Alþýðublaðið - 17.07.1923, Side 4
4
&L&W&HBLAS1B
hvorki í nefið né annars staðár,
þá lýsi ég hér með yfir sanaleik-
annm. Eftir minni reynslu sem
lögregluþjóns bæði í Aberdeen,
Glasgow og Sigíufirði álít ég
manninn haía vérið réttlausan, og
|>ar af leiðandi, ef maður væri í
landi þar sem nokkuð réttlætiværi
að finna, hefði Englendingurinn
átt að sæta þungri refsingu.
Reykjavík 12. júlí 1923.
John Josephson
Ex-policeman.
Lanðsmandsbanka'
málin.
Málaflutningsmaður ' ríkisins
hefir nú ákveðið að áfrýja Land-
mandsbankamálunum til hæsta-
réttar af beggja hálfu, hinna
sakfeldu og hins sýknaða. Lands-
rétturinn lagði 4/B málskostoaðar
á dánarbú Gliickstadts, em % á
Prior, Riis-Hanssn og Friis sam-
eiginlega, er skitfist jafnt niður
á, þó svo, ekki komi meira en
1000 kr. í hvers hlut. Má!s-
kostnað að öðru leyti greiði
ríkið. Eftir orðalagi á tilkynn-
ingu málaflutningsmannsins er
dánarbú Gltickstadts undanþegið
áfrýjuninni, en þáð mál er látið
á vald verjend-mna í málunum.
Umdagianogvegiiu.
Jafnaðarinannafélagsfundur
verður annað kvöld kl. 8 ^ í
í Ungmannafélagshúsinu.
Eftlr beiðni Hannesar kaup-
manns Ólafssonjír skal þess
getið, að Eyjólfur sá, er getið
var um í gær að verið hefði
hjá Hannesi og er Kristjánsson,
er fyrir meira en ári farinn frá
honum og því á engan hátt
lengur við verzlun Hannesar
riðinn. Eyjóllur er nú í þjóaustu
Ágústs Jóhannessonar og Péturs
Jóhannessonar; heimili Péturs er
á Njálsgötu 36 B, en ekki á
Ú t*b o ö
Tilboð óskast um að setja í hurðir og ganga frá þeim, ssm og setja
átellur, umgðrðir, sólbekki og gólflista, í hús Landsbankans hér.
Upplýsingar á teiknistofu húameistara rikisins
Skólavörðustíg 35, dagl. kl. xo —12 og 1—4.
Reykjavík 16. júlí 1923.
Vegna húsmeistara ríkisins,
pEinar Erlendsson.
Baldursgötu 31, eins og ' mis-
hermt var því miður í blaðínu
f gær.
Síldin veður uppi á Siglufirði,
en hér liggja togararnir bundnir
við garðinn. Dæmalaus er stjórnin
á íslenzkum atvinnuvegum.
Not og ónot.
Rekþrota-reiði. Að jafnaði er
ekki gaman að ráðabreytni reiðra
manna, en þó kemur stundum
fyrir, að hún er einna heizt spaugi-
leg, til dæmis, þegar menn í deil-
um þykjast hafa fundið eitthvert
þjóðþrifaráð til að bjarga málstað
sínum, og mótstöðumennirnir taka
svo þetta éinstaka ráð þeirra og
ýta við því, svo að það þyrlast
buitu og hverfur, af því að það
var í rauninni pkki annað en ryk,
sem hafði sezt á illa notuð og úr
sér gengin hugsunatfæri; skriflin
ganga þá af göflunum, og hrýtur
úr þeim óþveirinn á allar hliðar.
Sjá >Mo)gunblaðið< 14. júlí, 3.
siðu, 2. dálki neðan til.
stór og smá.
Hrísgrjón
í
Kanpfélagiin.
E.s. „Esjar
2 hraðfcrðir kringum ísland
fer skipið í ágúst í samar, sbr.
8, og 9. ferð áætlunarinnar, og
stendur hvor ferð 1 viku. Fyrri
fcrðin frá lleykjavík 8. ágúst,
tSI E.oykjavíkur 15. ágúst.'
Seluni fcrðin í’rá Iteykjavik
18. ágúst, til Reykjavíkur 25.
ágúst. Ft-rgjald áíramhaldandi
kringum land í þessum hring-
ferðum kostar:
á 1. farrými kr. 110,00
á 2. farrými kr. T5,00
Ekki skyidufæði, en farþegar
geta íengið ailar eða einstakar
máltíðir eltir vild.
Komið verður við á 8 höfnum.
Með því að fara npeð fyrri ferð-
inni, og verða e tir á einhverri
af viðkomuhöfnunuaa, geta far-
þegar staðið við f 10 daga og
komið svo heim aftur með seinni
ferðinni, en þá kostaí fargjaldið
eins og venjulega:
á 1. farrými kr. 126,00
á 2. farrymi kr. 85,00
Sauma ■ verkamannáföt; tek
þvotta. A, v. á.
Blómsturpotta selur Hannes
Jónsson Laugavegi 28.
Rltstjórl og ábyrgðarmaður: Hallbjörn HalSdórssoc.
Prentsmiðjs Hállgrfms Benadiktssonar, Bergstaðaatræti 19,