Alþýðumaðurinn - 09.06.1976, Síða 4
Frá tölfræðingi Áfengisverslunar
innar norsku
„Alveg er ljóst að aukin áfeng
isneysla leiðir til vaxandi
tjóns af völdum áfengis“, seg
ir tölfræðingur Áfengisversl-
unarinnar í Osló. „Þar sem
aukning áfengisneyslunnar
vár 3.4% árið 1975 og aukn-
ingin 1974 nam 11.2% má
ljóst vera að vá er fyrir dyr-
um. Augljóst er að aukin
áfengisneysla veldur auknu
tjóni og þeim fjölgar sem
áfengi nær tökum á. Nákvæm
ar rannsóknir, sem ná yfir ára
bil, leiða í ljós mjög náið sam
band milli hærri launa og auk
innar áfengisneyslu. Augljóst
er að tekjuaukning er ein mik
ilvægasta orsök aukinnar
áfengisneyslu. Hvaða aðgerðir
eru áhrifaríkastar til að hafa
hemil á þessari öfugþróun?
Áfengisverð hefur ekki
fylgt þróuninni í verðlags- og
launamálum. Því miður var
verð áfengis ekkert hækkað
við launahækkunina miklu
1974. Með þeirri launaþróun,
sem verið hefur síðari ár, hefð
um við þurft að endurskoða
verðlagningu áfengis á hverju
ári. Aðstaðan til að ná í áfengi
skiptir einnig miklu máli í
þessum efnum. Og við skulum
gera okkur ljóst að þessi þátt-
ur er ekki aðeins áður fjölda
veitinga- og sölustaða heldur
einnig því hvenær veitinga-
og sölutíminn er. Fjölgun út-
sölustaða hefur neikvæð áhrif
á neysluna, það er að segja
ýtir undir aukna áfengis-
neyslu“.
Áfengisvarnaráð.
Tveir stjórnarþingmenn
forstjórar framkvæmdastofnunar
Stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins samþykkti á fundi ný-
lega að ráða alþingismennina
Tómas Árnason og Sverri Her
mannsson forstjóra fyrir stofn
uninni samkvæmt lögum, sem
síðasta Alþingi samþykkti.
Voru þeir ráðnir með 5 at-
kvæðum sjálfstæðis- og fram-
sóknarmanna, en. aðeins einn
stjórnarmaður, Benedikt Grön
dal, greiddi atkvæði á móti.
Fulltrúi Alþýðubandalagsins
sat hjá.
Þá var samþykkt, að hinir
nýju forstjórar, sem báðir hafa
verið framkvæmdaráðsmenn
stofnunarinnar, skuli áfram
hafa bankastjóralaun, sérstök
laun fyrir fundasetu og hlunn
indi svo sem bifreiðastyrk.
Eru bankastjóralaun kr.
228.415 á mánuði, en fyrir
fundasetu fá þeir kr. 12.045 á
mánuði, samtals 240.460 krón-
ur auk hlunninda. Þar sem hin
ir nýráðnu forstjórar eru al-
þingismenn á fullum launum
(um 135.000 kr. á mánuði),
hljóta þeir aðenis 60% for-
stjóralaunanna, sem eru
144.277 kr. Ekki lágu fyrir
upplýsingar um hlunnindin,
sem fylgja. Fulltrúar Alþýðu-
flokksins og Alþýðubandalags
ins tóku ekki þátt í afgreiðslu
málsins.
Fréttatilkynning
Laugaskóla var slitið í 51.
sinn mánudaginn 24. maí. í
vetur stunduðu 124 nemendur
nám í skólanum í 5 bekkjar-
deildum.
5. bekkur var starfræktur í
fyrsta sinn með 11 nemendum
og luku þeir allir prófi. Hæstu
einkunn úr 5. bekk hlaut
Helgi Laxdal, Nesi, Grýtu-
bakkahreppi. Næsta vetur er
áformað að 5. bekkur starfi í
a. m. k. 3 deildum, bóknáms-
deild, viðskiptadeild og iðn-
Bílasala
Bergþórs
auglýsir
Vantar bíla á skrá, bæði
fólksbíla og vörubíla.
BÍLASALA BERGÞÖRS
Helgamagrastræti 10
sími 1 96 65.
Opið alla daga nema
sunnudaga kl. 9—7.
deild. Einnig verður nemend-
um gefinn kostur á námi í
Grunnskóla Í.S.Í.
Við skólaslit ávarpaði skóla
stjóri viðstadda og lýsti skóla-
starfinu. Tíu og tuttugu ára
gagnfræðingar færðu skólan-
um myndarlegar peningagjaf-
ir til kaupa á skíðalyftu. Síðan
var gestum boðið til sam-
drykkju.
Fastráðnir kennarar voru
níu auk skólastjórans, Sigurð-
ar Kristjánssonar.
STRIGASKÓR
GÚMMÍSKÓR
GÚMMÍSTÍGVÆL
FÖTBOLTASKÓR
VINNUKLOSSAR
VINNUFATNAÐUR
AMAKO
HERRA OG
SPORTVÖRUDEILD
Sími 2 17 30
íbúðin hf.
auglýsir
Utihurðalamir
Innihurðalamir
Skápalamir
Gluggalamir
Strangar lamir
Bílskúrshurðar járn
FRÁ ASSA
Bréfalúgur
Hurðabankarar
Hurðar skrár
Skraut handföng
Húsnúmer
Segulsmellur hvítar og
brúnar
Assa flex
Skápadrög, króm og plast
Hurðakeðjur
Hurðastopp
Skúffulæsingar
Loftristar
Svalahurðar læsingar
Skúffubrautír
Gólflistar 2—4” 2 litir
Fernisolía
Þinnir
Olíumálning
Plastmálning
MálningarrúIIur
Málningarpenslar
Ofnapenslar
Þakburstar
Sköft, tré og plast
Verksmiðjusápa
Flísalím
Gólfdúkalím
Trélím
Glugga kíttí
ÁI kítti
Gardínustengur
Gardínubrautir
Hringir og hjól
Borðar og nælur
WC haldir
Handklæðarör
Sápuskálar
Hilluberar
Fyrir hestamenn:
Stálnaglar
Hóffjaðrir
Leðursápa
Mél
Gúmíblöðkur
Silgjur
Kósatengur
Hófolía
Hóffeiti
Dínuskrúfur
Ibúðin hf.
Tryggvabraut 22
sími 2 24 74
4 — ALÞÝÐUMAÐURINN