lið Ármanns er á grænni
grein eftir þennan sigur og
virðist nú stefna í hörkubar-
áttu milli þeirra og Vest-
mannaeyinga, og sjálfsagt
koma Þórsarar til með að vera
með þar líka enda þrælsterk-
ir. Lið Ármanns er nokkuð vel
spilandi þó liðið hafi verið
mjög heppið hér og hreinlega
unnið á glöpum og reynslu-
leysi línuvarðarins. Langbestu
menn liðsins í þessum leik
voru Gunnar Andrésson og
Ögmundur Kristinsson mark-
vörður — áttu báðir stórleik.
Lítið bar á Jóni Hermannssyni
enda var hann ætíð tekinn
strax, fékk engan tíma til at-
hafna. Ef allir leikmenn mót-
herja KA fengju sömu með-
ferð myndi lið þeirra senni-
lega tróna nú á toppnum. En
eins og svo oft hefur verið sagt
áður þá vantar enn alla vídd í
liðið og leikur liðsins langt frá
því að vera heilsteyptur. Eins
og áður sagði munu Ármenn-
ingar blanda sér alvarlega í
toppbaráttuna og halda uppi
merki Reykjavíkur í 2. deild
að þessu sinni, enda eru marg-
ir vel spilandi menn innan vé-
banda þess.
Bestu menn Ármanns: Ög-
mundur Kristinsson og Guxm-
ar Andrésson.
Bestu menn KA: Hörður
Hilmarsson var langbestur
KA-manna og sýndi enn ótví-
rætt fram á það, að hann á
heima í landsliðinu. Haraldur,
Magnús Vestmann, Gunnar
Blöndal og Guðjón Harðarson
áttu allir ágætan dag. Dómari
leiksins var Grétar Norðfjörð
og var ágætur fyrir utan mis-
tökin í sambandi við mörkin.
Línuverðir voru Kjartan Tóm
asson og Jóhann Karl Sigurðs-
son, og vantar hann bersýni-
lega mun meiri æfingu. Völlur
inn var ágætur og veðrið var
nokkuð gott, að vísu fremur
svalt og talsverður norðan
strekkingur.
2 - ALÞÝÐUMAÐURINN