Heimdallur

Eksemplar

Heimdallur - 04.11.1933, Side 3

Heimdallur - 04.11.1933, Side 3
HEIMDALLUR 3 HEIMDALLUR Otgef. Samband ungra Sjálf- slæðismanna. Rilstjóri: Sigurður Kristjánsson. Auglýsingastjóri: Ulrik Z. Hansen. Ritstjórn og afgr.: Bankastræti 3 (Herbertsprent). Sími 4020. Kemur út annan hvern virkan dag, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga. Áskriftargjald kr. 1.00 4 mónuði. f lausasölu 10 aura eintakið. Herbertsprent 20 ára afmæli Morgunbtaðsins. Á fimmtudaginn (2. þ. m.) voru liðin 20 ár, síðan morgun- blaðið hóf göngu sína liér í Reykjavík. Blaðið hélt þetta afmæli sitt mjög hátiðlegt. Kom út sér- stakt afmælisnúmer af blaðinu 18 síður að stærð, skrautléga prentað með mörgum merkum greinum um æfi blaðsins og ltlaðamennsku almennt. Um kvöldið var veizla l'ögur í Oddfélagshöllinni og var þang- að boðið öllu starfsfólki blaðs- ins og mörgum vinum og stuðn- ingsmönnum þess fyr og síðar. Fór veizlan hið bezta fram. Blaðinu barst fjöldi árnaðar- óska í skevtum og bréfum. Útlönd. ísland í erlendum blöðum. I Svenska dagbladed 26. okt. | var birt grein með fyirsögninni „Islands sill exportered via Göteborg.Enormt uppsving i exporten av matjessill. — Stor kapitalbehov“. Eru í grein þess- ari gerð að umtalsefni viðtöl Ingvars Guðjónssonar við dönsk blöð, m. a. um aukningu á fram- leiðslu matjessildar hér á landi og líkurnar fyrir því að síldin verði aðallega flutt til Gauta- borgar í framtíðinni, i stað Kaupmannahafnar. Út af um- mælum Kaupmannahafnarblað- anna hefir svo Svenska Dag- bladet leitað álits síldarkaup- manna í Gautaborg, sem líta svo á, að líkurnar fyrir því, að um mikla aukningu inatjessíld- arinnar geli verið að ræða. Or- sakirnar til eftirspurnarinnar að undanförnu hafi m. a. verið þær að síldveiðar Skota hafi brugð- ist, en þegar það breytist megi búst við of mikilli frmleiðslu og verðfalli á matjessild. (FB). í „The Sunday Oregonian“, sem gefið er út í Portland, Ore- gon, U. S. A., hefir birst grein um Island, eftir Normu Ryland Graves. Greininni fylgir góð mynd af Reykjavík og ungri ■HglUlllBBIIIIIIIIBRIIIIIIISIIIIHH 1 H. P. Sósan 1 eykur lystina og gerir matinn bragðbetri. heildsölubirgðir H. Ólafsson &Bernhöft s BIIIIIIIIIIIIBBIIIIIIIIIIIIIBBIIIIIII stúlku héðan úr bænum, sem leiðlieindi greinarhöfundi, og gaf honum margar upplýsingar um land og þjóð, eins og grein- i'i ber nieð sér. (FB). Ráðherraskifti hjá Mussolini. Rómaborg 3. nóv. United Press. FB. Endurskipunarlagning rikis- stjórnarinnar er nú fyrir hönd- um. Balbo, Sorianno, Acerbo, Ercole og Dicrollanze biðjast lausnar, að þvi er fullvist er talið, Síðar. Eindurskipulagningin á ríkis- stjórninni er ekki talinn neinn stórviðburður hér. Breytingar slíkar sem þessar eru gerðar á ríkisstjórninni með nokkurra ára millibili og er tilgangur Mussolini sá, að gefa ungum efnismönnum tækifæri til þess að venjast stjórnarstörfum. Hann ætlar þó sjálfur að vera hermála-, flotamála- og flug- máalrðherra, þ. e. sameina allar þrjár greinar landvarnanna, en annar liöfuðmaður landvarn- anna, næstur landvarnarráðherr- anum, verður Badaglio forseti herráðsins. Önnur ráðlierrastörf verða falin ungum mönnum. Sfldarkaup Lett- lendinga af Bretum. Riga 3. nóv. United Press. FB. Frá því um miðbik júlímál- aðar s.l. hafa Lettlendingar keypt 50.000 tn. af Skotlands- I Drengja- I vetrarfrakkar eru komnir. Vöruhúsið. ■ : : ■ Rj ú pu r, Hangikjöt og ný egg. Kjötbúðin Herðubreið, Iiafnarstræti 18. Sími 1575. síld, samkvæmt gegfnum loforð- um, er viðskiftasamningur var gerður við Breta. Afvopnunarráðstefn- an árungurslaus. París 3. nóv. United Press. FB. Norman Davis er nú á förum til Bandaríkjanna. í viðtali við Paul Boncour lél hann þess get- ið, að þannig væri nú koinið á afvopunarstefnunni, að ekki væri von mikils árangurs, fyrr en samkomulagslíkurnar bötnuðu meðal Evrópuþjóða. Hinsvegar kvaðst Davis vera fús til þess að hverfa aftur til Genf, ef von væri um verulegan árangur. Kvöldfnndnr Alþingls 3. nóv. Sameinað Alþingi. Kl. 8 í gærkvöldi var fundur j aftur settur í sameinuðu þingi. ! Fór þá fyrst fram kosning for- seta sameinaðs þings, og lilaut kosningu Jón Baldvinsson með 21 atkvæði. Jón Þorláksson hlaut 20 atkvæði, en einn seðill var auður. Varaforseti var kosinn Þor- leifur Jónsson með 22 atkv. Magnús Jónsson fékk 19 atkv. Einn seðill var auður. Skrifarar voru kosnir Ingólf- ur Bjarnason og Pétur Hall- dórsson. I kjörbréfanefnd voru kosnir með hlutfallskosningu: Gísli Sveinsson, Pétur Magnússon, Bergur Jónsson, Einar Árnason og Haraldur Guðmundsson. Það bezta. Scandia eldavjel. Svendborgar þvottapottar. H. Biering. Laugaveg 3. Sími 4550. Næst voru kosnir 8 þingmenn til efri deildar. Hlutfallskosning var við höfð og lilutu þessir kosningu: Bjarni Snæbjörns- son, Magnús Jónsson, Pétur Magnússon, Eiríkur Einarsson, Einar Árnason, Ingvar Pálma- son, Páll Hermannsson og Björn Ivristjánsson. Neðri deild. Forsetakosning í neðri deild fór svo, að kosinn var Jörundur Brynjólfsson með 15 atkvæðum. Pétur Ottesen lilaut 13 atkvæði. Fyrri varaforsei var kosinn Ing- ólfur Bjarnason og annar vara- forseti Halldór Stefánsson með 15 atkv. Jón Pálmason hlaut 11 alkv. Einn seðill auður. Skrifarar voru kosnir Gísli Sveinsson og Bernharð Stefáns- son. Efri deild. Þar hlaul forsetakosningu Einar Árnason með hlutkesti milli hans og Péturs Magnússon- ar (þeir hlutu 7 atkv. hvor). 1. varaforseti var kosinn Ingv ar Pálmason með hlutkesti milli hans og frú Guðrúnar Lárus- dóttur. 2. varaforseti var kos- inn Páll Hermannsson með hlut kesti milli hans og Bjarna Snæ- björnssonar. Skrifarar voru kosnir Magn- ús Jónsson og Jón Jónsson frá Stóradal.

x

Heimdallur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimdallur
https://timarit.is/publication/604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.